Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Solid Clouds hf. Capital/Financing Update 2025

Jan 23, 2025

8579_rns_2025-01-23_264f54eb-fac9-4553-b747-9052a1de8e97.pdf

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

Upplýsingar um fjármögnun Solid Clouds

Hluthafar Solid Clouds hf. (einnig "félagið") hafa skráð sig fyrir kaupum á allri útgáfu skuldabréfa félagsins, að höfuðstólsfjárhæð 175 milljónir króna, með rétti til að breyta kröfum samkvæmt þeim í hluti í félaginu. Öllum hluthöfum félagsins var boðið að skrá sig með tilkynningu og frétt á Nasdaq First North 10. janúar sl.

Frestur hluthafa til að skrá sig fyrir kaupum á skuldabréfi með breytirétti rennur út í lok morgundagsins, 24. janúar 2025.

Útgáfan var samþykkt á hluthafafundi félagsins 10. janúar sl. Skuldabréfin eru á gjalddaga 15. september 2025 og bera 15% fasta vexti og hafa breytirétt í hluti í félaginu miðað við gengið 1 kr. fyrir hvern hlut nafnverðs. Þá mæla bréfin fyrir um breytiskyldu skuldabréfaeigenda að nánari skilyrðum uppfylltum.

Þá liggur fyrir að viðræður við hæfa fjárfesta um frekari fjármögnun á félaginu er hófust í nóvember sl. halda áfram næstu vikur í kjölfar þessa áfanga í fjármögnun félagsins. Samhliða fyrirhugaðri fjármögnun hæfra fjárfesta verður hluthöfum boðið að skrá sig fyrir nýju hlutafé í félaginu að nafnverði allt að 100 m.kr. í samræmi við samþykkt hluthafafundar 10. janúar sl.

Líkt og áður var upplýst standa væntingar stjórnar og framkvæmdastjórnar félagsins til þess að í kjölfar fyrrnefndrar fyrirhugaðrar fjármögnunar verði fjármögnun félagsins tryggð út árið 2025. Þá gera stjórn og stjórnendur sér vonir um að félagið verði farið að skila jákvæðu sjóðstreymi á seinni hluta ársins 2026.

Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við

Fjárfestatengsl: Stefán Þór Björnsson [email protected]

Viðhengi

Upplýsingar um fjármögnun Solid Clouds