Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síldarvinnslan Interim / Quarterly Report 2021

May 31, 2021

2205_rns_2021-05-31_634a406d-0928-4351-b028-6c5c2ae8d282.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Síldarvinnslan hf.

Samandreginn árslutareikningur
samstæðu 1. janúar - 31. mars 2021


Efnisyfirlit
bls.

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra ... 2
Rekstrarreikningur samstæðu fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2021 ... 3
Yfirlit um heildarafkomu samstæðu fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2021 ... 4
Efnahagsreikningur samstæðu 31. mars 2021 ... 5 - 6
Eiginfjáryfirlit samstæðu fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2021 ... 7
Sjóðstrey mi samstæðu fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2021 ... 8
Skýringar ... 9 - 13

Sildarvinnslan hf.
Kennitala 570269-7479
Hafnarbraut 6, Neskaupstað


2

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samstæða Síldarvinnslunnar hf. er í dag með öflugustu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins og byggir starfsemin á yfir 60 ára reynslu í fiskvinnslu og útgerð. Samstæðan er ein sú stærsta á Íslandi í veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski og stærsti framleiðandi á fiskimjóli og lýsi á Íslandi.

Árshlutareikningur Síldarvinnslunnar hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2021 er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastáðal um árshlutareikninga, IAS 34. Árshlutareikningurinn er samandreginn samstæðureikningur Síldarvinnslunnar hf. og dótturfélaga þess, Bergur-Huginn ehf., Bergur ehf., Fóðurverksmiðjunni Laxá hf., Fjárfestingafélaginu Vör ehf., Runólfi Hallfreðssyni ehf., Seley ehf. og SVN eignafélagi ehf., sem vísað er til sem samstæðunnar. Árshlutareikningurinn er hvorki endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum samstæðunnar.

Rekstur tímabilisins og fjárhagsleg staða

Samkvæmt rekstrarreikningi námu rekstrartekjur samstæðunnar 52,4 milljón dollara á tímabilinu og hagnaður af rekstrinum nam 21,1 milljón dollara. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 611,4 milljónum dollara í lok tímabilisins og eigið fé nam 356,1 milljón dollara, að meðtaldri hlutdeild minnihluta. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar var 58,2%.

Á hluthafafundi Síldarvinnslunnar, sem haldinn var þann 26. mars 2021, var tekin ákvörðun um að færa eignarhlut félagsins í dótturfélaginu SVN eignafélagi ehf. að öllu leyti til hluthafa með arðgreiðslu. Sjá nánar skýringu 8.

Kaup á öllum eignarhlutum í Bergi ehf. voru endanlega samþykkt af Samkeppniseftirlitinu þann 25. febrúar 2021 og er félagið hluti af samstæðu Síldarvinnslunnar ehf. frá þeim tíma. Fjallað er um kaupin og áhrif þeirra á samstæðuna í skýringu 7.

Í lok febrúar var gengið frá endurfjármögnun á langtímalánum samstæðunnar við Nordea banka. Í maí var skammtímaskuldum samstæðunnar við Landsbankann breytt í langtímaskuldir. Sjá nánar skýringu 5.

Nokkur óvissa er enn um horfur á helstu mörkuðum samstæðunnar vegna Covid-19, en á heildina litið hafa fjárhagsleg áhrif heimsfaraldursins á samstæðuna ekki verið veruleg hingað til. Samstæðan er sem fyrr vel í stakk búin til þess að mæta áframhaldandi óvissu vegna faraldursins þar sem fjárhagsstaða hennar er sterk og það er mat stjórnenda að með aukinn bólusetningu gegni þeirri veiru sem veldur Covid-19 þá styrkist markaðir samstæðunnar og öryggi í rekstri.

Atburðir eftir lok reikningskiladags

Gengið var frá skráningu á hlutabréfum Síldarvinnslunnar á aðallista Nasdaq Ísland í maí 2021 og hófust viðskipti með hlutabréf félagsins þann 27. maí.

Yfirlýsing stjórnar og framkvæmdastjóra

Samkvæmt bestu vitneskju er það álit okkar að samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastáðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu.

Samkvæmt bestu vitneskju er það álit stjórnar og framkvæmdastjóra að samstæðureikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2021, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar þann 31. mars 2021. Jafnframt er það álit stjórnar og framkvæmdastjóra að árshlutareikningurinn og skýrsla stjórnar geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar og lýsi helstu áhættupáttum sem samstæðan býr við.

Stjórn og framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf. staðfesta hér með árshlutareikning samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2021 með undirritun sinni.

Neskaupstað, 31. maí 2021.

Porsteinn Már Baldvinsson
Stjórnarformaður

Anna Guðmundsdóttir
Meðstjórnandi

Björk Pórarinsdóttir
Meðstjórnandi

Guðmundur Rafnkell Gíslason
Meðstjórnandi

Ingi Jóhann Guðmundsson
Meðstjórnandi

Gunnþór Ingvason
Framkvæmdastjóri


Rekstrarreikningur samstæðu fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2021

Skýringar 2021 2020
1.1-31.3 1.1-31.3
Rekstrartekjur
Seldar vörur 51.851.471 27.963.887
Aðrar tekjur 525.854 146.945
Hagnaður af sölu eigna 0 1.213.500
52.377.325 29.324.332
Rekstrargjöld
Kostnaðarverð seldra vara 18.783.946 12.190.667
Laun, aflahlutir og annar starfsmannakostnaður 12.398.501 7.898.863
Annar rekstrarkostnaður 1.324.358 945.716
32.506.805 21.035.246
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) 19.870.520 8.289.086
Afskriftir fastafjármuna 2.541.974 2.502.377
Rekstrarhagnaður 17.328.546 5.786.709
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld)
Vaxtatekjur og verðbætur 202.363 82.820
Vaxtagjöld og verðbætur (1.007.867) (798.578)
Gengismunur 1.275.052 (3.719.918)
Gjöld af verðbréfum og afleiðusamningum 3.371.157 (9.271.856)
3.840.705 (13.707.532)
Áhrif af rekstri hlutdeildarfélaga 4.080.643 (1.330.423)
Hagnaður (tap) fyrir skatta 25.249.894 (9.251.246)
Tekjuskattur (4.186.090) 1.584.164
Hagnaður (tap) tímabilsins 21.063.804 (7.667.082)
Hagnaður skiptist á eftirfarandi hátt:
Eigendur félagsins 20.820.129 (7.711.788)
Hlutdeild minnihluta 243.675 44.706
21.063.804 (7.667.082)
Hagnaður á hlut
Hagnaður (tap) eigenda félagsins á útistandandi hlut 0,0124 (0,0046)

Sildarvinnslan hf. Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2021

Fjárhæðir í bandarískum döllurum (USD)


4

Yfirlit um heildarafkomu samstæðu fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2021

2021 2020
1.1-31.3 1.1-31.3
Hagnaður (tap) tímabilisins 21.063.804 (7.667.082)
Önnur heildarafkoma
Liðir sem endurflokkaðir eru yfir rekstur:
Þýðingarmunur vegna eignarhluta í félögum 231.319 (916.751)
Áhættuvarnir vegna langtímaskulda 736.812 0
Heildarafkoma tímabilisins 22.031.935 (8.583.833)
Heildarafkoma skiptist á eftirfarandi hátt:
Eigendur félagsins 21.755.088 (8.158.319)
Hlutdeild minnihluta 276.847 (425.514)
22.031.935 (8.583.833)

Síldarvinnslan hf. Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2021

Fjárhæðir í bandarískum dollurum (USD)


5

Efnahagsreikningur samstæðu 31. mars 2021

Eignir Skýringar 31.3.2021 31.12.2020
Fastafjármunir
Óefnislegar eignir:
Fiskveiðiheimildir 273.555.131 227.077.803
273.555.131 227.077.803
Rekstrarfjármunir:
Varanlegir rekstrarfjármunir 133.034.543 127.496.484
Skip í smiðum 9 33.169.600 20.288.960
Leiguréttindi 1.152.369 1.162.392
167.356.512 148.947.836
Fjárfestingar:
Eignarhlutar í hlutdeildarfélögum 8 39.516.786 38.773.169
Eignarhlutar í öðrum félögum 1.900.033 1.651.988
41.416.819 40.425.157
Fastafjármunir samtals 482.328.462 416.450.796
Veltufjármunir
Skuldabréfaeign 27.211 394.298
Birgðir 4 33.574.064 26.224.059
Viðskiptakröfur 10.943.405 7.415.582
Aðrar skammtímakröfur 4.717.310 1.827.215
Kröfur á tengd félög 6 24.083.164 26.128.241
Handbært fé 54.198.356 90.119.415
127.543.510 152.108.810
Fastafjármunir sem haldið er til sölu 1.567.591 1.567.591
Veltufjármunir samtals 129.111.101 153.676.401
Eignir samtals 611.439.563 570.127.197

Síldarvinnslan hf. Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2021

Fjárhæðir í bandarískum döllurum (USD)


6

Efnahagsreikningur samstæðu 31. mars 2021

Eigið fé og skuldir Skýringar 31.3.2021 31.12.2020
Eigið fé
Hlutafé 13.967.526 13.967.526
Yfirverðsreikningur hlutafjár 10.070.499 10.070.499
Annað bundið eigið fé 41.626.897 33.240.148
Óráðstafað eigið fé 285.926.244 324.809.669
351.591.166 382.087.842
Hlutdeild minni hluta 4.461.116 4.184.269
356.052.282 386.272.111
Skuldir
Langtímaskuldir og skuldbindingar:
Skuldir við lánastofnanir 5 88.998.826 33.375.248
Tekjuskattsskuldbinding 49.755.901 39.967.342
138.754.727 73.342.590
Skammtímaskuldir:
Skuldir við lánastofnanir 5 27.627.559 27.913.254
Næsta árs afborganir af langtímaskuldum 5 6.824.844 54.647.863
Reiknaðir skattar ársins 4.205.199 9.027.842
Viðskiptaskuldir 6.575.712 7.335.248
Aðrar skammtímaskuldir 8 70.441.791 10.936.990
Skuldir við tengd félög 6 957.449 651.299
116.632.554 110.512.496
Skuldir samtals 255.387.281 183.855.086
Eigið fé og skuldir samtals 611.439.563 570.127.197

Aðrar upplýsingar
9

Síldarvinnslan hf. Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2021

Fjárhæðir í bandarískum dollurum (USD)


7

Eiginfjáryfirlit samstæðu fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2021

Hlutafé Yfirverðs-reikningur Annað bundið eigið fé Óráðstafað eigið fé Hlutdeild minnihluta Eigið fé samtals
1. janúar - 31. mars 2021:
Staða í ársbyrjun 13.967.526 10.070.499 33.240.148 324.809.669 4.184.269 386.272.111
Heildarafkoma:
Hagnaður tímabilisins 20.820.129 243.675 21.063.804
Þýðingarmunur 198.147 33.172 231.319
Áhættuvörn
vaxtaskiptasamninga 921.015 921.015
Tekjuskattsáhrif (184.203) (184.203)
Bundinn
- hlutdeildarreikningur 7.216.155 (7.216.155) 0
- gangvirðisreikningur 235.635 (235.635) 0
0 0 8.386.749 13.368.339 276.847 22.031.935
Eigendur:
Ákvarðaður arður (skýr. 8) (52.251.764) (52.251.764)
0 0 0 (52.251.764) 0 (52.251.764)
Staða í lok tímabilis 13.967.526 10.070.499 41.626.897 285.926.244 4.461.116 356.052.282
Hlutafé Yfirverðs-reikningur Annað bundið eigið fé Óráðstafað eigið fé Hlutdeild minnihluta Eigið fé samtals
1. janúar - 31. mars 2020:
Staða í ársbyrjun 13.968.088 10.080.057 23.703.309 310.508.027 3.824.601 362.084.082
Heildarafkoma:
(Tap) hagnaður tímabilisins (7.711.788) 44.706 (7.667.082)
Þýðingarmunur (446.531) (470.220) (916.751)
Bundinn
- hlutdeildarreikningur (4.510.593) 4.510.593 0
0 0 (4.957.124) (3.201.195) (425.514) (8.583.833)
Eigendur:
Keyptir eigin hlutir (30) (523) (553)
(30) (523) 0 0 0 (553)
Staða í lok tímabilis 13.968.058 10.079.534 18.746.185 307.306.832 3.399.087 353.499.696

Síldarvinnslan hf. Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2021

Fjárhæðir í bandarískum döllurum (USD)


Sjóðstreymi samstæðu fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2021

2021 2020
Skýringar 1.1-31.3 1.1-31.3
Rekstrarhreyfingar
Hreint veltufé frá rekstri
Hagnaður tímabilisins 21.063.804 (7.667.082)
Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir 2.541.974 2.502.377
Aðrir liðir (4.402.184) 10.364.610
Hreint veltufé frá rekstri 19.203.594 5.199.905
(Hækkun) lækkun rekstrartengdra eigna:
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur (9.465.524) 10.443.556
Birgðir (7.283.941) 7.253.758
Hækkun (lækkun) rekstrartengdra skulda:
Skammtímaskuldir 6.811.317 (559.613)
(9.938.148) 17.137.701
Handbært fé frá rekstri 9.265.446 22.337.606
Fjárfestingahreyfingar
Keyptir varanlegir rekstrarfjármunir (4.685.567) (783.966)
Fjárfest í skipum í smíðum (12.880.640) 0
Seldir varanlegir rekstrarfjármunir 0 1.213.500
Seldir eignarhlutar í öðrum félögum 1.171 0
Fjárfesting í nýju félagi í samstæðu 7 (39.460.627) 0
Arður frá hlutdeildarfélögum 3.015.545 0
(54.010.118) 429.534
Fjármögnunarhreyfingar
Nýjar langtímaskuldir 79.543.350 0
Áfborganir langtímaskulda (70.155.765) (19.545.722)
Viðskipti með eigir bréf 0 (553)
Breyting á skammtímaskuldum við lánastofnnarir (478.001) 0
8.909.584 (19.546.275)
(Lækkun) hækkun á handbæru fé (35.835.088) 3.220.865
Handbært fé í byrjun árs 90.119.415 48.633.026
Áhrif gengisumreiknings dótturfélaga (85.971) (620.719)
Handbært fé í lok tímabilis 54.198.356 51.233.172
Aðrar upplýsingar
Innborgaðir vextir og gengismunur 906.256 82.485
Greiddir vextir og gengismunur (671.911) (2.271.192)
Greiddir skattar (901.271) (900.473)

Síldarvinnslan hf. Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2021

Fjárhæðir í bandarískum döllurum (USD)


9

Skýringar

1. Almennar upplysingar

Sildarvinnslan hf. („félagið“) er íslensk hlutafélag og er lögheimili þess að Hafnarbraut 6, Neskaupstað. Árslutareikningur samstæðunnar hefur að geyma árslutareikning félagsins og dótturfélaga þess, sem vísað er til í heild sinni sem „samstæðunnar“ og til einstakra félaga sem „samstæðufélaga“. Aðalstarfsemi félagsins er rekstur fiskvinnslu og útgerð.

Árslutareikningur samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2021 inniheldur í fyrsta sinn rekstur og efnahag Bergs ehf.

Árslutareikningur samstæðunnar var samþykktur á stjórnarfundi félagsins þann 31. maí 2021.

2. Yfirlit um helstu reikningsskilaðferðir

2.1 Grundvöllur reikningsskila

Samandreginn árslutareikningur samstæðu Síldarvinnslunnar hf. fyrir tímabilið janúar til mars 2021 er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árslutareikninga IAS 34. Samandregni árslutareikningurinn inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í ársreikningi og ætti því að lesa með hliðsjón af ársreikningi félagsins fyrir árið 2020.

Helstu reikningsskilaðferðir sem beitt var við gerð þessara reikningsskila eru þær sömu og beitt var við gerð ársreiknings samstæðunnar fyrir árið 2020. Þessum aðferðum var beitt á samræmdan hátt á bæði árin sem sett eru fram, nema annað sé tekið fram.

2.2 Mat og ákvarðanir

Við gerð árslutareiknings samstæðu þurfa stjórnendur, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, að taka ákvarðanir, meta og draga ályktanir sem hafa áhrif á eignir og skuldir á reikningsskiladegi, upplýsingar í skýringum og tekjur og gjöld. Við mat og ályktanir er byggt á reynslu og ýmsum öðrum þáttum sem taldir eru viðeigandi og myndu grundvöll þeirra ákvarðana sem teknar eru um bókfært verð eigna og skulda sem ekki liggur fyrir með öðrum hætti. Þó svo að matið sé samkvæmt bestu vitund stjórnenda geta raunveruleg verðmæti þeirra liða sem þannig eru metnir reynst önnur en niðurstaða samkvæmt matinu.

3. Starfsþáttayfirlit

Útgerð Landvinnsla Annað Eigin afli Jöfnunar-færslur Samtals
1.1 - 31.3 2021
Seldar vörur 27.010.855 38.235.422 5.206.657 (15.431.663) (3.169.800) 51.851.471
Aðrar tekjur 0 0 525.854 0 0 525.854
Kostnaðarverð
seldra vara 7.672.980 25.184.008 4.528.421 (15.431.663) (3.169.800) 18.783.946
Laun 8.909.747 2.649.116 839.638 0 0 12.398.501
Annar rekstarkostnaður 396.050 190.727 737.581 0 0 1.324.358
Rekstrarhagnaður
fyrir afskriftir 10.032.078 10.211.571 (373.129) 0 0 19.870.520
Afskriftir fastafjármuna (1.455.159) (1.034.203) (52.612) 0 0 (2.541.974)
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) 3.840.705
Áhrif af rekstri hlutdeildarfélaga 4.080.643
Tekjuskattur (4.186.090)
Hagnaður ársins 21.063.804

Tekjuaukningu samstæðunnar á milli fyrsta ársfjörðungs árið 2021 og 2020, að fjárhæð um 23 milljónir dollara, má að lang stærstum hluta rekja til aukningar á framleiðsluverðmætum á loðnu í uppsjávarfrystingu félagsins. Voru þannig tekjufærð framleiðsluverðmæti að fjárhæð um 25 milljónir dollara á fyrsta ársfjörðungi 2021 á meðan að engin framleiðsla var í uppsjávarfrystingunni á fyrri hluta ársins 2020.

Síldarvinnslan hf. Samandreginn árslutareikningur samstæðu 31. mars 2021

Fjárhæðir í bandarískum dollúrum (USD)


10

Skýringar

3. Starfsbáttayfirlit, framhald

Útgerð Landvinnsla Annað Eigin afli Jöfnunar-færslur Samtals
1.1 - 31.3 2020
Seldar vörur 13.383.168 15.995.405 4.213.330 (3.999.566) (1.628.450) 27.963.887
Aðrar tekjur 0 0 146.945 0 0 146.945
Hagnaður (tap) af sölu eigna 0 1.213.500 0 0 0 1.213.500
Kostnaðarverð seldra vara 4.793.011 8.784.038 4.241.634 (3.999.566) (1.628.450) 12.190.667
Laun 4.950.481 2.676.466 271.916 0 0 7.898.863
Annar rekstarkostnaður 385.743 140.205 419.768 0 0 945.716
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir 3.253.933 5.608.196 (573.043) 0 0 8.289.086
Afskriftir fasta fjármuna (1.477.786) (1.002.015) (22.576) 0 0 (2.502.377)
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (13.707.532)
Áhrif af rekstri hlutdeildarfélaga (1.330.423)
Tekjuskattur 1.584.164
Hagnaður ársins (7.667.082)

4. Birgðir

Birgðir greinast þannig: 31.3.2021 31.12.2020
Hráefni 2.819.251 1.439.348
Fullunnar afurðabirgðir 25.871.874 19.569.564
Rekstrarvörur 1.018.035 1.379.708
Veiðarfæri 3.864.904 3.835.439
33.574.064 26.224.059

Birgðaaukning tímabilsins stafar að stærstum hluta af fullunnum afurðabirgðum loðnu. Fullunnar afurðabirgðir voru að kostnaðarverði 25,9 milljónir dollara þann 31.3.2021 samanborið við 19,6 milljónir dollara þann 31.12.2020. Að mati stjórnenda mun skilaverð fullunnina afurðabirgða í lok tímabilsins nema allt að 42,5 milljónum dollara í samanburði við 26,3 milljónir dollara í lok árs 2020.

5. Skuldir við lánastofnanir

Samstæðan hefur samið um endurfjármögnun langtíma- og skammtímaskulda við lánastofnanir ásamt því að tryggja sér lánsfjármagn til að stýðja við frekari uppbyggingu og fjárfestingar. Endurfjármögnuninni er að fullu lokið í maí 2021.

Langtímaskuldir við lánastofnanir: 31.3.2021 31.12.2020
Skuldir í USD 51.957.014 48.546.912
Skuldir í EUR 28.042.285 39.476.199
Skuldir í GBP 15.824.371 0
95.823.670 88.023.111
Næsta árs afborganir langtímaskulda (6.824.844) (54.647.863)
Langtímaskuldir í árslok 88.998.826 33.375.248

Síldarvinnslan hf. Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2021

Fjárhæðir í bandarískum dollúrum (USD)


11

Skýringar

5. Skuldir við lánastofnanir (framhald)

Afborganir af langtímaskuldum greinast þannig: Skuldir við lánastofnanir
Afborganir næstu 12 mánaða 6.824.844
Afborganir á árinu 2022-2023 6.824.844
Afborganir á árinu 2023-2024 6.824.844
Afborganir á árinu 2024-2025 6.824.844
Afborganir á árinu 2025-2026 6.824.844
Afborganir síðar 61.699.450
95.823.670

Til viðbótar við ofangreind lán á samstæðan eftir að draga á lánalínu hjá Nordea að fjárhæð 600 milljónir JPY, en dregið verður á þá lánalínu við afhendingu á uppsjávarskipinu Berki sem væntanlegur er í lok mai.

Skammtímaskuldir við lánastofnanir:

Skammtímaskuldir samstæðunnar við lánastofnanir eru tilkomnar vegna kaupa á Bergi ehf. Skammtímaskuldir við lánastofnanir greinast þannig:

31.3.2021
Skuldir í USD 8.000.000
Skuldir í EUR 8.207.585
Skuldir í GBP 11.419.974
27.627.559

Samið hefur verið um endurfjármögnun skammtímaskulda samstæðunnar. Að lokinni endurfjármögnun munu skuldir við lánastofnanir og afborganir næstu ára greinast þannig:

Langtímaskuldir við lánastofnanir: Skuldir við lánastofnanir
Skuldir í USD 59.957.014
Skuldir í EUR 36.249.870
Skuldir í NOK 15.837.463
Skuldir í GBP 11.406.882
123.451.229

Afborganir af langtímaskuldum að lokinni endurfjármögnun:

Afborganir næstu 12 mánaða 8.206.222
Afborganir á árinu 2022-2023 8.206.222
Afborganir á árinu 2023-2024 8.206.222
Afborganir á árinu 2024-2025 8.206.222
Afborganir á árinu 2025-2026 28.926.892
Afborganir síðar 61.699.449
123.451.229

Breyting á áhættuvarnarreikningsskilum

Við endurfjármögnun samstæðunnar varð veruleg breyting á þeim áhættuvörðu liðum sem gert var ráð fyrir í forsendum áhættuvarnarreikningsskila hennar. Vegna þeirra breytinga ákvað samstæðan að hætta formlegum áhættuvarnarreikningsskilum.

Síldarvinnslan hf. Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2021

Fjárhæðir í bandarískum dollurum (USD)


12

Skýringar

6. Tengdir aðilar

Samstæðan er í dreiföri eignaraðild. Tengdir aðilar samstæðunnar eru hlutdeildarfélög, stjórnir félaga í samstæðunni, framkvæmdastjóri, nánir fjölskyldumeðlimir fyrrgreindra aðila og aðilar sem hafa veruleg áhrif sem stórir hluthafar í félaginu. Upplýsingar varðandi tengda aðila eru eftirfarandi:

Tímabilið 1. janúar - 31. mars 2021 Seldar vörur og þjónusta Keyptar vörur og þjónusta Viðskiptakröfur Viðskiptaskuldir
Hlutdeildarfélög 288.553 1.081.064 541.757 854.011
Hluthafar félagsins og félög í þeirra eigu 25.521.905 1.389.738 23.541.407 103.438
25.810.458 2.470.802 24.083.164 957.449
Árið 2020 Seldar vörur og þjónusta Keyptar vörur og þjónusta Viðskiptakröfur Viðskiptaskuldir
Hlutdeildarfélög 232.750 1.723.325 298.339 161.180
Hluthafar félagsins og félög í þeirra eigu 85.615.515 12.428.981 25.829.902 490.119
85.848.265 14.152.306 26.128.241 651.299

7. Kaup á Bergi ehf.

Í október gerði félag í samstæðunni, Bergur-Huginn ehf., samning um kaup á öllum útistandandi eignarhlutum í útgerðarfyrirtækinu Bergi ehf. í Vestmannaeyjum. Samningurinn var gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins sem lá fyrir þann 25. febrúar 2021, sem er yfirtökudagur samstæðunnar.

Bergur ehf. gerir út togarann Berg VE 44. Aflaheimildir Bergs eru um 0,36% af heildarkvóta á fiskveiðiárinu 2020-2021 eða sem nemur 1,514 þorskigildistonnum. Með kaupunum á þessu öfluga fyrirtæki styrkir samstæðan rekstur sinn í útgerð og botnfiskveiðum og dreifir enn frekar ýmisri rekstraráhættu sem gæti orðið vegna samþjöppunar og áherslu á eina tegund útgerðar.

Kaupverð

Greitt með peningum 39.640.127

Eignir og skuldir keyptar, á gangvirði

Veiðiheimildir Gangvirði 45.791.010
Varanlegir rekstrarfjármunir 3.094.580
Vörubirgðir 21.668
Viðskiptakröfur 6.983
Aðrar skammtímakröfur 5.206
Handbært fé 179.500
Tekjuskattsskuldbinding (9.458.820)
Nettó eignir keyptar 39.640.127

Mat eigna á kaupdegi var byggt á bókfærðu virði eignanna þann 25.2.2021. Yfirverðið er tilkomið vegna tekjuhæfis eignanna og möguleika á samlegð milli félaga innan samstæðu. Engin viðskiptavild er færð í samstæðunni þar sem allt yfirverð er heimfært á veiðiheimildir og fiskiskip að frádreginn tekjuskattsskuldbindingu. Gangvirði annarra eigna og skulda var metið jafnt bókfærðu verði viðkomandi liða í efnahagsreikningi Bergs ehf. Engin niðurfærsla var færð vegna viðskiptakrafna. Í samræmi við ákvæði alþjóðlegra reikningsskilastaðla hefur samstæðan 12 mánuði til að yfirfara endanlega útdeilingu kaupverðs.

Í samstæðureikninginn koma á fyrsta ársfjörðungi ársins aðrar tekjur frá Bergi ehf. að fjárhæð 210,9 þúsund dollara og hagnaður að fjárhæð 88 þúsund dollara.

Greiðslur færðar vegna kaupa á Bergi ehf 39.640.127
Handbært fé til staðar í Bergi ehf við kaup (179.500)
Nettó greiðslur færðar á meðal fjárfestingahreyfinga í sjóðsstremi 39.460.627

Síldarvinnslan hf. Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2021

Fjárhæðir í bandarískum dollúrum (USD)


13

Skýringar

8. SVN eignafélag

Arögreiösla SVN eignafélag:

Hluthafafundur Síldarvinnslunnar sem haldinn var þann 26. mars 2021 ákvæð að færa eignarhlut félagsins í dótturfélaginu SVN eignafélagi ehf. að öllu leyti til hluthafa með arögreiðslu. Arögreiðsludagur er 9. apríl 2021 en verðmæti eignarhlutarins miðast við 25. mars 2021. Verðmæti eignarhluta í SVN eignafélagi ehf. er að lang stærstum hluta fólgið í 14,54% eignarhlut í Sjóvá-Almennum tryggingum hf.

Í árshlutareikningi er ógreidd arögreiðsla að fjárhæð 52,3 milljón dollara færð meðal skammtímaskulda, sem verður greidd þann 9.4 2021. Vegna færslu eignarhlutans í SVN eignafélagi til hluthafa mun þann dag myndast bókfærður söluhagnaður að fjárhæð 24,2 milljónir dollarar á öðrum ársfjörðungi 2021.

Vegna þessara færslna á uppgjörsdegi 31. mars 2021 er eiginfjárhlutfall samstæðunnar tímabundið 58%. En með greiðslu arðsins 9. apríl 2021 lækka skammtímaskuldir um 52,3 milljónir dollara og söluhagnaður upp á 24,2 milljónir dollara bætist við óráðstafað eigið fé, við þá breytingu fer eiginfjárhlutfall samstæðunnar í 65%.

9. Önnur mál

Skráning á aðallista kauphallarinnar

Í mái 2021 var gengið frá skráningu hlutabréfa Síldarvinnslunnar á aðallista kauphallarinnar. Hlutafjárútboð þar sem 26,3% hlutur félagsins var boðinn til sölu fór fram 10. - 12. mái 2021.

Skip í smíðum

Félagið hefur gert samning við danska skipasmiðafyrirtækið Karstensens Skibsværft AS um smiði á nýju uppsjávarskipi og hófst smiði skipsins um mitt ár 2019. Gert er ráð fyrir að skipið muni verða afhent um mitt ár 2021. Heildarfjárfesting samkvæmt samningi nemur DKK 253,4 milljónum og hefur félagið greitt inná fjárfestinguna á smiðatímanum til samræmis við samning.

Samruni Síldarvinnslunnar hf. og Runólfs Hallfreðssonar ehf

Í upphafi apríl mánaðar 2021 var gengið frá kaupum á eftirstæðum 12,4% hlut í dótturfélaginu Runólfs Hallfreðssyni ehf., og er félagið í 100% eigu Síldarvinnslunnar að kaupunum loknum. Ákveðið hefur verið að sameina félögin undir nafni Síldarvinnslunnar hf., frá og með 1. júlí 2021.

Fiskimjölsverksmiðja í Neskaupstað:

Þann 4. mars 2021 var undirritaður samningur við vélsmiðjuna Héðin um smiði á 380 tonna fiskimjölsverksmiðju sem sett verður upp í Neskaupstað. Jafnframt er fyrirhugað að stækka núverandi verksmiðju um 600 tonn á sólahring og munu heildarafkóst starfseminnar því verða 2.380 tonn á sólahring að þessum framkvæmdum loknum. Samningsfjárhæðin vegna 380 tonna verksmiðjunnar nemur um 1,7 milljarði króna (USD 13,5 milljónir) og er gert ráð fyrir að verksmiðjan verði afhent á fyrri hluta ársins 2022.

Síldarvinnslan hf. Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2021

Fjárhæðir í bandarískum dollúrum (USD)