Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Solid Clouds hf. Annual Report 2023

Mar 27, 2024

8579_rns_2024-03-27_4546a214-19c9-45f0-a7bd-8b41787a54c6.pdf

Annual Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Kt: 600913-2550
Eidistorgi 17
170 Seltjarnarnes

RAFAENT UNDIRRITAD
Eggert Árni Gísliason
Kt. 2407612119
Dags. 27.3.2024 16:45:56
Ástæða: Undirritun

RAFAENT UNDIRRITAD
Olafur Andri Ragnarsson
Kt. 2110664829
Dags. 27.3.2024 17:02:58
Ástæða: Undirritun

RAFAENT UNDIRRITAD
Stefán Gunnarsson
Kt. 1204765649
Dags. 27.3.2024 16:51:27
Ástæða: Undirritun

RAFAENT UNDIRRITAD
Sigurilna V Ingvarsdóttir
Kt. 1411784319
Dags. 27.3.2024 17:06:39
Ástæða: Undirritun

RAFAENT UNDIRRITAD
Brynjólfur Erlingsson
Kt. 1711774649
Dags. 27.3.2024 16:53:44
Ástæða: Undirritun

RAFAENT UNDIRRITAD
Signý Magnúsdóttir
Kt. 2202785229
Dags. 27.3.2024 17:09:46
Ástæða: Undirritun

RAFAENT UNDIRRITAD
Svanhvit Friðriksdóttir
Kt. 1910785359
Dags. 27.3.2024 16:54:17
Ástæða: Undirritun


“哈,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,


Efnisyfirlit

Bls.

Skýrsla og undirritun stjórnar og framkvæmdastjóra 3
Áritun óháðs endurskoðanda 6
Rekstrarreikningur 8
Efnahagsreikningur 9
Eiginfjáryfirlit 10
Sjóðstreymi 11
Skýringar 12


Skýrsla og undirritun stjórnar og framkvæmdastjóra

Solid Clouds hf var stofnað árið 2013. Tilgangur þess er framleiðsla og markaðssetning fjölspilunarleikja.

Þessi ársreikningur er gerður í samræmi við IFRS (alþjóðlega reikningsskilastaða) eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga nr. 3/2006. Í samræmi við staðlana eignfærir félagið þróunarkostnað sinn sem tengist þróun tölvuleikja og tæknigrunni þess.

Breytingar varðandi stjórn og lykilstarfsmenn

Davið Gunnarsson var kosinn varamaður í stjórn Solid Clouds hf á aðalfundi félagsins í apríl síðastliðnum. Hann hefur mikla reynslu af uppbýggingu og rekstri nýsköpunarfyrirtækja sem forstjóri Dohop.

Rekstur og fjárhagsleg staða

Tap á árinu 2023 nam 83,1 millj. kr. (tap 2022: 50,8 millj. kr.). Heildareignir námu 1.217,7 millj. kr. í lok árs 2023 (2022: 1.298,2 millj. kr.) og nam eigið fé 1.175,1 millj. kr. á sama tíma (2022: 1.256,2 millj. kr.). Fjöldi ársverka var 21 á árinu 2023 samanborið við 19 á árinu 2022.

Aukning í öðrum rekstarkostnaði stafar af undirbúningi af útgáfu Starborne Frontiers og verðlagshækkunum. Helsta ástæða lækkunar á eignum á milli ára skýrist af lækkun á handbæru fé, en það lækkar einkum vegna fjárfestingar í leikjaþróun, en fjárfestingin er eignfærð á meðal þróunarkostnaðar í efnahagsreikningi félagsins.

Útgáfuferill Starborne Frontiers hófst í febrúar 2023 þegar leikurinn var gerður aðgengilegur fyrir snjalltæki í app búðum Apple og Google. Síðasta stóra leikkerfi leiksins (Abyss leikkerfið) kom inn í október. Gögn um hegðun spilara Starborne Frontiers verða notuð til að þróa og finstilla leikinn svo að hann nái tilskildum viðmiðunarmörkum varðandi tekjur og spilatíma hvers notanda.

Bókfært verð eignfærðs þróunarkostnaðar í árslok 2023 nam 995,1 millj. kr. Félagið hefur skipt eignfærðum þróunarkostnaði niður á tæknigrunn og Sovereign Space og Frontiers leikina. Fyrir frekari upplýsingar, sjá skýringu 3g og skýringu 7.

Handbært fé Solid Clouds hf í árslok 2023 nam 44,0 millj. kr. en auk þess gerir félagið ráð fyrir að fá um 132,7 millj. kr. styrk frá Rannís vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar að fengnu samþykki yfirvalda í nóvember 2024.

Í febrúar 2024 seldi Solid Clouds hf nýtt hlutafé að nafnverði 147,6 milljónir á genginu tveir og nam andvirðið 295,2 millj. kr. Andvirði hlutafjáraukningarinnar verður ráðstafað í rekstur og markaðssetingu Starborne Frontiers á árinu 2024.

Áhættuþættir

Fyrirtækið treystir á beina markaðssetningu til að afla nýrra notenda. Fyrir sjálfbæran vöxt þarf líftímavirði (e. Lifetime Value) hvers viðskiptavinar að vera töluvert hærra en kostnaður við að ná í hann. Það er óvissa til staðar hversu lengi það mun taka fyrirtækið að þróa og stilla af Frontiers svo að lágmarks viðmið varðandi framlegð af hverjum spilara verði náð sem er forsenda stórfelldrar markaðssetningar.

Solid Clouds hf á sem tækniþróunarfyrirtæki rétt á endurgreiðslu á rannsóknar- og þróunarkostnaði. Stjórnvöld hækkuðu hlutfall endurgreiðslu fyrir samþykktan kostnaðargrunn úr 20% í 35% fyrir rekstrarárin 2022, 2023 og 2024 og í fjármálaáætlun er gert ráð fyrir sömu hækkun fyrir árið 2025. Stjórnvöld hafa gefið fyrirheit um að hækkuninn upp í 35% verði gerð varanleg en óvissa er til staðar um hvort og hvenær af því verði.

Solid Clouds hf - Ársreikningur 2023


Skýrsla og undirritun stjórnar og framkvæmdastjóra, frh.

Hluthafar

Hluthafar í árslok 2023 voru 1.581 en þeir voru 1.600 í ársbyrjun og hefur því fækkað um 19 á árinu. Eftirtaldir eru tíu stærstu hluthafar í árslok 2023 með samanburði við sömu hluthafa í árslok 2022:

2023 2022
Stefán Gunnarsson 10,4% 10,4%
Kjölur fjárfestingarfélag ehf 6,6% 6,6%
Sigurður Arnljótsson 4,1% 4,1%
Stefán Þór Björnsson 3,8% 3,8%
S9 ehf 1,9% 1,9%
Vilano Capital Sp.z.o.o. 1,7% 1,7%
Tómas Sigurðsson 1,7% 1,7%
Eggert Árni Gíslason 1,6% 1,3%
Kvika - Innlend hlutabréf 1,6% 1,6%
Haraldur Ingi Þorleifsson 1,3% 1,3%
Aðrir hluthafar (1.571, 2022: 1.590) 65,3% 65,6%

Hlutafé

Skráð hlutafé félagsins nam 184,2 millj. kr. í árslok 2023. Hver hlutur er 1 króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda. Nánari upplýsingar er að finna í skýringu 11.

Stjórnarhættir

Stjórn Solid Clouds hf leggur áherslu á að viðhalda góðum stjórnarháttum og fylgja leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands, Nasdaq OMX Iceland hf og Samtökum atvinnulifsins. Stjórninn hefur sett sér starfsreglur sem skilgreina valdsvið sitt og framkvæmdastjóra með skýrum hætti og hafa að geyma ákvæði um fundarsköp, hæfi stjórnarmanna, þagnarskyldu, upplýsingagjóf framkvæmdastjóra til stjórnar og önnur atriði. Kynjahlutfall í stjórn félagsins er tvær konur (40%) og þrír karlar (60%).

Meirihluti stjórnarmanna telst óháður félaginu, daglegum stjórnendum og helstu hluthöfum þess. Ítarlegar upplýsingar um stjórnarmenn má finna á vefsetri félagsins, www.solidclouds.com.

Mismunun á grundvelli kyns, uppruna, litarháttar, fötlunar, kynhneigðar, kynvitudar, kynþáttar, menningar, trúarbragða eða annarrar stöðu er ekki liðin hjá Solid Clouds hf.

Solid Clouds hf - Ársreikningur 2023


Skýrsla og undirritun stjórnar og framkvæmdastjóra, frh.

Yfirlýsing stjórnar og framkvæmdastjóra

Samkvæmt bestu vitneskju er það álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu félagsins á árinu 2023, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu þess 31. desember 2023 og breytingu á handbæru fé í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir eru staðfestir af Evrópusambandinu.

Jafnframt er það álit okkar að ársreikningurinn og skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri félagsins, stöðu þess og helstu áhættuþætti og óvissu sem félagið stendur frammi fyrir.

Stjórn og framkvæmdastjóri Solid Clouds hf hafa í dag rætt ársreikning félagsins fyrir árið 2023 og staðfesta hann með undirritun sinni. Stjórn og framkvæmdastjóri leggja til við aðalfund félagsins að samþykkja ársreikninginn.

Seltjarnarnes, 27. mars 2024

Stefán Gunnarsson, framkvæmdastjóri

Sigurlína Ingvarsdóttir, stjórnarformaður

Ólafur Andri Ragnarsson, varaform. stjórnar

Brynjólfur Erlingsson, stjórnarmaður

Eggert Árni Gíslason, stjórnarmaður

Svanhvit Friðriksdóttir, stjórnarmaður

Solid Clouds hf - Ársreikningar 2023


Áritun óháðs endurskoðanda

Til stjórnar og hluthafa í Solid Clouds hf

Álit

Við höfum endurskoðað meðfylgjandi ársreikning Solid Clouds hf fyrir árið 2023. Ársreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikning, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, yfirlit um sjóðstreymi, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.

Það er álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins á árinu 2023, efnahag þess 31. desember 2023 og breytingu á handbæru fé á árinu 2023, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu, viðbótar kröfur í lögum um ársreikninga og tengdum reglugerðum.

Grundvöllur fyrir áliti

Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt þeim stöðlum er nánar lýst í kaflanum um ábyrgð endurskoðanda hér að neðan. Við erum óháð Solid Clouds hf í samræmi við alþjóðlegar síðareglur fyrir endurskoðendur sem og aðrar síðareglur sem eru viðeigandi við endurskoðun á Íslandi, og höfum við uppfyllt ákvæði þeirra reglna. Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægilegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.

Aðrar upplýsingar

Stjórn og framkvæmdastjóri bera ábyrgð á öðrum upplýsingum. Aðrar upplýsingar innifela í sér skýrslu og undirritun stjórnar og framkvæmdastjóra.

Álit okkar á ársreikningnum nær ekki yfir aðrar upplýsingar og við ályktum hvorki um, né veitum staðfestingu á efni þeirra ef frá er talin sú staðfesting varðandi skýrslu stjórnar sem fram kemur hér að neðan.

Í tengslum við endurskoðun okkar berum við ábyrgð á að lesa framangreindar aðrar upplýsingar og skoða hvort þær séu í verulegu ósamræmi við ársreikninginn eða þekkingu okkar sem við höfum aflað við endurskoðunina eða virðast að öðru leyti innifela verulegar skekkjur. Ef við komumst að þeirri niðurstöðu, byggt á þeirri vinnu sem við höfum framkvæmt, að það séu verulegar skekkjur í öðrum upplýsingum ber okkur að skýra frá því. Það er ekkert sem við þurfum að skýra frá hvað þetta varðar.

Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 104 gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga staðfestum við samkvæmt okkar bestu vitund að í skýrslu stjórnar sem fylgir ársreikningi þessum eru veittar þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.

Ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjóra á ársreikningnum

Stjórn og framkvæmdastjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu ársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu, viðbótar kröfur í lögum um ársreikninga og tengdum reglugerðum. Stjórn og framkvæmdastjóri eru einnig ábyrg fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er varðandi gerð og framsetningu ársreikningsins, þannig að hann sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.

Við gerð ársreikningsins eru stjórn og framkvæmdastjóri ábyrg fyrir því að meta rekstrarhæfi Solid Clouds hf. Ef við á, skulu stjórn og framkvæmdastjóri setja fram viðeigandi skýringar um rekstrarhæfi og hvers vegna þau ákvæði að beita forsendunni um rekstrarhæfi við gerð og framsetningu ársreikningsins, nema stjórn og framkvæmdastjóri hafi ákvæði að leysa félagir upp eða hætta starfsemi, eða hafi enga aðra raunhæfa möguleika.

Solid Clouds hf - Ársreikningar 2023


Áritun óháðs endurskoðanda, frh.

Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun ársreikningsins

Markmið okkar er að afla nægjanlegrar vissu um að ársreikningurinn sé án verulegra annmarka, hvort sem er af völdum sviksemi eða mistaka og að gefa út áritun sem felur í sér álit okkar.

Nægjanlega vissa er þó ekki trygging þess að endurskoðun framkvæmd í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla muni uppgötva allar verulegar skekkjur séu þær til staðar. Skekkjur geta orðið vegna mistaka eða sviksemi og eru álitnar verulegar ef þær gætu haft áhrif á fjárhagslega ákvarðanatöku notenda ársreikningsins, einar og sér eða samanlagðar.

Endurskoðun okkar í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla byggir á faglegri dómgreind og beitum við gagnrýnni hugsun við endurskoðunina. Við framkvæmum einnig eftirfarandi:

  • Greinum og metum hættuna á verulegri skekkju í ársreikningnum, hvort sem er vegna mistaka eða sviksemi, hönnum og framkvæmum endurskoðunaraðgerðir til að bregðast við þeim hættum og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi til að byggja álit okkar á. Hættan á að uppgötva ekki verulega skekkju vegna sviksemi er meiri en að uppgötva ekki skekkju vegna mistaka, þar sem sviksemi getur falið í sér samsæri, skjalafals, misvisandi framsetningu ársreiknings, að einhverju sé viljandi sleppt eða að farið sé framhjá innri eftirlitsaðgerðum.

  • Öflum skilnings á innra eftirliti, sem snertir endurskoðunina, í þeim tilgangi að hanna viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki í þeim tilgangi að veita álit á virkni innra eftirlits félagsins.

  • Metum hvort reikningsskilaarðferðir sem notaðar eru, og tengdar skýringar, séu viðeigandi og hvort reikningshaldslegt mat stjórnenda sé raunhæft.

  • Ályktum um notkun stjórnenda á forsendunni um rekstrarhæfi og metum á grundvelli endurskoðunarinnar hvort verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi eða hvort aðstæður séu til staðar sem gætu valdið verulegum efasemdum um rekstrarhæfi. Ef við teljum að verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi ber okkur að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum ársreikningsins í áritun okkar. Ef slíkar skýringar eru öfullnægjandi þurfum við að víkja frá fyrirvaralausri áritun. Niðurstaða okkar byggir á endurskoðunargögnum sem aflað er fram að dagsetningu áritunar okkar. Engu að síður geta atburðir eða aðstæður í framtiðinni valdið óvissu um rekstrarhæfi félagsins.

  • Metum í heild sinni hvort ársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum, metum framsetningu, uppbyggingu, innihald og þar með talið skýringar við ársreikninginn með tilliti til glöggrar myndar.

Við upplýsum stjórn meðal annars um áætlað umfang og tímasetningu endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem komu upp í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka á innra eftirlit sem komu fram í endurskoðuninni, ef við á.

Kópavogur, 27. mars 2024

Deloitte ehf

Signý Magnúsdóttir
endurskoðandi

Solid Clouds hf - Ársreikningar 2023


“哈,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,你是个小伙子,


Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ársins 2023

Skýr. 2023 2022
Rekstrartekjur
Tekjur af leik 5 20.468 11.142
20.468 11.142
Rekstrarkostnaður
Kostnaður við leikjahönnun 14 4.604 4.929
Laun og launatengd gjöld 6 15.619 14.004
Annar rekstrarkostnaður 15 53.255 24.687
73.478 43.619
Rekstrartap án fjármagnsliða, afskrifta og tekjuskatts (53.011) (32.478)
Afskriftir þróunarkostnaðar og leigueigna 7,8 (93.246) (73.686)
Rekstrartap án fjármagnsliða og tekjuskatts (146.257) (106.164)
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld)
Vaxtatekjur 9.304 13.625
Vaxtagjöld (1.354) (1.904)
Gengismunur (318) 326
7.632 12.047
Tap fyrir tekjuskatt (138.626) (94.117)
Tekjuskattur 9 55.549 43.335
Tap og heildarafkoma ársins (83.077) (50.782)

Skýringar á blaðsiðum 12-24 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.

Solid Clouds bf - Ársreikningur 2023
Fjárhæðir eru í þás. kr.


Efnahagsreikningur 31. desember 2023

Skýr. 31.12.2023 31.12.2022
Eignir
Þróunarkostnaður 7 995.148 861.253
Leigueignir 8 4.472 10.706
Reiknuð tekjuskattseign 9 159.736 104.187
Fastafjármunir samtals 1.159.356 976.145
Viðskiptakröfur 8.535 4.710
Aðrar skammtímakröfur 5.799 7.223
Handbært fé 44.003 310.118
Veltufjármunir samtals 58.337 322.050
Eignir samtals 1.217.693 1.298.195
Eigið fé
Hlutafé 184.199 184.199
Yfirverðsreikningur hlutafjár 198.808 420.496
Bundið eigið fé vegna þróunarkostnaðar 995.148 861.253
Kaupréttarsamningar 13.945 11.918
Ójafnað eigið fé (216.973) (221.688)
Eigið fé samtals 11 1.175.127 1.256.177
Langtímaskuldir:
Leiguskuldir 8 0 4.901
Langtímaskuldir 0 4.901
Skuldir
Leiguskuldir 8 4.900 6.768
Viðskiptaskuldir 6.556 4.161
Aðrar skammtímaskuldir 10 31.109 26.189
Skammtímaskuldir 42.566 37.117
Skuldir alls 42.566 42.018
Eigið fé og skuldir samtals 1.217.693 1.298.195

Skýringar á blaðsiðum 12-24 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.

Solid Clouds hf - Ársreikningur 2023
Fjárhæðir eru í þás. kr.


Eiginfjáryfirlit árið 2023

Hlutafé Yfirverðsr. hlutafjár Bundið eigið fé Kaupréttar-samningar Ójafnað eigið fé Eigið fé samtals
Breytingar á eigin fé 2022
Eigið fé 31.desember 2021 ... 184.199 641.911 690.347 3.373 (221.415) 1.298.415
Ójafnað eigið fé jafnað (221.415) 221.415 0
á móti yfirverðsreikning ... (50.782) (50.782)
Tap ársins og heildarafkoma ... 170.906 (170.906) 0
Binding eigin fjár ... 8.545 8.545
Kaupréttarsamningar ...
Eigið fé 31. desember 2022 ... 184.199 420.496 861.253 11.918 (221.688) 1.256.177
Breytingar á eigin fé 2023
Eigið fé 31.desember 2022 ... 184.199 420.496 861.253 11.918 (221.688) 1.256.177
Ójafnað eigið fé jafnað (221.688) 221.688 0
á móti yfirverðsreikning ... (83.077) (83.077)
Tap ársins og heildarafkoma ... 133.896 (133.896) 0
Binding eigin fjár ... 2.026 2.026
Kaupréttarsamningar ...
Eigið fé 31. desember 2023 ... 184.199 198.808 995.148 13.945 (216.973) 1.175.127

Sjá umfjöllun um eigið fé í skýringu 11.

Skýringar á blaðsiðum 12-24 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.

Solid Clouds hf - Ársreikningur 2023

Fjárhæðir eru í þás. kr.


Sjóðstreymi ársins 2023

Skýr. 2023 2022
Rekstrarhreyfingar
Rekstrartap án fjármagnslíða og tekjuskatts (146.257) (106.164)
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir þróunarkostnaðar og leigueigna 8 93.246 73.686
Gjaldfærsla kaupréttarsamninga 2.026 8.545
Veltufé til rekstrar (50.984) (23.933)
Breyting á rekstrartengdum eignum (2.401) (6.276)
Breyting á rekstrartengdum skuldum 7.316 3.057
Handbært fé til rekstrar fyrir vexti (46.069) (27.151)
Innborgaðir vextir 9.304 13.625
Greiddir vextir (1.354) (1.207)
Handbært fé til rekstrar (38.119) (14.733)
Fjárfestingarhreyfingar
Eignfærður þróunarkostnaður 7 (360.743) (350.909)
Styrkir færðir til lækkunar á þróunarkostnaði 7 138.606 112.488
Fjárfestingarhreyfingar (222.137) (238.421)
Fjármögnunarhreyfingar
Afborgun af leiguskuld (5.540) (6.679)
Fjármögnunarhreyfingar (5.540) (6.679)
Lækkun handbærs fjár (265.796) (259.833)
Handbært fé í ársbyrjun 310.118 569.625
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé (318) 326
Handbært fé í árslok 44.003 310.118

Skýringar á blaðsíðum 12-24 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.

Solid Clouds hf - Ársreikningur 2023

Fjárhæðir eru í þás. kr.


Skýringar

1. Félagið

Solid Clouds hf ("Félagið") er hlutafélag sem er stofnað á Íslandi og skráð að Eiðistorgi 17, 170 Seltjarnarnesi og er þar að finna heimilisfesti aðalskrifstofu félagsins. Tilgangur félagsins er vinna við upplýsingatækni, hugbúnaðarþróun og gerð og markaðssetningu tölvuleikja.

2. Grundvöllur reikningsskilanna

a. Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt

Ársreikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Ársreikningurinn er jafnframt í samræmi við lög um ársreikninga og reglugerð um framsetningu og innihald ársreikninga.

Stjórn félagsins staðfesti ársreikning þennan þann 27. mars 2024.

b. Grundvöllur matsaðferða

Ársreikningurinn er gerður á grundvelli kostnaðarverðs að undanþegnum kaupréttarsamningnum sem metnir eru í samræmi við kröfur IFRS 2.

c. Starfrækslugjaldmiðill og framsetningargjaldmiðill

Ársreikningurinn er birtur í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Allar fjárhæðir eru birtur í þúsundum króna, nema annað sé tekið fram.

d. Mat og ákvarðanir

Gerð ársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaðferða og birtur fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati.

Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtíðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á.

Við ákvörðun gangvirðis er byggt á forsendum sem háðar eru mati stjórnenda á þróun ýmissa þátta í framtíðinni. Raunverulegt söluverð eigna og uppgreiðsluverðmæti skulda kann að vera frábrugðið þessu mati. Mat stjórnenda hefur mest áhrif í tengslum við ákvörðun um eignfærslu þróunarkostnaðar, en í skýringu 1g og skýringu 7 má sjá nánari upplýsingar er varða eignfærslu þróunarkostnaðar.

e. Rekstrarhæfi

Það er mat stjórnenda félagsins að áframhaldandi rekstur félagsins er tryggður og félagið í stakk búið til að standast skuldbindingar sem á því hvila næstu 12 mánuði eftir reikningsskiladag.

Ársreikningur félagsins er settur fram miðað við áframhaldandi rekstur.

Solid Clouds hf - Ársreikningur 2023
Fjárhæðir eru í þús. kr.


Skýringar, frh.

3. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir

a. Erlendir gjaldmiðlar

Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum eru færð í starfrækslugjaldmiðli á gengi viðskiptadags. Peningalegar eignir og skuldir í erlendum gjaldmiðlum eru færðar miðað við gengi á uppgjörsdegi.

b. Innlausn tekna

Félagið hefur tekjur af sölu rafrænna vara (e. virtual goods) í þeim tölvuleikjum sem félagið hefur gefið út. Tekjur af þeim eru skráðar þegar spilarar hafa fengið þær afhentar.

c. Styrkir frá stjórnvöldum

Ríkisstyrkir sem tengjast þróunarkostnaði hafa verið færðir til lækkunar á eignfærðum þróunarkostnaði til að jafna þeim á móti kostnaðinum sem þeim er ætlað að mæta.

Styrkur frá Rannís vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar ársins 2023 kemur til greiðslu í byrjun nóvember 2024 að fengnu samþykki frá yfirvöldum.

d. Starfskjör

Laun starfsmanna eru eignfærð þegar vinna þeirra hefur verið innt af hendi og er vegna þróunar á eignfærsluhæfum verkefnum, en gjaldfærð ef skilyrðum fyrir eignfærslu er ekki fullnægt. Skuld er færð fyrir þá fjárhæð sem búist er við að verði greidd síðar ef félagið hefur núverandi lagalega eða samningsbundna skyldu til að greiða þá fjárhæð vegna fyrri þjónustu sem starfsmaðurinn hefur veitt og hægt er að áætla fjárhæðinga með áreiðanlegum hætti.

Fyrirtækið greiðir iðgjøld fyrir starfsmenn vegna iðgjalda sem tengjast lífeyrissjóðum. Fyrirtækið ber enga ábyrgð á skuldbindingum sjóðanna.

Sjá skýringu 11d um kaupréttarsamninga starfsmanna en félagið hefur gert kaupréttarsamninga við starfsmenn svo að hagsmunir þeirra fari sem best saman við hagsmuni hluthafa.

e. Vaxtatekjur

Vaxtatekjur samanstanda af vaxtatekjum af handbæru fé og eru færðar eftir því sem þær falla til miðað við virka vexti.

f. Tekjuskattur

Tekjuskattur er færður í rekstrarreikning nema þegar hann tengist liðum sem eru færðir beint á eigið fé, en þá er tekjuskatturinn færður á eigið fé.

Frestaður tekjuskattur er færður vegna tímboundinna mismuna á bókfærðu verði eigna og skulda í ársreikningnum annars vegar og skattverði þeirra hins vegar.

Útreikningur á frestuðum skatti byggir á því skatthlutfalli sem vænst er að verði í gildi þegar tímboundnir mismunir koma til með að snúast við, miðað við gildandi lög á uppgjörsdegi. Reiknuð tekjuskattseign og tekjuskattsskuldbindingu er jafnað saman þegar til staðar er lagalegur réttur til að jafna saman tekjuskatti til greiðslu og skatteign.

Reiknuð tekjuskattseign er einungis færð að því marki sem líklegt er talið að skattskyldur hagnaður verði til ráðstöfunar í framtiðinni sem unnt verður að nýta eignina á móti. Reiknuð tekjuskattseign er metin á hverjum uppgjörsdegi og lækkuð að því marki sem talið er líklegt að hún nýtist ekki.

Solid Clouds hf - Ársreikningur 2023

Fjárhæðir eru í þús. kr.


Skýringar, frh.

g. Óefnislegar eignir

Óefnislegar eignir eru einungis eignfærðar þegar líklegt er að hagrænn ávinningur tengdur eigninni muni nýtast félaginu og hægt er að meta kostnaðarverð hennar með áreiðanlegum hætti. Óefnislegar eignir félagsins eru tölvuleikir í þróun og tæknigrunnur félagsins en félagið hefur skipt eignfærðum þróunarkostnaði niður á tæknigrunn og Sovereign Space og Frontiers leikina. Eignirnar eru færðar á kostnaðarverði að frádregnum afskriftum sem eru færðar á kerfisbundinn hátt á áætluðum nýtingartíma þeirra sem er mismunandi miðað við undirliggjandi eignir. Áætlaður nýtingartími og afskriftaaðferðir eru endurmetnar í lok hvers árs.

Rannsóknarkostnaður er gjaldfærður þegar hann fellur til. Þróunarkostnaður er aðeins eignfærður ef öll eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:

  • að félagið geti lokið þróun óefnislegu eignarinnar þannig að hún sé tilbúin til notkunar eða komin í söluhæft ástand,
  • að félagið ætli sér að ljúka við þróunar eignarinnar og nota hana eða selja,
  • að félagið sýni fram á möguleika sína til að selja eignina,
  • að félagið sýni fram á að eignin komi til með að skila tekjum í framtíðinni,
  • að félagið hafi næga tækni, og fjármagn til að ljúka við þróun og sölu,
  • að félagið hafi getu til að meta útgjöld vegna þróunar með áreiðanlegum hætti.

Eignfærsla þróunarkostnaðar á sér aðeins stað þegar öll ofangreind skilyrði eru uppfyllt en annars er hann gjaldfærður þegar hann fellur til.

Það er mat stjórnenda að eignfærsla þróunarkostnaðar uppfylli öll ofangreind skilyrði.

h. Leigueignir og leiguskuld

Við upphaf leigusamnings færir leigutaki inn leigueign sem táknar rétt sinn til að nota undirliggjandi eign og leiguskuld sem táknar skyldu til að greiða leigugreiðslur. Leigueignin er upphaflega metin á kostnaðarverði, sem samanstendur af upphæð leiguskuldar leiðrétt fyrir öllum leigugreiðslum sem greiddar voru á upphafsdegi eða ásamt öllum beinum upphaflegum kostnaði og áætlun um kostnað við að taka í sundur og fjarlægja undirliggjandi eign eða til að endurheimta undirliggjandi eign að frádregnum mótteknum hvötum til leigu.

Leigueignin er bókfærð á meðal fastafjármuna í ársreikningnum og afskrifuð í kjólfarið með línulegri aðferð frá upphafsdegi leigusamnings til loka nýtingartíma leigueignar.

Leiguskuldin er upphaflega metin á núvirði leigugreiðslna sem ekki eru greiddar á upphafsdegi leigusamnings, núvirt með ávöxtunarkröfu félagsins.

i. Fjáreignir

Fjáreignir félagsins eru viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur. Félagið ætlar sér að eiga þær til gjaldága og samningsbundnar greiðslur á settum gjaldögum samanstanda einungis af afborgunum af höfuðstól og vöxtum þar sem það á við. Umfjöllun um vænt útlánatap af fjáreignum má finna í skýringu 12b.

Félagið afskráir fjáreignir þegar samningsbundinn réttur til framtíðarsjóðstreymis af fjáreigninni er ekki lengur til staðar eða þegar áhætta og ávinningur af fjáreigninni flyst yfir á annan aðila.

j. Fjárskuldir og eiginfjárgrengar

Eiginfjárgrengar er hvers konar samningur sem felur í sér eftirstæða hagsmuni í eignum félagsins eftir að allar skuldir hafa verið dregnar frá. Eiginfjárgrengar útgefir af félaginu eru skráðir á kostnaðarverði að frádregnum beinum kostnaði við útgáfu þeirra.

Fjárskuldir eru metnar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti. Félagið afskráir fjárskuldir eingöngu þegar skuldbinding vegna þeirra er ekki lengur til staðar. Hagnaður eða tap vegna afskráningar er færð í rekstrarreikning.

Solid Clouds hf - Ársreikningur 2023
Fjárhæðir eru í þús. kr.


Skýringar, frh.

4. Nýir reikningsskilastaðlar og túlkanir á þeim sem hafa ekki verið innleiddir

Félagið hefur innleitt alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir eru samþykktir af Evrópusambandinu, breytingar á þeim og nýjar túlkanir sem gilda fyrir reikningsskilatímabil sem hófust 1. janúar 2023 eða síðar. Eftirfarandi staðlar og endurbætur tóku gildi 1. janúar 2023:

  • IFRS 17 Vátryggingasamningar
  • IAS 1 Framsetning reikningsskila
  • IAS 8 Reikningsskilaaðferðir, breytingar á reikningshaldslegu mati og skekkjur
  • IAS 12 Tekjuskattur

Nýr reikningsskilastaðall

Reikningsskilaaðferðir í skýringum

Skilgreining á reikningshaldslegu mati

Skattfrestun vegna eigna og skulda afleiddra af sömu viðskiptum

Það er mat stjórnenda að innleiðing ofangreindra staðala og endurbóta á stöðlum hafi ekki haft veruleg áhrif á ársreikninginn.

Félagið hefur ekki innleitt nýja eða endurbætta staðla sem hafa verið gefnir út en ekki tekið gildi. Þann 1. janúar 2024 taka gildi eftirfarandi endurbætur á stöðlum:

  • IAS 1 Framsetning reikningsskila
  • IAS 1 Framsetning reikningsskila
  • IFRS 16 Leigusamningar

Flokkun skulda í skammtíma eða langtímahluta

Langtímaskuldir með lánaskilmálum

Leiguskuldbinding í sölu og endurleiguviðskiptum

Það er mat stjórnenda að innleiðing þeirra endurbóta sem fram koma hér að ofan, eða annarra breytinga á stöðlum sem samþykktar hafa verið en hafa ekki tekið gildi, muni ekki hafa veruleg áhrif á ársreikninginn.

5. Landfræðileg skipting tekna félagsins

Eftirfarandi tafla sýnir skiptingu tekna af sölu tölvuleikja félagsins í mismunandi löndum m.v. 15 stærstu lönd árin 2023 og 2022:

2023 2022
Sala í þús. kr. Hlutfall af sölu Sala í þús. kr. Hlutfall af sölu
Bandaríkin 10.848 53,00% 3.384 30,37%
Bretland 2.067 10,10% 1.358 12,19%
Kanada 1.556 7,60% 1.620 14,54%
Ástralía 1.392 6,80% 790 7,09%
Pölland 903 4,41% 156 1,40%
Frakkland 471 2,30% 209 1,88%
Búlgaría 450 2,20% 200 1,80%
Rúmenía 430 2,10% 493 4,43%
Noregur 307 1,50% 256 2,30%
Slóvenía 225 1,10% 25 0,22%
Svíþjóð 184 0,90% 310 2,78%
Ungverjaland 123 0,60% 21 0,19%
Belgía 102 0,50% 349 3,13%
Þýskaland 92 0,45% 158 1,41%
Holland 90 0,44% 185 1,66%
39 / 45 önnur lönd 1.228 6,00% 1.627 14,60%
Tekjur af leik alls 20.468 100,00% 11.142 100,00%

Solid Clouds hf - Ársreikningur 2023

Fjárhæðir eru í þús. kr.


Skýringar, frh.

6. Laun og launatengd gjöld

Laun og launatengd gjöld sundurliðast þannig: 2023 2022
Laun 211.231 192.363
Gjaldfærð kostnaður vegna kaupréttarsamninga 2.026 8.545
Launatengd gjöld 47.878 44.481
Laun og launatengd gjöld samtals 261.135 245.389
Eignfærð laun og launatengd gjöld sem þróunarkostnaður (245.516) (231.385)
Laun og launatengd gjöld í rekstrarreikningi 15.619 14.004
Meðalfjöldi starfsmanna á árinu, umreiknað í heilsársstörf 21 19

Heildarlaun stjórnar og lykilstjórnenda félagsins (2023: tveir starfsmenn, átta stjórnarmenn, 2022: tveir starfsmenn, átta stjórnarmenn) námu samtals 40,5 millj. kr. á árinu 2023 (2022: 37,1 millj. kr.). Mótframlag í lífeyrissjóði nam 4,7 millj. kr. á árinu 2023 (2022: 4,4 millj. kr.).

7. Óefnislegar eignir

Þróunarkostnaður fyrirtækisins byggir á framleiðslu félagsins á fjölspilunarleikjum og tæknigrunni sem hægt er að beita til að gera slíka leiki fyrir alþjóðamarkað. Framleiðsla slíkra leikja er almennt flókin, tímafrek og dýr. Eins og fram kemur í skýringu 3g er það mat stjórnenda að eignfærsla þróunarkostnaðar uppfylli allar kröfur IAS 38 um eignfærslu þróunarkostnaðar.

Þróunarkostnaður er afskrifáður yfir áætlaðan líftíma hvers þróunarverkefnis. Líftíminn er metin frá 5 árum til 20 ára. Sjá nánar um afskrift þróunarkostnaðar í skýringu 3g.

Þróunarkostnaður og afskrift hans greinist þannig: 2023 2022
Bókfært verð 1.1. 861.253 690.347
Eignfærður þróunarkostnaður, sjá skýringu 16 360.743 350.909
Styrkir færðir til lækkunar á þróunarkostnaði, sjá skýringu 13 og 16 (138.606) (112.488)
Afskrift þróunarkostnaðar á árinu, sjá skýringu 8 (88.241) (67.516)
Bókfært verð 31.12. 995.148 861.253
Afskriftatími þróunarkostnaðar 5-20 ár 5-20 ár

Solid Clouds hf - Ársreikningur 2023

Fjárhaðir eru í þús. kr.


Skýringar, frh.

8. Leigueignir og leiguskuldir

Leigueignir og leiguskuldir í efnahagsreikningi greinast þannig:

Leigueignir 2023 2022
Staða í ársbyrjun 10.706 10.222
Breyting leigueigna á árinu ( 1.229) 6.654
Afskrift leigueigna á árinu ( 5.005) ( 6.171)
Staða í árslok 4.472 10.706
Leiguskuldir
Langtímaskuldir 0 4.901
Skammtímaskuldir 4.900 6.768
Leiguskuldir samtals 4.900 11.668

Í rekstrarreikningi eru eftirfarandi gjaldfærslur vegna leigusamninga:

Afskrift leigueigna 5.005 6.171
Vaxtagjöld 766 1.269
Samtals gjaldfært vegna leigusamninga 5.771 7.439

Félagið greiddi 6,3 millj. kr. í húsaleigu á árinu 2023 (2022: 7,1 millj. kr.).

Í rekstrarreikningi sundurliðast afskriftir þannig:

Afskrift leigueigna sbr. að ofan 5.005 6.171
Afskrift þróunarkostnaðar sbr. skýringu 7 88.241 67.516
Afskriftir leigueigna og þróunarkostnaðar skv. rekstrarreikningi 93.246 73.686

Leigusamningur félagsins um húsnæði sem rekstur félagsins er í, lauk í árslok 2023. Samningurinn hefur ekki verið endurnýjaður, en gagnkvæmur uppsagnarfrestur á leigutíma var þrír mánuðir. Félagið er að skoða stöðu og tækífæri er varðar framtíðarhúsnæði sitt.

Solid Clouds hf - Ársreikningur 2023

Fjárhæðir eru í þús. kr.


Skýringar, frh.

  1. Reiknuð tekjuskattseign
Reiknuð tekjuskattseign greinist þannig: 2023 2022
Reiknaður tekjuskattseign í ársbyrjun 104.187 60.852
Reiknaður tekjuskattur ársins 55.549 43.335
Reiknuð tekjuskattseign í árslok 159.736 104.187
Reiknuð tekjuskattseign skiptist þannig á liði:
Yfirfæranlegt skattalegt tap 358.745 276.393
Þróunarkostnaður (199.030) (172.251)
Gengismunur 21 44
Reiknuð tekjuskattseign í árslok 159.736 104.187

Skattalegt tap í árslok 2023, sem heimilt er að flytja áfram samkvæmt skattalögum, nemur 1.793 millj. kr. Yfirfæranlegt skattalegt tap sem ekki nýtist á móti hagnaði innan tíu ára frá því það myndast fellur niður. Yfirfæranlegt skattalegt tap er nýtanlegt sem hér segir:

Skattalegt tap ársins 2015, nýtanlegt til ársins 2025 52.527
Skattalegt tap ársins 2016, nýtanlegt til ársins 2026 68.585
Skattalegt tap ársins 2017, nýtanlegt til ársins 2027 106.974
Skattalegt tap ársins 2018, nýtanlegt til ársins 2028 109.360
Skattalegt tap ársins 2019, nýtanlegt til ársins 2029 160.170
Skattalegt tap ársins 2020, nýtanlegt til ársins 2030 198.255
Skattalegt tap ársins 2021, nýtanlegt til ársins 2031 307.902
Skattalegt tap ársins 2022, nýtanlegt til ársins 2032 377.226
Skattalegt tap ársins 2023, nýtanlegt til ársins 2033 411.758
Yfirfæranlegt skattalegt tap samtals 1.792.756

Reiknuð tekjuskattseign er færð vegna yfirfæranlegs skattalegs taps félagsins þar sem það er mat stjórnenda að liklegra en ekki er að skatalega tapið muni nýtast á móti hagnað næstu árin. Mat stjórnenda byggir á rekstraráætlunum næstu ára og miðar við að nýr leikur félagsins, Starborn Frotniers muni seljast vel næstu ár. Eins og fram kemur að ofan er skattalegt tap hvers árs nýtanlegt í 10 ár.

  1. Aðrar skammtímaskuldir
Aðrar skammtímaskuldir greinast þannig: 31.12.2023 31.12.2022
Ögreidd laun og launatengd gjöld 31.050 25.967
Ögreitt útvarpsgjald 21 20
Skuld við tengda aðila 39 202
Aðrar skammtímaskuldir 31.12. 31.109 26.189

Solid Clouds hf - Ársreikningur 2023

Fjárhæðir eru í þús. kr.


Skýringar, frh.

11. Eigið fé

a. Hlutafé

Hlutafé félagsins skv. samþykktum þess nemur 184,2 millj. kr. í árslok 2023 (31.12.2022: 184,2 millj. kr.). Eitt atkvæði fylgir hverjum hlut í félaginu og er nafnverð hluta ein króna.

b. Yfirverðsreikningur hlutafjár

Yfirverðsreikningur hlutafjár sýnir yfirverð sem greitt hefur verið inni félagið við hlutafjárhækkanir.

c. Bundið eigið fé

Skv. lögum um ársreikninga er gerð krafa um að fjárhæð sem nemur eignfærðum þróunarkostnaði sé færð á sérstakan bundinn reikning meðal eigin fjár. Við afskrift þróunarkostnaðar er binding leyst upp og færð á óráðstafað eigið fé og er þá laus til útgreiðslu arð.

d. Kaupréttarsamningar

Stjórn félagsins samþykktí nýja kaupréttaráætlun fyrir starfsmenn og vertaka félagsins á árinu 2021. Kaupréttaráætlunin er til fjögurra ára þar sem starfsfólk hefur rétt til að kaupa fyrirfram skilgreindan fjölda hluta árlega miðað við úthlutaðan fjölda. Kaupgengið er 10 kr. á hlut. Viðkomandi skal vera í óslitinni vinnu hjá félaginu til loka hvers ávinnslutímabils.

Kaupréttirnir bera hvorki rétt til arðs né atkvæðisréttar. Kaupréttirnir skiptast í fjóra hluta sem verða innleysanlegir á fjögurra ára tímabili. Ávinnslutímabil fyrsta hlutans er eitt ár, ávinnslutímabil annars hluta tvö ár o.s.frv. Hver hlutí er gjaldfærður á sínu ávinnslutímabili, og er því heildargjaldfærsla vegna kauprétta mest á fyrsta ári, en fer svo stiglækkandi þar til öllum fjórum ávinnslutímabilum er lokið.

Gangvirði kaupréttarsamninga er metið á samningsdegi og gjaldfært meðal launa og launatengdra gjalda á því tímabili sem ávinnsla á sér stað. Mótfærsla verður á sérstakan lið meðal eigin fjár. Gangvirði kaupréttarsamninga er metið með Black-Scholes aðferðinni. Við matið eru notaðar forsendur um gengi hlutabréfa á matsdegi, gengi í kaupréttarsamningum, vænt flökt á gengi hlutabréfa félagsins, gildistíma samninganna og áhættulausa vexti.

Eftirfarandi tafla sýnir greiningu á kaupréttarsamningum á árinu 2023: Fjöldi hluta Meðal innlausnarverð
Kaupréttarsamningar í ársbyrjun 2023 10.008.665 9,43
Veittir kaupréttir á árinu 224.800 10,00
Útrunnir kaupréttir á árinu ( 579.642) 0,47
Kaupréttarsamningar í árslok 2023 9.653.823 10,00

Á árinu 2023 voru undirritaðir kaupréttarsamningar við tvo verktaka um 224.800 hlutí á kaupgenginu 10. Ávinnslutíminn er tvö til fjögur ár með mögulegri framlengingu. Alls eru 21 starfsmaður og vertaki með kaupréttarsamning hjá félaginu í árslok 2023.

Eftirfarandi tafla sýnir greiningu á kaupréttarsamningum á árinu 2022: Fjöldi hluta Meðal innlausnarverð
Kaupréttarsamningar í ársbyrjun 2022 1.333.680 5,80
Veittir kaupréttir á árinu 9.429.023 10,00
Útrunnir kaupréttir á árinu (754.038) 10,10
Kaupréttarsamningar í árslok 2022 10.008.665 5,80

Solid Clouds hf - Ársreikningur 2023

Fjárhæðir eru í þús. kr.


Skýringar, frh.

12. Stýring fjármálalegrar áhættu

a. Yfirlit

Félagið stendur frammi fyrir eftirfarandi áhættum í rekstri sínum:

  • lánsáhættu, sjá b.
  • lausafjáráhættu, sjá c.
  • markaðsáhættu (gjaldmiðlaáhætta, vaxtaáhætta), sjá d.
  • rekstraráhættu, sjá e.

Hér eru veittar upplýsingar um framangreindar áhættur, markmið, stefnu og aðferðir félagsins við að meta og draga úr áhættunum. Jafnframt fylgja með ýmsar tölulegar upplýsingar.

Stjórn félagsins ber heildarábyrgð á því að koma á og hafa eftirlit með áhættustýringu félagsins. Stjórnin hefur falið framkvæmdastjóra félagsins að sjá um daglegt eftirliti með áhættum félagsins.

Markmið félagsins með áhættustýringu er að uppgötva og greina áhættu sem félagið býr við, setja viðmið um áhættutöku og hafa eftirlit með henni. Þá er markmiðið enn fremur að stýra áhættu á skilvirkan hátt og miðast áhættustýring við að áhætta sé í samræmi við áhættuvilja og stefnu félagsins og er þannig stuðlað að auknum stöðugleika og langtíma arðsemi. Áhættustýring félagsins og aðferðir eru yfirfarnar reglulega til að greina breytingar á markaðsáðstæðum og starfsemi félagsins hverju sinni. Með þjálfun starfsmanna og starfsreglum stefnir félagið að öguðu eftirliti þar sem allir starfsmenn eru meðvitaðir um hlutverk sitt og skyldur.

b. Lánsáhætta

Lánsáhætta er hættan á fjárhagslegu tapi félagsins ef viðskiptamaður eða mótaðili í fjármálagerningi getur ekki staðið við umsamdar skuldbindingar sínar. Félagið lánar ekki viðskiptavinum sínum. Útistandandi viðskiptakröfur félagsins í árslok 2023 og 2022 eru kortakröfur, kröfur á Google og Apple, og kröfur á íslenska ríkið (þar sem styrkir hafa ekki verið greiddir út). Handbært fé félagsins er geymt á reikningum hjá Arion banka og PayPal.

Mögulegt tap vegna lánsáhættu

Mesta mögulega tap félagsins vegna fjáreigna er bókfært verð þeirra, sem var eftirfarandi á reikningsskiladegi:

31.12.2023 31.12.2022
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 12.395 7.737
Mesta mögulega tap vegna viðskiptakrafna og annarra skammtímakrafna 12.395 7.737
Handbært fé 44.003 310.118
Mesta mögulega tap vegna fjáreigna 56.398 317.855

Virðisrýrnun viðskiptakrafna og annarra skammtímakrafna

Aldur viðskiptakrafna var eftirfarandi í árslok:

Nafnverð Virðisrýrnun
31.12.2023 31.12.2022 31.12.2023 31.12.2022
Ógjaldfallið 12.395 7.737 0 0
Kröfur samtals 12.395 7.737 0 0

Stærstur hluti fjáreigna innan virðisrýrnunarlikans IFRS 9 eru bankainnstæður, og er það mat stjórnenda að þær beri överulega útlánaáhættu. Einnig er útlánaáhætta af viðskiptakröfum og öðrum skammtímakröfum metin överuleg, þar sem stærstur hluti þeirra eru kreditkortakröfur. Það er því mat stjórnenda að áhrif útlánaáhættu í heild séu överuleg fyrir reikningsskilin og engin niðurfærsla er færð vegna útlána félagsins.

Solid Clouds hf - Ársreikningur 2023
Fjárhæðir eru í þús. kr.


Skýringar, frh.

c. Lausafjárhætta

Lausafjáráhætta er hættan á því að félagið geti ekki staðið við fjárhagsskuldbindingar sínar eftir því sem þær gjaldfalla. Markmið félagsins er að stýra lausafé þannig að tryggt sé að það hafi alltaf nægt laust fé til að mæta skuldbindingum sínum eftir því sem þær gjaldfalla og forðast þannig að skaða orðspor félagsins.

Samningsbundnar afborganir af fjárskuldum, þar með talið væntanlegar vaxtagreiðslur, greinast þannig:

31. desember 2023 Bókfært verð Samningsbundið sjóðflæði Innan árs Eftir 1-5 ár Eftir meira en 5 ár
Leiguskuldir 4.900 5.189 5.189 0 0
Viðskiptaskuldir 6.556 6.556 6.556 0 0
Skuldir við tengda aðila 39 39 39 0 0
Aðrar skammtímaskuldir 31.071 31.071 31.071 0 0
Fjárskuldir samtals 42.566 42.855 42.855 0 0
31. desember 2022 Bókfært verð Samningsbundið sjóðflæði Innan árs Eftir 1-5 ár Eftir meira en 5 ár
--- --- --- --- --- ---
Leiguskuldir 11.668 11.668 6.768 4.901 0
Viðskiptaskuldir 4.161 4.161 4.161 0 0
Skuldir við tengda aðila 202 202 202 0 0
Aðrar skammtímaskuldir 30.907 30.907 30.907 0 0
Fjárskuldir samtals 46.938 46.938 42.038 4.901 0

d. Markaðsáhætta

Markaðsáhætta er hættan á því að breytingar í markaðsverði erlendra gjaldmiðla og vaxt hafi áhrif á afkomu félagsins eða virði fjárfestinga hennar í fjármálagerningum. Markmið með stýringu markaðsáhættu er að stýra og takmarka áhættu við skilgreind mörk, jafnframt því sem ábati er hámarkaður.

Gjaldmiðlaáhætta

Félagið byr við gengisáhættu vegna sölu, innkaupa og lántöku í öðrum gjaldmiðlum en starfræksluggaldmiðli félagsins. Þeir gjaldmiðlar sem einkum skapa gengisáhættu eru EUR og USD.

Félagið ver sig ekki sérstaklega fyrir gengisáhættu með framvirkum samningum. Stjórnendur fara reglulega yfir gjaldøyrisáhættu félagsins með það að markmiði að takmarka hana eins og frekast unnt er.

Eignir og skuldir í erlendri mynt voru eftirfarandi í árslok:

31. desember 2023 EUR USD Samtals
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 1.484 154 1.638
Handbært fé 558 1.870 2.428
Viðskiptaskuldir (1.304) 0 (1.304)
Gengisáhætta félagsins 738 2.023 2.762

Solid Clouds hf - Ársreikningur 2023

Fjárhæðir eru í þús. kr.


Skýringar, frh.

31. desember 2022 EUR USD Samtals
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 181 0 181
Handbært fé 3.614 4.051 7.665
Viðskiptaskuldir 0 (2.565) (2.565)
Gengisáhætta félagsins 3.795 1.486 5.281

Gengi helstu gjaldmiðla á árunum 2023 og 2022 var sem hér segir:

Meðalgengi Árslokagengi
Árið 2023 Árið 2022 31.12.2023 31.12.2022
EUR 149,14 142,33 150,50 151,50
USD 137,98 135,46 136,20 142,04

Næmningreining

10% styrking íslenskrar krónu gagnvart eftirtöldum gjaldmiðlum í árslok mundi hafa hækkað (lækkað) eigið fé félagsins og afkomu fyrir tekjuskatt um eftirfarandi fjárhæðir. Greiningin byggir á að allar aðrar breytur haldist óbreyttar.

31.12.2023 31.12.2022
EUR 74 379
USD 202 149

10% veiking íslenskrar krónu gagnvart framangreindum gjaldmiðlum hefði haft sömu áhrif en í gagnstæða átt, að því gefnu að allar aðrar breytur hefðu haldist óbreyttar.

e. Rekstraráhætta

Rekstraráhætta er hættan á beinu eða óbeinu tapi eða tjóni sem getur orðið af völdum margra þátta í starfsemi félagsins, vinnu starfsmanna þess, tækni og skipulagi, og ytri þáttum svo sem vegna breytinga á lögum og almennra viðhorfa til stjórnunarháttta fyrirtækja. Rekstraráhætta myndast í allri starfsemi félagsins.

Það er stefna félagsins að stýra rekstraráhættu með hagkvæmum hætti til að forðast fjárhagslegt tap og til að vernda orðstir þess, jafnframt því að starfsreglur takmarki ekki frumkvæði og sköpunargáfu starfsmanna.

Til að draga úr rekstraráhættu hefur félagið gripið til ýmissa ráðstafana. Þar má meðal annars nefna að félagið hefur komið á viðeigandi aðskilnaði starfa, lagt áherslu á góð starfsskilyrði, lagt áherslu á kostnaðargreiningar, áætlanagerð og haft eftirlit með viðskiptum og fylgni við lög, unnið reglulegt mat á áhættu, starfsmenn þjálfaðir, verkferlar skipulagðir og fleira.

Solid Clouds hf - Ársreikningur 2023

Fjárhæðir eru í þús. kr.


Skýringar, frh.

13. Styrkir

Styrkir í rekstrarreikningi sundurliðast þannig: 2023 2022
Fengnir styrkir 138.606 112.488
Styrkir færðir til lækkunar á eignfærðum þróunarkostn., sjá skýringu 7 (138.606) (112.488)
Styrkir í rekstrarreikningi 0 0

14. Kostnaður við leikjahönnun

Kostnaður við leikjahönnun í rekstrarreikningi sundurliðast þannig: 2023 2022
Kostnaður við leikjahönnun 79.552 98.424
Eignfærður þróunarkostnaður vegna kostnaðar við leikjahönnun (74.949) (93.495)
Kostnaður við leikjahönnun í rekstrarreikningi 4.604 4.929

15. Annar rekstrarkostnaður

Annar rekstrarkostnaður í rekstrarreikningi sundurliðast þannig: 2023 2022
Annar rekstrarkostnaður 93.534 50.716
Eignfærður þróunarkostnaður vegna annars rekstrarkostnaðar (40.279) (26.029)
Annar rekstrarkostnaður í rekstrarreikningi 53.255 24.687

16. Eignfærður þróunarkostnaður

Eignfærður þróunarkostnaður í skýringu 7 sundurliðast þannig: 2023 2022
Eignfærður kostnaður við leikjahönnun, sjá skýringu 14 74.949 93.495
Eignfærð laun og launatengd gjöld, sjá skýringu 6 245.516 231.385
Eignfærður annar rekstrarkostnaður, sjá skýringu 15 40.279 26.029
Eignfærður þróunarkostnaður alls, sjá skýringu 7 360.743 350.909
Styrkir færðir til lækkunar á þróunarkostnaði, sjá skýringu 13 (138.606) (112.488)
Eignfærður þróunarkostn., nettó af mótteknum styrkjum, sjá skýringu 7 222.136 238.421

Solid Clouds hf - Ársreikningur 2023

Fjárhæðir eru í þús. kr.


Skýringar, frh.

17. Rekstrarkostnaður

Rekstrarkostnaður á árinu 2023 sundurliðast þannig: Eignfærður kostnaður Kostnaður í rekstrarreikn. Heildarkostn. 2023
Kostnaður við leikjahönnun 74.949 4.604 79.552
Laun og launatengd gjöld 245.516 15.619 261.135
Annar rekstrarkostnaður 40.279 53.255 93.534
Rekstrarkostnaður alls árið 2023 360.743 73.478 434.221
Rekstrarkostnaður á árinu 2022 sundurliðast þannig: Eignfærður kostnaður Kostnaður í rekstrarreikn. Heildarkostn. 2022
Kostnaður við leikjahönnun 93.495 4.929 98.424
Laun og launatengd gjöld 231.385 14.004 245.389
Annar rekstrarkostnaður 26.029 24.687 50.716
Rekstrarkostnaður alls árið 2022 350.909 43.619 394.529

18. Tengdir aðilar

Skilgreining tengdra aðila

Hluthafar, stjórnarmenn og stjórnendur og nánir fjölskyldumeðlimir þeirra og félög sem þeir ráða yfir teljast til tengdra aðila félagsins.

Viðskipti við tengda aðila og lykilstjórnenda

Vísað er til skýringar 6 um laun og hlunnindi til lykilstjórnenda félagsins.

Ekki voru viðskipti við tengda aðila á árinu 2023.

Viðskiptastöður við tengda aðila: 31.12.2023 31.12.2022
Skuldir við tengda aðila í árslok 39 203

19. Atburðir eftir reikningsskiladag

Í febrúar 2024 ákvað stjórn félagsins að auka hlutafé með útgáfu 147.600.945 nýrra hluta í kjölfar lokaðs hlutafjárútboðs og almenns hlutafjárútboðs. Andvirðið nam 295,2 milljónir króna og verður því ráðstafað í rekstur og markaðssetningu Starborne Frontiers á árinu 2024.

Solid Clouds hf - Ársreikningur 2023

Fjárharðir eru í þús. kr.