AI assistant
Solid Clouds hf. — AGM Information 2025
Apr 15, 2025
8579_agm-r_2025-04-15_770cdbfb-49ef-4cd9-a9e5-311a334db14a.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer

Aðalfundur Solid Clouds hf. 29. apríl 2025
Boðað er til aðalfundar í Solid Clouds hf. Í höfuðstöðvum félagsins, Eiðistorgi 17, 170 Seltjarnarnesi, þriðjudaginn 29. apríl 2025, kl. 16:00.
Dagskrá fundarins:
-
Skýrsla stjórnar um hag félagsins og rekstur þess á liðnu starfsári
-
Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram ásamt athugasemdum endurskoðenda þess til samþykktar
-
Ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps félagsins á síðastliðnu rekstrarári og ákvörðun um arðgreiðslur
-
Kosning stjórnar og varamanna í stjórn félagsins
-
- Kjör endurskoðanda félagsins
-
- Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna félagsins
-
Starfskjarastefna félagsins lögð fram til samþykktar
-
- Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin
- 8.1. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins
a. Hækkun á heimild stjórnar til að hækka hlutafé félagsins til að efna kaupréttarsamninga við starfsmenn og verktaka
b. Breyting á 1. mgr. 17. gr. samþykkta félagsins
8.2. Kynning á framþróun nýjasta leiks félagsins, Starborne Frontiers
Dagskrá fundarins og fundargögn, eru aðgengileg á vefsetri félagsins, https://www.solidclouds. com/investors/agm2025. Tillögur fyrir aðalfund eru viðhengi með fundarboði þessu.
Hluthafi og umboðsmaður hans getur skráð sig á aðalfundinn á fundarstað frá og með kl. 15:30 á fundardegi. Einnig er unnt að forskrá sig til kl. 14:00 á fundardegi með því að senda tölvupóst með nafni og kennitölu á netfangið [email protected]. Umboðsmaður sem hyggst skrá sig með tölvupósti þarf að framvísa undirrituðu umboði og útfylla umboðseyðublað og senda á sama netfang.
Ekki verður boðið upp á rafræna þátttöku á fundinum en hluthafa gefst kostur á að láta umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd enda framvísi umboðsmaður undirrituðu umboði frá hluthafa, sbr. framangreint.
Til þess að tillaga frá hluthafa, sem leggja á fyrir fundinn, verði tekin þar til umræðu verður að skila tillögunni til stjórnar félagsins á netfangið [email protected] í síðasta lagi fimm dögum fyrir fundinn.
Að lokinni dagskrá fundarins verður boðið upp á léttar veitingar í húsakynnum Solid Clouds hf.

Seltjarnarnes, 15. apríl 2025 F.h. stjórnar Solid Clouds hf. Eggert Árni Gíslason stjórnarformaður
Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við
Fjárfestatengsl: Stefán Þór Björnsson [email protected]
Viðhengi
Aðalfundur Solid Clouds hf. 29. apríl 2025 Aðalfundarboð 2025