AI assistant
Solid Clouds hf. — Annual Report 2024
Mar 28, 2025
8579_rns_2025-03-28_2c24d87f-65e2-4dd5-a024-6d4958f85caf.pdf
Annual Report
Open in viewerOpens in your device viewer
RAFRÆNT UNDIRRITAD
Davíð Gunnarsson
Kt. 2407805939
Dags. 28.3.2025 16:06:04
Åstæða: Undirritun
RAFRÆNT UNDIRRITAD
Stefán Gunnarsson
Kt. 1204765649
Dags. 28.3.2025 16:10:12
Åstæða: Undirritun
RAFRÆNT UNDIRRITAD
Svanhvít Friðriksdóttir
Kt. 1910785359
Dags. 28.3.2025 16:06:25
Åstæða: Undirritun
RAFRÆNT UNDIRRITAD
Elías Skúli Skúlason
Kt. 1608653189
Dags. 28.3.2025 16:12:13
Åstæða: Undirritun
RAFRÆNT UNDIRRITAD
Andrea Olsen
Kt. 1212802999
Dags. 28.3.2025 16:06:49
Åstæða: Undirritun
RAFRÆNT UNDIRRITAD
Signý Magnúsdóttir
Kt. 2202785229
Dags. 28.3.2025 16:39:09
Åstæða: Undirritun
RAFRÆNT UNDIRRITAD
Eggert Árni Gíslason
Kt. 2407612119
Dags. 28.3.2025 16:07:13
Åstæða: Undirritun
Solid Clouds hf
Ársreikningur 2024
Kt: 600913-2550
Eiðistorgi 17
170 Seltjarnarnes
.
Efnisyfirlit
Bls.
Skýrsla og undirritun stjórnar og framkvæmdastjóra 3
Áritun óháðs endurskoðanda 6
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ársins 2024 8
Efnahagsreikningur 9
Eiginfjáryfirlit 10
Sjóðstreymi 11
Skýringar 12
Skýrsla og undirritun stjórnar og framkvæmdastjóra
Solid Clouds hf var stofnað árið 2013. Tilgangur þess er framleiðsla og markaðssetning fjölspilunarleikja.
Þessi ársreikningur er gerður í samræmi við IFRS (alþjóðlega reikningsskilastaða) eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga nr. 3/2006. Í samræmi við staðla eignfærir félagið tæknigrunn sinn og þróunarkostnað tölvuleikja.
Breytingar varðandi stjórn og lykilstarfsmenn
Á aðalfundi 2024 var Eggert Árni Gislason, kjörinn formaður stjórnar og Davið Gunnarsson, skipaður varaformaður stjórnar.
Andrea Olsen tók sæti í stjórn á aðalfundi 2024. Hún hefur viðtæka reynslu sem fyrirtækjalögfræðingur, m.a. hjá LOGOS lögmannsstofu. Andrea er framkvæmdastjóri eignarhaldsfélagsins Frigus ehf og situr í nokkrum öðrum stjórnum fyrir hönd þess.
Skúli Skúlason tók sæti í stjórn á aðalfundi 2024. Hann er með viðamikla reynslu sem fjárfestir og stjórnarmaður í fjölda félaga. Hann er framkvæmdastjóri Express ehf.
Ingólfur Ávarsson kom inn í stjórn á aðalfundi 2024 sem varamaður. Hann hefur gegnt lykilhlutverkum í leikjaiðnaðinum hjá CCP hf. og 1939 Games ehf. Ingólfur er forstjóri leikjafyrirtækisins Porcelain Fortress ehf.
Rekstur og fjárhagsleg staða
Tap á árinu 2024 nam 404,5 millj. kr. (tap 2023: 83,1 millj. kr.). Heildareignir námu 1.174,7 millj. kr. í lok árs 2024 (2023: 1.217,7 millj. kr.) og nam eigið fé 1.072,8 millj. kr. á sama tíma (2023: 1.175,1 millj. kr.). Fjöldi ársverka var 20 á árinu 2024 samanborið við 21 á árinu 2023.
Breyting á afkomu félagsins á árinu 2024 samanborið við árið 2023 skýrist einkum af auknum tekjum, hærri markaðskostnaði, auknum afskriftum á þróunarkostnaði samhliða eignfærslu og gjaldfærslu tekjuskattseignar, sjá nánar í skýringu 10.
Í febrúar 2024 seldi Solid Clouds hf nýtt hlutafé í lokuðu og almennu útboði að nafnverði 147,6 millj. kr. og nam söluandvirðið 295,2 millj. kr.
Handbært fé Solid Clouds hf í lok 2024 nam 14,0 millj. kr. Félagið lauk útgáfu á 175,0 millj. kr. umbreytanlegu skuldabréfi í febrúar 2025 en hluti af því eða 80,5 millj. kr. var nýttur til að endurgreiða hluthafálán. Solid Clouds hf gerir ráð fyrir að fá um 135,4 millj. kr. endurgreiðslu frá Rannís vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar í byrjun nóvember. Solid Clouds hf hefur frá því í nóvember 2024 verið að vinna í að sækja viðbótarfjármagn sem ráðgert er að dugi félaginu út árið 2025.
Beinar auglýsingar eru lykilþáttur í tekjuöflun Solid Clouds hf, þar sem þær gera félaginu kleift að ná markvissum árangri með mælanlegum hætti og spá fyrir með nokkurri vissu um þróun framtíðartekna. Kostnaður við auglýsingar eru því ekki einungis útgjaldaliður, heldur myndu þær óefnislega eign sem ekki er eignfærð í ársreikningi í samræmi við kröfur IFRS staðla. Félagið auglýsti fyrir 134,2 millj. kr. á árinu 2024. Tekjur vegna þeirra auglýsinga voru 99,2 millj. kr. á árinu 2024 en áætlað er að tekjur næstu ára vegna auglýsinga á árinu 2024 verði um 88,0 millj. kr. Auglýsingakostnaður ársins 2024 ætti því að skila um 187,2 millj. kr. í tekjur á nokkrum árum.
Í apríl 2024 byrjaði Solid Clouds hf að auglýsa Starborne Frontiers í meira mæli auk þess sem PC útgáfu af leiknum var gefín út. Í október kom leikurinn út á Steam, stærstu leikjaveitu heims. Í nóvember kom út Imperium viðbótin við Starborne Frontiers.
Á árinu 2024 náði félagið miklum árangri í vexti. Tekjur jukust um 1.264% frá janúar til desember. Mánaðarlegum virkum notendum (e. Monthly Active Users, MAU) fjölgaði um 344,3% og daglegum spilurum (e. Daily Active Users, DAU) um 394% fyrir sama tímabil.
Solid Clouds hf - Ársreikningur 2024
Skýrsla og undirritun stjórnar og framkvæmdastjóra, frh.
Sá lykilmælikvarði sem félagið horfir mest á er arðsemi auglýsinga (e. Return on Ad Spend, ROAS). Arðsemi auglýsinga á fyrsta ársfjörðungi 2024 var um 84% á 360 dögum en félagið áætlar að sama hlutfall fyrir síðasta ársfjörðung ársins verði um 150% á 360 dögum. Langtímamarkmið félagsins er að arðsemi auglýsinga verði um 400% á um fimm árum.
Meginmarkmið Solid Clouds hf á árinu 2025 er að auglýsa meira og á sama tíma viðhalda ásættanlegri arðsemi auglýsinga. Í því samhengi er félagið að fara að byrja að auglýsa á nýjum markaðstorgum á borð við Applovin, Mintegral og Ironsource. Þá er stefnt að frekari alþjóðavæðingu leiksins með þýðingu á fleiri tungumál á fyrri hluta ársins.
Áhættuþættir
Solid Clouds hf treystir á beina markaðssetningu til að afla viðskiptavina og tekna. Félagið þarf að geta auglýst fyrir tiltekna fjárhæð og á sama tíma að viðhalda ásættanlegri arðsemi auglýsinga til að ná jákvæðri rekstrarafkomu. Auk þess sem fjármagna þarf markaðssök h félagsins.
Hluthafar
Hluthafar í árslok 2024 voru 1.608 en þeir voru 1.581 í ársbyrjun og hefur því fjölgað um 27 á árinu. Eftirtaldir eru tíu stærstu hluthafar í árslok 2024 með samanburði við sömu hluthafa í árslok 2023:
| 2024 | 2023 | |
|---|---|---|
| Festa - lífeyrissjóður | 8,1% | 1,1% |
| Stefán Gunnarsson | 6,8% | 10,4% |
| Birta lífeyrissjóður | 6,0% | 0,0% |
| Stefán Þór Björnsson | 4,5% | 3,8% |
| Kjölur fjárfestingarfélag ehf | 3,7% | 6,6% |
| Eggert Árni Gíslason | 3,3% | 1,6% |
| Fea ehf | 3,0% | 0,0% |
| Sigurður Arnljótsson | 2,6% | 4,1% |
| Guðmundur Ingi Jónsson | 2,5% | 0,5% |
| Þorlákur Traustason | 2,4% | 0,2% |
| Aðrir hluthafar (1.598, 2023: 1.571) | 57,1% | 71,7% |
Hlutafé
Skráð hlutafé félagsins nam 331,8 millj. kr. í árslok 2024. Hver hlutur er 1 króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda. Nánari upplýsingar er að finna í skýringu 12.
Stjórnarhættir
Stjórn Solid Clouds hf leggur áherslu á að viðhalda góðum stjórnarháttum og fylgja leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands, Nasdaq OMX Iceland hf og Samtökum atvinnulifsins. Stjórnin hefur sett sér starfsreglur sem skilgreina valdsvið sitt og framkvæmdastjóra með skýrum hætti og hafa að geyma ákvæði um fundarsköp, hæfi stjórnarmanna, þagnarskyldu, upplýsingagjóf framkvæmdastjóra til stjórnar og önnur atriði. Kynjahlutfall í stjórn félagsins er tvær konur (40%) og þrír karlar (60%).
Meirihluti stjórnarmanna telst óháður félaginu, daglegum stjórnendum og helstu hluthöfum þess. Ítarlegar upplýsingar um stjórnarmenn má finna á vefsetri félagsins, www.solidclouds.com.
Mismunun á grundvelli kyns, uppruna, litarháttar, fötlunar, kynhneigðar, kynvitundar, kynþáttar, menningar, trúarbragða eða annarrar stöðu er ekki liðin hjá Solid Clouds hf.
Solid Clouds hf - Ársreikningar 2024
Skýrsla og undirritun stjórnar og framkvæmdastjóra, frh.
Yfirlýsing stjórnar og framkvæmdastjóra
Samkvæmt bestu vitneskju er það álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu félagsins á árinu 2024, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu þess 31. desember 2024 og breytingu á handbæru fé í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir eru staðfestir af Evrópusambandinu.
Jafnframt er það álit okkar að ársreikningurinn og skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri félagsins, stöðu þess og helstu áhættuþætti og óvissu sem félagið stendur frammi fyrir.
Stjórn og framkvæmdastjóri Solid Clouds hf hafa í dag rætt ársreikning félagsins fyrir árið 2024 og staðfesta hann með undirritun sinni. Stjórn og framkvæmdastjóri leggja til við aðalfund félagsins að samþykkja ársreikninginn.
Seltjarnarnes, 28. mars 2025
Stefán Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Eggert Árni Gíslason, stjórnarformaður
Davið Gunnarsson, varaform. stjórnar
Andrea Olsen, stjórnarmaður
Skúli Skúlason, stjórnarmaður
Svanhvít Friðriksdóttir, stjórnarmaður
Solid Clouds hf - Ársreikningur 2024
Áritun óháðs endurskoðanda
Til stjórnar og hluthafa í Solid Clouds hf
Álit
Víð höfum endurskoðað meðfylgjandi ársreikning Solid Clouds hf fyrir árið 2024. Ársreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikning, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, yfirlit um sjóðstremi, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.
Það er álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins á árinu 2024, efnahag þess 31. desember 2024 og breytingu á handbæru fé á árinu 2024, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu, viðbótar kröfur í lögum um ársreikninga og tengdum reglugerðum.
Grundvöllur fyrir áliti
Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt þeim stöðlum er nánar lýst í kaflanum um ábyrgð endurskoðanda hér að neðan. Við erum óháð Solid Clouds hf í samræmi við alþjóðlegar síðareglur fyrir endurskoðendur sem og aðrar síðareglur sem eru viðeigandi við endurskoðun á Íslandi, og höfum við uppfyllt ákvæði þeirra reglna. Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægilegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.
Rekstrarhaði
Án þess að breyta áliti okkar vekjum við athygli á skýringu 2e í ársreikningnum sem skýrir frá því að í árslok 2024 sé handbært fé félagsins 14,0 millj. kr. og veltufjárskuldir umfram veltufjáreignir eru 66,8 millj. kr. Eins og fram kemur í skýringunni bendir þetta til þess að óvissa sé fyrir hendi sem kann að hafa áhrif á rekstrarhaði félagsins.
Aðrar upplýsingar
Stjórn og framkvæmdastjóri bera ábyrgð á öðrum upplýsingum. Aðrar upplýsingar innifela í sér skýrslu og undirritun stjórnar og framkvæmdastjóra.
Álit okkar á ársreikningnum nær ekki yfir aðrar upplýsingar og við ályktum hvorki um, né veitum staðfestingu á efni þeirra ef frá er talin sú staðfesting varðandi skýrslu stjórnar sem fram kemur hér að neðan.
Í tengslum við endurskoðun okkar berum við ábyrgð á að lesa framangreindar aðrar upplýsingar og skóða hvort þær séu í verulegu ósamræmi við ársreikninginn eða þekkingu okkar sem við höfum aflað við endurskoðunina eða virðast að öðru leyti innifela verulegar skekkjur. Ef við komumst að þeirri niðurstöðu, byggt á þeirri vinnu sem við höfum framkvæmt, að það séu verulegar skekkjur í öðrum upplýsingum ber okkur að skýra frá því. Það er ekkert sem við þurfum að skýra frá hvað þetta varðar.
Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 104 gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga staðfestum við samkvæmt okkar bestu vitund að í skýrslu stjórnar sem fylgir ársreikningi þessum eru veittar þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.
Ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjóra á ársreikningnum
Stjórn og framkvæmdastjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu ársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu, viðbótar kröfur í lögum um ársreikninga og tengdum reglugerðum. Stjórn og framkvæmdastjóri eru einnig ábyrg fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er varðandi gerð og framsetningu ársreikningsins, þannig að hann sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Víð gerð ársreikningsins eru stjórn og framkvæmdastjóri ábyrg fyrir því að meta rekstrarhaði Solid Clouds hf. Ef við á, skulu stjórn og framkvæmdastjóri setja fram viðeigandi skýringar um rekstrarhaði og hvers vegna þau ákvæði að beita forsendunni um rekstrarhaði við gerð og framsetningu ársreikningsins, nema stjórn og framkvæmdastjóri hafi ákvæði að leysa félagið upp eða hætta starfsemi, eða hafi enga aðra raunháfa möguleika.
Solid Clouds hf - Ársreikningar 2024
Áritun óháðs endurskoðanda, frh.
Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun ársreikningsins
Markmið okkar er að afla nægjanlegrar vissu um að ársreikningurinn sé án verulegra annmarka, hvort sem er af völdum sviksemi eða mistaka og að gefa út áritun sem felur í sér álit okkar.
Nægjanlega vissa er þó ekki trygging þess að endurskoðun framkvæmd í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla muni uppgötva allar verulegar skekkjur séu þær til staðar. Skekkjur geta orðið vegna mistaka eða sviksemi og eru álitnar verulegar ef þær gætu haft áhrif á fjárhagslega ákvarðanatöku notenda ársreikningsins, einar og sér eða samanlagðar.
Endurskoðun okkar í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla byggir á faglegri dómgreind og beitum við gagnrýnni hugsun við endurskoðunina. Við framkvæmum einnig eftirfarandi:
-
Greinum og metum hættuna á verulegri skekkju í ársreikningnum, hvort sem er vegna mistaka eða sviksemi, hönnum og framkvæmum endurskoðunaraðgerðir til að bregðast við þeim hættum og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi til að byggja álit okkar á. Hættan á að uppgötva ekki verulega skekkju vegna sviksemi er meiri en að uppgötva ekki skekkju vegna mistaka, þar sem sviksemi getur falið í sér samsæri, skjalafals, misvisandi framsetningu ársreiknings, að einhverju sé viljandi sleppt eða að farið sé framhjá innri eftirlitsaðgerðum.
-
Öflum skilnings á innra eftirliti, sem snertir endurskoðunina, í þeim tilgangi að hanna viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki í þeim tilgangi að veita álit á virkni innra eftirlits félagsins.
-
Metum hvort reikningsskilaarðferðir sem notaðar eru, og tengdar skýringar, séu viðeigandi og hvort reikningshaldslegt mat stjórnenda sé raunhæft.
-
Ályktum um notkun stjórnenda á forsendunni um rekstrarhæfi og metum á grundvelli endurskoðunarinnar hvort verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi eða hvort aðstæður séu til staðar sem gætu valdið verulegum efasemduum um rekstrarhæfi. Ef við teljum að verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi ber okkur að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum ársreikningsins í áritun okkar. Ef slíkar skýringar eru öfullnægjandi þurfum við að víkja frá fyrirvaralausri áritun. Niðurstaða okkar byggir á endurskoðunargögnum sem aflað er fram að dagsetningu áritunar okkar. Engu að síður geta atburðir eða aðstæður í framtiðinni valdið óvissu um rekstrarhæfi félagsins.
-
Metum í heild sinni hvort ársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum, metum framsetningu, uppbyggingu, innihald og þar með talið skýringar við ársreikninginn með tilliti til glöggrar myndar.
Við upplýsum stjórn meðal annars um áætlað umfang og tímasetningu endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem komu upp í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka á innra eftirlit sem komu fram í endurskoðuninni, ef við á.
Kópavogur, 28. mars 2025
Deloitte ehf
Signý Magnúsdóttir
endurskoðandi
Solid Clouds hf - Ársreikningar 2024
.
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ársins 2024
| Skýr. | 2024 | 2023 | |
|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | |||
| Tekjur af leik | 5 | 99.207 | 22.697 |
| Innheimtukostnaður vegna tekna af leik | (17.176) | (2.230) | |
| 82.030 | 20.468 | ||
| Rekstrarkostnaður | |||
| Laun og launatengd gjöld | 6 | 19.925 | 15.619 |
| Kostnaður við leikjahönnun | 14 | 27.911 | 4.604 |
| Kostnaður við auglýsingar | 134.245 | 33.854 | |
| Annar rekstrarkostnaður | 15 | 32.787 | 19.401 |
| 214.869 | 73.478 | ||
| Rekstrartap án fjármagnsliða, afskrifta og tekjuskatts | (132.839) | (53.011) | |
| Afskriftir þróunarkostnaðar og leigueigna | 8,9 | (114.620) | (93.246) |
| Rekstrartap án fjármagnsliða og tekjuskatts | (247.459) | (146.257) | |
| Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) | |||
| Vaxtatekjur | 6.492 | 9.304 | |
| Vaxtagjöld | (2.751) | (1.354) | |
| Gengismunur | (1.008) | (318) | |
| 2.732 | 7.632 | ||
| Tap fyrir tekjuskatt | (244.727) | (138.626) | |
| Tekjuskattur | 10 | (159.736) | 55.549 |
| Tap og heildarafkoma ársins | (404.462) | (83.077) |
Skýringar á blaðsíðum 12-24 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.
Solid Clouds bf - Ársreikningur 2024
Fjárhæðir eru í þús. kr.
Efnahagsreikningur 31. desember 2024
Eignir
| Skýr. | 31.12.2024 | 31.12.2023 | |
|---|---|---|---|
| Fastafjármunir | |||
| Iróunarkostnaður | 8 | 1.134.825 | 995.148 |
| Leigueignir | 9 | 4.741 | 4.472 |
| Reiknuð tekjuskattseign | 10 | 0 | 159.736 |
| Fastafjármunir samtals | 1.139.567 | 1.159.356 | |
| Veltufjármunir | |||
| Viðskiptakröfur | 16.871 | 8.535 | |
| Aðrar skammtímakröfur | 4.200 | 5.799 | |
| Handbært fé | 14.035 | 44.003 | |
| Veltufjármunir samtals | 35.106 | 58.337 | |
| Eignir samtals | 1.174.672 | 1.217.693 | |
| Eigið fé og skuldir | |||
| Eigið fé | |||
| Hlutafé | 331.800 | 184.199 | |
| Yfirverðsreikningur hlutafjár | 129.436 | 198.808 | |
| Bundið eigið fé vegna þróunarkostnaðar | 1.134.825 | 995.148 | |
| Kaupréttarsamningar | 20.861 | 13.944 | |
| Ójafnað eigið fé | (544.139) | (216.973) | |
| Eigið fé samtals | 12 | 1.072.783 | 1.175.126 |
| Skammtímaskuldir | |||
| Leiguskuldir | 9 | 4.767 | 4.901 |
| Skuldabréfalán við tengda aðila | 18 | 43.333 | 0 |
| Viðskiptaskuldir | 13.500 | 6.557 | |
| Aðrar skammtímaskuldir | 11 | 40.289 | 31.109 |
| Skammtímaskuldir | 101.889 | 42.567 | |
| Skuldir alls | 101.889 | 42.567 | |
| Eigið fé og skuldir samtals | 1.174.672 | 1.217.693 |
Skýringar á blaðsiðum 12-24 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.
Solid Clouds bf - Ársreikningur 2024
Fjárhæðir eru í þús. kr.
Eiginfjáryfirlit árið 2024
| Hlutafé | Yfirverðsr. hlutafjár | Bundið eigið fé | Kaupréttar-samningar | Ójafnað eigið fé | Eigið fé samtals | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Breytingar á eigin fé 2023 | ||||||
| Eigið fé 31.desember 2022 ... | 184.199 | 420.496 | 861.253 | 11.918 | ( 221.688) | 1.256.177 |
| Ójafnað eigið fé jafnað | ||||||
| á móti yfirverðsreikning ... | ( 221.688) | 221.688 | 0 | |||
| Tap ársins og heildarafkoma ... | ( 83.077) | ( 83.077) | ||||
| Binding eigin fjár ... | 133.896 | ( 133.896) | 0 | |||
| Kaupréttarsamningar ... | 2.026 | 2.026 | ||||
| Eigið fé 31. desember 2023 ... | 184.199 | 198.808 | 995.148 | 13.944 | ( 216.973) | 1.175.126 |
| Breytingar á eigin fé 2024 | ||||||
| Eigið fé 31.desember 2023 ... | 184.199 | 198.808 | 995.148 | 13.944 | ( 216.973) | 1.175.126 |
| Ójafnað eigið fé jafnað | ||||||
| á móti yfirverðsreikning ... | ( 216.973) | 216.973 | 0 | |||
| Innborgað hlutafé ... | 147.601 | 147.601 | 295.202 | |||
| Tap ársins og heildarafkoma ... | ( 404.462) | ( 404.462) | ||||
| Binding eigin fjár ... | 139.677 | ( 139.677) | 0 | |||
| Kaupréttarsamningar ... | 6.917 | 6.917 | ||||
| Eigið fé 31. desember 2024 ... | 331.800 | 129.436 | 1.134.825 | 20.861 | ( 544.139) | 1.072.783 |
Sjá umfjöllun um eigið fé í skýringu 11.
Skýringar á blaðsíðum 12-24 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.
louds hf - Ársreikningur 2024
Fjárhæðir eru í þús. kr.
Sjóðstreymi ársins 2024
| Skýr. | 2024 | 2023 | |
|---|---|---|---|
| Rekstrarhreyfingar | |||
| Rekstrartap án fjármagnslíða og tekjuskatts | ( 247.459) | ( 146.257) | |
| Rekstrarlíðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | |||
| Vextir ársins af skuldabréfaláni frá tengdum aðilum | 133 | 0 | |
| Gjaldfærsla kaupréttarsamninga | 6 | 6.917 | 2.026 |
| Afskriftir þróunarkostnaðar og leigueigna | 9 | 114.620 | 93.246 |
| Veltufé til rekstrar | ( 125.790) | ( 50.984) | |
| Breyting á rekstrartengdum eignum | ( 6.736) | ( 2.401) | |
| Breyting á rekstrartengdum skuldum | 16.123 | 7.316 | |
| Handbært fé til rekstrar fyrir vexti | ( 116.403) | ( 46.069) | |
| Innborgaðir vextir | 6.492 | 9.304 | |
| Greiddir vextir | ( 2.751) | ( 1.354) | |
| Handbært fé til rekstrar | ( 112.662) | ( 38.119) | |
| Fjárfestingarhreyfingar | |||
| Eignfærður þróunarkostnaður | 8 | ( 380.409) | ( 360.743) |
| Styrkir færðir til lækkunar á þróunarkostnaði | 8 | 131.284 | 138.606 |
| Fjárfestingarhreyfingar | ( 249.125) | ( 222.137) | |
| Fjármögnunarhreyfingar | |||
| Innborgað hlutafé að frádregnum kostnaði við hlutafjárútboð | 295.202 | 0 | |
| Skuldabréfalán frá tengdum aðilum | 43.200 | 0 | |
| Áfborgun af leiguskuld | ( 5.575) | ( 5.540) | |
| Fjármögnunarhreyfingar | 332.826 | ( 5.540) | |
| Lækkun handbærs fjár | ( 28.960) | ( 265.796) | |
| Handbært fé í ársbyrjun | 44.003 | 310.118 | |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | ( 1.008) | ( 318) | |
| Handbært fé í árslok | 14.035 | 44.003 |
Skýringar á blaðsíðum 12-24 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.
Solid Clouds bf - Ársreikningur 2024
Fjárhæðir eru í þús. kr.
Skýringar
1. Félagið
Solid Clouds hf ("Félagið") er hlutafélag sem er stofnað á Íslandi og skráð að Eiðistorgi 17, 170 Seltjarnarnesi og er þar að finna heimilisfesti aðalskrifstofu félagsins. Tilgangur félagsins er vinna við upplýsingatækni, hugbúnaðarþróun og gerð og markaðssetningu tölvuleikja.
2. Grundvöllur reikningsskilanna
a. Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt
Ársreikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Ársreikningurinn er jafnframt í samræmi við viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga og reglugerð um framsetningu og innihald ársreikninga.
Stjórn félagsins staðfesti ársreikning þennan þann 28. mars 2025.
b. Grundvöllur matsaðferða
Ársreikningurinn er gerður á grundvelli kostnaðarverðs að undanþegnum kaupréttarsamningnum sem metnir eru í samræmi við kröfur IFRS 2.
c. Starfrækslugjaldmiðill og framsetningargjaldmiðill
Ársreikningurinn er birtur í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Allar fjárhæðir eru birtur í þúsundum króna, nema annað sé tekið fram.
d. Mat og ákvarðanir
Gerð ársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaðferða og birtur fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati.
Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtíðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á.
Við ákvörðun gangvírðis er byggt á forsendum sem háðar eru mati stjórnenda á þróun ýmissa þátta í framtíðinni. Raunverulegt söluverð eigna og uppgreiðsluverðmæti skulda kann að vera frábrugðið þessu mati. Mat stjórnenda hefur mest áhrif í tengslum við ákvörðun um eignfærslu þróunarkostnaðar og við mati á eignfærslu tekjuskattseignar. Í skýringu 1g og skýringu 8 má sjá nánari upplýsingar er varða eignfærslu þróunarkostnaðar og í skýringu 10 varðandi eignfærslu tekjuskattseignar.
e. Rekstrárhafi
Í árslok 2024 nam handbært fé félagsins 14,0 milljónir króna og veltufjárskuldir umfram veltufjáreignir eru um 67 milljónir króna. Félagið lauk útgáfu á 175,0 millj. kr. umbreytanlegu skuldabréfi í febrúar 2025. Af því voru 80,5 millj. kr. nýttar til að endurgreiða hluthafálán sem voru til staðar í lok árs 2024 og viðbótarlhuthafálán sem veitt voru í janúar 2025.
Félagið reiknar með að fjármagna áframhaldandi rekstur félagsins með því handbærá fé sem er til staðar, með þeirri viðbótarfjármögnun sem fékkst í febrúar 2025 og áætlun um tekjuöflun og frekari fjármögnun ársins. Veruleg óvissa er til staðar um áætað framtíðarsjóðstregmi félagsins ef áætlanir ganga ekki eftir. Stjórnendur hafa verið að vinna að fjármögnun félagsins og hafa gert samning við fjármálafyrirtæki um aðkomu að fjármögnun í formi umsjónar og ráðgjafar. Ef að slik fjármögnun gengur ekki eftir þá þarf félagið bæði á tímabundinni fjármögnun hluthafa að halda sem og að fara í aðhaldsæðerðir á rekstri til að tryggja fullnægjandi handbært fé til að standa við skuldbindingar sínar.
Ársreikningur félagsins er settur fram miðað við áframhaldandi rekstur.
Solid Clouds hf - Ársreikningur 2024
Fjárhæðir eru í þús. kr.
Skýringar, frh.
3. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir
a. Erlendir gjaldmiðlar
Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum eru færð í starfrækslugjaldmiðli á gengi viðskiptadags. Peningalegar eignir og skuldir í erlendum gjaldmiðlum eru færðar miðað við gengi á uppgjörsdegi.
b. Innlausn tekna
Félagið hefur tekjur af sölu rafrænna vara (e. virtual goods) í þeim tölvuleikjum sem félagið hefur gefið út. Tekjur af þeim eru skráðar þegar spilarar hafa fengið þær afhentar.
c. Styrkir frá stjórnvöldum
Ríkisstyrkir sem tengjast þróunarkostnaði hafa verið færðir til lækkunar á eignfærðum þróunarkostnaði til að jafna þeim á móti kostnaðinum sem þeim er ætlað að mæta.
Styrkur frá Rannís vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar ársins 2024 kemur til greiðslu í byrjun nóvember 2025 að fengnu samþykki frá yfirvöldum.
d. Starfskjör
Laun starfsmanna eru eignfærð þegar vinna þeirra hefur verið innt af hendi og er vegna þróunar á eignfærsluhæfum verkefnum, en gjaldfærð ef skilyrðum fyrir eignfærslu er ekki fullnægt. Skuld er færð fyrir þá fjárhæð sem búist er við að verði greidd síðar ef félagið hefur núverandi lagalega eða samningsbundna skyldu til að greiða þá fjárhæð vegna fyrri þjónustu sem starfsmaðurinn hefur veitt og hægt er að áætla fjárhæðinga með áreiðanlegum hætti.
Fyrirtækið greiðir iðgjöld fyrir starfsmenn vegna iðgjalda sem tengjast lifeyrissjóðum. Fyrirtækið ber enga ábyrgð á skuldbindingum sjóðanna.
Sjá skýringu 12d um kaupréttarsamninga starfsmanna en félagið hefur gert kaupréttarsamninga við starfsmenn svo að hagsmunir þeirra fari sem best saman við hagsmuni hluthafa.
e. Vaxtatekjur
Vaxtatekjur samanstanda af vaxtatekjum af handbæru fé og eru færðar eftir því sem þær falla til miðað við virka vexti.
f. Tekjuskattur
Tekjuskattur er færður í rekstrarreikning nema þegar hann tengist liðum sem eru færðir beint á eigið fé, en þá er tekjuskatturinn færður á eigið fé.
Frestaður tekjuskattur er færður vegna tímboundinna mismuna á bókfærðu verði eigna og skulda í ársreikningnum annars vegar og skattverði þeirra hins vegar.
Útreikningur á frestuðum skatti byggir á því skatthlutfalli sem vænst er að verði í gildi þegar tímboundnir mismunir koma til með að snúast við, miðað við gildandi lög á uppgjörsdegi. Reiknuð tekjuskattseign og tekjuskattsskuldbindingu er jafnað saman þegar til staðar er lagalegur réttur til að jafna saman tekjuskatti til greiðslu og skatteign.
Reiknuð tekjuskattseign er einungis færð að því marki sem líklegt er talið að skattskyldur hagnaður verði til ráðstöfunar í framtíðinni sem unnt verður að nýta eignina á móti. Reiknuð tekjuskattseign er metin á hverjum uppgjörsdegi og lækkuð að því marki sem talið er líklegt að hún nýtist ekki.
Solid Clouds bf - Ársreikningur 2024
Fjárhæðir eru í þús. kr.
Skýringar, frh.
g. Óefnislegar eignir
Óefnislegar eignir eru einungis eignfærðar þegar líklegt er að hagrænn ávinningur tengdur eigninni muni nýtast félaginu og hægt er að meta kostnaðarverð hennar með áreiðanlegum hætti. Óefnislegar eignir félagsins eru tölvuleikir í þróun og tæknigrunnur félagsins en félagið hefur skipt eignfærðum þróunarkostnaði niður á tæknigrunn og Sovereign Space og Frontiers leikina. Eignirnar eru færðar á kostnaðarverði að frádregnum afskriftum sem eru færðar á kerfisbundinn hátt á áæltluðum nýtingartíma þeirra sem er mismunandi miðað við undirliggjandi eignir. Áæltlaður nýtingartími og afskriftaðferðir eru endurmetnar í lok hvers árs.
Rannsóknarkostnaður er gjaldfærður þegar hann fellur til. Þróunarkostnaður er aðeins eignfærður ef öll eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:
- að félagið geti lokið þróun óefnislegu eignarinnar þannig að hún sé tilbúin til notkunar eða komin í söluhæft ástand,
- að félagið ætli sér að ljúka við þróunar eignarinnar og nota hana eða selja,
- að félagið sýni fram á möguleika sína til að selja eignina,
- að félagið sýni fram á að eignin komi til með að skila tekjum í framtiðinni,
- að félagið hafi næga tækni, og fjármagn til að ljúka við þróun og sölu,
- að félagið hafi getu til að meta útgjöld vegna þróunar með áreiðanlegum hætti.
Eignfærsla þróunarkostnaðar á sér aðeins stað þegar öll ofangreind skilyrði eru uppfyllt en annars er hann gjaldfærður þegar hann fellur til.
Það er mat stjórnenda að eignfærsla þróunarkostnaðar uppfylli öll ofangreind skilyrði.
h. Leigueignir og leiguskuld
Við upphaf leigusamnings færir leigutaki inn leigueign sem táknar rétt sinn til að nota undirliggjandi eign og leiguskuld sem táknar skyldu til að greiða leigugreiðslur. Leigueignin er upphaflega metin á kostnaðarverði, sem samanstendur af upphæð leiguskuldar leiðrétt fyrir öllum leigugreiðslum sem greiddar voru á upphafsdegi eða ásamt öllum beinum upphaflegum kostnaði og áætlun um kostnað við að taka í sundur og fjárlægja undirliggjandi eign eða til að endurheimta undirliggjandi eign að frádregnum mótteknum hvötum til leigu.
Leigueignin er bókfærð á meðal fastafjármuna í ársreikningnum og afskrifuð í kjölfarið með línulegri aðferð frá upphafsdegi leigusamnings til loka nýtingartíma leigueignar.
Leiguskuldin er upphaflega metin á núvirði leigugreiðslna sem ekki eru greiddar á upphafsdegi leigusamnings, núvirt með ávöxtunarkröfu félagsins.
i. Fjáreignir
Fjáreignir félagsins eru viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur. Félagið ætlar sér að eiga þær til gjaldága og samningsbundnar greiðslur á settum gjaldágum samanstanda einungis af afborgunum af höfuðstól og vöxtum þar sem það á við. Umfjöllun um vænt útlánatap af fjáreignum má finna í skýringu 13b.
Félagið afskráir fjáreignir þegar samningsbundinn réttur til framtiðarsjóðstreymis af fjáreigninni er ekki lengur til staðar eða þegar áhætta og ávinningur af fjáreigninni flyst yfir á annan aðila.
j. Fjárskuldir og eiginfjárgerningar
Eiginfjárgerningar er hvers konar samningur sem felur í sér eftirstæða hagsmuni í eignum félagsins eftir að allar skuldir hafa verið dregnar frá. Eiginfjárgerningar útgefíir af félaginu eru skráðir á kostnaðarverði að frádregnum beinum kostnaði við útgáfu þeirra.
Fjárskuldir eru metnar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti. Félagið afskráir fjárskuldir eingöngu þegar skuldbinding vegna þeirra er ekki lengur til staðar. Hagnaður eða tap vegna afskráningar er færð í rekstrarreikning.
Solid Clouds bf - Ársreikningur 2024
Fjárhæðir eru í þús. kr.
Skýringar, frh.
4. Nýir reikningsskilastaðar og túlkanir á þeim sem hafa ekki verið innleiddir
Félagið hefur innleitt alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir eru samþykktir af Evrópusambandinu, breytingar á þeim og nýjar túlkanir sem gilda fyrir reikningsskilatímabil sem hófust 1. janúar 2024 eða síðar. Eftirfarandi staðall og endurbætur tóku gildi 1. janúar 2024:
-
IAS 1 Framsetning reikningsskila
Flokkun skulda í skammtíma eða langtímahluta -
IAS 1 Framsetning reikningsskila
Langtímaskuldir með lánaskilmálum -
IAS 7 Sjóðstreymi og IFRS 7 Fjármálagerningar: Skýringar
Aðfangafjármögnun -
IFRS 16 Leigusamningar
Leiguskuldbinding í sölu og endurleiguviðskiptum
Það er mat stjórnenda að innleiðing ofangreindra endurbóta á stöðlum hafi ekki haft veruleg áhrif á ársreikning félagsins.
Félagið hefur ekki innleitt nýja eða endurbætta staðla sem hafa verið gefnir út en ekki tekið gildi. Þann 1. janúar 2025 taka gildi eftirfarandi endurbætur á stöðlum:
- IAS 21 Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla
Skiptanleiki gjaldmiðla
Áhrif IFRS 18 sem tekur gildi 1. janúar 2027 hefur ekki verið metin að fullu, en að öðru leyti er það mat stjórnenda að innleiðing þeirra endurbóta sem fram koma hér að ofan, eða annarra breytinga á stöðlum sem samþykktar hafa verið en hafa ekki tekið gildi, muni ekki hafa veruleg áhrif á ársreikninginn á síðari tímabilum.
5. Landfræðileg skipting tekna félagsins
Eftirfarandi tafla sýnir skiptingu tekna af sölu tölvuleikja félagsins í mismunandi löndum m.v. 15 stærstu lönd árin 2024 og 2023:
| 2024 | 2023 | |||
|---|---|---|---|---|
| Sala í þús. kr. | Hlutfall af sölu | Sala í þús. kr. | Hlutfall af sölu | |
| Bandaríkin | 50.022 | 50,42% | 11.765 | 51,84% |
| Bretland | 12.237 | 12,33% | 2.242 | 9,88% |
| Þýskaland | 10.143 | 10,22% | 100 | 0,44% |
| Ástralía | 3.203 | 3,23% | 1.509 | 6,65% |
| Kanada | 3.119 | 3,14% | 1.687 | 7,43% |
| Sviþjóð | 1.560 | 1,57% | 200 | 0,88% |
| Suður-Kórea | 1.199 | 1,21% | 12 | 0,05% |
| Holland | 1.647 | 1,66% | 98 | 0,43% |
| Rúmenia | 1.290 | 1,30% | 466 | 2,05% |
| Ísland | 973 | 0,98% | 88 | 0,39% |
| Frakkland | 956 | 0,96% | 511 | 2,25% |
| Eistland | 672 | 0,68% | 85 | 0,37% |
| Spánn | 666 | 0,67% | 81 | 0,36% |
| Belgia | 635 | 0,64% | 111 | 0,49% |
| Pölland | 617 | 0,62% | 979 | 4,31% |
| 47 / 39 önnur lönd | 10.270 | 10,35% | 2.763 | 12,17% |
| Tekjur af leik alls | 99.207 | 100,00% | 22.697 | 100,00% |
Solid Clouds bf - Ársreikningur 2024
Fjárhæðir eru í þús. kr.
Skýringar, frh.
- Laun og launatengd gjöld
| Laun og launatengd gjöld sundurliðast þannig: | 2024 | 2023 |
|---|---|---|
| Laun | 219.438 | 211.231 |
| Gjaldfærður kostnaður vegna kaupréttarsamninga | 6.917 | 2.026 |
| Launatengd gjöld | 40.734 | 47.878 |
| Laun og launatengd gjöld samtals | 267.089 | 261.135 |
| Eignfærð laun og launatengd gjöld sem þróunarkostnaður | (247.164) | (245.516) |
| Laun og launatengd gjöld í rekstrarreikningi | 19.925 | 15.619 |
| Meðalfjöldi starfsmanna á árinu, umreiknað í heilsársstörf | 20 | 21 |
Heildarlaun stjórnar og lykilstjórnenda félagsins (2024: tveir starfsmenn, átta stjórnarmenn, 2023: tveir starfsmenn, átta stjórnarmenn) námu samtals 42,1 millj. kr. á árinu 2024 (2023: 40,5 millj. kr.). Mótframlag í lífeyrissjóði nam 4,5 millj. kr. á árinu 2024 (2023: 4,7 millj. kr.).
- Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
| Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast þannig: | 2024 | 2023 |
|---|---|---|
| Vaxtatekjur | 6.492 | 9.304 |
| Vaxtatgjöld | (2.751) | (1.354) |
| Gengismunur | (1.008) | (318) |
| Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld alls | 2.732 | 7.632 |
- Óefnislegar eignir
Þróunarkostnaður fyrirtækisins byggir á framleiðslu félagsins á fjölspilunarleikjum og tæknigrunni sem hægt er að beita til að gera slíka leiki fyrir allpjóðamarkað. Framleiðsla slíkra leikja er almennt flókin, tímafrek og dýr. Eins og fram kemur í skýringu 3g er það mat stjórnenda að eignfærsla þróunarkostnaðar uppfylli allar kröfur IAS 38 um eignfærslu þróunarkostnaðar.
Þróunarkostnaður er afskrifáður yfir áætlaðan líftíma hvers þróunarverkefnis. Líftíminn er metin frá 5 árum til 20 ára. Sjá nánar um afskrift þróunarkostnaðar í skýringu 3g.
| Þróunarkostnaður og afskrift hans greinist þannig: | 2024 | 2023 |
|---|---|---|
| Bókfært verð 1.1. | 995.148 | 861.253 |
| Eignfærður þróunarkostnaður, sjá skýringu 15 | 380.409 | 360.743 |
| Styrkir færðir til lækkunar á þróunarkostnaði, sjá skýringu 15 | (131.284) | (138.606) |
| Afskrift þróunarkostnaðar á árinu | (109.447) | (88.241) |
| Bókfært verð 31.12. | 1.134.825 | 995.148 |
| Afskriftatími þróunarkostnaðar | 5-20 ár | 5-20 ár |
Solid Clouds bf - Ársreikningur 2024
Fjárhæðir eru í þús. kr.
Skýringar, frh.
9. Leigueignir og leiguskuldir
Leigueignir og leiguskuldir í efnahagsreikningi greinast þannig:
| Leigueignir | 2024 | 2023 |
|---|---|---|
| Staða í ársbyrjun | 4.472 | 10.706 |
| Breyting leigueigna á árinu | 5.442 | (1.229) |
| Afskrift leigueigna á árinu | (5.173) | (5.005) |
| Staða í árslok | 4.741 | 4.472 |
| Leiguskuldir | ||
| Skammtímaskuldir | 4.767 | 4.901 |
| Leiguskuldir samtals | 4.767 | 4.901 |
Húsaleigusamningur vegna skrifstofuhúsnæðis félagsins rennur út í árslok 2025. Leigusali hefur gefið til kynna að félagið geti framlengt leigusamningnum ef vilji er til þess.
Í rekstrarreikningi eru eftirfarandi gjaldfærslur vegna leigusamninga:
| Afskrift leigueigna | 5.173 | 5.005 |
|---|---|---|
| Vaxtagjöld | 712 | 766 |
| Samtals gjaldfært vegna leigusamninga | 5.885 | 5.771 |
Félagið greiddi 6,3 millj. kr. í húsaleigu á árinu 2024 (2023: 7,1 millj. kr.).
Í rekstrarreikningi sundurliðast afskriftir þannig:
| Afskrift leigueigna sbr. að ofan | 5.173 | 5.005 |
|---|---|---|
| Afskrift þróunarkostnaðar sbr. skýringu 8 | 109.447 | 88.241 |
| Afskriftir leigueigna og þróunarkostnaðar skv. rekstrarreikningi | 114.620 | 93.246 |
Solid Clouds hf - Ársreikningur 2024
Fjárhæðir eru í þús. kr.
Skýringar, frh.
- Reiknuð tekjuskattseign
| Reiknuð tekjuskattseign greinist þannig: | 2024 | 2023 |
|---|---|---|
| Reiknaður tekjuskattseign í ársbyrjun | 159.736 | 104.187 |
| Reiknaður tekjuskattur ársins | 75.085 | 55.549 |
| Niðurfærsla reiknaðrar tekjuskattseignar | (234.821) | 0 |
| Reiknuð tekjuskattseign í árslok | 0 | 159.736 |
| Reiknuð tekjuskattseign skiptist þannig á liði: | ||
| Yfirfæranlegt skattalegt tap | 461.630 | 358.745 |
| Niðurfærsla reiknaðrar tekjuskattseignar | (234.821) | 0 |
| Þróunarkostnaður | (226.965) | (199.030) |
| Gengismunur | 156 | 21 |
| Reiknuð tekjuskattseign í árslok | 0 | 159.736 |
Skattalegt tap í árslok 2024, sem heimilt er að flytja áfram samkvæmt skattalögum, nemur 2.308,2 millj. kr. Yfirfæranlegt skattalegt tap sem ekki nýtist á móti hagnaði innan tíu ára frá því það myndast fellur niður. Yfirfæranlegt skattalegt tap er nýtanlegt sem hér segir:
| Skattalegt tap ársins 2015, nýtanlegt til ársins 2025 | 52.527 |
|---|---|
| Skattalegt tap ársins 2016, nýtanlegt til ársins 2026 | 68.585 |
| Skattalegt tap ársins 2017, nýtanlegt til ársins 2027 | 106.974 |
| Skattalegt tap ársins 2018, nýtanlegt til ársins 2028 | 109.360 |
| Skattalegt tap ársins 2019, nýtanlegt til ársins 2029 | 160.170 |
| Skattalegt tap ársins 2020, nýtanlegt til ársins 2030 | 198.255 |
| Skattalegt tap ársins 2021, nýtanlegt til ársins 2031 | 307.902 |
| Skattalegt tap ársins 2022, nýtanlegt til ársins 2032 | 377.226 |
| Skattalegt tap ársins 2023, nýtanlegt til ársins 2033 | 411.758 |
| Skattalegt tap ársins 2024, nýtanlegt til ársins 2034 | 515.395 |
| Yfirfæranlegt skattalegt tap samtals | 2.308.151 |
Reiknuð tekjuskattseign vegna yfirfæranlegs skattalegs taps hefur verið eignfærð síðastliðin ár. Óvissa er um nýtingu á skattalegu tapi frá árunum 2015 til 2016. Vegna varúðarsjónarmiða er reiknuð tekjuskattseign færð niður þar til hagnaður verður af rekstri félagsins.
- Aðrar skammtímaskuldir
| Aðrar skammtímaskuldir greinast þannig: | 31.12.2024 | 31.12.2023 |
|---|---|---|
| Ógreidd laun og launatengd gjöld | 40.229 | 31.050 |
| Ógreitt útvarpsgjald | 21 | 21 |
| Skuld við tengda aðila | 39 | 39 |
| Aðrar skammtímaskuldir 31.12. | 40.289 | 31.109 |
Solid Clouds hf - Ársreikningur 2024
Fjárhaðir eru í þús. kr.
Skýringar, frh.
12. Eigið fé
a. Hlutafé
Hlutafé félagsins skv. samþykktum þess nemur 331,8 millj. kr. í árslok 2024 (31.12.2023: 184,2 millj. kr.). Eitt atkvæði fylgir hverjum hlut í félaginu og er nafnverð hluta ein króna.
b. Yfirverðsreikningur hlutafjár
Yfirverðsreikningur hlutafjár sýnir yfirverð sem greitt hefur verið inni félagið við hlutafjárhækkanir.
c. Bundið eigið fé
Skv. lögum um ársreikninga er gerð krafa um að fjárhæð sem nemur eignfærðum þróunarkostnaði sé færð á sérstakan bundinn reikning meðal eigin fjár. Við afskrift þróunarkostnaðar er binding leyst upp og færð á óráðstafað eigið fé og er þá laus til útgreiðslu arð.
d. Kaupréttarsamningar
Stjórn félagsins samþykktí nýja kaupréttaráætlun fyrir starfsmenn og vertaka félagsins á árinu 2021. Kaupréttaráætlunin er til fjögurra ára þar sem starfsfólk hefur rétt til að kaupa fyrirfram skilgreindan fjölda hluta árlega miðað við úthlutaðan fjölda. Yfir fjögurra ára tímabil, hefur starfsmaður heimild til að kaupa 17% af úthlutum fjölda 1. janúar 2022, 21% af úthlutuðum fjölda 1. janúar 2023 og 1. janúar 2024 og 20% af úthlutuðum fjölda 1. janúar 2025. Kaupgengið er 10 kr. á hlut. Starfsmaður skal vera í óslitinni vinnu hjá félaginu til loka hvers
Kaupréttirnir bera hvorki rétt til arðs né atkvæðisréttar. Kaupréttirnir skiptast í fjóra hluta sem verða innleysanlegir á fjögurra ára tímabili. Ávinnslutímabil fyrsta hlutans er eitt ár, ávinnslutímabil annars hluta tvö ár o.s.frv. Hver hlutí er gjaldfærður á sínu ávinnslutímabili, og er því heildargjaldfærsla vegna kauprétta mest á fyrsta ári, en fer svo stiglækkandi þar til öllum fjórum ávinnslutímabilum er lokið.
Gangvirði kaupréttarsamninga er metið á samningsdegi og gjaldfært meðal launa og launatengdra gjalda á því tímabili sem ávinnsla á sér stað. Mótfærsla verður á sérstakan lið meðal eigin fjár. Gangvirði kaupréttarsamninga er metið með Black-Scholes aðferðinni. Við matið eru notaðar forsendur um gengi hlutabréfa á matsdegi, gengi í kaupréttarsamningum, vænt flökt á gengi hlutabréfa félagsins, gildistíma samninganna og áhættulausa vexti
| Eftirfarandi tafla sýnir greiningu á kaupréttarsamningum á árinu 2024: | Fjöldi hluta | Meðal innlausnarverð |
|---|---|---|
| Kaupréttarsamningar í ársbyrjun 2024 | 9.653.823 | 10,00 |
| Útrunnir kaupréttir á árinu 2024 | ( 725.000) | 10,00 |
| Kaupréttarsamningar í árslok 2024 | 8.928.823 | 10,00 |
Alls eru 20 starfsmenn og vertaki með kaupréttarsamning hjá félaginu í árslok 2024.
| Eftirfarandi tafla sýnir greiningu á kaupréttarsamningum á árinu 2023: | Fjöldi hluta | Meðal innlausnarverð |
|---|---|---|
| Kaupréttarsamningar í ársbyrjun 2023 | 10.008.665 | 9,43 |
| Veittir kaupréttir á árinu 2023 | 224.800 | 10,00 |
| Útrunnir kaupréttir á árinu 2023 | ( 579.642) | 0,47 |
| Kaupréttarsamningar í árslok 2023 | 9.653.823 | 10,00 |
Solid Clouds hf - Ársreikningur 2024
Fjárhæðir eru í þús. kr.
Skýringar, frh.
13. Stýring fjármálalegrar áhættu
a. Yfirlit
Félagið stendur frammi fyrir eftirfarandi áhættum í rekstri sínum:
- lánsáhættu, sjá b.
- lausafjáráhættu, sjá c.
- markaðsáhættu (gjaldmiðlaáhætta, vaxtaáhætta), sjá d.
- rekstraráhættu, sjá e.
Hér eru veittar upplýsingar um framangreindar áhættur, markmið, stefnu og aðferðir félagsins við að meta og draga úr áhættunum. Jafnframt fylgja með ýmsar tölulegar upplýsingar.
Stjórn félagsins ber heildarábyrgð á því að koma á og hafa eftirlit með áhættustýringu félagsins. Stjórnin hefur falið framkvæmdastjóra félagsins að sjá um daglegt eftirliti með áhættum félagsins.
Markmið félagsins með áhættustýringu er að uppgötva og greina áhættu sem félagið býr við, setja viðmið um áhættutöku og hafa eftirlit með henni. Þá er markmiðið enn fremur að stýra áhættu á skilvirkan hátt og miðast áhættustýring við að áhætta sé í samræmi við áhættuvilja og stefnu félagsins og er pannig stuðlað að auknum stöðugleika og langtíma arðsemi. Áhættustýring félagsins og aðferðir eru yfirfarnar reglulega til að greina breytingar á markaðsaðstæðum og starfsemi félagsins hverju sinni. Með þjálfun starfsmanna og starfsreglum stefnir félagið að öguðu eftirliti þar sem allir starfsmenn eru meðvitaðir um hlutverk sitt og skyldur.
b. Lánsáhætta
Lánsáhætta er hættan á fjárhagslegu tapi félagsins ef viðskiptamaður eða mótaðili í fjármálagerningi getur ekki staðið við umsamdar skuldbindingar sínar. Félagið lánar ekki viðskiptavinum sínum. Útistandandi viðskiptakröfur félagsins í árslok 2024 eru kortakröfur, kröfur á Google, Apple, Valve (Steam), og kröfur á íslenska ríkið (þar sem styrkir hafa ekki verið greiddir út). Handbært fé félagsins er geymt á reikningum hjá Arion banka og PayPal.
Mögulegt tap vegna lánsáhættu
Mesta mögulega tap félagsins vegna fjáreigna er bókfært verð þeirra, sem var eftirfarandi á reikningsskiladegi:
| 31.12.2024 | 31.12.2023 | |
|---|---|---|
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 19.477 | 12.395 |
| Handbært fé | 14.035 | 44.003 |
| Mesta mögulega tap vegna fjáreigna | 33.512 | 56.398 |
Virðisrýrnun viðskiptakrafna og annarra skammtímakrafna
Aldur viðskiptakrafna var eftirfarandi í árslok:
| Nafnverð | Virðisrýrnun | |||
|---|---|---|---|---|
| 31.12.2024 | 31.12.2023 | 31.12.2024 | 31.12.2023 | |
| Ógjaldfallið | 19.477 | 12.395 | 0 | 0 |
| Kröfur samtals | 19.477 | 12.395 | 0 | 0 |
Það er mat stjórnenda að útlánaáhætta af fjáreignum sé óveruleg, þar sem um er að ræða kreditkortakröfur sem eru nú innheimtar og bankainnstæður sem bera óverulega útlánaáhættu. Það er því mat stjórnenda að áhrif útlánaáhættu í heild séu óveruleg fyrir reikningsskilín og engin niðurfærsla er færð vegna útlána félagsins.
Solid Clouds bf - Ársreikningur 2024
Fjárhæðir eru í þús. kr.
Skýringar, frh.
c. Lausafjárhætta
Lausafjárahætta er hættan á því að félagið geti ekki staðið við fjárhagsskuldbindingar sínar eftir því sem þær gjaldfalla. Markmið félagsins er að stýra lausafé þannig að tryggt sé að það hafi alltaf nægt laust fé til að mæta skuldbindingum sinum eftir því sem þær gjaldfalla og forðast þannig að skaða orðspor félagsins.
Samningsbundnar afborganir af fjárskuldum, þar með talið væntanlegar vaxtagreiðslur, greinast þannig:
| 31. desember 2024 | Samningsbundið | Eftir 1-5 ár | Eftir meira en 5 ár | ||
|---|---|---|---|---|---|
| Bókfært verð | sjóðflæði | Innan árs | |||
| Leiguskuldir | 4.767 | 4.851 | 4.851 | 0 | 0 |
| Viðskiptaskuldir | 13.500 | 13.500 | 13.500 | 0 | 0 |
| Skuldir við tengda aðila ... | 39 | 39 | 39 | 0 | 0 |
| Skuldabr lán v tengda ... | 43.333 | 44.687 | 44.687 | 0 | 0 |
| Aðrar skammtímaskuldir .. | 40.251 | 40.251 | 40.251 | 0 | 0 |
| Fjárskuldir samtals ... | 101.889 | 103.327 | 103.327 | 0 | 0 |
| 31. desember 2023 | Samningsbundið | Eftir 1-5 ár | Eftir meira en 5 ár | ||
| Bókfært verð | sjóðflæði | Innan árs | |||
| Leiguskuldir | 4.900 | 5.189 | 5.189 | 4.901 | 0 |
| Viðskiptaskuldir | 6.556 | 6.556 | 6.556 | 0 | 0 |
| Skuldir við tengda aðila ... | 39 | 39 | 39 | 0 | 0 |
| Aðrar skammtímaskuldir .. | 31.071 | 31.071 | 31.071 | 0 | 0 |
| Fjárskuldir samtals ... | 42.566 | 42.855 | 42.855 | 4.901 | 0 |
d. Markaðsáhætta
Markaðsáhætta er hættan á því að breytingar í markaðsverði erlendra gjaldmiðla og vaxta hafi áhrif á afkomu félagsins eða virði fjárfestinga hennar í fjármálagerningum. Markmið með stýringu markaðsáhættu er að stýra og takmarka áhættu við skilgreind mörk, jafnframt því sem ábati er hámarkaður.
Gjaldmiðlaáhætta
Félagið býr við gengisáhættu vegna sölu, innkaupa og lántöku í öðrum gjaldmiðlum en starfræksluggaldmiðli félagsins. Þeir gjaldmiðlar sem einkum skapa gengisáhættu eru EUR og USD.
Félagið ver sig ekki sérstaklega fyrir gengisáhættu með framvirkum samningum. Stjórnendur fara reglulega yfir gjaldeyrisáhættu félagsins með það að markmiði að takmarka hana eins og frekast unnt er.
Eignir og skuldir í erlendri mynt voru eftirfarandi í árslok:
| 31. desember 2024 | EUR | USD | Samtals |
|---|---|---|---|
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 7.736 | 8.816 | 16.552 |
| Handbært fé | 626 | 173 | 799 |
| Viðskiptaskuldir | (5.359) | (4.769) | (10.128) |
| Gengisáhætta félagsins | 3.003 | 4.220 | 7.223 |
Solid Clouds bf - Årsreikningur 2024
Fjárhæðir eru í þás. kr.
Skýringar, frh.
| 31. desember 2023 | EUR | USD | Samtals |
|---|---|---|---|
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 1.484 | 154 | 1.638 |
| Handbært fé | 558 | 1.870 | 2.428 |
| Viðskiptaskuldir | ( 1.304) | 0 | ( 1.304) |
| Gengisáhætta félagsins | 738 | 2.023 | 2.762 |
Gengi helstu gjaldmiðla á árunum 2024 og 2023 var sem hér segir:
| Meðalgengi | Árslokagengi | |||
|---|---|---|---|---|
| Árið 2024 | Árið 2023 | 31.12.2024 | 31.12.2023 | |
| EUR | 149,31 | 149,14 | 143,90 | 150,50 |
| USD | 137,93 | 137,98 | 138,20 | 136,20 |
Næmnigreining
10% styrking íslenskrar krónu gagnvart eftirtöldum gjaldmiðlum í árslok mundi hafa hækkað (lækkað) eigið fé félagsins og afkomu fyrir tekjuskatt um eftirfarandi fjárhæðir. Greiningin byggir á að allar aðrar breytur haldist óbreyttar.
| 31.12.2024 | 31.12.2023 | |
|---|---|---|
| EUR | 300 | 74 |
| USD | 422 | 202 |
10% veiking íslenskrar krónu gagnvart framangreindum gjaldmiðlum hefði haft sömu áhrif en í gagnstæða átt, að því gefnu að allar aðrar breytur hefðu haldist óbreyttar.
e. Rekstraráhætta
Rekstraráhætta er hættan á beinu eða óbeinu tapi eða tjóni sem getur orðið af völdum margra þátta í starfsemi félagsins, vinnu starfsmanna þess, tækni og skipulagi, og ytri þáttum svo sem vegna breytinga á lögum og almennra viðhorfa til stjórnunarháttá fyrirtækja. Rekstraráhætta myndast í allri starfsemi félagsins.
Það er stefna félagsins að stýra rekstraráhættu með hagkvæmum hætti til að forðast fjárhagslegt tap og til að vernda orðstír þess, jafnframt því að starfsreglur takmarki ekki frumkvæði og sköpunargáfu starfsmanna.
Til að draga úr rekstraráhættu hefur félagið gripið til ýmissa ráðstafana. Þar má meðal annars nefna að félagið hefur komið á viðeigandi aðskilnaði starfa, lagt áherslu á góð starfsskilyrði, lagt áherslu á kostnaðargreiningar, áætlanagerð og haft eftirlit með viðskiptum og fylgni við lög, unnið reglulegt mat á áhættu, starfsmenn þjálfaðir, verkferlar skipulagðir og fleira.
Solid Clouds hf - Ársreikningur 2024
Fjárhæðir eru í þús. kr.
Skýringar, frh.
14. Kostnaður við leikjahönnun
| Kostnaður við leikjahönnun í rekstrarreikningi sundurliðast þannig: | 2024 | 2023 |
|---|---|---|
| Kostnaður við leikjahönnun | 90.512 | 79.552 |
| Eignfærður þróunarkostnaður vegna kostnaðar við leikjahönnun | ( 62.601) | ( 74.949) |
| Kostnaður við leikjahönnun í rekstrarreikningi | 27.911 | 4.604 |
15. Annar rekstrarkostnaður
| Annar rekstrarkostnaður í rekstrarreikningi sundurliðast þannig: | 2024 | 2023 |
|---|---|---|
| Annar rekstrarkostnaður | 103.432 | 59.680 |
| Eignfærður þróunarkostnaður vegna annars rekstrarkostnaðar | ( 70.644) | ( 40.279) |
| Annar rekstrarkostnaður í rekstrarreikningi | 32.787 | 19.401 |
Kostnaður vegna auglýsinga er sérgreindur í rekstrarreikningi og er því ekki partur af öðrum rekstrarkostnaði hér að ofan. Kostnaður vegna auglýsinga er ekki eignfærður á meðal þróunarkostnaðar og er því gjaldfærður í rekstrarreikningi félagsins.
16. Eignfærður þróunarkostnaður
| Eignfærður þróunarkostnaður í skýringu 8 sundurliðast þannig: | 2024 | 2023 |
|---|---|---|
| Eignfærður kostnaður við leikjahönnun, sjá skýringu 14 | 62.601 | 74.949 |
| Eignfærð laun og launatengd gjöld, sjá skýringu 6 | 247.164 | 245.516 |
| Eignfærður annar rekstrarkostnaður, sjá skýringu 15 | 70.644 | 40.279 |
| Eignfærður þróunarkostnaður alls, sjá skýringu 8 | 380.409 | 360.743 |
| Styrkir færðir til lækkunar á þróunarkostnaði, sjá skýringu 8 | ( 131.284) | ( 138.606) |
| Eignfærður þróunarkostn., nettó af mótteknum styrkjum, sjá skýringu 8 | 249.125 | 222.136 |
Solid Clouds bf - Ársreikningur 2024
Fjárhæðir eru í þús. kr.
Skýringar, frh.
17. Rekstarkostnaður
| Rekstarkostnaður á árinu 2024 sundurliðast þannig: | Eignfærður kostnaður | Kostnaður í rekstrarreikn. | Heildarkostn. 2024 |
|---|---|---|---|
| Kostnaður við leikjahönnun | 62.601 | 27.911 | 90.512 |
| Laun og launatengd gjöld | 247.164 | 19.925 | 267.089 |
| Annar rekstarkostnaður | 70.644 | 32.787 | 103.432 |
| Rekstarkostnaður alls árið 2024 | 380.409 | 80.624 | 461.033 |
| Rekstarkostnaður á árinu 2023 sundurliðast þannig: | Eignfærður kostnaður | Kostnaður í rekstrarreikn. | Heildarkostn. 2023 |
| Kostnaður við leikjahönnun | 74.949 | 4.604 | 79.552 |
| Laun og launatengd gjöld | 245.516 | 15.619 | 261.135 |
| Annar rekstarkostnaður | 40.279 | 19.401 | 59.680 |
| Rekstarkostnaður alls árið 2023 | 360.743 | 39.624 | 400.367 |
18. Tengdir aðilar
Skilgreining tengdra aðila
Hluthafar, stjórnarmenn og stjórnendur og nánir fjölskyldumeðlimir þeirra og félög sem þeir ráða yfir teljast til tengdra aðila félagsins.
Viðskipti við tengda aðila og lykilstjórnenda
Vísað er til skýringar 6 um laun og hlunnindi til lykilstjórnenda félagsins.
Ekki voru viðskipti við tengda aðila á árinu 2024. Félagið fékk skuldabréfalán hjá tengdum aðilum undir lok árs 2024. Lánin báru 25% vexti og voru gerð upp í lok janúar 2025.
Viðskiptastöður við tengda aðila: 31.12.2024 31.12.2023
Skuldir við tengda aðila í árslok 43.429 39
19. Atburðir eftir reikningsskiladag
Í janúar 2025 skráðu hluthafar sig fyrir kaupungur á skuldabréfum með breytirétti sem félagið gefur út að höfuðstólsfjárhæð allt að 175,0 millj. kr.
Solid Clouds bf - Ársreikningur 2024
Fjárhæðir eru í þús. kr.
Sundurliðanir
| Kostnaður við leikjahönnun: | 2024 | 2023 |
|---|---|---|
| Aðkeypt leikjahönnun | 63.056 | 54.975 |
| Flutningsgjöld | 13 | 659 |
| Aðkeypt myndvinnsla | 2.839 | 6.051 |
| Hugbúnaður | 24.604 | 17.868 |
| Eignfærður þróunarkostn. vegna kostnaðar við leikjahönnun | (62.601) | (74.949) |
| 27.911 | 4.604 | |
| Laun og tengd gjöld: | ||
| Laun | 219.438 | 211.231 |
| Gjaldfærð laun vegna kaupréttarsamninga | 6.917 | 2.026 |
| Tryggingagjald | 16.375 | 16.500 |
| Lífeyrissjóður | 27.676 | 26.706 |
| Áunnið orlof, breyting | (5.229) | 2.952 |
| Sjúkra- og orlofssjóður | 1.911 | 1.721 |
| Eignfærður þróunarkostnaður vegna launa | (247.164) | (245.516) |
| 19.925 | 15.619 | |
| Annar rekstrarkostnaður: | ||
| Sími og internet | 3.644 | 3.658 |
| Bækur og blöð | 86 | 93 |
| Pappír, prentun og ritfóng | 85 | 119 |
| Rekstur tölvukerfis | 1.435 | 1.868 |
| Reikningshaldsleg þjónusta | 14.605 | 9.956 |
| Lögfræðikostnaður | 3.296 | 1.390 |
| Aðkeypt þjónusta | 15.942 | 8.433 |
| Dagpeningar | 1.110 | 713 |
| Ferðakostnaður | 2.635 | 2.416 |
| Funda og viðskiptakostnaður | 2.375 | 2.312 |
| Markaðskostnaður | 31.407 | 837 |
| Bankakostnaður annar | 4.378 | 5.728 |
| Viðhald húsnæðis | 65 | 228 |
| Ræstinga- og hreinlætisvörur | 732 | 744 |
| Aðkeyptur akstur sendi- og leigubífreiða | 419 | 202 |
| Bífreiðastyrkur | 7.580 | 8.265 |
| Eldsneytiskostnaður bífreiða | 0 | 2 |
| Annar rekstur bífreiða | 0 | 38 |
| Gjaldfærð tæki og áhöld | 2.626 | 2.747 |
| Viðhald tækja og áhalda | 8 | 9 |
| Kaffikostnaður | 7.874 | 6.600 |
| Framhald á næstu síðu | 100.304 | 56.357 |
Solid Clouds bf - Ársreikningur 2024
Fjárhæðir eru í þús. kr.
Sundurliðanir, frh.:
| Annar rekstrarkostnaður, framhald: | 2024 | 2023 |
|---|---|---|
| Frá fyrri síðu | 100.304 | 56.357 |
| Annar starfsmannakostnaður | 2.975 | 3.119 |
| Félagsgjöld | 72 | 164 |
| Útvarpsgjald | 21 | 21 |
| Styrkir og gjafir | 60 | 19 |
| Eignfærður þróunarkostnaður vegna annars rekstrarkostnaðar | (70.644) | (40.279) |
| 32.787 | 19.401 | |
| Aðrar skammtímaskuldir: | 31.12.2024 | 31.12.2023 |
| Ógreidd laun | 12.750 | 35 |
| Ógreiddur lífeyrissjóður | 5.829 | 3.166 |
| Ógreitt orlof | 14.429 | 16.706 |
| Ógreidd staðgreiðsla | 5.847 | 5.846 |
| Ógreitt tryggingagjald | 885 | 214 |
| Ógreitt annað vegna starfsfólks | 489 | 0 |
| Ógreidd opinber gjöld, önnur en tekjuskattur ársins | 21 | 20 |
| Skuld við tengda aðila | 39 | 203 |
| 40.289 | 26.189 |
Solid Clouds bf - Ársreikningur 2024
Fjárhæðir eru í þús. kr.