AI assistant
Solid Clouds hf. — AGM Information 2025
Apr 15, 2025
8579_rns_2025-04-15_c1518d7c-e696-4c95-82d6-07f7967448e4.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Aðalfundur Solid Clouds hf.
29. apríl 2025
Boðað er til aðalfundar í Solid Clouds hf. Í höfuðstöðvum félagsins, Eiðistorgi 17, 170
Seltjarnarnesi, þriðjudaginn 29. apríl 2025, kl. 16:00.
Dagskrá fundarins:
- Skýrsla stjórnar um hag félagsins og rekstur þess á liðnu starfsári
- Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram ásamt athugasemdum endurskoðenda þess til samþykktar
- Ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps félagsins á síðastliðnu rekstrarári og ákvörðun um arðgreiðslur
- Kosning stjórnar og varamanna í stjórn félagsins
- Kjör endurskoðanda félagsins
- Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna félagsins
- Starfskjarastefna félagsins lögð fram til samþykktar
- Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málfni sem löglega eru upp borin
8.1. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins
a. Hækkun á heimild stjórnar til að hækka hlutafé félagsins til að efna kaupréttarsamninga við starfsmenn og verktaka
b. Breyting á 1. mgr. 17. gr. samþykta félagsins
8.2. Kynning á framþróun nýjasta leiks félagsins, Starborne Frontiers
Dagskrá fundarins og fundargögn, eru aðgengileg á vefsetri félagsins,
https://www.solidclouds.com/investors/agm2025. Tillögur fyrir aðalfund eru viðhengi með fundarboði þessu.
Hluthafi og umboðsmaður hans getur skráð sig á aðalfundinn á fundarstað frá og með kl. 15:30 á fundardegi. Einnig er unnt að forskrá sig til kl. 14:00 á fundardegi með því að senda tölvupóst með nafni og kennitölu á netfangið [email protected]. Umboðsmaður sem hyggst skrá
sig með tölvupósti þarf að framvísa undirrituðu umboði og útfylla umboðseyðublað og senda á sama netfang.
Ekki verður boðið upp á rafræna þátttöku á fundinum en hluthafa gefst kostur á að láta umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd enda framvísi umboðsmaður undirrituðu umboði frá hluthafa, sbr. framangreint.
Til þess að tillaga frá hluthafa, sem leggja á fyrir fundinn, verði tekin þar til umræðu verður að skila tillögunni til stjórnar félagsins á netfangið [email protected] í síðasta lagi fimm dögum fyrir fundinn.
Tillögur stjórnar Solid Clouds hf. fyrir aðalfund 2025
2. Ársreikningur
Stjórn Solid Clouds hf. leggur til við aðalfund félagsins að ársreikningur fyrir árið 2024 verði samþykktur.
3. Ákvörðun um hvernig skuli fara með hagnað eða tap og um arð
Stjórn Solid Clouds hf. leggur til að tap félagsins verði fært til næsta árs og vísar að að öðru leyti til ársreiknings um breytingar á eigirí félfélagsins á árinu 2024. Pá leggur stjórn félagsins til að ekki verði greiddur arður til hluthafa vegna síðastliðins rekstrarárs.
4. Kosning stjórnar og varamanna í stjórn félagsins
Þeir einstaklingar sem hyggjast gefa kost á sér til stjórnarkjörs skulu með skriflegum hætti tilkynna stjórn félagsins um framboð á netfangið [email protected] eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund.
Í tilkynningu skulu frambjóðendur veita upplýsingar um nafn, kennitölu, heimilisfang, aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu.
Upplýsingar um frambjóðendur verða birtar á skrifstofu félagsins og vefsetri félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir hluthafafund.
5. Kosning endurskoðenda félagsins
Stjórn Solid Clouds hf. leggur til við aðalfund félagsins að KPMG ehf. verði kjörrið endurskoðandi félagsins næsta ár.
6. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna félagsins og endurskoðenda
Stjórn Solid Clouds hf. leggur til við aðalfund félagsins að stjórnar- og nefndarlaun fyrir kjörtímabilið 2024 verði eftirfarandi:
- Póknun stjórnarformanns verði 200.000 kr.
- Póknun vara stjórnarformanns verði 150.000 kr.
- Laun annara aðalmanna verði 100.000 kr.
- Laun varamanna verði 50.000 kr.
7. Starfskjarastefna
Stjórn Solid Clouds hf. leggur til við aðalfund félagsins að framlögð starfskjarastefna verði samþykkt.
Finna má starfskjarastefnu á vefsetri félagsins, https://www.solidclouds.com/investors/agm2025
8. Önnur mál
8.1. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins
8.1. a. Tillaga um að hækka heimild stjórnar til að mæta skuldbindingum samkvæmt kaupréttarsamningum við starfsmenn og verktaka
Stjórn Solid Clouds hf. leggur fram eftirfarandi tillögu um hækkun á heimild til handa stjórn til að hækka hlutafé til að mæta skuldbindingum á grundvelli kaupréttarsamninga við starfsmenn og verktaka.
1. gr.
Hámark heimildar til hlutafjárhækknunar til að efna skuldbindingar vegna kaupréttarsamninga
Sú heimild sem er í 3. mgr. 4. gr. samþykktá félagsins mælir fyrir um að stjórn sé heimilt að ákveða hækkun hlutafjár um allt að kr. 11.314.000 að nafnverði með útgáfu nýrra hluta, í einu lagi eða í áföngum, til að efna kaupréttarsamninga við starfsmenn eða verktaka.
2. gr.
Hækkun á heimild til handa stjórn
Lagt er til að samþykktum félagsins verði breytt og að heimild til handa stjórn í 3. mgr. 4. gr. verði hækkuð í allt að 38.314.000 hluti að nafnverði. Pannig verði heildar nafnverðsfjárhæð heimildar til handa stjórn til að hækka hlutafé til að mæta skuldbindingum samkvæmt kaupréttarsamningum við starfsmenn og verktaka hækkuð úr allt að 11.314.000 hlutum að nafnverði í allt að 38.314.000 hluti að nafnverði. Pá er lögð til lítilsháttar orðalagsbreyting í seinni hluta ákvæðisins.
Ákvæðið skal hljóma með eftirfarandi hætti (nýr eða breyttur texti er undirstrikaður):
„Stjórn félagsins er heimilt að ákveða hækkun hlutafjár um allt að kr. 38.314.000 að nafnverði með útgáfu nýrra hluta, í einu lagi eða í áföngum. Heimild þessa má einungis
nota í tengslum við efndir kaupréttarsamninga við starfsmenn og verktaka félagsins. Hluthafar hafa ekki forgangsrétt til áskriftar að hlutum sem gefnir eru út samkvæmt heimild þessari. Hinir nýju hlutir skulu veita réttindi í félaginu frá þeim degi sem þeir eru afhentir starfsmanni eða verktaka skv. skilmálum kaupréttarsamnings. Heimildin fellur niður þann 25. maí 2027, að því leyti sem hún er þá ónýtt. Stjórn félagsins er heimilt að breyta samþykktum þessum í samræmi við það sem leiðir af hlutafjárhæk kun. Stjórn félagsins er heimilt að hækka hlutafé félagsins í áfóngum um allt að 9.187.500 hluti að nafnverði með útgáfu nýrra hluta. Hluthafar njóta ekki forgangs til nýrra hluta sem eru gefnir út samkvæmt heimild þessari. Heimild þessa má einungis nota í tengslum við efndir samninga sem gerðir hafa verið og gerðir verða við ráðgjafa félagsins. Kaupgengi hlutanna og sóluskilmálar skulu vera samkvæmt þeim samningum sem félagið hefur gert eða mun gera við hlutaðeigandi ráðgjafa. Stjórn félagsins er heimilt að ákveða að réthafar greiði fyrir hina nýju hluti að hluta eða öllu leyti með öðrum verðmætum en reiðufé og skal fara um slíkt eftir ákvæðum laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Heimild þessi gildir í tvö ár frá 14. febrúar 2024, en fellur niður við það tímamark að því leyti sem hún er ónýtt. Stjórn félagsins er heimilt að breyta samþykktum þessum í samræmi við það sem leiðir af hlutafjárhæk kun.44
8.1. b. Breyting á 17.gr. samþykta félagsins
Stjórn Solid Clouds hf. leggur til að ákvæði 1. mgr. 17. gr. samþykta félagsins, um þau mál sem taka skal fyrir á aðalfundi félagsins skuli eftirleiðis hljóma með eftirfarandi hætti (breyttur texti er yfirstrikaður):
„Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:
- Stjórn félagsins skal skýra hluthöfum frá hag félagsins og rekstri þess á liðnu starfsári.
- Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skal lagður fram ásamt athugasemdum endurskoðenda félagsins til samþykktar.
- Stjórn félagsins skal kjörin.
- Tekin skal ákvörðun um hvernig fara skal með hagnað eða tap og um arð.
- Endurskoðendur skulu kjörnir.
- Ákvörðun skal tekin um greiðslur til stjórnar- og endurskoðenda fyrir störf þeirra á starfsárinu.
- Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
- Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málfni sem löglega eru upp borin.“
8.2. Kynning á framþróun leiks félagsins, Starborne: Frontiers
Farið verður yfir þróun og dreifingu Starborne: Frontiers.
Að lokinni dagskrá fundarins verður boðið upp á léttar veitingar í húsakynnum Solid Clouds hf.
Seltjarnarnes, 15. apríl 2025
F.h. stjórnar Solid Clouds hf.
Eggert Árni Gíslason
stjórnarformaður