Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síldarvinnslan Proxy Solicitation & Information Statement 2026

Mar 17, 2026

2205_rns_2026-03-17_b7914680-7ab1-403a-a500-49f79e2bd4dc.html

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. Frambjóðendur til stjórnar, endanlegar tillögur og dagskrá aðalfundar 2026

Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. Frambjóðendur til stjórnar, endanlegar tillögur og dagskrá aðalfundar 2026

Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf.

Frambjóðendur til stjórnar, endanlegar tillögur og dagskrá aðalfundar 2026

Fundurinn er haldinn rafrænt og í Safnahúsinu Neskaupstað þann 19. mars 2026 kl. 14.

Meðfylgjandi eru upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar félagsins sem eru í kjöri á aðalfundinum 19. mars 2026. Framboðsfrestur er útrunninn. Samkvæmt samþykktum félagsins kýs aðalfundur fimm menn í stjórn og tvo til vara. Fimm einstaklingar eru í kjöri til aðalstjórnar en tveir til varastjórnar og er því sjálfkjörið í stjórn.

Í kjöri til aðalstjórnar eru:

Anna Guðmundsdóttir

Baldur Már Helgason

Erla Ósk Pétursdóttir

Guðmundur Rafnkell Gíslason

Þorsteinn Már Baldvinsson

Í kjöri til varastjórnar eru:

Ingi Jóhann Guðmundsson

Katla Þorsteinsdóttir

Engar breytingar eru á fyrirliggjandi tillögum fyrir fundinn eða áður birtri dagskrá. Tillögur eru meðfylgjandi.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, þurfa að skrá sig á

https://www.lumiconnect.com/meeting/svnagm2026

eigi síðar en kl. 16.00 þann 18. mars 2026, eða degi fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á.

Allar nánari upplýsingar um hluthafafundinn má finna á vefsíðu félagsins https://svn.is/fjarfestar/