Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síldarvinnslan Proxy Solicitation & Information Statement 2021

Jun 28, 2021

2205_rns_2021-06-28_9433d752-b8d5-4f9a-8ec0-04d6e3ac08e0.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Framboð við kjör stjórnar á hluthafafundi Síldarvinnslunnar hf. 30. júní 2021

Á dagskrá hluthafafundarins í Síldarvinnslunni hf. 30. júní 2021 er kosning stjórnar í félaginu. Samkvæmt samþykktum félagsins er stjórnin skipuð fimm aðalmönnum og tveimur til vara.

Frestur til að bjóða sig fram til stjórnar er nú runninn út og hafa eftirtalin boðið sig fram:

Í aðalstjórn:

Anna Guðmundsdóttir, fjármálastjóri, kt. 130367-3729
Baldur Már Helgason, framkvæmdastjóri, kt. 060376-3449
Björk Þórarinsdóttir, fjármálastjóri, kt. 250264-4619
Guðmundur R. Gíslason, framkvæmdastjóri, kt. 190270-2979
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri, kt. 071052-4359,

Í varastjórn:

Arna Bryndís Baldvins McClure, lögfræðingur, kt. 020785-2689
Ingi Jóhann Guðmundsson, framkvæmdastjóri, kt. 120169-5729

Nánari upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar félagsins.

Anna Guðmundsdóttir, aðalstjórn

Anna er með Cand. Oecon í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og starfar sem fjármálastjóri Gjögurs hf., áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Íslandspósts ohf. frá 1998-2008. Anna er jafnframt framkvæmdastjóri Þingstaða ehf.

Anna situr jafnframt í stjórnum eftirfarandi félaga: Gjögurs hf., Íslenskra verðbréfa hf., Kallnesings ehf., Kjálkaness ehf., Loftleiða Cabo Verde ehf., Lögmannsstofu Jörundar Gaukssonar ehf. og StorMar ehf.

Anna er hluthafi í Kjálkanes ehf. sem á um 19,2% hlut í Síldarvinnslunni hf. Anna á 22% eignarhlut í Kjálkanesi ehf. Hún á ekki hluti í eigin nafni í Síldarvinnslunni hf. Anna er óháð félaginu og daglegum stjórnendum þess en telst háð stórum hluthafa.

Baldur Már Helgason, aðalstjórn

Baldur er með Cand.sci. próf í véla- og íðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands (2000) og með löggilt próf í verðbréfaviðskiptum. Hann var framkvæmdastjóri Eyju fjárfestingarfélags (2017-2019). Fjárfestinga- og sjóðsstjóri hjá Auði Capital (2009-2016). Fjárfestinga- og lánastjóri hjá Íslandsbanka, m.a. í Bandaríkjunum og Danmörku (2000-2009). Hefur setið í stjórnum hjá Skeljungi, Sýn, Securitas, Já, Íslenska Gámafélaginu og Domino's Íslandi og Noregi. Situr ekki í stjórnum annarra félaga í dag.

Baldur á 17.241 hluti í Síldarvinnslunni hf.

Baldur telst óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.


Björk Pórarinsdóttir, aðalstjórn

Björk er með Cand. Oecon í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og starfar í dag sem fjármálastjóri HS Orku hf. Hún var sérfræðingur og síðar fjármálastjóri Baxter International í Bandaríkjunum og Þýskalandi á árunum 1991-1996, fjármálastjóri símaframleiðandans Philips Consumer Communications í Frakklandi á árunum 1997-1998. Fjármálastjóri Silfurtúns á Íslandi og Silverton í Noregi árin 1998-2000. Framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Arion banka hf. og forvera hans 2001-2016. Björk starfaði við ráðgjafa- og stjórnarstörf 2017-2020.

Björk situr jafnframt í stjórnum eftirfarandi félaga: Völku ehf. og Suðursala ehf.
Björk á ekki hlut í Síldarvinnslunni hf.

Björk telst óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.

Guðmundur R. Gíslason, aðalstjórn

Guðmundur er B.ed. gráðu í kennslúvísindum. Hann starfar í dag sem framkvæmdastjóri Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað og Olíusamlags útvegsmanna í Neskaupstað, auk þess að vera framkvæmdastjóri Byggingarfélagsins Ness ehf. og Múlans samvinnuhúss ehf. Hann var áður framkvæmdastjóri Egilsbúðar í Neskaupstað, mannauðsstjóri ESS á Íslandi og framkvæmdastjóri Sjónaráss ehf. Sveitarstjórnarmaður í Neskaupstað og Fjarðabyggð 1990 – 2010 og forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar frá 2006-2010.

Guðmundur situr jafnframt í stjórnum eftirtalinna félaga: B.G Bros ehf., Bæjarins okkar (félagasamtök), Byggingarfélagsins Ness ehf., Múlinn samvinnuhús ehf., Hafnarbrautar 2 ehf., Ís-Travel Austurland ehf., SVN eignafélags, Seleyjar ehf, Krabbameinsfélags Austfjarða og Rekstrarfélagsins Molans, (félagasamtök).

Guðmundur er, eins og áður hefur komið fram, framkvæmdastjóri Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað og Olíusamlags útvegsmanna í Neskaupstað sem eiga samtals um 11,81% hlut í Síldarvinnslunni. Hann á ekki hluti í eigin nafni í Síldarvinnslunni hf. Guðmundur telst óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess en telst háður stórum hluthafa samkvæmt leiðbeiningum um stjórnarhætti.

Þorsteinn Már Baldvinsson, aðalstjórn

Þorsteinn er með skipstjórnarréttindi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík og skipaverkfræðingur frá Norges Tekniske Högskole. Þorsteinn er stofnandi og forstjóri Samherja hf. og hefur gegnt því starfi frá árinu 1983. Hann er jafnframt framkvæmdastjóri Ice-Tech ehf., Samherja Íslands ehf., Útgerðarfélags Akureyringa ehf., Kaldbaks ehf., Samherja Holding ehf., Sæbóls fjárfestingarfélags ehf. og Fjárfestingarfélagsins Fjarðar ehf.

Þorsteinn situr jafnframt í stjórnum eftirfarandi félaga: 600 Eignarhaldsfélags ehf., AO3 ehf., Barðstúns ehf., Eignarhaldsfélagsins Steins ehf., Fjárfestingafélagsins Fjarðar ehf., Ice-Tech ehf., Kattarnefs ehf., Krossaness ehf., Oddeyrar ehf., Rifs ehf., Samherjasjóðsins ehf., Sigurafls ehf., Snæfells ehf., Seleyjar ehf.

Þorsteinn er forstjóri Samherja hf. sem á um 32,6% hlut í Síldarvinnslunni hf. Þorsteinn á 0,87% eignarhlut í Samherja hf. í gegnum Eignarhaldsfélagið Stein ehf.

Hann á 1.000.000 hluti í Síldarvinnslunni hf.

Þorsteinn telst óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess en telst háður stórum hluthafa.


Frambjóðendur í varastjórn

Arna Bryndís Baldvins McClure, varastjórn

Arna er með ML-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og starfar í dag sem lögmaður hjá Samherja hf. Hún starfaði hjá LEX lögmannsstofu frá 2010-2013.

Arna situr jafnframt í stjórnum eftirfarandi félaga: Avena ehf., Emerald Invest ehf., H5 ehf., Hölds ehf., Hólmdrangs ehf., Omnia Invest ehf. og Svölutjarnar ehf.

Arna er lögmaður hjá Samherja hf. sem á um 32,6% hlut í Síldarvinnslunni hf.

Hún á 15.000 hluti í eigin nafni í Síldarvinnslunni hf.

Arna telst óháð félaginu og daglegum stjórnendum þess en telst háð stórum hluthafa.

Ingi Jóhann Guðmundsson, aðalstjórn

Ingi er Cand. Oecon í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og starfar sem framkvæmdastjóri Gjögurs hf. og Kjálkaness ehf. Hann var framleiðslustjóri Íslenskra sjávarafurða ehf. frá 1995-2000.

Ingi situr jafnframt í stjórnum eftirfarandi félaga: Ísfélags Grindavíkur ehf., K.R.- sport hf., Loftleiða Cabo Verde ehf., Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), Sjóvá-Almennra trygginga hf, SVN eignarfélags ehf. Seleyjar ehf. og StorMar ehf.

Ingi er hluthafi í Kjálkanesi ehf. sem á 34,2% hlut í Síldarvinnslunni hf. Ingi á 22% eignarhlut í Kjálkanesi ehf. Hann á ekki hluti í eigin nafni í Síldarvinnslunni hf. Ingi er óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess en telst háður stórum hluthafa samkvæmt leiðbeiningum um stjórnarhætti.