Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síldarvinnslan Earnings Release 2022

Dec 30, 2022

2205_rns_2022-12-30_d3ae186c-b3c8-477e-a2e6-c213b9e266f1.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Disclosure 416674

Síldarvinnslan hf - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Síldarvinnslan hf. - Jákvæð afkomuviðvörun

Í áætlunum félagsins sem lögð var fram á fyrri hluta árs, var gert ráð fyrir að EBITDA samstæðu félagsins yrði á bilinu 86 – 96 milljónir USD. Félagið hefur nú uppfært EBITDA spá sína í 96 -105 milljónir USD.

Útgerð og vinnsla hefur almennt gengið vel á árinu en á síðustu mánuðum hafa komið inn óvæntir jákvæðir þættir í reksturinn sem skýra betri afkomu. Má þar nefna að verð á fiskimjöli og lýsi eru betri en áætlanir gerðu ráð fyrir, auk þess sem afli var ívið meiri.

Þá var kolmunni veiddur inn á næsta ár eins og heimildir leyfðu en það helgast af mjög sterkum kolmunnakvóta á næsta ári.

Einnig var farið til loðnuveiða í desember sem var ekki gert ráð fyrir í áætlunum félagsins.

Þessu til viðbótar liggur fyrir að Vísir hf. verður hluti af samstæðuuppgjöri Síldarvinnslunnar hf. frá 1. desember sl.

Sveiflur geta verið miklar í sjávarútvegi og ekki einhlítt að ná utan um allar breytur í áætlanagerð.

Vinna við ársuppgjör er að hefjast og því geta lykiltölur enn tekið einhverjum breytingum á uppgjörstímabilinu. Fyrirtækið mun birta niðurstöðu ársins þann 9. mars næstkomandi í samræmi við fjárhagsdagatal.

Nánari upplýsingar veitir Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar hf. í síma 470-7000 eða á [email protected]