AI assistant
Síldarvinnslan — Proxy Solicitation & Information Statement 2024
Mar 19, 2024
2205_rns_2024-03-19_7450aa5f-bbfc-4252-a82a-0e07d94605a3.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Framboð við kjör stjórnar á aðalfundi Síldarvinnslunnar hf. 21. mars 2024
Á dagskrá aðalfundarins í Síldarvinnslunni hf. 21. mars 2024 er kosning stjórnar í félaginu. Samkvæmt sambykktum félagsins er stjórnin skipuð fimm aðalmönnum og tveimur til vara.
Frestur til að bjóða sig fram til stjórnar er nú runninn út og hafa eftirtalin boðið sig fram:
Í aðalstjórn:
Anna Guðmundsdóttir, fjármálastjóri, kt. 130367-3729
Baldur Már Helgason, framkvæmdastjóri, kt. 060376-3449
Erla Ósk Pétursdóttir, framkvæmdastjóri, kt. 080980-5159
Guðmundur Rafnkell Gíslason, framkvæmdastjóri, kt. 190270-2979
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri, kt. 071052-4359
Í varastjórn:
Arna Bryndís Baldvins McClure, lögfræðingur, kt. 020785-2689
Ingi Jóhann Guðmundsson, framkvæmdastjóri, kt. 120169-5729
Nánari upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar félagsins.
Anna Guðmundsdóttir, aðalstjórn
Anna er með Cand. Oecon í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og starfar sem fjármálastjóri Gjögurs hf., áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Íslandspósts ohf. frá 1998-2008. Anna er jafnframt framkvæmdastjóri Þingstaða ehf. Anna var fyrst kjörin í stjórn Síldarvinnslunnar hf. árið 2013.
Anna situr jafnframt í stjórnum eftirfarandi félaga: Gjögurs hf., Kallnesings ehf., Kjálkaness ehf., Loftleiða Cabo Verde ehf., Lögmannsstofu Jörundar Gaukssonar ehf. og StorMar ehf.
Anna er hluthafi í Kjálkanes ehf. sem á 16,06 % hlut í Síldarvinnslunni hf. Anna á 22% eignarhlut í Kjálkanesi ehf. Hún á ekki hluti í eigin nafni í Síldarvinnslunni hf. Anna er óháð félaginu og daglegum stjórnendum þess en telst háð stórum hluthafa samkvæmt "Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja" sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út 1. júlí 2021.
Baldur Már Helgason, aðalstjórn
Baldur er með Cand.sci. próf í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands (2000), lauk AMP stjórnunarnámi frá IMD háskólanum í Sviss (2022) og er með löggilt próf í verðbréfaviðskiptum. Hann starfar sem framkvæmdastjóri hjá Reginn hf. Hann var framkvæmdastjóri Eyju fjárfestingarfélags (2017-2019). Fjárfestinga- og sjóðsstjóri hjá Auði Capital (2009-2016). Fjárfestinga- og lánastjóri hjá Íslandsbanka, m.a. í Bandaríkjunum og Danmörku (2000-2009). Hefur setið í stjórnum hjá Skeljungi, Sýn, Securitas, Já, Íslenska Gámafélaginu og Domino's Íslandi og Noregi. Situr ekki í stjórnum annarra félaga í dag. Baldur var fyrst kjörinn í stjórn Síldarvinnslunnar hf. árið 2021.
Baldur á 17.241 hluti í Síldarvinnslunni hf.
Baldur telst óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins samkvæmt "Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja" sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út 1. júlí 2021.
Erla Ósk Pétursdóttir, aðalstjórn
Erla Ósk er með B.A. próf í hagfræði og tölvunarfræði frá Macalester College í Bandaríkjunum og MBA frá Háskólanum í Reykjavík. Hún starfar í dag sem framkvæmdastjóri Marine Collagen ehf. Áður var hún meðal annars mannauðstjóri hjá Vísi hf. um fjögurra ára skeið. Erla var fyrst kjörin í stjórn Síldarvinnslunnar hf. árið 2023.
Erla Ósk situr jafnframt í stjórnum Fisktækniskólans, Codland, Fiskifélagsins og Útvegsmannafélags Suðurnesja.
Erla Ósk á 2.145.923 hluti í Síldarvinnslunni hf. í gegnum félagið 55105 ehf.
Erla telst óháð stórum hluthöfum félagsins en telst háð félaginu og daglegum stjórnendum samkvæmt "Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja" sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út 1. júlí 2021.
Guðmundur Rafnkell Gíslason, aðalstjórn
Guðmundur er með B.ed. gráðu í kennsluvísindum. Hann starfar í dag sem framkvæmdastjóri Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað og Olíusamlags útvegsmanna í Neskaupstað. Hann var áður framkvæmdastjóri Egilsbúðar í Neskaupstað, mannauðsstjóri ESS á Íslandi og framkvæmdastjóri Sjónaráss ehf. Sveitarstjórnarmaður í Neskaupstað og Fjarðabyggð 1990 – 2010 og forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar frá 2006-2010. Var fyrst kjörinn í stjórn Síldarvinnslunnar hf. árið 2016.
Guðmundur situr jafnframt í stjórnum eftirtalinna félaga: B.G Bros ehf., Múlinn samvinnuhús ehf., Ís-Travel Austurland ehf., Hrólfskers ehf.
Guðmundur er, eins og áður hefur komið fram, framkvæmdastjóri Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað og Olíusamlags útvegsmanna í Neskaupstað sem eiga samtals um 11,81% hlut í Síldarvinnslunni. Hann á ekki hluti í eigin nafni í Síldarvinnslunni hf. Guðmundur telst óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess en telst háður stórum hluthafa samkvæmt "Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja" sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út 1. júlí 2021.
Þorsteinn Már Baldvinsson, aðalstjórn
Þorsteinn er með skipstjórnarréttindi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík og skipaverkfræðingur frá Norges Tekniske Högskole. Þorsteinn er stofnandi og forstjóri Samherja hf. og hefur gegnt því starfi frá árinu 1983. Hann er jafnframt framkvæmdastjóri Hann er jafnframt framkvæmdastjóri Samherja Ísland ehf., Samherja Holding ehf., Útgerðarfélags Akureyringa ehf., Seleyjar ehf., Sæbóls fjárfestingarfélags ehf., Oddeyrartanga ehf., Látrafjalla ehf. og Fjárfestingarfélagsins Fjarðar ehf. Var fyrst kjörinn í stjórn Síldarvinnslunnar hf. árið 2003.
Þorsteinn situr jafnframt í stjórnum eftirfarandi félaga: Samherji Fiskeldi ehf., 600 Eignarhaldsfélag ehf., Barðstún ehf., Eignarhaldsfélagið Steinn ehf., Ice-Tech ehf., Kaldbakur ehf., Kattarnef ehf., Krossanes ehf., Oddeyri ehf., Rif ehf., Samherjasjóðurinn ehf., Sigurafl ehf., Snæfell ehf. Þorsteinn er auk þess með prókúruumboð fyrir Ice-Fresh Seafood ehf.
Þorsteinn er forstjóri Samherja hf. sem á 30,06% hlut í Síldarvinnslunni hf. Þorsteinn á 0,87% eignarhlut í Samherja hf í gegnum Eignarhaldsfélagið Stein ehf.
Hann á 1.000.000 hluti í Síldarvinnslunni hf.
Porsteinn telst óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess en telst háður stórum hluthafa samkvæmt "Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja" sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út 1. júlí 2021.
Frambjóðendur í varastjórn
Arna Bryndís Baldvins McClure, varastjórn
Arna er með ML-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og Executive MBA gráðu frá IESE háskólanum í Barcelona. Hún starfaði hjá LEX lögmannsstofu frá 2010-2013 og hefur starfað sem lögfræðingur hjá Samherja hf. frá 2013 til 2022. Var fyrst kjörinn í varastjórn Síldarvinnslunnar hf. árið 2013 og endurskoðunarnefnd árið 2021. Arna var ráðin tímabundið til sex mánaða í vinnu við sérverkefni frá nóvember 2023.
Arna situr jafnframt í stjórnum eftirfarandi félaga: Emerald Invest ehf. og Flugskóli Íslands ehf.
Arna á 32.100 hluti í Síldarvinnslunni hf.
Arna telst háð félaginu, stórum hluthöfum og daglegum stjórnendum samkvæmt "Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja" sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út 1. júlí 2021.
Ingi Jóhann Guðmundsson, aðalstjórn
Ingi er Cand. Oecon í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og starfar sem framkvæmdastjóri Gjögurs hf., Kjálkaness ehf. og Gjögurtáar ehf. Hann var framleiðslustjóri Íslenskra sjávarafurða ehf. frá 1995-2000. Var fyrst kjörinn í stjórn Síldarvinnslunnar hf. árið 2001.
Ingi situr jafnframt í stjórnum eftirfarandi félaga: K.R.- sport hf., Loftleiðir Cabo Verde ehf., Hrólfssker ehf., Sjóvá-Almennar tryggingar hf., Jarðböðin ehf., Norðurböðin ehf., Pharmarctica ehf. og StorMar ehf.
Ingi er hluthafi í Kjálkanesi ehf. sem á 16,06 % hlut í Síldarvinnslunni hf. Ingi á 22 % eignarhlut í Kjálkanesi ehf. Hann á ekki hluti í eigin nafni í Síldarvinnslunni hf. Ingi er óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess en telst háður stórum hluthafa samkvæmt "Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja" sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út 1. júlí 2021.