Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Share Issue/Capital Change 2026

Mar 23, 2026

2203_rns_2026-03-23_0bc0173d-03f7-4979-95fb-2534cfa3bb02.html

Share Issue/Capital Change

Open in viewer

Opens in your device viewer

Síminn hf. - Lækkun hlutafjár

Síminn hf. - Lækkun hlutafjár

Á aðalfundi Símans hf. þann 12. mars 2026 var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins. Lækkunin nemur kr. 75.000.000 að nafnverði og tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með kaupum á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlunum. Eftir lækkun verður hlutafé samtals kr. 2.400.000.000.

Beiðni hefur verið send til Nasdaq og mun lækkunin verða framkvæmd fimmtudaginn 26. mars 2026.

Vísað er til tilkynningar félagsins sem birtist í fréttakerfi Kauphallar þann 12. mars sl. þar sem greint er frá niðurstöðum aðalfundar.