AI assistant
Solid Clouds hf. — Capital/Financing Update 2026
May 18, 2026
8579_rns_2026-05-18_806e2541-0722-4efc-8fce-f0c4e49cb258.html
Capital/Financing Update
Open in viewerOpens in your device viewer
Solid Clouds hf. virkjar Áfanga 1
Solid Clouds hf. virkjar Áfanga 1
Solid Clouds hf. tilkynnir að frestskilyrði vegna útgáfu breytanlegra skuldabréfa hafi nú verið uppfyllt, eða eftirgefin skriflega af hálfu kröfuhafa. Nú þegar öll skilyrðin liggja fyrir mun félagið í beinu framhaldi virkja áfanga 1.
Solid Clouds hf. tilkynnir að frestskilyrði fyrir Áfanga 1 (Upphafsáfanga) vegna útgáfu breytanlegra skuldabréfa, sem samþykkt var á hluthafafundi félagsins þann 1. apríl 2026, hafi nú annaðhvort verið uppfyllt eða þeim afsaðað skriflega af hálfu kröfuhafa. Þar sem öll nauðsynleg skilyrði liggja fyrir mun félagið í beinu framhaldi virkja útgáfuferlið.
Meðal þeirra skilyrða sem þegar hafa verið uppfyllt er að hlutafé félagsins hefur verið lækkað um 80% til jöfnunar taps, sem var forsenda þess að eiginfjárstaðan uppfyllti kröfur laga um hlutafélög. Þá hefur rannsóknar- og þróunarverkefni í eigu félagsins hlotið staðfestingu sem veitir rétt til sérstaks frádráttar frá álögðum tekjuskatti. Hvað varðar skilyrðið um lágmarksarðsemi auglýsingakostnaðar (d30ROAS) fyrir apríl 2026, þá var það ekki uppfyllt en kröfuhafi hefur nýtt einhliða heimild sína til að falla skriflega frá því. Sú eftirgjöf takmarkast beinlínis við þessar tilteknu greiðslur vegna Áfanga 1.
Við virkjun Áfanga 1 og útgáfu tilheyrandi skuldabréfa mun útistandandi veðtryggt brúarlán að fjárhæð 30.000.000 kr., sem veitt var til bráðabirgðafjármögnunar vegna lausafjárstöðu, endurgreiðast að fullu í samræmi við skilmála fjármögnunarinnar .
Félagið mun nú afhenda kröfuhafa formlega tilkynningu um útgáfu (e. Drawdown Notice) ásamt fylgiskjölum. Kröfuhafi hefur í framhaldinu 10 virka daga til að yfirfara tilkynninguna og staðfesta útgreiðsludag (e. Drawdown Date) . Greiðsla áskriftarfjárhæðar skal berast innan 10 virkra daga þaðan í frá og verða skuldabréfin gefin út innan 3 virkra daga frá móttöku fullrar greiðslu.
Fjárfestatengsl:
Egill Örn Sigurjónsson, framkvæmdastjóriNetfang: [email protected]