Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Solid Clouds hf. Proxy Solicitation & Information Statement 2024

Dec 20, 2024

8579_rns_2024-12-20_351c8ec1-d0fc-49fe-ae1f-a9c0bcfb3cc9.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Fréttatilkynning

20 December 2024 15:57:00 GMT

SOLID CLOUDS

Hluthafundur Solid Clouds hf. 10. januar 2025

Stjórn Solid Clouds hf., kt. 600913-2550, boðar til hluthafundar föstudaginn 10. januar 2025, kl. 16:00 i höfuðstöðvum félagsins, Eiðistorgi 17, 170 Seltjarnarnesi.

Stjórn Solid Clouds hf., kt. 600913-2550, boðar hér með til hluthafundar föstudaginn 10. januar 2025, kl. 16:00 i höfuðstöðvum félagsins, Eiðistorgi 17, 170 Seltjarnarnesi.

Dagskrá fundarins:

  1. Tillaga um að félagið gefi út skuldabréf með breytirétti og heimild stjórnar til að gefa út nytt hlutafé fyrir allt að 200.000.000 kr. að nafnverði til að gefa út hluti til að mæta kröfum vegna skuldabréfanna.
  2. Heimild til handa stjórn til að hækka hlutafé um allt að 300.000.000 hluti að nafnverði með útgáfu nýrra hluta (án forgangsréttar).
  3. Heimild til handa stjórn til að hækka hlutafé um allt að 100.000.000 hluti að nafnverði með útgáfu nýrra hluta (með forgangsrétti).
  4. Tillaga um að fella brott núverandi ákvæði 4. mgr. 4.gr. samþykkta félagsins.
  5. Önnur mál

Dagskrá fundarins og fundargögn, eru að gengileg á vefsetri félagsins, https://www.solidclouds.com/investors/egm2025. Tillögur fyrir að alfund eru viðhengi með fundarboði þessu.

Hluthafi og umboðsmaður hans getur skráð sig á hluthafundinn á fundarstað frá og með kl. 14:30 á fundardegi. Einnig er unnt að forskrá sig til kl. 13:00 á fundardegi með því að senda tölvupóst með nafni og kennitölu á netfangið [email protected]. Umboðsmaður sem hyggst skrá sig með tölvupósti þarf að framvisa undirrituðu umboði og útfylla umboðseyðublað og senda á sama netfang.

Ekki verður boðið upp á rafræna þátttöku á fundinum en hluthafa gefst kostur á að láta umboðsmann sækja hluthafundinn fyrir sina hönd enda framvisi umboðsmaður undirrituðu umboði frá hluthafa, sbr. framangreint.

Til þess að tillaga frá hluthafa, sem leggja á fyrir fundinn, verði tekin þar til umræðu verður að skila tillögunni til stjórnar félagsins á netfangið [email protected] i síðasta lagi fimm dögum fyrir fundinn.

Að lokinni dagskrá fundarins verður boðið upp á léttar veitingar í húsakynnum Solid Clouds hf.

Seltjarnarnes, 20. desember 2024

F.h. stjórnar Solid Clouds hf.

Eggert Árni Gislason

stjórnarformaður

Solid Clouds

Eidistorgi 17

170 Seltjarnarnes


Fréttatilkynning

20 December 2024 15:57:00 GMT

SOLID CLOUDS

Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við

Fjárfestatengsl:

Stefán Þór Björnsson
[email protected]

Víðhengi

  • Hluthafafundur Solid Clouds hf. 10. janúar 2025
  • SOLID CLOUDS Dagskrá Og Tillögur Fyrir Hluthafafund Janúar 2025

Solid Clouds | Eidistorgi 17 | 170 Seltjarnarnes