Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn AGM Information 2026

Mar 22, 2026

2210_rns_2026-03-22_bf65739d-3e0a-46ea-a52d-da9a81b446c0.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sýn hf.: Framboð til stjórnar, varastjórnar og tilnefningarnefndar - Beiðni um margfeldiskosningu

Sýn hf.: Framboð til stjórnar, varastjórnar og tilnefningarnefndar - Beiðni um margfeldiskosningu

Aðalfundur Sýnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 26. mars 2026, kl. 15:00.

Eftirtalin framboð bárust innan lögboðins framboðsfrests:

Framboð til aðalstjórnar

  • Hákon Stefánsson
  • Heiðrún Lind Marteinsdóttir
  • Kjartan Briem
  • Petrea Ingileif Guðmundsdóttir
  • Ragnar Páll Dyer
  • Rannveig Eir Einarsdóttir

Framboð til varastjórnar:

  • Daði Kristjánsson
  • Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir

Þar sem einungis tvö framboð bárust til varastjórnar verða hlutaðeigandi sjálfkjörin á fundinum.

Framboð til tilnefningarnefndar:

  • Guðríður Sigurðardóttir
  • Þröstur Olaf Sigurjónsson

Þar sem einungis tvö framboð til tilnefningarnefndar bárust innan framboðsfrests verða þeir nefndarmenn sem kosnir eru á aðalfundi félagsins sjálfkjörnir.

Beiðni um margfeldiskosningu:

Fram er komin beiðni frá hluthafa sem hefur tilskilið vægi atkvæða um að fram fari margfeldiskosning, sbr. 7. mgr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995 og 4. mgr. 17. gr. samþykkta félagsins. Þar sem sex eru í kjöri til aðalstjórnar um fimm stjórnarsæti mun kosning til aðalstjórnar félagsins því fara fram sem margfeldiskosning.