Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Solid Clouds hf. AGM Information 2025

Apr 29, 2025

8579_agm-r_2025-04-29_b3f5e954-4dbe-4651-9d52-d7ae4f21ae10.pdf

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Niðurstöður aðalfundar Solid Clouds hf 2025

Aðalfundur Solid Clouds hf var haldinn þriðjudaginn 29. apríl 2025 kl. 16.00 í starfsstöð félagsins á Eiðistorgi 17.

Eggert Árni Gíslason, stjórnarformaður, flutti skýrslu stjórnar. Í máli sínu vísaði hann til fyrirhugaðrar fjármögnunar á árinu til að styðja við vöxt félagsins. Stefán Gunnarsson, forstjóri, og Stefán Þór Björnsson, fjármálastjóri, fóru yfir starfsemi og afkomu félagsins árið 2024. Ársreikningurinn var samþykktur.

Það voru sex frambjóðendur sem buðu sig fram til aðalstjórnar og eftirfarandi fimm voru kjörnir:

Andrea Olsen Bergþóra Halldórsdóttir Davíð Gunnarsson Eggert Árni Gíslason Skúli Skúlason

Varastjórn félagsins var sjálfkjörin og skipa hana eftirandi:

Björn Ingi Pálsson Ólafur Andri Ragnarsson Ingólfur Vignir Ævarsson

Stjórnin hefur skipt með sér verkum. Eggert Árni Gíslason verður stjórnarformaður og Davíð Gunnarsson varaformaður.

Tillaga stjórnar um þóknun til stjórnarmanna og varamanna var samþykkt. Einnig var samþykkt starfskjarastefna Solid Clouds hf óbreytt frá síðasta aðalfundi.

Samþykktar voru breytingar á tveimur ákvæðum samþykkta félagsins. Samþykkt var að hækka heimild stjórnar til að hækka hlutafé til að efna skuldbindingar samkvæmt kaupréttarsamningum og þá var samþykkt breyting á ákvæði er mælir fyrir um hvað skuli samþykkja á aðalfundi félagsins.

Hlynur Sigurðsson frá KPMG ehf., var kjörinn endurskoðandi félagsins fyrir næsta rekstrarár í stað Deloitte ehf.

Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við

Fjárfestatengsl: Stefán Þór Björnsson [email protected]

Viðhengi

Niðurstöður aðalfundar Solid Clouds hf 2025 Aðalfundargerð Solid Clouds 2025 AGM 2025 Presentation