Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Solid Clouds hf. Audit Report / Information 2024

Mar 28, 2025

8579_10-k_2025-03-28_9355b47f-ecb9-48ea-8371-8638fdf899bd.pdf

Audit Report / Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Davíð Gunnarsson Kt. 2407805939 Dags. 28.3.2025 16:06:04 Ástæða: Undirritun

Stefán Gunnarsson Kt. 1204765649 Dags. 28.3.2025 16:10:12 Ástæða: Undirritun

Svanhvít Friðriksdóttir Kt. 1910785359 Dags. 28.3.2025 16:06:25 Ástæða: Undirritun Elías Skúli Skúlason Kt. 1608653189 Dags. 28.3.2025 16:12:13 Ástæða: Undirritun

Andrea Olsen Kt. 1212802999 Dags. 28.3.2025 16:06:49 Ástæða: Undirritun Signý Magnúsdóttir Kt. 2202785229 Dags. 28.3.2025 16:39:09 Ástæða: Undirritun

Eggert Árni Gíslason Kt. 2407612119 Dags. 28.3.2025 16:07:13 Ástæða: Undirritun

Solid Clouds hf

Ársreikningur 2024

Kt: 600913-2550 Eiðistorgi 17 170 Seltjarnarnes

Skýrsla og undirritun stjórnar og framkvæmdastjóra 3
Áritun óháðs endurskoðanda 6
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ársins 2024 8
Efnahagsreikningur 9
Eiginfjáryfirlit 10
Sjóðstreymi 11
Skýringar 12

Solid Clouds hf var stofnað árið 2013. Tilgangur þess er framleiðsla og markaðssetning fjölspilunarleikja.

Þessi ársreikningur er gerður í samræmi við IFRS (alþjóðlega reikningsskilastaðla) eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga nr. 3/2006. Í samræmi við staðla eignfærir félagið tæknigrunn sinn og þróunarkostnað tölvuleikja.

Breytingar varðandi stjórn og lykilstarfsmenn

Á aðalfundi 2024 var Eggert Árni Gíslason, kjörinn formaður stjórnar og Davíð Gunnarsson, skipaður varaformaður stjórnar.

Andrea Olsen tók sæti í stjórn á aðalfundi 2024. Hún hefur víðtæka reynslu sem fyrirtækjalögfræðingur, m.a. hjá LOGOS lögmannsstofu. Andrea er framkvæmdastjóri eignarhaldsfélagsins Frigus ehf og situr í nokkrum öðrum stjórnum fyrir hönd þess.

Skúli Skúlason tók sæti í stjórn á aðalfundi 2024. Hann er með viðamikla reynslu sem fjárfestir og stjórnarmaður í fjölda félaga. Hann er framkvæmdastjóri Express ehf.

Ingólfur Ævarsson kom inn í stjórn á aðalfundi 2024 sem varamaður. Hann hefur gegnt lykilhlutverkum í leikjaiðnaðinum hjá CCP hf. og 1939 Games ehf. Ingólfur er forstjóri leikjafyrirtækisins Porcelain Fortress ehf.

Rekstur og fjárhagsleg staða

Tap á árinu 2024 nam 404,5 millj. kr. (tap 2023: 83,1 millj. kr.). Heildareignir námu 1.174,7 millj. kr. í lok árs 2024 (2023: 1.217,7 millj. kr.) og nam eigið fé 1.072,8 millj. kr. á sama tíma (2023: 1.175,1 millj. kr.). Fjöldi ársverka var 20 á árinu 2024 samanborið við 21 á árinu 2023.

Breyting á afkomu félagsins á árinu 2024 samanborið við árið 2023 skýrist einkum af auknum tekjum, hærri markaðskostnaði, auknum afskriftum á þróunarkostnaði samhliða eignfærslu og gjaldfærslu tekjuskattseignar, sjá nánar í skýringu 10.

Í febrúar 2024 seldi Solid Clouds hf nýtt hlutafé í lokuðu og almennu útboði að nafnverði 147,6 millj. kr. og nam söluandvirðið 295,2 millj. kr.

Handbært fé Solid Clouds hf í lok 2024 nam 14,0 millj. kr. Félagið lauk útgáfu á 175,0 millj. kr. umbreytanlegu skuldabréfi í febrúar 2025 en hluti af því eða 80,5 millj. kr. var nýttur til að endurgreiða hluthafalán. Solid Clouds hf gerir ráð fyrir að fá um 135,4 millj. kr. endurgreiðslu frá Rannís vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar í byrjun nóvember. Solid Clouds hf hefur frá því í nóvember 2024 verið að vinna í að sækja viðbótarfjármagn sem ráðgert er að dugi félaginu út árið 2025.

Beinar auglýsingar eru lykilþáttur í tekjuöflun Solid Clouds hf, þar sem þær gera félaginu kleift að ná markvissum árangri með mælanlegum hætti og spá fyrir með nokkurri vissu um þróun framtíðartekna. Kostnaður við auglýsingar eru því ekki einungis útgjaldaliður, heldur mynda þær óefnislega eign sem ekki er eignfærð í ársreikningi í samræmi við kröfur IFRS staðla. Félagið auglýsti fyrir 134,2 millj. kr. á árinu 2024. Tekjur vegna þeirra auglýsinga voru 99,2 millj. kr. á árinu 2024 en áætlað er að tekjur næstu ára vegna auglýsinga á árinu 2024 verði um 88,0 millj. kr. Auglýsingakostnaður ársins 2024 ætti því að skila um 187,2 millj. kr. í tekjur á nokkrum árum.

Í apríl 2024 byrjaði Solid Clouds hf að auglýsa Starborne Frontiers í meira mæli auk þess sem PC útgáfa af leiknum var gefin út. Í október kom leikurinn út á Steam, stærstu leikjaveitu heims. Í nóvember kom út Imperium viðbótin við Starborne Frontiers.

Á árinu 2024 náði félagið miklum árangri í vexti. Tekjur jukust um 1.264% frá janúar til desember. Mánaðarlegum virkum notendum (e. Monthly Active Users, MAU) fjölgaði um 344,3% og daglegum spilurum (e. Daily Active Users, DAU) um 394% fyrir sama tímabil.

Skýrsla og undirritun stjórnar og framkvæmdastjóra, frh.

Sá lykilmælikvarði sem félagið horfir mest á er arðsemi auglýsinga (e. Return on Ad Spend, ROAS). Arðsemi auglýsinga á fyrsta ársfjórðungi 2024 var um 84% á 360 dögum en félagið áætlar að sama hlutfall fyrir síðasta ársfjórðung ársins verði um 150% á 360 dögum. Langtímamarkmið félagsins er að arðsemi auglýsinga verði um 400% á um fimm árum.

Meginmarkmið Solid Clouds hf á árinu 2025 er að auglýsa meira og á sama tíma viðhalda ásættanlegri arðsemi auglýsinga. Í því samhengi er félagið að fara að byrja að auglýsa á nýjum markaðstorgum á borð við Applovin, Mintegral og Ironsource. Þá er stefnt að frekari alþjóðavæðingu leiksins með þýðingu á fleiri tungumál á fyrri hluta ársins.

Áhættuþættir

Solid Clouds hf treystir á beina markaðssetningu til að afla viðskiptavina og tekna. Félagið þarf að geta auglýst fyrir tiltekna fjárhæð og á sama tíma að viðhalda ásættanlegri arðsemi auglýsinga til að ná jákvæðri rekstrarafkomu. Auk þess sem fjármagna þarf markaðssókn félagsins.

Hluthafar

Hluthafar í árslok 2024 voru 1.608 en þeir voru 1.581 í ársbyrjun og hefur því fjölgað um 27 á árinu. Eftirtaldir eru tíu stærstu hluthafar í árslok 2024 með samanburði við sömu hluthafa í árslok 2023:

2024 2023
8,1% 1,1%
6,8% 10,4%
6,0% 0,0%
4,5% 3,8%
3,7% 6,6%
3,3% 1,6%
3,0% 0,0%
2,6% 4,1%
2,5% 0,5%
2,4% 0,2%
57,1% 71,7%

Hlutafé

Skráð hlutafé félagsins nam 331,8 millj. kr. í árslok 2024. Hver hlutur er 1 króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda. Nánari upplýsingar er að finna í skýringu 12.

Stjórnarhættir

Stjórn Solid Clouds hf leggur áherslu á að viðhalda góðum stjórnarháttum og fylgja leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands, Nasdaq OMX Iceland hf og Samtökum atvinnulífsins. Stjórnin hefur sett sér starfsreglur sem skilgreina valdsvið sitt og framkvæmdastjóra með skýrum hætti og hafa að geyma ákvæði um fundarsköp, hæfi stjórnarmanna, þagnarskyldu, upplýsingagjöf framkvæmdastjóra til stjórnar og önnur atriði. Kynjahlutfall í stjórn félagsins er tvær konur (40%) og þrír karlar (60%).

Meirihluti stjórnarmanna telst óháður félaginu, daglegum stjórnendum og helstu hluthöfum þess. Ítarlegar upplýsingar um stjórnarmenn má finna á vefsetri félagsins, www.solidclouds.com.

Mismunun á grundvelli kyns, uppruna, litarháttar, fötlunar, kynhneigðar, kynvitundar, kynþáttar, menningar, trúarbragða eða annarrar stöðu er ekki liðin hjá Solid Clouds hf.

Skýrsla og undirritun stjórnar og framkvæmdastjóra, frh.

Yfirlýsing stjórnar og framkvæmdastjóra

Samkvæmt bestu vitneskju er það álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu félagsins á árinu 2024, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu þess 31. desember 2024 og breytingu á handbæru fé í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir eru staðfestir af Evrópusambandinu.

Jafnframt er það álit okkar að ársreikningurinn og skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri félagsins, stöðu þess og helstu áhættuþætti og óvissu sem félagið stendur frammi fyrir.

Stjórn og framkvæmdastjóri Solid Clouds hf hafa í dag rætt ársreikning félagsins fyrir árið 2024 og staðfesta hann með undirritun sinni. Stjórn og framkvæmdastjóri leggja til við aðalfund félagsins að samþykkja ársreikninginn.

Seltjarnarnes, 28. mars 2025

Stefán Gunnarsson, framkvæmdastjóri

Eggert Árni Gíslason, stjórnarformaður

Davíð Gunnarsson, varaform. stjórnar

Andrea Olsen, stjórnarmaður

Skúli Skúlason, stjórnarmaður

Svanhvít Friðriksdóttir, stjórnarmaður

Solid Clouds hf - Ársreikningur 2024

Til stjórnar og hluthafa í Solid Clouds hf

Álit

Við höfum endurskoðað meðfylgjandi ársreikning Solid Clouds hf fyrir árið 2024. Ársreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikning, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, yfirlit um sjóðstreymi, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.

Það er álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins á árinu 2024, efnahag þess 31. desember 2024 og breytingu á handbæru fé á árinu 2024, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu, viðbótar kröfur í lögum um ársreikninga og tengdum reglugerðum.

Grundvöllur fyrir áliti

Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt þeim stöðlum er nánar lýst í kaflanum um ábyrgð endurskoðanda hér að neðan. Við erum óháð Solid Clouds hf í samræmi við alþjóðlegar siðareglur fyrir endurskoðendur sem og aðrar siðareglur sem eru viðeigandi við endurskoðun á Íslandi, og höfum við uppfyllt ákvæði þeirra reglna. Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægilegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.

Rekstrarhæfi

Án þess að breyta áliti okkar vekjum við athygli á skýringu 2e í ársreikningnum sem skýrir frá því að í árslok 2024 sé handbært fé félagsins 14,0 millj. kr. og veltufjárskuldir umfram veltufjáreignir eru 66,8 millj. kr. Eins og fram kemur í skýringunni bendir þetta til þess að óvissa sé fyrir hendi sem kann að hafa áhrif á rekstrarhæfi félagsins.

Aðrar upplýsingar

Stjórn og framkvæmdastjóri bera ábyrgð á öðrum upplýsingum. Aðrar upplýsingar innifela í sér skýrslu og undirritun stjórnar og framkvæmdastjóra.

Álit okkar á ársreikningnum nær ekki yfir aðrar upplýsingar og við ályktum hvorki um, né veitum staðfestingu á efni þeirra ef frá er talin sú staðfesting varðandi skýrslu stjórnar sem fram kemur hér að neðan.

Í tengslum við endurskoðun okkar berum við ábyrgð á að lesa framangreindar aðrar upplýsingar og skoða hvort þær séu í verulegu ósamræmi við ársreikninginn eða þekkingu okkar sem við höfum aflað við endurskoðunina eða virðast að öðru leyti innifela verulegar skekkjur. Ef við komumst að þeirri niðurstöðu, byggt á þeirri vinnu sem við höfum framkvæmt, að það séu verulegar skekkjur í öðrum upplýsingum ber okkur að skýra frá því. Það er ekkert sem við þurfum að skýra frá hvað þetta varðar.

Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 104 gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga staðfestum við samkvæmt okkar bestu vitund að í skýrslu stjórnar sem fylgir ársreikningi þessum eru veittar þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.

Ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjóra á ársreikningnum

Stjórn og framkvæmdastjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu ársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu, viðbótar kröfur í lögum um ársreikninga og tengdum reglugerðum. Stjórn og framkvæmdastjóri eru einnig ábyrg fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er varðandi gerð og framsetningu ársreikningsins, þannig að hann sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.

Við gerð ársreikningsins eru stjórn og framkvæmdastjóri ábyrg fyrir því að meta rekstrarhæfi Solid Clouds hf. Ef við á, skulu stjórn og framkvæmdastjóri setja fram viðeigandi skýringar um rekstrarhæfi og hvers vegna þau ákváðu að beita forsendunni um rekstrarhæfi við gerð og framsetningu ársreikningsins, nema stjórn og framkvæmdastjóri hafi ákveðið að leysa félagið upp eða hætta starfsemi, eða hafi enga aðra raunhæfa möguleika.

Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun ársreikningsins

Markmið okkar er að afla nægjanlegrar vissu um að ársreikningurinn sé án verulegra annmarka, hvort sem er af völdum sviksemi eða mistaka og að gefa út áritun sem felur í sér álit okkar.

Nægjanlega vissa er þó ekki trygging þess að endurskoðun framkvæmd í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla muni uppgötva allar verulegar skekkjur séu þær til staðar. Skekkjur geta orðið vegna mistaka eða sviksemi og eru álitnar verulegar ef þær gætu haft áhrif á fjárhagslega ákvarðanatöku notenda ársreikningsins, einar og sér eða samanlagðar.

Endurskoðun okkar í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla byggir á faglegri dómgreind og beitum við gagnrýnni hugsun við endurskoðunina. Við framkvæmum einnig eftirfarandi:

  • Greinum og metum hættuna á verulegri skekkju í ársreikningnum, hvort sem er vegna mistaka eða sviksemi, hönnum og framkvæmum endurskoðunaraðgerðir til að bregðast við þeim hættum og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi til að byggja álit okkar á. Hættan á að uppgötva ekki verulega skekkju vegna sviksemi er meiri en að uppgötva ekki skekkju vegna mistaka, þar sem sviksemi getur falið í sér samsæri, skjalafals, misvísandi framsetningu ársreiknings, að einhverju sé viljandi sleppt eða að farið sé framhjá innri eftirlitsaðgerðum.
  • Öflum skilnings á innra eftirliti, sem snertir endurskoðunina, í þeim tilgangi að hanna viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki í þeim tilgangi að veita álit á virkni innra eftirlits félagsins.
  • Metum hvort reikningsskilaaðferðir sem notaðar eru, og tengdar skýringar, séu viðeigandi og hvort reikningshaldslegt mat stjórnenda sé raunhæft.
  • Ályktum um notkun stjórnenda á forsendunni um rekstrarhæfi og metum á grundvelli endurskoðunarinnar hvort verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi eða hvort aðstæður séu til staðar sem gætu valdið verulegum efasemdum um rekstrarhæfi. Ef við teljum að verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi ber okkur að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum ársreikningsins í áritun okkar. Ef slíkar skýringar eru ófullnægjandi þurfum við að víkja frá fyrirvaralausri áritun. Niðurstaða okkar byggir á endurskoðunargögnum sem aflað er fram að dagsetningu áritunar okkar. Engu að síður geta atburðir eða aðstæður í framtíðinni valdið óvissu um rekstrarhæfi félagsins.
  • Metum í heild sinni hvort ársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum, metum framsetningu, uppbyggingu, innihald og þar með talið skýringar við ársreikninginn með tilliti til glöggrar myndar.

Við upplýsum stjórn meðal annars um áætlað umfang og tímasetningu endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem komu upp í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka á innra eftirlit sem komu fram í endurskoðuninni, ef við á.

Kópavogur, 28. mars 2025

Deloitte ehf

Signý Magnúsdóttir endurskoðandi

Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ársins 2024

Skýr. 2024 2023
Rekstrartekjur
Tekjur af leik
Innheimtukostnaður vegna tekna af leik
5 99.207
( 17.176)
22.697
( 2.230)
82.030 20.468
Rekstrarkostnaður
Laun og launatengd gjöld
Kostnaður við leikjahönnun
Kostnaður við auglýsingar
Annar rekstrarkostnaður
6
14
15
19.925
27.911
134.245
32.787
15.619
4.604
33.854
19.401
214.869 73.478
Rekstrartap án fjármagnsliða, afskrifta og tekjuskatts
Afskriftir þróunarkostnaðar og leigueigna
8,9 ( 132.839)
( 114.620)
( 53.011)
( 93.246)
Rekstrartap án fjármagnsliða og tekjuskatts ( 247.459) ( 146.257)
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld)
Vaxtatekjur

Vaxtagjöld

Gengismunur
6.492
( 2.751)
( 1.008)
9.304
( 1.354)
( 318)
2.732 7.632
Tap fyrir tekjuskatt ( 244.727) ( 138.626)
Tekjuskattur
10 ( 159.736) 55.549
Tap
og
heildarafkoma
ársins
( 404.462) ( 83.077)

Skýringar á blaðsíðum 12-24 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.

Efnahagsreikningur 31. desember 2024

Eignir

Skýr. 31.12.2024 31.12.2023
Fastafjármunir
Þróunarkostnaður
8 1.134.825 995.148
Leigueignir 9 4.741 4.472
Reiknuð tekjuskattseign 10 0 159.736
Fastafjármunir samtals 1.139.567 1.159.356
V
eltufjármunir
Viðskiptakröfur 16.871 8.535
Aðrar skammtímakröfur 4.200 5.799
Handbært fé 14.035 44.003
Veltufjármunir samtals 35.106 58.337
Eignir samtals 1.174.672 1.217.693
Eigið fé og skuldir
Eigið fé
Hlutafé 331.800 184.199
Yfirverðsreikningur hlutafjár 129.436 198.808
Bundið eigið fé vegna þróunarkostnaðar 1.134.825 995.148
Kaupréttarsamningar 20.861 13.944
Ójafnað eigið fé ( 544.139) ( 216.973)
Eigið fé samtals 12 1.072.783 1.175.126
S
kammtímaskuldir
Leiguskuldir 9 4.767 4.901
Skuldabréfalán við tengda aðila 18 43.333 0
Viðskiptaskuldir
13.500 6.557
Aðrar skammtímaskuldir 11 40.289 31.109
Skammtímaskuldir 101.889 42.567
Skuldir alls 101.889 42.567
Eigið fé og skuldir samtals 1.174.672 1.217.693

Skýringar á blaðsíðum 12-24 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.

Eiginfjáryfirlit árið 2024

Hlutafé Yfirverðsr.
hlutafjár
Bundið
eigið fé
Kaupréttar
samningar
Ójafnað
eigið fé
Eigið fé
samtals
Breytingar á eigin fé 2023
Eigið fé 31.desember 2022
Ójafnað eigið fé jafnað
184.199 420.496 861.253 11.918 ( 221.688) 1.256.177
á móti yfirverðsreikning ( 221.688) 221.688 0
Tap ársins og heildarafkoma ( 83.077) ( 83.077)
Binding eigin fjár
Kaupréttarsamningar
133.896 2.026 ( 133.896) 0
2.026
Eigið fé 31. desember 2023 184.199 198.808 995.148 13.944 ( 216.973) 1.175.126
Breytingar á eigin fé 2024
Eigið fé 31.desember 2023 184.199 198.808 995.148 13.944 ( 216.973) 1.175.126
Ójafnað eigið fé jafnað
á móti yfirverðsreikning
( 216.973) 216.973 0
Innborgað hlutafé 147.601 147.601 295.202
Tap ársins og heildarafkoma ( 404.462) ( 404.462)
Binding eigin fjár
Kaupréttarsamningar
139.677 6.917 ( 139.677) 0
6.917
Eigið fé 31. desember 2024 331.800 129.436 1.134.825 20.861 ( 544.139) 1.072.783

Sjá umfjöllun um eigið fé í skýringu 11.

Skýringar á blaðsíðum 12-24 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.

louds hf - Ársreikningur 2024 Fjárhæðir eru í þús. kr.

Sjóðstreymi ársins 2024

Skýr. 2024 2023
Rekstrarhreyfingar
Rekstrartap án fjármagnsliða og tekjuskatts
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
( 247.459) ( 146.257)
Vextir ársins af skuldabréfaláni frá tengdum aðilum 133 0
Gjaldfærsla kaupréttarsamninga 6 6.917 2.026
Afskriftir þróunarkostnaðar og leigueigna 9 114.620 93.246
Veltufé til rekstrar ( 125.790) ( 50.984)
Breyting á rekstrartengdum eignum ( 6.736) ( 2.401)
Breyting á rekstrartengdum skuldum 16.123 7.316
Handbært fé til rekstrar fyrir vexti ( 116.403) ( 46.069)
Innborgaðir vextir 6.492 9.304
Greiddir vextir ( 2.751) ( 1.354)
Handbært fé til rekstrar ( 112.662) ( 38.119)
Fjárfestingarhreyfingar
Eignfærður þróunarkostnaður 8 ( 380.409) ( 360.743)
Styrkir færðir til lækkunar á þróunarkostnaði 8 131.284 138.606
Fjárfestingarhreyfingar ( 249.125) ( 222.137)
Fjármögnunarhreyfingar
Innborgað hlutafé að frádregnum kostnaði við hlutafjárútboð 295.202 0
Skuldabréfalán frá tengdum aðilum 43.200 0
Afborgun af leiguskuld ( 5.575) ( 5.540)
Fjármögnunarhreyfingar 332.826 ( 5.540)
Lækkun
handbærs
fjár
( 28.960) ( 265.796)
Handbært

í
ársbyrjun
44.003 310.118
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé ( 1.008) ( 318)
Handbært

í
árslok
14.035 44.003

Skýringar á blaðsíðum 12-24 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.

1. Félagið

Solid Clouds hf ("Félagið") er hlutafélag sem er stofnað á Íslandi og skráð að Eiðistorgi 17, 170 Seltjarnarnesi og er þar að finna heimilisfesti aðalskrifstofu félagsins. Tilgangur félagsins er vinna við upplýsingatækni, hugbúnaðarþróun og gerð og markaðssetningu tölvuleikja.

2. Grundvöllur reikningsskilanna

a. Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt

Ársreikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Ársreikningurinn er jafnframt í samræmi við viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga og reglugerð um framsetningu og innihald ársreikninga.

Stjórn félagsins staðfesti ársreikning þennan þann 28. mars 2025.

b. Grundvöllur matsaðferða

Ársreikningurinn er gerður á grundvelli kostnaðarverðs að undanþegnum kaupréttarsamningnum sem metnir eru í samræmi við kröfur IFRS 2.

c. Starfrækslugjaldmiðill og framsetningargjaldmiðill

Ársreikningurinn er birtur í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Allar fjárhæðir eru birtar í þúsundum króna, nema annað sé tekið fram.

d. Mat og ákvarðanir

Gerð ársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati.

Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtíðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á.

Við ákvörðun gangvirðis er byggt á forsendum sem háðar eru mati stjórnenda á þróun ýmissa þátta í framtíðinni. Raunverulegt söluverð eigna og uppgreiðsluverðmæti skulda kann að vera frábrugðið þessu mati. Mat stjórnenda hefur mest áhrif í tengslum við ákvörðun um eignfærslu þróunarkostnaðar og við mati á eignfærslu tekjuskattseignar. Í skýringu 1g og skýringu 8 má sjá nánari upplýsingar er varða eignfærslu þróunarkostnaðar og í skýringu 10 varðandi eignfærslu tekjuskattseignar.

e. Rekstrarhæfi

Í árslok 2024 nam handbært fé félagins 14,0 milljónir króna og veltufjárskuldir umfram veltufjáreignir eru um 67 milljónir króna. Félagið lauk útgáfu á 175,0 millj. kr. umbreytanlegu skuldabréfi í febrúar 2025. Af því voru 80,5 millj. kr. nýttar til að endurgreiða hluthafalán sem voru til staðar í lok árs 2024 og viðbótarhluthafalán sem veitt voru í janúar 2025.

Félagið reiknar með að fjármagna áframhaldandi rekstur félagsins með því handbæra fé sem er til staðar, með þeirri viðbótarfjármögnun sem fékkst í febrúar 2025 og áætlun um tekjuöflun og frekari fjármögnun ársins. Veruleg óvissa er til staðar um áætlað framtíðarsjóðstreymi félagsins ef áætlanir ganga ekki eftir. Stjórnendur hafa verið að vinna að fjármögnun félagsins og hafa gert samning við fjármálafyrirtæki um aðkomu að fjármögnun í formi umsjónar og ráðgjafar. Ef að slík fjármögnun gengur ekki eftir þá þarf félagið bæði á tímabundinni fjármögnun hluthafa að halda sem og að fara í aðhaldsaðgerðir á rekstri til að tryggja fullnægjandi handbært fé til að standa við skuldbindingar sínar.

Ársreikningur félagsins er settur fram miðað við áframhaldandi rekstur.

3. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir

a. Erlendir gjaldmiðlar

Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum eru færð í starfrækslugjaldmiðli á gengi viðskiptadags. Peningalegar eignir og skuldir í erlendum gjaldmiðlum eru færðar miðað við gengi á uppgjörsdegi.

b. Innlausn tekna

Félagið hefur tekjur af sölu rafrænna vara (e. virtual goods) í þeim tölvuleikjum sem félagið hefur gefið út. Tekjur af þeim eru skráðar þegar spilarar hafa fengið þær afhentar.

c. Styrkir frá stjórnvöldum

Ríkisstyrkir sem tengjast þróunarkostnaði hafa verið færðir til lækkunar á eignfærðum þróunarkostnaði til að jafna þeim á móti kostnaðinum sem þeim er ætlað að mæta.

Styrkur frá Rannís vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar ársins 2024 kemur til greiðslu í byrjun nóvember 2025 að fengnu samþykki frá yfirvöldum.

d. Starfskjör

Laun starfsmanna eru eignfærð þegar vinna þeirra hefur verið innt af hendi og er vegna þróunar á eignfærsluhæfum verkefnum, en gjaldfærð ef skilyrðum fyrir eignfærslu er ekki fullnægt. Skuld er færð fyrir þá fjárhæð sem búist er við að verði greidd síðar ef félagið hefur núverandi lagalega eða samningsbundna skyldu til að greiða þá fjárhæð vegna fyrri þjónustu sem starfsmaðurinn hefur veitt og hægt er að áætla fjárhæðinga með áreiðanlegum hætti.

Fyrirtækið greiðir iðgjöld fyrir starfsmenn vegna iðgjalda sem tengjast lífeyrissjóðum. Fyrirtækið ber enga ábyrgð á skuldbindingum sjóðanna.

Sjá skýringu 12d um kaupréttarsamninga starfsmanna en félagið hefur gert kaupréttarsamninga við starfsmenn svo að hagsmunir þeirra fari sem best saman við hagsmuni hluthafa.

e. Vaxtatekjur

Vaxtatekjur samanstanda af vaxtatekjum af handbæru fé og eru færðar eftir því sem þær falla til miðað við virka vexti.

f. Tekjuskattur

Tekjuskattur er færður í rekstrarreikning nema þegar hann tengist liðum sem eru færðir beint á eigið fé, en þá er tekjuskatturinn færður á eigið fé.

Frestaður tekjuskattur er færður vegna tímabundinna mismuna á bókfærðu verði eigna og skulda í ársreikningnum annars vegar og skattverði þeirra hins vegar.

Útreikningur á frestuðum skatti byggir á því skatthlutfalli sem vænst er að verði í gildi þegar tímabundnir mismunir koma til með að snúast við, miðað við gildandi lög á uppgjörsdegi. Reiknuð tekjuskattseign og tekjuskattsskuldbindingu er jafnað saman þegar til staðar er lagalegur réttur til að jafna saman tekjuskatti til greiðslu og skatteign.

Reiknuð tekjuskattseign er einungis færð að því marki sem líklegt er talið að skattskyldur hagnaður verði til ráðstöfunar í framtíðinni sem unnt verður að nýta eignina á móti. Reiknuð tekjuskattseign er metin á hverjum uppgjörsdegi og lækkuð að því marki sem talið er líklegt að hún nýtist ekki.

g. Óefnislegar eignir

Óefnislegar eignir eru einungis eignfærðar þegar líklegt er að hagrænn ávinningur tengdur eigninni muni nýtast félaginu og hægt er að meta kostnaðarverð hennar með áreiðanlegum hætti. Óefnislegar eignir félagsins eru tölvuleikir í þróun og tæknigrunnur félagsins en félagið hefur skipt eignfærðum þróunarkostnaði niður á tæknigrunn og Sovereign Space og Frontiers leikina. Eignirnar eru færðar á kostnaðarverði að frádregnum afskriftum sem eru færðar á kerfisbundinn hátt á áætluðum nýtingartíma þeirra sem er mismunandi miðað við undirliggjandi eignir. Áætlaður nýtingartími og afskriftaaðferðir eru endurmetnar í lok hvers árs.

Rannsóknarkostnaður er gjaldfærður þegar hann fellur til. Þróunarkostnaður er aðeins eignfærður ef öll eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:

  • að félagið geti lokið þróun óefnislegu eignarinnar þannig að hún sé tilbúin til notkunar eða komin í söluhæft ástand,
  • að félagið ætli sér að ljúka við þróunar eignarinnar og nota hana eða selja,
  • að félagið sýni fram á möguleika sína til að selja eignina,
  • að félagið sýni fram á að eignin komi til með að skila tekjum í framtíðinni,
  • að félagið hafi næga tækni, og fjármagn til að ljúka við þróun og sölu,
  • að félagið hafi getu til að meta útgjöld vegna þróunar með áreiðanlegum hætti.

Eignfærsla þróunarkostnaðar á sér aðeins stað þegar öll ofangreind skilyrði eru uppfyllt en annars er hann gjaldfærður þegar hann fellur til.

Það er mat stjórnenda að eignfærsla þróunarkostnaðar uppfylli öll ofangreind skilyrði.

h. Leigueignir og leiguskuld

Við upphaf leigusamnings færir leigutaki inn leigueign sem táknar rétt sinn til að nota undirliggjandi eign og leiguskuld sem táknar skyldu til að greiða leigugreiðslur. Leigueignin er upphaflega metin á kostnaðarverði, sem samanstendur af upphæð leiguskuldar leiðrétt fyrir öllum leigugreiðslum sem greiddar voru á upphafsdegi eða ásamt öllum beinum upphaflegum kostnaði og áætlun um kostnað við að taka í sundur og fjarlægja undirliggjandi eign eða til að endurheimta undirliggjandi eign að frádregnum mótteknum hvötum til leigu.

Leigueignin er bókfærð á meðal fastafjármuna í ársreikningnum og afskrifuð í kjölfarið með línulegri aðferð frá upphafsdegi leigusamnings til loka nýtingartíma leigueignar.

Leiguskuldin er upphaflega metin á núvirði leigugreiðslna sem ekki eru greiddar á upphafsdegi leigusamnings, núvirt með ávöxtunarkröfu félagsins.

i. Fjáreignir

Fjáreignir félagsins eru viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur. Félagið ætlar sér að eiga þær til gjalddaga og samningsbundnar greiðslur á settum gjalddögum samanstanda einungis af afborgunum af höfuðstól og vöxtum þar sem það á við. Umfjöllun um vænt útlánatap af fjáreignum má finna í skýringu 13b.

Félagið afskráir fjáreignir þegar samningsbundinn réttur til framtíðarsjóðstreymis af fjáreigninni er ekki lengur til staðar eða þegar áhætta og ávinningur af fjáreigninni flyst yfir á annan aðila.

j. Fjárskuldir og eiginfjárgerningar

Eiginfjárgerningur er hvers konar samningur sem felur í sér eftirstæða hagsmuni í eignum félagsins eftir að allar skuldir hafa verið dregnar frá. Eiginfjárgerningar útgefnir af félaginu eru skráðir á kostnaðarverði að frádregnum beinum kostnaði við útgáfu þeirra.

Fjárskuldir eru metnar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti. Félagið afskráir fjárskuldir eingöngu þegar skuldbinding vegna þeirra er ekki lengur til staðar. Hagnaður eða tap vegna afskráningar er færð í rekstrarreikning.

4. Nýir reikningsskilastaðlar og túlkanir á þeim sem hafa ekki verið innleiddir

Félagið hefur innleitt alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir eru samþykktir af Evrópusambandinu, breytingar á þeim og nýjar túlkanir sem gilda fyrir reikningsskilatímabil sem hófust 1. janúar 2024 eða síðar. Eftirfarandi staðall og endurbætur tóku gildi 1. janúar 2024:

- IAS 1 Framsetning reikningsskila Flokkun skulda í skammtíma eða langtímahluta
- IAS 1 Framsetning reikningsskila Langtímaskuldir með lánaskilmálum
- IAS 7 Sjóðstreymi og IFRS 7 Fjármálagerningar: Skýringar Aðfangafjármögnun
- IFRS 16 Leigusamningar Leiguskuldbinding í sölu og endurleiguviðskiptum

Það er mat stjórnenda að innleiðing ofangreindra endurbóta á stöðlum hafi ekki haft veruleg áhrif á ársreikning félagsins.

Félagið hefur ekki innleitt nýja eða endurbætta staðla sem hafa verið gefnir út en ekki tekið gildi. Þann 1. janúar 2025 taka gildi eftirfarandi endurbætur á stöðlum:

  • IAS 21 Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla Skiptanleiki gjaldmiðla

Áhrif IFRS 18 sem tekur gildi 1. janúar 2027 hefur ekki verið metin að fullu, en að öðru leyti er það mat stjórnenda að innleiðing þeirra endurbóta sem fram koma hér að ofan, eða annarra breytinga á stöðlum sem samþykktar hafa verið en hafa ekki tekið gildi, muni ekki hafa veruleg áhrif á ársreikninginn á síðari tímabilum.

5. Landfræðileg skipting tekna félagsins

Eftirfarandi tafla sýnir skiptingu tekna af sölu tölvuleikja félagsins í mismunandi löndum m.v. 15 stærstu lönd árin 2024 og 2023:

2024 2023
Sala í þús. kr. Hlutfall af sölu Sala í þús. kr. Hlutfall af sölu
Bandaríkin 50.022 50,42% 11.765 51,84%
Bretland 12.237 12,33% 2.242 9,88%
Þýskaland 10.143 10,22% 100 0,44%
Ástralía 3.203 3,23% 1.509 6,65%
Kanada 3.119 3,14% 1.687 7,43%
Svíþjóð 1.560 1,57% 200 0,88%
Suður-Kórea 1.199 1,21% 12 0,05%
Holland 1.647 1,66% 98 0,43%
Rúmenía 1.290 1,30% 466 2,05%
Ísland 973 0,98% 88 0,39%
Frakkland 956 0,96% 511 2,25%
Eistland 672 0,68% 85 0,37%
Spánn 666 0,67% 81 0,36%
Belgía 635 0,64% 111 0,49%
Pólland 617 0,62% 979 4,31%
47 / 39 önnur lönd 10.270 10,35% 2.763 12,17%
Tekjur af leik alls 99.207 100,00% 22.697 100,00%

6. Laun og launatengd gjöld

Laun og launatengd gjöld sundurliðast þannig: 2024 2023
Laun 219.438 211.231
Gjaldfærður kostnaður vegna kaupréttarsamninga 6.917 2.026
Launatengd gjöld 40.734 47.878
Laun og launatengd gjöld samtals 267.089 261.135
Eignfærð laun og launatengd gjöld sem þróunarkostnaður ( 247.164) ( 245.516)
Laun og launatengd gjöld í rekstrarreikningi 19.925 15.619
Meðalfjöldi starfsmanna á árinu, umreiknað í heilsársstörf 20 21

Heildarlaun stjórnar og lykilstjórnenda félagsins (2024: tveir starfsmenn, átta stjórnarmenn, 2023: tveir starfsmenn, átta stjórnarmenn) námu samtals 42,1 millj. kr. á árinu 2024 (2023: 40,5 millj. kr.). Mótframlag í lífeyrissjóði nam 4,5 millj. kr. á árinu 2024 (2023: 4,7 millj. kr.).

7. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast þannig: 2024 2023
Vaxtatekjur
6.492 9.304
Vaxtatgjöld
( 2.751) ( 1.354)
Gengismunur ( 1.008) ( 318)
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld alls 2.732 7.632

8. Óefnislegar eignir

Þróunarkostnaður fyrirtækisins byggir á framleiðslu félagsins á fjölspilunarleikjum og tæknigrunni sem hægt er að beita til að gera slíka leiki fyrir alþjóðamarkað. Framleiðsla slíkra leikja er almennt flókin, tímafrek og dýr. Eins og fram kemur í skýringu 3g er það mat stjórnenda að eignfærsla þróunarkostnaðar uppfylli allar kröfur IAS 38 um eignfærslu þróunarkostnaðar.

Þróunarkostnaður er afskrifaður yfir áætlaðan líftíma hvers þróunarverkefnis. Líftíminn er metin frá 5 árum til 20 ára. Sjá nánar um afskrift þróunarkostnaðar í skýringu 3g.

Þróunarkostnaður og afskrift hans greinist þannig: 2024 2023
Bókfært verð 1.1. 995.148 861.253
Eignfærður þróunarkostnaður, sjá skýringu 15 380.409 360.743
Styrkir færðir til lækkunar á þróunarkostnaði, sjá skýringu 15 ( 131.284) ( 138.606)
Afskrift þróunarkostnaðar á árinu ( 109.447) ( 88.241)
Bókfært verð 31.12. 1.134.825 995.148
Afskriftatími þróunarkostnaðar 5-20 ár 5-20 ár
9. Leigueignir og leiguskuldir
Leigueignir og leiguskuldir í efnahagsreikningi greinast þannig:
Leigueignir 2024 2023
Staða í ársbyrjun 4.472 10.706
Breyting leigueigna á árinu 5.442 ( 1.229)
Afskrift leigueigna á árinu ( 5.173) ( 5.005)
Staða í árslok 4.741 4.472
Leiguskuldir
Skammtímaskuldir 4.767 4.901
Leiguskuldir samtals 4.767 4.901
Húsaleigusamningur vegna skrifstofuhúsnæðis félagsins rennur út í árslok 2025.
félagið geti framlengt leigusamningnum ef vilji er til þess.
Leigusali hefur gefið til kynna að
Í rekstrarreikningi eru eftirfarandi gjaldfærslur vegna leigusamninga:
Afskrift leigueigna 5.173 5.005
Vaxtagjöld
712 766
Samtals gjaldfært vegna leigusamninga 5.885 5.771
Félagið greiddi 6,3 millj. kr. í húsaleigu á árinu 2024 (2023: 7,1 millj. kr.).
Í rekstrarreikningi sundurliðast afskriftir þannig:
Afskrift leigueigna sbr. að ofan 5.173 5.005
Afskrift þróunarkostnaðar sbr. skýringu 8 109.447 88.241
Afskriftir leigueigna og þróunarkostnaðar skv. rekstrarreikningi 114.620 93.246
10.
Reiknuð tekjuskattseign
Reiknuð tekjuskattseign greinist þannig: 2024 2023
Reiknaður tekjuskattseign í ársbyrjun 159.736 104.187
Reiknaður tekjuskattur ársins 75.085 55.549
Niðurfærsla reiknaðrar tekjuskattseignar ( 234.821) 0
Reiknuð tekjuskattseign í árslok 0 159.736
Reiknuð tekjuskattseign skiptist þannig á liði:
Yfirfæranlegt skattalegt tap 461.630 358.745
Niðurfærsla reiknaðrar tekjuskattseignar ( 234.821) 0
Þróunarkostnaður ( 226.965) ( 199.030)
Gengismunur 156 21
Reiknuð tekjuskattseign í árslok 0

Skattalegt tap í árslok 2024, sem heimilt er að flytja áfram samkvæmt skattalögum, nemur 2.308,2 millj. kr. Yfirfæranlegt skattalegt tap sem ekki nýtist á móti hagnaði innan tíu ára frá því það myndast fellur niður. Yfirfæranlegt skattalegt tap er nýtanlegt sem hér segir:

Skattalegt tap ársins 2015, nýtanlegt til ársins 2025 52.527
Skattalegt tap ársins 2016, nýtanlegt til ársins 2026 68.585
Skattalegt tap ársins 2017, nýtanlegt til ársins 2027 106.974
Skattalegt tap ársins 2018, nýtanlegt til ársins 2028 109.360
Skattalegt tap ársins 2019, nýtanlegt til ársins 2029 160.170
Skattalegt tap ársins 2020, nýtanlegt til ársins 2030 198.255
Skattalegt tap ársins 2021, nýtanlegt til ársins 2031 307.902
Skattalegt tap ársins 2022, nýtanlegt til ársins 2032 377.226
Skattalegt tap ársins 2023, nýtanlegt til ársins 2033 411.758
Skattalegt tap ársins 2024, nýtanlegt til ársins 2034 515.395
Yfirfæranlegt skattalegt tap samtals 2.308.151

Reiknuð tekjuskattseign vegna yfirfæranlegs skattalegs taps hefur verið eignfærð síðastliðin ár. Óvissa er um nýtingu á skattalegu tapi frá árunum 2015 til 2016. Vegna varúðarsjónarmiða er reiknuð tekjuskattseign færð niður þar til hagnaður verður af rekstri félagsins.

11. Aðrar skammtímaskuldir

Aðrar skammtímaskuldir greinast þannig: 31.12.2024 31.12.2023
Ógreidd laun og launatengd gjöld 40.229 31.050
Ógreitt útvarpsgjald 21 21
Skuld við tengda aðila 39 39
Aðrar skammtímaskuldir 31.12. 40.289 31.109

12. Eigið fé

a. Hlutafé

Hlutafé félagsins skv. samþykktum þess nemur 331,8 millj. kr. í árslok 2024 (31.12.2023: 184,2 millj. kr.). Eitt atkvæði fylgir hverjum hlut í félaginu og er nafnverð hluta ein króna.

b. Yfirverðsreikningur hlutafjár

Yfirverðsreikningur hlutafjár sýnir yfirverð sem greitt hefur verið inní félagið við hlutafjárhækkanir.

c. Bundið eigið fé

Skv. lögum um ársreikninga er gerð krafa um að fjárhæð sem nemur eignfærðum þróunarkostnaði sé færð á sérstakan bundinn reikning meðal eigin fjár. Við afskrift þróunarkostnaðar er binding leyst upp og færð á óráðstafað eigið fé og er þá laus til útgreiðslu arðs.

d. Kaupréttarsamningar

Stjórn félagsins samþykkti nýja kaupréttaráætlun fyrir starfsmenn og vertaka félagsins á árinu 2021. Kaupréttaráætlunin er til fjögurra ára þar sem starfsfólk hefur rétt til að kaupa fyrirfram skilgreindan fjölda hluta árlega miðað við úthlutaðan fjölda. Yfir fjögurra ára tímabil, hefur starfsmaður heimild til að kaupa 17% af úthlutum fjölda 1. janúar 2022, 21% af úthlutuðum fjölda 1. janúar 2023 og 1. janúar 2024 og 20% af úthlutuðum fjölda 1. janúar 2025. Kaupgengið er 10 kr. á hlut. Starfsmaður skal vera í óslitinni vinnu hjá félaginu til loka hvers

Kaupréttirnir bera hvorki rétt til arðs né atkvæðisréttar. Kaupréttirnir skiptast í fjóra hluta sem verða innleysanlegir á fjögurra ára tímabili. Ávinnslutímabil fyrsta hlutans er eitt ár, ávinnslutímabil annars hluta tvö ár o.s.frv. Hver hluti er gjaldfærður á sínu ávinnslutímabili, og er því heildargjaldfærsla vegna kauprétta mest á fyrsta ári, en fer svo stiglækkandi þar til öllum fjórum ávinnslutímabilum er lokið.

Gangvirði kaupréttarsamninga er metið á samningsdegi og gjaldfært meðal launa og launatengdra gjalda á því tímabili sem ávinnsla á sér stað. Mótfærsla verður á sérstakan lið meðal eigin fjár. Gangvirði kaupréttarsamninga er metið með Black-Scholes aðferðinni. Við matið eru notaðar forsendur um gengi hlutabréfa á matsdegi, gengi í kaupréttarsamningum, vænt flökt á gengi hlutabréfa félagsins, gildistíma samninganna og áhættulausa vexti

Eftirfarandi tafla sýnir greiningu á kaupréttarsamningum á árinu 2024: Fjöldi hluta Meðal
innlausnarverð
Kaupréttarsamningar í ársbyrjun 2024 9.653.823 10,00
Útrunnir kaupréttir á árinu 2024 ( 725.000) 10,00
Kaupréttarsamningar í árslok 2024 8.928.823 10,00

Alls eru 20 starfsmenn og vertaki með kaupréttarsamning hjá félaginu í árslok 2024.

Eftirfarandi tafla sýnir greiningu á kaupréttarsamningum á árinu 2023: Fjöldi hluta Meðal
innlausnarverð
Kaupréttarsamningar í ársbyrjun 2023 10.008.665 9,43
Veittir kaupréttir á árinu 2023 224.800 10,00
Útrunnir kaupréttir á árinu 2023 ( 579.642) 0,47
Kaupréttarsamningar í árslok 2023 9.653.823 10,00

13. Stýring fjármálalegrar áhættu

a. Yfirlit

Félagið stendur frammi fyrir eftirfarandi áhættum í rekstri sínum:

  • * lánsáhættu, sjá b.
  • * lausafjáráhættu, sjá c.
  • * markaðsáhættu (gjaldmiðlaáhætta, vaxtaáhætta), sjá d.
  • * rekstraráhættu, sjá e.

Hér eru veittar upplýsingar um framangreindar áhættur, markmið, stefnu og aðferðir félagsins við að meta og draga úr áhættunum. Jafnframt fylgja með ýmsar tölulegar upplýsingar.

Stjórn félagsins ber heildarábyrgð á því að koma á og hafa eftirlit með áhættustýringu félagsins. Stjórnin hefur falið framkvæmdastjóra félagsins að sjá um daglegt eftirliti með áhættum félagsins.

Markmið félagsins með áhættustýringu er að uppgötva og greina áhættu sem félagið býr við, setja viðmið um áhættutöku og hafa eftirlit með henni. Þá er markmiðið enn fremur að stýra áhættu á skilvirkan hátt og miðast áhættustýring við að áhætta sé í samræmi við áhættuvilja og stefnu félagsins og er þannig stuðlað að auknum stöðugleika og langtíma arðsemi. Áhættustýring félagsins og aðferðir eru yfirfarnar reglulega til að greina breytingar á markaðsaðstæðum og starfsemi félagsins hverju sinni. Með þjálfun starfsmanna og starfsreglum stefnir félagið að öguðu eftirliti þar sem allir starfsmenn eru meðvitaðir um hlutverk sitt og skyldur.

b. Lánsáhætta

Lánsáhætta er hættan á fjárhagslegu tapi félagsins ef viðskiptamaður eða mótaðili í fjármálagerningi getur ekki staðið við umsamdar skuldbindingar sínar. Félagið lánar ekki viðskiptavinum sínum. Útistandandi viðskiptakröfur félagsins í árslok 2024 eru kortakröfur, kröfur á Google, Apple, Valve (Steam), og kröfur á íslenska ríkið (þar sem styrkir hafa ekki verið greiddir út). Handbært fé félagsins er geymt á reikningum hjá Arion banka og PayPal.

Mögulegt tap vegna lánsáhættu

Mesta mögulega tap félagsins vegna fjáreigna er bókfært verð þeirra, sem var eftirfarandi á reikningsskiladegi:

31.12.2024 31.12.2023
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur
Handbært fé
19.477
14.035
12.395
44.003
Mesta mögulega tap vegna fjáreigna 33.512 56.398

Virðisrýrnun viðskiptakrafna og annarra skammtímakrafna

Aldur viðskiptakrafna var eftirfarandi í árslok:

Nafnverð Virðisrýrnun
31.12.2024 31.12.2023 31.12.2024 31.12.2023
Ógjaldfallið 19.477 12.395 0 0
Kröfur samtals 19.477 12.395 0 0

Það er mat stjórnenda að útlánaáhætta af fjáreignum sé óveruleg, þar sem um er að ræða kreditkortakröfur sem eru nú innheimtar og bankainnstæður sem bera óverulega útlánaáhættu. Það er því mat stjórnenda að áhrif útlánaáhættu í heild séu óveruleg fyrir reikningsskilin og engin niðurfærsla er færð vegna útlána félagsins.

c. Lausafjárhætta

Lausafjáráhætta er hættan á því að félagið geti ekki staðið við fjárhagsskuldbindingar sínar eftir því sem þær gjaldfalla. Markmið félagsins er að stýra lausafé þannig að tryggt sé að það hafi alltaf nægt laust fé til að mæta skuldbindingum sínum eftir því sem þær gjaldfalla og forðast þannig að skaða orðspor félagsins.

Samningsbundnar afborganir af fjárskuldum, þar með talið væntanlegar vaxtagreiðslur, greinast þannig:

31. desember 2024 Bókfært verð Samningsbundið
sjóðflæði
Innan árs Eftir 1-5 ár Eftir meira
en 5 ár
Leiguskuldir 4.767 4.851 4.851 0 0
Viðskiptaskuldir 13.500 13.500 13.500 0 0
Skuldir við tengda aðila 39 39 39 0 0
Skuldabr lán v tengda 43.333 44.687 44.687 0 0
Aðrar skammtímaskuldir 40.251 40.251 40.251 0 0
Fjárskuldir samtals 101.889 103.327 103.327 0 0
Samningsbundið Eftir meira
31. desember 2023 Bókfært verð sjóðflæði Innan árs Eftir 1-5 ár en 5 ár
Leiguskuldir 4.900 5.189 5.189 4.901 0
Viðskiptaskuldir 6.556 6.556 6.556 0 0
Skuldir við tengda aðila 39 39 39 0 0
Aðrar skammtímaskuldir 31.071 31.071 31.071 0 0
Fjárskuldir samtals 42.566 42.855 42.855 4.901 0

d. Markaðsáhætta

Markaðsáhætta er hættan á því að breytingar í markaðsverði erlendra gjaldmiðla og vaxta hafi áhrif á afkomu félagsins eða virði fjárfestinga hennar í fjármálagerningum. Markmið með stýringu markaðsáhættu er að stýra og takmarka áhættu við skilgreind mörk, jafnframt því sem ábati er hámarkaður.

Gjaldmiðlaáhætta

Félagið býr við gengisáhættu vegna sölu, innkaupa og lántöku í öðrum gjaldmiðlum en starfrækslugjaldmiðli félagsins. Þeir gjaldmiðlar sem einkum skapa gengisáhættu eru EUR og USD.

Félagið ver sig ekki sérstaklega fyrir gengisáhættu með framvirkum samningum. Stjórnendur fara reglulega yfir gjaldeyrisáhættu félagsins með það að markmiði að takmarka hana eins og frekast unnt er.

Eignir og skuldir í erlendri mynt voru eftirfarandi í árslok:

31. desember 2024 EUR USD Samtals
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 7.736 8.816 16.552
Handbært fé 626 173 799
Viðskiptaskuldir ( 5.359) ( 4.769) ( 10.128)
Gengisáhætta félagsins 3.003 4.220 7.223
31. desember 2023 EUR USD Samtals
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 1.484 154 1.638
Handbært fé 558 1.870 2.428
Viðskiptaskuldir ( 1.304) 0 ( 1.304)
Gengisáhætta félagsins 738 2.023 2.762

Gengi helstu gjaldmiðla á árunum 2024 og 2023 var sem hér segir:

Meðalgengi Árslokagengi
Árið 2024 Árið 2023 31.12.2024 31.12.2023
EUR 149,31 149,14 143,90 150,50
USD 137,93 137,98 138,20 136,20

Næmnigreining

10% styrking íslenskrar krónu gagnvart eftirtöldum gjaldmiðlum í árslok mundi hafa hækkað (lækkað) eigið fé félagsins og afkomu fyrir tekjuskatt um eftirfarandi fjárhæðir. Greiningin byggir á að allar aðrar breytur haldist óbreyttar.

31.12.2024 31.12.2023
EUR 300 74
USD 422 202
10% veiking íslenskrar krónu gagnvart framangreindum gjaldmiðlum hefði haft sömu áhrif en í gagnstæða átt, að því

gefnu að allar aðrar breytur hefðu haldist óbreyttar.

e. Rekstraráhætta

Rekstraráhætta er hættan á beinu eða óbeinu tapi eða tjóni sem getur orðið af völdum margra þátta í starfsemi félagsins, vinnu starfsmanna þess, tækni og skipulagi, og ytri þáttum svo sem vegna breytinga á lögum og almennra viðhorfa til stjórnunarhátta fyrirtækja. Rekstraráhætta myndast í allri starfsemi félagsins.

Það er stefna félagsins að stýra rekstraráhættu með hagkvæmum hætti til að forðast fjárhagslegt tap og til að vernda orðstír þess, jafnframt því að starfsreglur takmarki ekki frumkvæði og sköpunargáfu starfsmanna.

Til að draga úr rekstraráhættu hefur félagið gripið til ýmissa ráðstafana. Þar má meðal annars nefna að félagið hefur komið á viðeigandi aðskilnaði starfa, lagt áherslu á góð starfsskilyrði, lagt áherslu á kostnaðargreiningar, áætlanagerð og haft eftirlit með viðskiptum og fylgni við lög, unnið reglulegt mat á áhættu, starfsmenn þjálfaðir, verkferlar skipulagðir og fleira.

14. Kostnaður við leikjahönnun

Kostnaður við leikjahönnun í rekstrarreikningi sundurliðast þannig: 2024 2023
Kostnaður við leikjahönnun
Eignfærður þróunarkostnaður vegna kostnaðar við leikjahönnun
90.512
( 62.601)
79.552
( 74.949)
Kostnaður við leikjahönnun í rekstrarreikningi 27.911 4.604
15.
Annar rekstrarkostnaður
Annar rekstrarkostnaður í rekstrarreikningi sundurliðast þannig: 2024 2023
Annar rekstrarkostnaður
Eignfærður þróunarkostnaður vegna annars rekstrarkostnaðar
103.432
( 70.644)
59.680
( 40.279)
Annar rekstrarkostnaður í rekstrarreikningi 32.787 19.401

Kostnaður vegna auglýsinga er sérgreindur í rekstrarreikningi og er því ekki partur af öðrum rekstrarkostnaði hér að ofan. Kostnaður vegna auglýsinga er ekki eignfærður á meðal þróunarkostnaðar rekstrarreikningi félagsins. og er því gjaldfærður í

16. Eignfærður þróunarkostnaður

Eignfærður þróunarkostnaður í skýringu 8 sundurliðast þannig: 2024 2023
Eignfærður kostnaður við leikjahönnun, sjá skýringu 14
Eignfærð laun og launatengd gjöld, sjá skýringu 6
Eignfærður annar rekstrarkostnaður, sjá skýringu 15
62.601
247.164
70.644
74.949
245.516
40.279
Eignfærður þróunarkostnaður alls, sjá skýringu 8 380.409 360.743
Styrkir færðir til lækkunar á þróunarkostnaði, sjá skýringu 8 ( 131.284) ( 138.606)
Eignfærður þróunarkostn., nettó af mótteknum styrkjum, sjá skýringu 8 249.125 222.136

17. Rekstrarkostnaður

Rekstrarkostnaður á árinu 2024 sundurliðast þannig: Eignfærður Kostnaður í Heildarkostn.
kostnaður rekstrarreikn. 2024
Kostnaður við leikjahönnun 62.601 27.911 90.512
Laun og launatengd gjöld 247.164 19.925 267.089
Annar rekstrarkostnaður 70.644 32.787 103.432
Rekstrarkostnaður alls árið 2024 380.409 80.624 461.033
Rekstrarkostnaður á árinu 2023 sundurliðast þannig: Eignfærður Kostnaður í Heildarkostn.
kostnaður rekstrarreikn. 2023
Kostnaður við leikjahönnun 74.949 4.604 79.552
Laun og launatengd gjöld 245.516 15.619 261.135
Annar rekstrarkostnaður 40.279 19.401 59.680

18. Tengdir aðilar

Skilgreining tengdra aðila

Hluthafar, stjórnarmenn og stjórnendur og nánir fjölskyldumeðlimir þeirra og félög sem þeir ráða yfir teljast til tengdra aðila félagsins.

Viðskipti við tengda aðila og lykilstjórnenda

Vísað er til skýringar 6 um laun og hlunnindi til lykilstjórnenda félagsins.

Ekki voru viðskipti við tengda aðila á árinu 2024. Félagið fékk skuldabréfalán hjá tengdum aðilum undir lok árs 2024. Lánin báru 25% vexti og voru gerð upp í lok janúar 2025.

Viðskiptastöður við tengda aðila: 31.12.2024 31.12.2023
Skuldir við tengda aðila í árslok 43.429 39

19. Atburðir eftir reikningsskiladag

Í janúar 2025 skráðu hluthafar sig fyrir kaupum á skuldabréfum með breytirétti sem félagið gefur út að höfuðstólsfjárhæð allt að 175,0 millj. kr.

Sundurliðanir

Kostnaður við leikjahönnun: 2024 2023
Aðkeypt leikjahönnun 63.056 54.975
Flutningsgjöld 13 659
Aðkeypt myndvinnsla 2.839 6.051
Hugbúnaður 24.604 17.868
Eignfærður þróunarkostn. vegna kostnaðar við leikjahönnun ( 62.601) ( 74.949)
27.911 4.604
Laun og tengd gjöld:
Laun 219.438 211.231
Gjaldfærð laun vegna kaupréttarsamninga 6.917 2.026
Tryggingagjald 16.375 16.500
Lífeyrissjóður 27.676 26.706
Áunnið orlof, breyting ( 5.229) 2.952
Sjúkra- og orlofssjóður 1.911 1.721
Eignfærður þróunarkostnaður vegna launa ( 247.164) ( 245.516)
19.925 15.619
Annar rekstrarkostnaður:
Sími og internet 3.644 3.658
Bækur og blöð 86 93
Pappír, prentun og ritföng 85 119
Rekstur tölvukerfis 1.435 1.868
Reikningshaldsleg þjónusta 14.605 9.956
Lögfræðikostnaður 3.296 1.390
Aðkeypt þjónusta 15.942 8.433
Dagpeningar 1.110 713
Ferðakostnaður 2.635 2.416
Funda og viðskiptakostnaður 2.375 2.312
Markaðskostnaður 31.407 837
Bankakostnaður annar 4.378 5.728
Viðhald húsnæðis 65 228
Ræstinga- og hreinlætisvörur 732 744
Aðkeyptur akstur sendi- og leigubifreiða 419 202
Bifreiðastyrkur 7.580 8.265
Eldsneytiskostnaður bifreiða 0 2
Annar rekstur bifreiða 0 38
Gjaldfærð tæki og áhöld 2.626 2.747
Viðhald tækja og áhalda 8 9
Kaffikostnaður 7.874 6.600
Framhald á næstu síðu 100.304 56.357

Sundurliðanir, frh.:

Annar rekstrarkostnaður, framhald: 2024 2023
Frá fyrri síðu 100.304 56.357
Annar starfsmannakostnaður 2.975 3.119
Félagsgjöld 72 164
Útvarpsgjald 21 21
Styrkir og gjafir 60 19
Eignfærður þróunarkostnaður vegna annars rekstrarkostnaðar ( 70.644) ( 40.279)
32.787 19.401
Aðrar skammtímaskuldir: 31.12.2024 31.12.2023
Ógreidd laun 12.750 35
Ógreiddur lífeyrissjóður 5.829 3.166
Ógreitt orlof 14.429 16.706
Ógreidd staðgreiðsla 5.847 5.846
Ógreitt tryggingagjald 885 214
Ógreitt annað vegna starfsfólks 489 0
Ógreidd opinber gjöld, önnur en tekjuskattur ársins 21 20
Skuld við tengda aðila 39 203
40.289 26.189