Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Solid Clouds hf. Capital/Financing Update 2023

Sep 8, 2023

8579_rns_2023-09-08_6c85c5c2-4bcd-48fb-8451-694baccd88c8.pdf

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

Fréttatilkynning

08 September 2023 13:33:00 GMT

SOLID CLOUDS

Solid Clouds hf. frestar áformum um hlutafjáraukningu

Nýjasti leikur Solid Clouds, Starborne Frontiers, fór í útgáfuferli (e. Soft launch) í febrúar á þessu ári.

Útgáfuferlið þjónar þeim tilgangi að stilla af leikinn, bæta við nýju efni og greina kauphegðun spilara með það að markmiði að vera tilbúin fyrir markaðssetningu leiksins sem áformuð er á næsta ári. Leikurinn hefur fengið góð viðbrögð og dóma hjá notendum bæði hjá Google og Apple app-búðunum. Eru þetta góð fyrirheit um að leikurinn muni ná árangri. Til þess að sækja fjármagn til útgáfu og markaðssetningar samdi félagið við Arion Banka um að vera umsjónaráðili að hlutafjáraukningu. Fjármögnunarumhverfi nýskópunarfyrirtækja er um þessar mundir ekki hagfellt. Stjórn Solid Clouds hefur því ákveðið að fresta áformum sinum um hlutafjáraukningu, sbr. tilkynning dags. 31. ágúst 2023, en áskriftir í útboðinu voru undir væntingum stjórnar. Mun stjórn því leggja til við hluthafafund félagsins kl. 16:00 í dag að afturkalla tillögu þar um. Félagið vinnur núna að nýrri fjármögnunaráætlun.

Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við

Fjárfestatengsl:

Stefán Þór Björnsson
[email protected]

Viðurkenndur ráðgjafi:

Arion banki, Erlendur Magnús Hjartarson
[email protected]

Viðhengi

Solid Clouds hf. frestar áformum um hlutafjáraukningu

Solid Clouds

Eidistorgi 17

170 Seltjarnarnes