Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Proxy Solicitation & Information Statement 2020

Mar 9, 2020

2203_rns_2020-03-09_ddaaa82c-33ed-4156-a6f7-7dc70ea7d55f.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Síminn

Vegna aðalfundar Símans hf. sem haldinn verður 12. mars 2020 kl. 16:00.

Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins.

Bjarni Þorvarðarson

Bjarni lauk B.Sc. prófi í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1989 og síðar meistaragráðum í rafmagnsverkfræði frá University of Wisconsin, Madison, 1991, í alþjóðaviðskiptum frá ISG í Paris 1993 og fjármálafræðum frá London Business School árið 1998. Eftir sölu- og stjórnunarstörf hjá Tölvusamskiptum og Tæknivali réðist Bjarni sem viðskipta- og sjóðsstjóri til Fjárfestingarbanka atvinnulífsins og síðar, árið 2002, til fjárfestingarfyrirtækisins CVC í Bandaríkjunum og sat í stjórnun nokkurra af fjarskiptafyrirtækjum CVC á Íslandi, Bandaríkjunum, Kanada, Írlandi, Bretlandi, Hollandi, Indlandi og Ástralíu. Árið 2004 tók Bjarni að sér forstjórastöðu hjá nýstofnuðu fjarskiptafyrirtæki í eigu CVC, Hibernia Networks, og hélt þeirri stöðu þar til Hibernia var selt árið 2017, þá með 240 starfsmenn í 9 löndum og ljósleiðaranet sem náði til flestra af stærstu borga heims. Frá miðju ári 2018 hefur Bjarni gegnt forstjórastöðu lyfjaframleiðandans Coripharma ehf. í Hafnarfirði auk þess að sinna eigin fjárfestingarverkefnum.

Helga Valfells

Helga er stofnandi og framkvæmdastjóri hjá nýðsköpunarsjóðnum Crowberry Capital. Helga er stjórnarmaður í stjórn Sensa, Aldin Dynamics, Monerium ehf, Katla Ltd. og stjórnarformaður í Lucinity ehf. Áður en Helga stofnaði Crowberry árið 2017 var hún framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins frá 2010. Á þessum tíma sat Helga í stjórnum 14 nýsköpunarfyrirtækja og bar ábyrgð á eignasafni sjóðsins í allt að 41 nýsköpunarfyrirtæki. Helga var stjórnarformaður Frumtaks frá 2010 til 2017. Helga var forstöðumaður hjá Útflutningsráði Íslands frá 1999 til 2005 þar sem hún stýrði m.a. ýmsum verkefnum tengdum markaðsmálum og fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja.

Fyrir utan störf í nýsköpunargeiranum hefur Helga starfað hjá fjárfestingabanka Merrill Lynch í London, í markaðsmálum hjá Estee Lauder í Bretlandi og VÍB. Helga var ópólitískur aðstoðarmaður Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra fyrstu mánuðina eftir hrun.

Helga er með B.A. gráðu frá Harvard Háskóla og MBA gráðu frá London Business School.

Jón Sigurðsson

Jón Sigurðsson er stjórnarformaður fjárfestingafélagsins Stoða hf., sem er stærsti hluthafi Símans. Jón er fæddur 1978 og er viðskiptafræðingur að mennt. Jón hefur starfað á íslenskum og erlendum fjármálamarkaði í u.þ.b. 20 ár, ýmist sem stjórnandi, fjárfestir, ráðgjafi eða stjórnarmaður.

Jón starfaði við fyrirtækjaráðgjöf hjá Búnaðarbanka Íslands og Landsbanka Íslands á árunum 2002-2005 og sem framkvæmdastjóri fjárfestingasviðs og síðar forstjóri Stoða frá 2005-2010. Jón hefur setið í stjórnum fjölmargra félaga, skráðra jafnt sem óskráðra, innanlands sem og erlendis. Jón sat m.a. í stjórn Refresco B.V. á árunum 2006-2018 og tók virkan þátt í uppbýggingu Refresco, m.a. kaupungin fjölmargra félaga og sameiningu þeirra, skráningu á Euronext Amsterdam og lokus sölu Refresco og afskráningu. Þá sat Jón í stjórn N1 (nú Festi) á árunum 2014 til 2018 en miklar breytingar urðu á rekstri og efnahag N1 á því tímabili, sem lauk með kaupum N1 á Festi. Jón hefur hin síðari ár sinnt eigin fjárfestingum, m.a.


Síminn

sem framkvæmdastjóri Helgafells ehf. og sem stjórnarformaður Stoða, en Helgafell á óbeinan 22% eignarhlut í Stoðum.

Kolbeinn Árnason

Kolbeinn er lögmaður og eigandi hjá Dranga Lögmönnum ehf., sem er sérhæfð lögmannsstofa sem sinnir verkefnum á réttarsviðum tengdum viðskiptalífinu. Hann hefur setið í stjórn LBI ehf., frá því að nauðasamningur við kröfuhafa félagsins var staðfestur árið 2016. Kolbeinn var framkvæmdastjóri Samtaka Fyrirtækja í S jávarútvegi frá 2013 til 2016 og sat á því tímabili einnig í Framkvæmdastjórn Samtaka Atvinnulífsins. Hann var aðallögfræðingur og framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Kauppings hf. frá 2008 til 2013 og hafði sem slíkur umsjón með lögfræðilegri vinnu sem snéri að endurskipulagningu, sölu og innheimtu á eignum Kauppings auk endurskipulagningar félagsins, með það að markmiði að leggja niður starfsemi þess og greiða eignir þess út til kröfuhafa á skipulegan hátt. Kolbeinn hefur einnig langa reynslu af störfum innan stjórnsýslunnar. Hann var skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu sjávarútvegsráðuneytisins frá 1999 til 2004 og fulltrúi í fastanefnd Íslands hjá Evrópusambandinu í Brussel frá 2004 til 2006.

Kolbeinn lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1997. Kolbeinn lagði stund á framhaldsnám í alþjóðlegri viðskiptalögfræði við Háskólann í Leuven frá 2005 - 2006. Pá lauk Kolbeinn AMP námi frá IESE Business School árið 2016.

Sylvía Kristín Ólafsdóttir

Sylvía lauk mastergráðu frá London School of Economics í Aðgerðarannsóknum árið 2006. Fyrir það, eða árið 2005 lauk hún B.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Sylvía starfaði í 5 ár hjá Amazon first sem sérfræðingur í nýfjárfestingum á fjármálasviði og seinna sem yfirmaður viðskiptagreindar og vörustjóri í Kindle deild Amazon. Árin 2007 til 2010 starfaði hún fyrir Seðlabanka Íslands sem Forstöðumaður viðbúnaðarsviðs.

Frá 2015 starfaði Sylvía hjá Landsvirkjun sem Forstöðumaður tekjustýringar og seinna sem Forstöðumaður jarðvarmadeildar. Sylvía var einnig stundakennari við Háskóla Íslands í kvikum kerfislíkönum, rekstrarfræði og verkefnastjórnun (MPM). Sylvía geginr nú stöðu sem Forstöðumaður á rektrarsviði hjá Icelandair ásamt því að vera í stjórn Ölgerðarinnar og WCD (Women Corporate Directors á Íslandi).


Síminn

Eftirtaldir aðilar hafa boðið sig fram til setu í tilnefningarnefnd félagsins

Jensína Kristín Böðvarsdóttir

Jensína er með MBA gráðu frá University of San Diego með áherslu á markaðsmál og neytendahegðun, og BS gráðu í auglýsingafræði frá San Jose State University. Jensína er Associate Partner hjá Valcon consulting, alþjóðlegu ráðgjafafyrirtæki. Áður var Jensína framkvæmdastjóri hjá Alvogen, VP Global Strategic Planning & HR, 2015-2019. Þar áður var hún framkvæmdastjóri þróunar og mannaðs hjá Landsbankanum 2010-2015 og sem forstöðumaður sólá einstaklingssviði Símans 2007-2010. Hún var einnig markaðsstjóri Globus 2004-2007 og framkvæmdastjóri IMG (nú Capacent) 2001-2004.

Jensína hefur setið í stjórn Íslandssjóða frá 2016 og sat áður í stjórn Frumtaks 2010-2016, varamaður í stjórn Framtakssjóðs Íslands 2011-2015 og stjórnarmaður og lengst af stjórnarformaður Reiknistofu bankanna 2010-2012.

Steinunn Kristín Þórðardóttir

Steinunn Kristín er með meistaragráðu í alþjóðlegri stjórnun (MIM) frá Thunderbird, Arizona og BA gráðu í alþjóðaviðskiptum og stjórnmálafræði frá University of South Carolina. Steinunn Kristín starfaði áður sem framkvæmdastjóri hjá Beringer Finance í Noregi auk þess að gegna stöðu forstöðumanns alþjóðadeildar fyrirtækisins á sviði matvæla og sjávarfangs til október 2017. Árið 2010 stofnaði Steinunn ráðgjafafyrirtækið Akton AS í Noregi og var framkvæmdastjóri þess til ársins 2015. Steinunn starfaði hjá Íslandsbanka (síðar Glitni) frá árinu 2001, fyrst sem forstöðumaður alþjóðalánveitinga til ársins 2005 og síðar sem framkvæmdastjóri bankans í Bretlandi frá 2005 til 2008.

Steinunn hefur setið í stjórnum evrópskra fyrirtækja í ýmsum geirum en í dag er Steinunn stjórnarmaður hjá Arion Banka hf, Cloud Insurance AS, Akton AS og Acton Capital AS. Hún situr jafnframt í stjórn Norsk-íslenska viðskiptaráðsins.

3