AI assistant
Solid Clouds hf. — Capital/Financing Update 2025
Jan 23, 2025
8579_rns_2025-01-23_821d7e53-960f-40ef-a957-f3f13d5d3f02.pdf
Capital/Financing Update
Open in viewerOpens in your device viewer
Fréttatilkynning
23 January 2025 16:30:00 GMT
SOLID CLOUDS
Upplysingar um fjármögnun Solid Clouds
Hluthafar Solid Clouds hf. (einnig „félagið“) hafa skráð sig fyrir kaupum á allri útgáfu skuldabréfa félagsins, að höfuðstólsfjárhæð 175 milljónir króna, með rétti til að breyta kröfum samkvæmt þeim í hluti í félaginu. Öllum hluthöfum félagsins var boðið að skrá sig með tilkynningu og frétt á Nasdaq First North 10. janúar sl.
Frestur hluthafa til að skrá sig fyrir kaupum á skuldabréfi með breytirétti rennur út í lok morgundagsins, 24. janúar 2025.
Útgáfan var samþykkt á hluthafafundi félagsins 10. janúar sl. Skuldabréfin eru á gjalddaga 15. september 2025 og bera 15% fasta vexti og hafa breytirétti hluti í félaginu miðað við gengið 1 kr. fyrir hvern hlut nafnverðs. Þá mæla bréfin fyrir um breytiskyldu skuldabréfaeigenda að nánari skilyrðum uppfylltum.
Þá liggur fyrir að viðræður við hæfa fjárfesta um frekari fjármögnun á félaginu er höfust í növember sl. halda áfram næstu víkur í kjólfar þessa áfanga í fjármögnun félagsins. Samhliða fyrirhugaðri fjármögnun hæfra fjárfesta verður hluthöfum boðið að skrá sig fyrir nýju hlutafé í félaginu að nafnverði allt að 100 m.kr. í samræmi við samþykkt hluthafafundar 10. janúar sl.
Líkt og áður var upplýst standa væntingar stjórnar og framkvæmdastjórnar félagsins til þess að í kjólfar fyrnnefndrar fyrirhugaðrar fjármögnunar verði fjármögnun félagsins tryggð út árið 2025. Þá gera stjórn og stjórnendur sér vonir um að félagið verði farið að skila jákvæðu sjóðstrey mi á seinni hluta ársins 2026.
Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við
Fjárfestatengsl:
Stefán Þór Björnsson
[email protected]
Viðhengi
Upplýsingar um fjármögnun Solid Clouds
Solid Clouds
Eidistorgi 17
170 Seltjarnarnes