Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síldarvinnslan Proxy Solicitation & Information Statement 2022

Jul 27, 2022

2205_rns_2022-07-27_a7218d8b-f1fb-41f2-b816-17d4b8b89352.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

SVN

Hluthafafundur Sildarvinnslunnar hf.

Verður haldinn fimmtudaginn 18. ágúst 2022 í Safnahúsinu, Neskaupstað, kl. 14:00.

Fundurinn verður einnig haldinn með rafrænum hætti og verður hluthöfum þannig jafnframt boðið upp á fullgilda rafræna þátttöku á fundinum í gegnum Lumi AGM án þess að hluthafar séu viðstaddir á fundarstað.

Dagskrá fundarins er með eftirfarandi hætti:

  1. Tillaga um heimild stjórnar til hækkunar á hlutafé félagsins í tengslum við kaup á öllu hlutafé í Vísi hf.

a. Verði tillagan samþykkt er stjórn félagsins veitt heimild til að hækka hlutafé félagsins um kr. 145.939.749 að nafnvirði vegna kaupa félagsins á öllu hlutafé í Vísi hf. Hluthafar falla jafnframt frá áskriftarrétti sínum að hlutafjárakningunni. Verður heimildin tekin upp í samþykktir félagsins og veitt til 12 mánaða frá dagsetningu samþykktar.

  1. Önnur mál, löglega fram borin

Nánari upplýsingar um fundarsókn og atkvæðagreiðslu:

Hægt verður að fylgjast með fundinum í gegnum vefstreymi auk þess sem hluthafar geta kosið rafrænt og borið upp skriflegar spurningar í gegnum Lumi snjallforritið eða vefsíðu Lumi. Rafræn þátttaka jafngildir mætingu á fundinn og veitir rétt til þátttöku í honum að öðru leyti. Allir hluthafar, hvort sem þeir mæta til fundarins í Safnahúsinu eða taka þátt með rafrænum hætti, eru hvattir til að hlaða niður smáforriti Lumi AGM í eigin snjalltæki, en jafnframt geta þeir greitt atkvæði í gegnum vefslóð Lumi AGM eða á fundinum sjálfum.

Aðilar sem eru eignaskráðir hluthafar í hlutaskrá skv. hluthafakerfi félagsins þegar aðalfundur fer fram geta beitt réttindum sínum á aðalfundi. Uppgjör viðskipta hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð fer fram tveimur dögum eftir viðskiptin og því er mælst til þess að síðasti viðskiptadagur sé þann 16. ágúst, vilji hluthafi beita réttindum sínum á fundinum. Hluthafar geta látið umboðsmann sækja fundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt og dagsett umboð, en form að umboði er aðgengilegt á vefsíðu félagsins. Tekið skal fram að umboð getur aldrei gilt lengur en í eitt ár frá dagsetningu þess.

Hluthafar eða umboðsmann hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru beðnir um að skrá sig tímanlega á vefsíðunni www.smartagm.com og eigi síðar en kl. 16.00 þann 17. ágúst 2022, eða degi fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á. Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar.

Hluthafar eiga rétt á að fá mál sett á dagskrá fundarins og leggja fram ályktunartillögur ef gerð hefur verið skrifleg eða rafræn krafa um það eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. fyrir kl. 16:00 þann 8. ágúst 2022. Slík erindi skulu send á tölvupóstfangið


[email protected] og munu þau verða birt á vefsíðu félagsins. Hafi hluthafi krafist þess að fá mál tekið til meðferðar á fundinum eða lagt fram ályktunartillögu fyrir þann tíma verður endanleg dagskrá og tillögur uppfærðar á vefsíðu félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir fundinn. Mál sem ekki hafa verið tilgreind í dagskrá hluthafafundar er ekki unnt að taka til endanlegrar úrlausnar á fundinum nema með samþykki allra hluthafa félagsins.

Endanleg dagskrá, fundarboðun og tillögur auk annarra upplýsinga um hluthafafundinn verður að finna á vefsíðu félagsins https://svn.is/fjarfestar/ eigi síðar en 11. ágúst 2022.

Stjórn Síldarvinnslunnar hf.