Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síldarvinnslan AGM Information 2026

Feb 25, 2026

2205_rns_2026-02-25_b2387c2e-f249-4512-938d-7f82e5569936.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Fundarboð - Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. 2026

Fundarboð - Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. 2026

Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 19. mars 2026 í Safnahúsinu, Neskaupstað, kl. 14:00.

Fundurinn verður einnig haldinn með rafrænum hætti og verður hluthöfum þannig jafnframt boðið upp á fullgilda rafræna þátttöku á fundinum í gegnum Lumi AGM án þess að hluthafar séu viðstaddir á fundarstað.

Dagskrá fundarins er með eftirfarandi hætti:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til staðfestingar
  3. Tekin ákvörðun um greiðslu arðs
  4. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu
  5. Ákveðin þóknun til stjórnar félagsins og endurskoðunarnefndar
  6. Stjórnarkjör
  7. Kjör endurskoðenda
  8. Tilnefning nefndarmanna í endurskoðunarnefnd
  9. Tillaga um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum
  10. Önnur mál, löglega fram borin

Meðfylgjandi er fundarboð með nánari upplýsingum.

Allar nánari upplýsingar um hluthafafundinn má finna á vefsíðu félagsins https://svn.is/fjarfestar/

Stjórn Síldarvinnslunnar hf.