Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Solid Clouds hf. Proxy Solicitation & Information Statement 2026

Apr 1, 2026

8579_rns_2026-04-01_4ed5ef31-0aa9-43b9-9524-f5d2aae1f4ad.html

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

SOLID CLOUDS ANNUAL GENERAL MEETING 16 APRIL 2026

SOLID CLOUDS ANNUAL GENERAL MEETING 16 APRIL 2026

Stjórn Solid Clouds hf. boðar til aðalfundar fimmtudaginn 16. apríl 2026, kl 16:00 í höfuðstöðvum félagsins, Vegmúla 2, 108 Reykjavík.

Dagskrá fundarins:

  1. Skýrsla stjórnar um hag félagsins og rekstur þess á liðnu starfsári
  2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram ásamt athugasemdum endurskoðenda þess til samþykktar
  3. Ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps félagsins á síðastliðnu rekstrarári og ákvörðun um arðgreiðslur
  4. Kosning stjórnar og varamanna í stjórn félagsins
  5. Kjör endurskoðanda félagsins
  6. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna félagsins
  7. Starfskjarastefna félagsins lögð fram til samþykktar
  8. Önnur mál

Fundargögn, þ.á m. tillögur stjórnar, eru aðgengileg á vefsetri félagsins, https://www.solidclouds.com/investors/agm2026.

Hluthafi og umboðsmaður hans getur skráð sig á aðalfundinn á fundarstað frá og með kl. 15:30 á fundardegi. Einnig er unnt að forskrá sig til kl. 14:00 á fundardegi með því að senda tölvupóst með nafni og kennitölu á netfangið [email protected]. Umboðsmaður sem hyggst skrá sig með tölvupósti þarf að framvísa undirrituðu umboði og útfylla umboðseyðublað og senda á sama netfang.

Ekki verður boðið upp á rafræna þátttöku á fundinum en hluthafa gefst kostur á að láta umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd enda framvísi umboðsmaður undirrituðu umboði frá hluthafa, sbr. framangreint.

Til þess að tillaga frá hluthafa, sem leggja á fyrir á fundinum, verði tekin þar til umræðu verður að skila tillögunni til stjórnar félagsins á netfangið [email protected] í síðasta lagi fimm dögum fyrir fundinn.

For further information please contact


Investor Relations:

Egill Örn Sigurjónsson

[email protected]