Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Remuneration Information 2019

Feb 28, 2019

2210_rns_2019-02-28_483e725b-2e36-42f7-bb96-7b36650f9acb.pdf

Remuneration Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

C2 restricted - External permitted

Sýn hf.

Starfskjaranefnd

Skýrsla til stjórnar
apríl 2018 til mars 2019

Anna Guðný Aradóttir,
Heiðar Guðjónsson
Tanya Zharov

O vodafone

visir

SPORT

BYLGJAN
TIMIR

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


Skipun starfskjaranefndar Sýnar hf.

Við árslok 2018 var starfskjaranefnd Sýnar skipuð:

  • Anna Guðný Aradóttir, formaður
  • Heiðar Guðjónsson, nefndarmaður
  • Tanya Zharov

Allir nefndarmenn eru óháðir félaginu en Heiðar Guðjónsson er ekki óháður stórum hluthöfum félagsins þar sem hann er framkvæmdastjóri Ursus ehf. sem átti 7,98 % hlut í félaginu í árslok 2018.

Nefndin skal halda fundi að lágmarki tvisvar sinnum á ári til að sinna hlutverki sínu. Haldnir skulu aukafundir telji formaður nefndarinnar þörf á því.

Hlutverk starfskjaranefndar

Starfskjaranefnd hefur sett sér starfsreglur og voru þær síðast staðfestar af stjórn félagsins þann 16. maí 2018. Samkvæmt starfsreglunum hefur nefndin eftirfarandi hlutverk:

a) Útbúa starfskjarastefnu félagsins og hafa eftirfylgni við hana.

b) Tryggja að laun og önnur starfskjör séu í samræmi við lög, reglur og bestu framkvæmd hverju sinni.

c) Undirbúa tillögur til stjórnar varðandi laun og aðrar greiðslur til forstjóra og annarra æðstu stjórnenda og lykilstjórnenda félagsins, svo og stjórnarmanna þess.

d) Taka sjálfstæða afstöðu til áhrifa launa á áhættutöku og áhættustýringu félagsins í samráði við endurskoðunarnefnd félagsins.

Verkefni starfskjaranefndar á starfsárinu

Starfskjaranefndin hélt á tímabilinu frá aðalfundi 2018 sjö formlega fundi. Starfsárið var sjötta heila ár félagsins á hlutabréfamarkaði og hefur nefndin nýtt sér það til að aðlaga enn frekar vinnu félagsins að þörfum markaðarins. Starfskjaranefnd félagsins leggur áherslu á að gagnsæi ríki um starfskjör hjá félaginu gagnvart hluthöfum þess og hefur horft til afstöðu hluthafa um gagnsæi. Af þeim sökum hefur nefndin ákveðið í fyrsta sinn að birta tímanlega fyrir aðalfund félagsins skýrslu þessa til stjórnar.

Nefndin ákvað m.a. á fundum sínum að framsetning á launum forstjóra og framkvæmdastjóra verði með skýrari hætti þar sem grunnlaun og kaupaukar komi betur fram. Þá vann nefndin tillögur að breytingum á starfskjarastefnu sem lagðar verða fyrir stjórn félagsins og að því búnu fyrir aðalfund. Við þá yfirferð kannaði nefndin m.a. hvort efni stæði til að breyta hinu

vodafone

visir

SPORT

BYLGJAN

X

C2 restricted - External permitted

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


C2 restricted - External permitted

svokallaða EVA kaupaukakerfi félagsins. Nefndin taldi að hafa þyrfti að leiðarljósi hagsmuni hluthafa og annarra hagaðila við setningu svona kaupaukakerfa, auk hagsmuna starfsmanna. Taldi nefndin EVA kerfið uppfylla þessi skilyrði og sá því ekki ástæðu til að leggja til breytingar á því. Nefndin taldi hins vegar rétt að breyta starfskjarastefnunni þannig að hún endurspegli betur þá framkvæmd sem verið hefur. Áfram verði ekki heimilt að veita kaupauka í félaginu í formi afhendingar hluta, kaup- og/eða söluréttar, forkaupsréttar eða annars konar greiðslna sem tengjast hlutum í félaginu eða um framtiðarverðmæti slíkra hluta nema heimild til þess að gera samninga um slíkt hafi verið borin undir hluthafafund. Ekki er heimild í samþykktum félagsins til útgáfu hlutafjár fyrir kauprétti og er því ekki gert ráð fyrir greiðslum til starfsmanna með afhendingu hluta, hlutabréfa, kaupréttar, forkaupsréttar og annars konar greiðslna sem tengdar eru hlutabréfum í félaginu eða þróun verðs á hlutabréfum í félaginu, lífeyrissamningum og starfslokasamninga.

Í tillögum að breyttri starfskjarastefnu er lagt til að fram komi að stjórn félagsins hafi ekki í hyggju að óska eftir heimild til útgáfu kaupréttarsamninga, þar sem hennar afstaða er sú að slíkir kaupaukar séu litaðir um of af öðrum þáttum en þeim sem snúa beint að rekstri, meðal annars almennu gengi á hlutabréfamörkuðum. Í kaupaukakerfi félagsins er miðað við að ákveðinn hluti af raunhagnaði félagsins sé til ráðstöfunar til kaupaukagreiðslna til yfirstjórnar, millistjórnenda og annarra lykilstarfsmanna félagsins. Stjórn skal samþykkja ákveðinn ramma fyrir fram sem forstjóri fær til að ákveða árangursgreiðslur til annarra stjórnenda og lykilstarfsmanna.

Nefndin leggur til við stjórn að áhersla verði lögð á að starfsmenn hugsi til langs tíma og hafi þar með sömu hagsmuni og fjárfestar sem horfa til lengri tíma. Með því að nota EVA og halda eftir hluta ávinnings verður til heilbrigður hvati fyrir starfsmann að halda áfram störfum hjá félaginu þar sem við starfslok fyrirgera þeir að jafnaði kaupauka sem ekki hefur verið greiddur út. Markmiðið er að búa til áherslu á velgengni í grunnrekstri og langtímaárangri félagsins hjá starfsmönnum til hagsbóta bæði fyrir þá og hluthafa félagsins.

Í samræmi við þá ákvörðun nefndarinnar að framsetning á launum forstjóra og framkvæmdastjóra verði með skýrari hætti þar sem grunnlaun og kaupaukar komi betur fram, er hér að neðan að finna tölulegar upplýsingar um launamál á árunum 2017 og 2018:

Laun stjórnenda skiptast á eftirfarandi hátt í föst og breytileg starfskjör, án launatengdra gjalda

2018 2017
Lykilstjórnendur Föst starfskjör Breytilég starfskjör Föst starfskjör Breytilég starfskjör
Stefán Sigurðsson, forstjóri Sýnar hf. 45,3 - 41,9 23,4
Rúnar Reistrup, forstjóri P/F Hey 26,4 5,6 25,3 1,9
Fimm framkvæmdastjórar samstæðunnar 142,7 - 83,5 23,9 *
Gjaldfærð laun lykilstjórnenda samtals 214,4 5,6 150,7 49,2

*Tveir framkvæmdastjórar eru einungis einn mánuð inn í fjárhæðum fyrir 2017, á bak við fjáhæðir 2017 reiknast því 3,2 stöðugildi.

Skýrsla þessi er lögð fyrir og samþykkt af stjórn þann 27. febrúar 2019.

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

2018

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is