Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Solid Clouds hf. Capital/Financing Update 2025

Jan 10, 2025

8579_rns_2025-01-10_99c4eb77-e4b8-4455-90b1-6630f47c02dd.pdf

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

Nýjar upplýsingar um fjármögnun félagsins

Á hluthafafundi Solid Clouds hf. sem lauk nú um kl. 17:00 hinn 10. janúar 2025, var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um útgáfu skuldabréfa að höfuðstólsfjárhæð allt að 175 milljónir króna, með rétti til að breyta kröfum samkvæmt þeim í hluti í félaginu. Öllum hluthöfum félagsins verður boðið að skrá sig fyrir kaupum á skuldabréfum með breytirétti. Samkvæmt tillögu stjórnar fyrir hluthafafund munu bréfin hafa breytirétt í hluti í félaginu miðað við gengið 1 kr. fyrir hvern hlut nafnverðs. Þá er lagt til að stjórn fái heimild til að hækka hlutafé félagsins um allt að 200 milljónir hluta vegna útgáfu hluta í tengslum við nýtingu breytiréttar. Skuldabréfin eru á gjalddaga 15. september 2025 og bera 15% fasta vexti.

Þá voru tillögur stjórnar um að stjórn fái heimild hluthafa til að hækka hlutafé félagsins um allt að 300 milljónir hluta vegna framhaldsviðræðna við hæfa fjárfesta og að stjórn fái heimild til að hækka hlutafé félagsins um allt að 100 milljónir hluta, til að bjóða hluthöfum að skrá sig fyrir nýjum hlutum í félaginu, báðar samþykktar.

Stefnt er að því að þær viðræður sem hafa átt sér stað við hæfa fjárfesta, um frekari fjármögnun á félaginu og hófust í nóvember sl., ljúki á fyrsta ársfjórðungi og samhliða verði hluthöfum boðið að skrá sig fyrir nýju hlutafé í félaginu að nafnverði allt að 100 m.kr. Í kjölfarið verði fjármögnun á félaginu tryggð út árið 2025. Félagið hafði áður upplýst að það hefði tryggt sér skammtímafjármögnun a.m.k. út janúar 2025.

Stjórn félagsins stefnir því í heildina að því að sækja um 400 milljónir íslenskra króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Áætla stjórn og stjórnendur, út frá rekstraráætlun félagsins, að sú fjárhæð dugi því út árið 2025. Þá áætla stjórn og stjórnendur að félagið muni þurfa viðbótar 100-200 milljóna fjármögnun í byrjun árs 2026 og að sú fjárhæð dugi fram á seinni hluta ársins 2026 þegar stjórn og stjórnendur gera sér vonir um að félagið verði farið að skila jákvæðu stjóðstreymi.