Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Solid Clouds hf. AGM Information 2023

Sep 8, 2023

8579_rns_2023-09-08_5d231507-d772-47b6-9800-119ab61cc9df.pdf

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Fundargerð

Hluthafafundar Solid Clouds, hf. þann 8. september 2023, haldinn í aðalsal Arion Banka, Borgartúni 19, 105 Reykjavík, föstudaginn, 8. september kl. 16:00

Dagskrá fundarins:

  1. Kosning fundarstjóra

Formaður stjórnar, Sigurlína Ingvarsdóttir, setti hluthafafund félagsins og baúð fundarmenn velkomna. Tillaga stjórnar var að Hóskuldur Þórhallsson, yrði skipaður fundarstjóri og bárust ekki athugasemdir við þá tillögu. Fól þá stjórnarformaður fundarstjóra stjórn fundarins. Fundarstjóri bar upp tillögu um að Einar Örn Ævarsson yrði kjörin fundarritari. Ekki bárust athugasemdir við þá tilhögun.

Fundarstjóri fór yfir boðun fundarins. Til fundarins var boðað með Kauphallartilkynningu þann 31. ágúst sem birtist í fjölmiðlum. Boðun er innan tilsettra tímafresta skv. 1. mgr. 13. gr. samþykktum félagsins.

Fundarstjóri úrskurðaði í kjölfarið fundinn lögmætan til að afgreiða þau mál sem á dagskrá hans voru. Mætt var á fundinn fyrir 51.1% af virku hlutafé.

Á fundinn mættu stjórnarmenn félagsins. Þá voru forstjóri og fjármálastjóri félagsins viðstaddir fundinn.

Formaður stjórnar fór stuttlega yfir stöðu félagsins og í máli hennar kom að útgáfuferli Starborne Frontiers hafi hafist í febrúar á þessu ári. Útgáfuferlið þjónar þeim tilgangi að stilla af leikinn, bæta við nýju efni og greina kauphegðun spilara með það að markmiði að vera tilbúin fyrir markaðssetningu leiksins sem áformuð er á næsta ári. Leikurinn hefur fengið góð viðbrögð og dóma hjá notendum bæði hjá Google og Apple app-búðunum. Eru þetta góð fyrirheit um að leikurinn muni ná árangri. Til þess að sækja fjármagn til útgáfu og markaðssetingar samdi félagið við Arion Banka um að vera umsjónaráðili að hlutafjárakningu. Fjármögnunarumhverfi nýsköpunarfyrirtækja er um þessar mundir ekki hagfellt. Stjórn Solid Clouds hefur því ákveðið að fresta áformum sínum um hlutafjárakningu, sbr. tilkynning dags. 31. ágúst 2023, en áskriftir í útboðinu voru undir væntingum stjórnar.

Gengið var til dagskrár.

6


  1. Tillaga um að hækka hlutafé

Stjórn Solid Clouds hf. lagði til við hluthafafund félagsins að tillagan yrði afturkölluð.

Fundarstjóri bar upp tillöguna og var hún samþykkt samhljóða með tilskildum meirihluta atkvæða.

  1. Tillaga um að hluthafar falli frá forgangsrétti

Stjórn Solid Clouds hf. lagði til við hluthafafund félagsins að tillagan yrði afturkölluð.

Fundarstjóri bar upp tillöguna og var hún samþykkt samhljóða með tilskildum meirihluta atkvæða.

  1. Önnur máls sem voru löglega borin fram

Ekki voru fleiri mál á dagskrá fundarins.

Fundarstjóri fékk heimild til fundarins að ganga frá fundargerð.

Var fundi slitið kl. 16:15

Höskuldur Þórhallsson, fundarstjóri

Höskuldur Þórhallsson

Einar Örn Ævarsson, fundarritari

img-0.jpeg