AI assistant
Síminn — AGM Information 2018
Nov 26, 2018
2203_rns_2018-11-26_4e42fe5e-a303-46bb-8f82-c4e20b25c67a.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Síminn
Hluthafafundur Símans hf. verður haldinn
þann 28. nóvember 2018 kl. 10
í höfuðstöðvum félagsins, Ármúla 25, Reykjavík.
Dagskrá
- Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins.
- Tillaga um starfsreglur tilnefningarnefndar.
- Kosning nefndarmanna í tilnefningarnefnd.
- Tillaga um þóknun nefndarmanna í tilnefningarnefnd.
- Önnur mál löglega upp borin.
Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins varða grein 11.2 og 11.4 og þá er lagt til að ný grein 10.12 bætist við samþykktir, en allar breytingarnar lúta að því að koma á fót tilnefningarnefnd í félaginu í samræmi við góða stjórnarhætti. Einnig er gerð tillaga um bráðabírgðaákvæði í þeim tilgangi að unnt verði þá strax að ganga frá skipan nefndarinnar svo hún megi hefja þegar störf til undirbúnings fyrir aðalfund á næsta ári.
Eins og fram kemur í tillögum stjórnar sem liggja fyrir fundinum leggur stjórn félagsins til eftirfarandi nefndarmenn í tilnefningarnefnd:
Jensína Kristín Böðvarsdóttir og Steinunn Kristín Þórðardóttir.
Ekki bárust önnur framboð í tilnefningarnefnd. Verði tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins þess efnis að komið verði á fót tilnefningarnefnd innan félagsins samþykkt sem og tillaga um starfsreglur tilnefningarnefndar er því sjálfkjörð í nefndina.
Þá er gerð tillaga sem mælir fyrir að félagið skuli á vef sínum birta upplýsingar um 20 stærstu hluthafa félagsins, verður það ný grein 5.4.
Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð eða greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.
Aðrar upplýsingar
Á vef félagsins, https://www.siminn.is/forsida/siminn/fjarfestar/hluthafafundir, er að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við hluthafafundinn, þ.m.t. dagskrá fundarins og tillögur stjórnar félagsins auk upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn.
Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða afhent á fundarstað frá kl. 9:30. Fundurinn fer fram á íslensku.
Reykjavík, 26. nóvember 2018
Stjórn Símans hf.