AI assistant
Síminn — Capital/Financing Update 2026
Apr 15, 2026
2203_rns_2026-04-15_84d38572-4432-49a4-9e16-c6c605dbac24.html
Capital/Financing Update
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn hf. - Útgáfa á nýjum víxlaflokki
Síminn hf. - Útgáfa á nýjum víxlaflokki
Síminn hf. lauk í dag sölu á nýjum víxlaflokki SIMINN261022, sem gefinn er út undir kr. 9.000.000.000 útgáfuramma félagsins.
Alls bárust tilboð að nafnvirði kr. 1.520.000.000, á bilinu 8,10% - 8,30% flötum vöxtum. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði kr. 1.100.000.000 á 8,153% flötum vöxtum.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður 22. apríl 2026 og í kjölfarið verður sótt um að víxlaflokkurinn verði tekinn til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku víxlanna til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.
Grunnlýsing og viðauki við grunnlýsinguna hafa verið birt í tengslum við útgáfuramma félagsins. Grunnlýsing útgáfuramma, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu víxlaflokksins og töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins: https://www.siminn.is/fjarfestar.
Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni.
Nánari upplýsingar veitir:
Hjörtur Þór Steindórsson, fjármálastjóri, netfang: [email protected].
