AI assistant
Solid Clouds hf. — Proxy Solicitation & Information Statement 2026
Mar 25, 2026
8579_rns_2026-03-25_225b0607-d1b4-4c60-88e1-15dfef5dbdab.html
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
SOLID CLOUDS HF. - boðun hluthafafundar
SOLID CLOUDS HF. - boðun hluthafafundar
Hluthafafundur Solid Clouds hf. verður haldinn kl. 16:00 miðvikudaginn 1. apríl 2026, í höfuðstöðvum félagsins að Vegmúla 2, 108 Reykjavík, Íslandi.
Vísað er til tilkynningar sem birt var 24. mars 2026 um samkomulag um fjármögnun með fyrirvara um samþykki hluthafafundar.
Meðfylgjandi er fundarboð með dagskrá hluthafafundar og tillögum stjórnar, samþykktum félagsins með auðmerktum breytingum, eintaki af áskriftarsamningi, breytanlegu skuldabréfi, sérfræðiskýrslu KPMG ehf. um sanngirni kjara björgunarfjármögnunar og annarra skjala sem varða hluthafafundinn.
Jafnframt er vakin sérstök athygli á að frestur til að lýsa yfir áhuga á þátttöku í björgunarfjármögnun er til klukkan 16:00, mánudaginn 30. mars 2026.
Loks er vakin athygli á upplýsingum í fundarboði um fyrirkomulag rafrænnar forskráningar.
Áhættuþættir
Ef ekki tekst að ljúka fjármögnun er hætta á að félagið verði ógjaldfært. Fjárfestum er bent á að kynna sér stöðu félagsins vel áður en ákvarðanir eru teknar um kaup eða sölu hlutabréfa.
Félagið mun upplýsa markaðinn um framvindu mála eftir því sem við á.
Nánari upplýsingar:
Egill Örn Sigurjónsson, framkvæmdastjóriNetfang: [email protected]