Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Solid Clouds hf. AGM Information 2025

Jan 10, 2025

8579_dva_2025-01-10_80dd603a-e4d1-4fef-9907-c458f3df3481.pdf

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Niðurstöður hluthafafundar 10. janúar 2025

Á hluthafafundi Solid Clouds hf. sem lauk nú um kl. 17:00 hinn 10. janúar 2025, var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um útgáfu skuldabréfa að höfuðstólsfjárhæð allt að 175 milljónir króna, með rétti til að breyta kröfum samkvæmt þeim í hluti í félaginu.

Öllum hluthöfum félagsins verður boðið að skrá sig fyrir kaupum á skuldabréfum með breytirétti. Samkvæmt tillögu stjórnar fyrir hluthafafund munu bréfin hafa breytirétt í hluti í félaginu miðað við gengið 1 kr. fyrir hvern hlut nafnverðs. Þá er lagt til að stjórn fái heimild til að hækka hlutafé félagsins um allt að 200 milljónir hluta vegna útgáfu hluta í tengslum við nýtingu breytiréttar. Skuldabréfin eru á gjalddaga 15. september 2025 og bera 15% fasta vexti.

Þá voru tillögur stjórnar um að stjórn fái heimild hluthafa til að hækka hlutafé félagsins um allt að 300 milljónir hluta vegna framhaldsviðræðna við hæfa fjárfesta og að stjórn fái heimild til að hækka hlutafé félagsins um allt að 100 milljónir hluta, til að bjóða hluthöfum að skrá sig fyrir nýjum hlutum í félaginu, báðar samþykktar.

Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við

Fjárfestatengsl: Stefán Þór Björnsson [email protected]

Viðhengi

Niðurstöður hluthafafundar 10. janúar 2025 Fundargerð Hluthafafundar SOLID CLOUDS 10 1 2025 Solid Clouds Presentation 10 January 2025 Nýjar Upplýsingar Um Fjármögnun Félagsins