Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Solid Clouds hf. Capital/Financing Update 2026

Mar 12, 2026

8579_rns_2026-03-12_d1491340-28b8-4c61-98ad-79deb7cb724f.html

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

Solid Clouds hf. - Nýjar fréttir vegna viðræðna við fjárfesta og móttaka viljayfirlýsingar

Solid Clouds hf. - Nýjar fréttir vegna viðræðna við fjárfesta og móttaka viljayfirlýsingar

Solid Clouds hf. (First North: SOLID) vísar til tilkynningar félagsins frá 9. mars 2026 um viðræður við fjárfesta vegna mögulegrar fjármögnunar.

Staða upphaflegra viðræðna

Stjórn félagsins tilkynnir að viðræður við þá fjárfesta sem upphaflega var rætt við hafa ekki skilað árangri. Lausafjárstaða félagsins er þröng og félagið stendur frammi fyrir verulegri fjárhagslegri óvissu.

Móttaka viljayfirlýsingar

Félagið hefur móttekið viljayfirlýsingu frá félaginu 1961 ehf., um björgunarfjármögnun. Viljayfirlýsingin felur í sér:

  • Neyðarlán að fjárhæð 30 milljónir króna til að tryggja áframhaldandi rekstur og launagreiðslur til skamms tíma.
  • Heildarfjármögnun að fjárhæð allt að 400 milljónir króna í formi breytanlegra skuldabréfa í þremur áföngum.

Viljayfirlýsingin er háð ákveðnum skilyrðum, þar á meðal:

  • Samþykki hluthafafundar á lækkun hlutafjár um 80%
  • Samþykki hluthafafundar á útgáfu breytanlegra skuldabréfa og heimild til hlutafjárhækkunar
  • Einkaviðræður við 1961 ehf. meðan á ferlinu stendur.

Hagsmunatengsl

Stjórnarformaður félagsins, Eggert Árni Gíslason, er annar tveggja eiganda félagsins 1961 ehf., sem lagði fram viljayfirlýsinguna. Hann hefur vikið sæti við umfjöllun stjórnar um viljayfirlýsinguna, sbr. 72. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Varaformaður stjórnar leiðir viðræður við 1961 ehf.

Næstu skref

Stjórn félagsins hefur fjallað um og samþykkt viljayfirlýsinguna og mun boða til hluthafafundar til að hluthafar félagsins geti tekið afstöðu til tilboðsins og tillagna sem tengjast fjármögnuninni. Nánari upplýsingar um dagskrá og tímasetningu hluthafafundar verða birtar í fundarboði.

Viðvörun til fjárfesta

Lausafjárstaða félagsins er þröng. Ef fjármögnun næst ekki er hætta á að félagið geti ekki staðið við skuldbindingar sínar og að stjórn verði skylt að óska eftir gjaldþrotaskiptum. Hlutabréf félagsins eru á markaðstorgi fjármálagerninga (First North Iceland) og fjárfesting í bréfum félagsins er áhættusöm. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér stöðu félagsins vel áður en þeir taka fjárfestingarákvarðanir.

Nánari upplýsingar:


Egill Örn Sigurjónsson, framkvæmdastjóriNetfang: [email protected]