Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Regulatory Filings 2020

Jan 27, 2020

2210_rns_2020-01-27_c176c0f9-dced-429b-b364-f7bc03f47b82.html

Regulatory Filings

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sýn hf.: Tilnefningarnefnd Sýnar auglýsir eftir framboðum til stjórnar

Sýn hf.: Tilnefningarnefnd Sýnar auglýsir eftir framboðum til stjórnar

Tilnefningarnefnd Sýnar hf. auglýsir hér með eftir framboðum til stjórnar Sýnar vegna aðalfundar félagsins sem haldinn verður föstudaginn 20. mars næstkomandi.

Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem tilnefningarnefnd félagsins lætur í té og unnt er að nálgast á vef félagsins á slóðinni https://syn.is/fjarfestatengsl/adalfundur.

Senda skal framboðstilkynningu á netfangið: [email protected] eigi síðar en 10. febrúar 2020.

Vegna eðlis og umfangs starfa nefndarinnar getur nefndin ekki lagt mat á framboð sem berast eftir það tímamark. Mun tillaga nefndarinnar um tilnefningar stjórnarmanna til hluthafafundar liggja fyrir eigi síðar en samhliða fundarboði þremur vikum fyrir aðalfund. Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimild frambjóðanda til þess að skila inn framboðum til stjórnar allt fram að fimm dögum fyrir aðalfund.

Nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu: [email protected]