AI assistant
Syn — Regulatory Filings 2019
Jan 25, 2019
2210_rns_2019-01-25_42797c09-0817-42e9-be7b-80e032819d47.pdf
Regulatory Filings
Open in viewerOpens in your device viewer
Reykjavík 25. janúar 2019
Sýn hf. - Tilnefningarnefnd auglýsir eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar Sýnar hf.
Sýn hf. varð fyrst skráðra félaga á hlutabréfamarkaði á Íslandi til að koma á fót svokallaðri tilnefningarnefnd og starfsreglum fyrir hana haustið 2014. Skipan nefndarinnar er í samræmi við leiðbeiningar Viðskiptaráðs Íslands, Nasdaq Iceland og Samtaka atvinnulífsins um stjórnarhætti fyrirtækja.
Meginhlutverk nefndarinnar er að tilnefna frambjóðendur til stjórnarsetu hjá Sýn hf. fyrir hluthafafundi þar sem stjórnarkjör er á dagskrá, auk þess að meta hæfi og óhæði frambjóðenda til stjórnar sem gefið hafa kost á sér til þeirra starfa.
Nefndin auglýsir hér með eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar Sýnar vegna aðalfundar félagsins sem haldinn verður 22. mars næstkomandi.
Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem tilnefningarnefnd félagsins lætur í té og unnt er að nálgast á vef félagsins á slóðinni https://syn.is/fjarfestatengsl/adalfundur.
Skal senda framboðstilkynningu á netfangið: [email protected] eigi síðar en 11. febrúar nk.
Vegna eðlis og umfangs starfa nefndarinnar getur nefndin ekki lagt mat á framboð sem berast eftir það tímamark. Mun tillaga nefndarinnar um tilnefningar stjórnarmanna til hluthafafundar liggja fyrir eigi síðar en samhliða fundarboði þremur vikum fyrir aðalfund. Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimild frambjóðanda til þess að skila inn framboðum til stjórnar allt fram að fimm dögum fyrir aðalfund.
Frekari aðstoð veitir:
- Guðfinnur Sigurvinsson, samskiptastjóri Sýnar, í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 669-9330.
sýn
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is