AI assistant
Solid Clouds hf. — Capital/Financing Update 2026
Mar 4, 2026
8579_rns_2026-03-04_4fa28c07-1958-405f-baaf-33e243a1b205.html
Capital/Financing Update
Open in viewerOpens in your device viewer
Solid Clouds hf.: Viðræður við fjárfesta hafnar vegna mögulegrar fjármögnunar
Solid Clouds hf.: Viðræður við fjárfesta hafnar vegna mögulegrar fjármögnunar
Solid Clouds hf. (Nasdaq First North Growth Market Iceland) hefur hafið viðræður við fjárfesta vegna mögulegrar fjármögnunar með útgáfu breytanlegra skuldabréfa.
Með tilkynningu þessari fylgir kynning á stöðu félagsins, þar sem gerð er m.a. grein fyrir verulegri aukningu á virkni spilara í kjölfar nýjustu uppfærslu leikjarins Starborne Frontiers og vaxandi arðsemi markaðsstarfs félagsins (e. Return on Ad Spend), sem er forsenda aukins umfangs markaðssetningar.
Stefnt er að því að ljúka fjármögnun á fyrri hluta annars ársfjórðungs.
Upplýsingar um fyrirhugaða fjármögnun sem kunna að teljast innherjaupplýsingar verða einungis veittar þeim fjárfestum sem hafa veitt fyrirfram samþykki fyrir móttöku slíkra upplýsinga (wall-crossing) í samræmi við reglur um markaðsþreifingar skv. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 596/2014 (MAR), sbr. lög nr. 60/2021. Fjárfestar sem hafa áhuga á frekari upplýsingum vegna þátttöku geta sett sig í samband við félagið:
Tengiliður / fyrir frekari upplýsingar:
Egill Örn Sigurjónsson, framkvæmdastjóri
Árétting: Tilkynning þessi felur hvorki í sér skuldbindandi tilboð af hálfu félagsins til sölu né áskorun um kaup á fjármálagerningum. Félagið mun upplýsa markaðinn nánar þegar niðurstaða markaðsþreifinga liggur fyrir og, eftir atvikum, þegar endanlegir skilmálar fjármögnunar hafa verið samþykktir.