Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Solid Clouds hf. Share Issue/Capital Change 2024

Feb 20, 2024

8579_rns_2024-02-20_03aa12f9-47ef-4916-9bde-a144128eb742.pdf

Share Issue/Capital Change

Open in viewer

Opens in your device viewer

Fréttatilkynning

20 February 2024 19:00:00 GMT

SOLID CLOUDS

Solid Clouds hf.: Niðurstöður úr forgangsréttar- og almennu hlutafjárútboði

Þann 6. febrúar 2024 tilkynnti Solid Clouds hf. („Solid Clouds“ eða „félagið“) að félagið hafi safnað bindandi áskriftarloforðum að nýjum hlutum að andvirði kr. 220.000.000 á áskriftargenginu kr. 2 á hvern hlut frá stjórn, stofnendum, stærstu hluthöfum og nýjum fjárfestum. Til að gæta jafnræðis meðal hluthafa var öllum hluthöfum boðið að skrá sig fyrir nýjum hlutum í félaginu á sömu kjörum.

Þann 20. febrúar kl. 16:00 lauk forgangsréttar- og almennu hlutafjárútboði á alls 90.000.000 nýjum hlutum Solid Clouds en hlutírnir voru boðnir til áskriftar á genginu kr. 2 á hvern hlut. Sem fyrr segir var markmið útboðsins að tryggja jafnræði hluthafa við fyrirhugaða hækkun hlutafjár.

Í útboðinu bárust áskriftir fjárfesta fyrir alls kr. 75.201.890 eða 37.600.945 nýjum hlutum. Samkvæmt því mun úthlutun í útboðinu vera að öllu leyti í samræmi við áskriftir fjárfesta. Í heildina hefur félagið safnað 295 milljónum króna í þessari fjármögnunarlotu.

Gert er ráð fyrir að fjárfestar geti nálgast upplýsingar um sína úthlutun eigi síðar en fyrir lok dags 22. febrúar með því að skrá sig inn á vef Arctica Finance: https://www.arctica.is/solidclouds-utbod/ með sömu auðkennum og notuð voru til áskriftarinnar. Gjaldági áskriftarloforða fjárfesta er 26. febrúar næstkomandi og fer afhending hinna nýju hluta fram eins fljótt og verða má eftir greiðslu en endanlegur tími afhendingar ræðst af afgreiðslufresti Fyrirtækjaskrár og Nasdaq CSD á Íslandi.

Arctica Finance hf. hefur veitt félaginu ráðgjöf í tengslum við söfnun áskriftarloforða og hefur umsjón með útboðinu, útgáfu og töku hinna nýju hlutabréfa til viðskipta ásamt því að annast innheimtu og uppgjör viðskiptanna í tengslum við útboðið.

“Þessi fjármögnun gerir félaginu kleift að gefa út Starborne Frontiers í byrjun apríl og hefja markaðssetningu leiksins. Starborne Frontiers hefur verið að fá góðar viðtökur og við erum mjög bjartsýn fyrir framhaldið”, segir Stefán Gunnarsson forstjóri Solid Clouds.

Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við

Fjárfestatengsl:
Stefán Þór Björnsson
[email protected]

Solid Clouds | Eidistorgi 17 | 170 Seltjarnarnes


Fréttatilkynning

20 February 2024 19:00:00 GMT

SOLID CLOUDS

Viðhengi

Solid Clouds hf: Niðurstöður úr forgangsréttar- og almennu hlutafjárútboði

Solid Clouds | Eidistorgi 17 | 170 Seltjarnarnes