Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síldarvinnslan Earnings Release 2022

Jan 9, 2022

2205_rns_2022-01-09_b9c4446d-33a1-4be2-9a63-ab395c7c0b35.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Síldarvinnslan hf.: Afkoma umfram áætlanir

Síldarvinnslan hf.: Afkoma umfram áætlanir

Í áætlunum félagsins sem lögð var fram fyrri hluta árs var gert ráð fyrir að EBITDA samstæðu félagsins yrði á árinu á bilinu 72 – 77 milljónir USD. Samkvæmt drögum að uppgjöri félagsins fyrir fjórða ársfjórðung sem nú liggja fyrir er útlit fyrir að EBITDA samstæðu félagsins verði á árinu á bilinu 83 - 86 milljónir USD.

Á síðustu mánuðum hafa komið inn óvæntir jákvæðir þættir í reksturinn sem skýra betri afkomu.

Kvóti í íslensku síldinni var aukinn og var hún unnin að stórum hluta til manneldis. Spár gerðu ekki ráð fyrir svona mikilli manneldisvinnslu á íslensku síldinni þar sem sýking hefur verið að hrjá stofninn undanfarin ár en var lítil í haust.

Auk þess var loðnukvóti gefinn út á haustmánuðum sem ekki var inni áætlunum félagsins og veiddu skip félagsins rúm 19 þúsund tonn í desember og verksmiðjurnar tóku á móti rúmum 21 þúsund tonnum af loðnu.

Á sama tíma hefur útgerð og vinnsla almennt gengið vel á árinu.

Endurspegla þessar breytingar í raun þær sveiflur sem geta verið í rekstri sjávarútvegsfélaga, þar sem ástand fiskistofna og aðstæður á mörkuðum skipta miklu máli og eru ekki alltaf fyrirsjáanlegar.

Uppgjörið er enn í vinnslu og getur því tekið breytingum fram að birtingardegi sem er 10. mars nk.

Nánari upplýsingar veitir Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar hf.

[email protected]