AI assistant
Syn — Proxy Solicitation & Information Statement 2024
Mar 27, 2024
2210_rns_2024-03-27_b4d529ca-ef62-4346-ae9d-79d5d21824af.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Aðalfundur Sýnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 11. apríl 2024 kl. 15:00. Fundurinn verður rafrænn og honum streymt, en hluthafar sem það kjósa eru jafnframt velkomnir á fundarstað, þ.e. 6. hæð Suðurlandsbrautar 8, 108 Reykjavík. Allir fundarmenn verða að skrá sig á slóðinni: www.lumiconnect.com/meeting/syn2024
Dagskrá fundarins:
- Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess á liðnu starfsári.
- Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram til staðfestingar.
- Ákvörðun um hvernig skuli fara með afkomu félagsins á reikningsárinu 2023.
- Tillaga um stefnu um arðgreiðslur og/eða endurkaup eigin hluta.
- Tillaga um starfskjarastefnu félagsins.
- Kaupréttaráætlun fyrir starfsmenn samstæðunnar til samþykktar
- Kaupréttaráætlun fyrir lykilstjórnendur samstæðunnar til samþykktar
- Tillaga um breytingu á samþykktum
- Tillaga um lækku hlutafjár með innlausn (ógildingu) eigin hluta félagsins í framhaldi af kaupum á eigin hlutum og samsvarandi breyting á samþykktum félagsins
- Tillaga um um heimild til kaupa á eigin hlutum (sem getið verður í viðauka við samþykktir félagsins)
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir komandi starfsár.
- Tilnefningarnefnd kynnir skýrslu sína og tillögur:
a. Tilnefningarnefnd gerir grein fyrir skýrslu sinni
b. Tillögur tilnefningarnefndar um breytingar á starfsreglum nefndarinnar - Kosning stjórnar félagsins.
- Kosning tveggja fulltrúa í tilnefningarnefnd félagsins í samræmi við starfsreglur stjórnar og starfsreglur tilnefningarnefndar.
O vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
X
X
C2 restricted - External permitted
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
C2 restricted - External permitted
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
- Tillaga stjórnar að endurskoðunarfirma félagsins.
- Tillaga stjórnar um utanaðkomandi nefndarmann í endurskoðunarnefnd
- Önnur mál löglega upp borin.
Tillögur stjórnar til aðalfundar Sýnar hf. árið 2024
I. Dagskrárliður 2. – Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram til staðfestingar
Tillaga: „Stjórn Sýnar hf. leggur til við aðalfund þann 11. apríl 2024 að fyrirliggjandi ársreikningur félagsins fyrir árið 2023 verði staðfestur.“
II. Dagskrárliður 3. – Ákvörðun um hvernig skuli fara með afkomu félagsins á reikningsárinu 2023
Tillaga: „Stjórn leggur til að ekki verði greiddur arður vegna rekstrarársins 2023, en vísar að öðru leyti til ársreiknings hvað varðar ráðstöfun á hagnaði ársins og breytingu á eigir fé.“
Greinargerð: Í ljósi afkomu undangengins rekstrarárs, fjárfestingaþarfar, markmiða fjárstýringarstefnu og ytra árferðis þykir ekki rétt að greiddur verði arður til hluthafa.
III. Dagskrárliður 4. – Tillaga um stefnu um arðgreiðslur og/eða endurkaup eigir hluta
Tillaga: „Stjórn Sýnar hf. hefur markað félaginu þá stefnu að lögð skuli áhersla á að félagið skili til hluthafa sinna, beint eða óbeint, þeim verðmætum sem skapast í rekstrinum á hverju ári, umfram nauðsynlegar fjárfestingar í rekstrarfjármunum. Í því skyni hefur félagið einkum þrjá valkosti: beinar arðgreiðslur, niðurgreiðslu vaxtaberandi skulda og kaup á eigir hlutabréfum.“
Stefnir félagið að því að skila hluthöfum verðmætum sem nema 30%-60% af hagnaði eftir skatta í samræmi við gildandi lög og reglur hverju sinni. Þegar sérstaklega stendur á, svo sem í kjölfar sölu eigna, stefnir félagið á að skila hluthöfum verðmætum umfram framangreind viðmið. Endanlegt framlag hvers árs mun ráðast af fjárhagslegri stöðu félagsins, fjárfestingaþörf og markaðsaðstæðum.“
Greinargerð: Lögð er til óbreytt stefna um arðgreiðslur og/eða endurkaup eigir hluta frá fyrra ári.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
DÝR
X
Sýn
C2 restricted - External permitted
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
IV. Dagskrárliður 5. - Tillaga um starfskjarastefnu félagsins.
Tillaga: „Stjórn Sýnar hf. leggur til við aðalfund þann 11. apríl 2024 að uppfærð starfskjarastefna verði samþykkt. Tillagan að uppfærðri starfskjarastefnu liggur frammi á skrifstofu félagsins og er aðgengileg á vefsíðu þess: https://syn.is/fjarfestatengsl/adalfundur.“
Greinargerð: Með starfskjarastefnu eru settar málsmeðferðarreglur félagsins varðandi starfskjör stjórnenda og stjórnarmanna sem tryggja hluthöfum innsýn í framkvæmd stefnunnar innan félagsins. Er markmið starfskjarastefnu félagsins að félagið og dótturfélög þess séu samkeppnishæf og geti ráðið til sín framúrskarandi starfsfólk og stjórnendur. Er tilgreindum markmiðum ætlað að stýðja við framtíðarsýn félagsins um áframhaldandi sókn þar sem gildi þess eru höfð að leiðarljósi. Stjórn telur mikilvægt að gætt sé að því að hvatakerfi stjórnenda takmarkist ekki við skammtímaárangur og að í framtíðinni verið umbunað fyrir árangur í þágu hluthafa, til samræmis við markmið starfskjarastefnunnar.
Kaupréttarkerfi hafa ekki verið við lýði hjá Sýn hf. Í uppfærðri starfskjarastefna er lagt til að afmarkað verði með skýrari hætti heimildir til kaupréttta, þ.e. annars vegar heimild til stofnsetningar kaupréttarkerfis fyrir allt starfsfólk samstæðunnar og hins vegar heimild til veitingar kaupréttta til æðstu stjórnenda hennar. Uppfærð starfskjarastefna gerir í báðum tilvikum ráð fyrir að kaupréttarkerfi hljóti sérstakt samþykki hluthafafundur áður en þau eru stofnsett og eru sérstakar tillögur þar að lútandi lagðar fyrir fundinn, sbr. dagskrárliði nr. 6 og 7. Þá lýtur tillaga stjórnar að því að nánar verði útfært í 3. gr. starfskjarastefnunnar til hvaða viðmiða sé unnt að líta og hafa til hliðsjónar við tillögugerð stjórnar til aðalfundar varðandi þóknun fyrir stjórnar- og nefndarstörf. Unnt er að nálgast skjal á skrifstofu félagsins sem og á vefsíðu þess: https://syn.is/fjarfestatengsl/adalfundur sem sýnir þær breytingar frá núgildandi starfskjarastefnu sem tillaga stjórnar að þessu leyti tekur til.
V. Dagskrárliður 6. - kaupréttaráætlun fyrir starfsmenn samstæðunnar til samþykktar
Tillaga: „Stjórn Sýnar hf. leggur til við aðalfund þann 11. apríl 2024 að fyrirliggjandi tillaga að kaupréttaráætlun fyrir alla starfsmenn í föstu starfi innan samstæðunnar verði samþykkt. Kaupréttaráætlunin byggir á 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og heimilar félaginu að gera kaupréttarsamninga við starfsmenn í föstu starfi innan samstæðu félagsins, þ.e. hjá Sýn hf. og dótturfélögum.
Kaupréttaráætlunin nær til allra fastráðinna starfsmanna samstæðunnar. Starfsmenn sem ráðast til félagsins eða dótturfélaga eftir gerð kaupréttaráætlunar öðlast einnig kauprétt sem og starfsmenn félaga sem koma ný inn í samstæðu félagsins, á gildistíma hennar. Áætlunin gerir ráð fyrir að kaupréttarsamningar verði gerðir við þá starfsmenn sem það kjósa, sem
vodafone visir SPORT BYLGJAN
DINA
X
C2 restricted - External permitted
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
heimilar þeim að kaupa hluti í félaginu fyrir allt að kr. 500.000 að markaðsverði ári í tvö ár frá veitingu kaupréttar, sbr. þó heimild til frestunar á nýtingu réttarins vegna fyrra kaupréttartímabilsins.
Kaupréttur hvers kaupréttarhafa ávinnst í tveimur áföngum á tveimur árum frá gerð kaupréttarsamninga, sbr. nánar eftirfarandi:
Fyrra nýtingartímabilið skal vera frá og með 1. maí 2025 til og með 30. apríl 2026 og hið síðara frá og með 1. maí 2026 til og með 30. apríl 2027. Nýti starfsmaður kauprétt sinn innan framangreindra tímabila skal hlutafé greitt með reiðufé. Að lágmarki 12 mánuðir þurfa að líða frá gerð samnings um kauprétt þar til hann er nýttur og starfsmenn verða að eiga keypta hluti í tvö ár hið skemmsta, vilji þeir nýta skattalegar ívilnanir sem í áætluninni felast. Kaupverð hluta skal ekki vera lægra en vegið meðalverð í viðskiptum með hlutabréf félagsins tíu heila viðskiptadaga fyrir gerð hvers kaupréttarsamnings, en endanlegt kaupverð hluta, reiknað út í samræmi við framangreint, skal tilgreint í hverjum kaupréttarsamningi.
Starfsmönnum er heimilt að fresta nýtingu á kauprétti, í heild eða hluta, á fyrra nýtingartímabilinu til síðara nýtingartímabils. Við lok síðara nýtingartímabilsins falla allir ónýttir kaupréttir niður.
Ávinnsla kaupréttanna er bundin því skilyrði að kaupréttarhafi starfi innan samstæðu félagsins, en áunninn kaupréttur fellur þó ekki niður ef kaupréttarhafa er sagt upp störfum án þess að uppsögnina megi rekja til vanefndar hans á ráðningarsamningi, eða öðrum starfsskyldum hans, starfslok ber að vegna aldurs, andláts eða vegna þess að kaupréttarhafi verður óvinnufær sökum heilsubrests.
Kaupréttirnir eru ekki framseljanlegir og ekki verður heimilt að veðsetja þá. Kaupréttaráætlun sem tillaga þessi tekur til verður borin undir ríkisskattstjóra til staðfestingar, sbr. 8. tölulið 1. mgr. 10. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, áður en henni verður hrundið í framkvæmd.
Kaupréttaráætlunin, sem er hluti af tillögu þessari, liggur frammi á skrifstofu félagsins og er aðgengileg á vefsíðu þess: https://syn.is/fjarfestatengsl/adalfundur
Greinargerð: Markmið með veitingu kauprétta til allra starfsmanna sem þess kjósa á grundvelli tillögu þessarar og fyrirliggjandi kaupréttaráætlunar er að tengja hagsmuni allra fastráðinna starfsmanna samstæðunnar við afkomu og langtímamarkmið félagsins og þar með langtímahagsmuni hluthafa þess. Kaupréttaráætlunin er í samræmi við 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt en slíkir kaupréttir njóta sérstaks hagræðis fyrir starfsmenn þar sem allar tekjur vegna þeirra eru skattlagðar sem fjármagnstekjur að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Kaupréttaráætlunin heimilar félaginu að bjóða öllum starfsmönnum félagsins og dótturfélaga, starfsmönnum sem ráðast til samstæðunnar eftir samþykkt
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
30
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
A
kaupréttaráætlunarinnar sem og starfsmönnum félaga sem kunna að koma ný inn í samstæðuna á gildistíma kaupréttaráætlunar að gera kaupréttarsamninga við félagið og skulu réttindi starfsmanna vera þau sömu án tillits til starfsaldurs, starfsábyrgðar eða launaflokka. Skilyrði er þó að starfsmenn séu fastráðnir.
VI. Dagskrárliður 7. - Kaupréttaráætlun fyrir lykilstjórnendur samstæðunnar til samþykktar
Tillaga: „Stjórn Sýnar hf. leggur til við aðalfund þann 11. apríl 2024 að fyrirliggjandi tillaga að kaupréttaráætlun fyrir forstjóra, æðstu stjórnendur og lykilstarfsmenn samstæðunnar verði samþykkt. Kaupréttaráætlunin heimilar stjórn félagsins, eftir tillögu starfskjaranefndar, að gera kaupréttarsamninga við forstjóra, æðstu stjórnendur og lykilstarfsmenn félagsins og annarra félaga innan samstæðunnar. Heildarfjöldi hluta sem heimilt er að veita kauprétt að, á grundvelli kaupréttaráætlunar fyrir forstjóra og lykilstarfsmenn, sem liggur fyrir fundinum, er 10.000.000 hlutir. Kaupréttarsamningur við forstjóra skal vera til fjögurra ára, að nafnvirði allt að 750 þúsund hlutum á ári, eða sem nemur 3 milljónum hluta í heild.
Kaupréttarsamningar við aðra lykilstjórnendur skulu vera til tveggja ára, allt að 7 milljónum hluta í heild. Forstjóri skal ákvarða innbyrðis skiptingu milli lykilstjórnenda í samráði við stjórn. Hver og einn lykilstjórnenda getur átt rétt á að hámarki 20% af úthlutuðum hlutum til lykilstjórnenda á hverjum tíma.
Veittir kaupréttir munu ávinnast á fjórum árum í tilviki forstjóra og tveimur árum hjá lykilstjórnendum en nýtingu kaupréttar verður dreift yfir eitt ár að ávinnslutímabili loknu. Kaupverð hlutanna við nýtingu skal ekki vera lægra en vegið meðalverð í viðskiptum með hlutabréf félagsins tíu heila viðskiptadaga fyrir gerð hvers kaupréttarsamnings, auk 7,5% vaxta frá gerð kaupréttarsamnings og fram að fyrsta mögulega nýtingardegi fyrir hvert nýtingartímabil.
Kaupréttir falla niður fyrr ef ráðningarsambandi kaupréttarhafa við félagið eða annað félag innan samstæðu þess (eftir því sem við á) er slitið fyrir ávinnslutíma, en félaginu er þó heimilt að veita undanpágur frá þeirri meginreglu. Félaginu verður óheimilt að veita lán eða ábyrgðir af nokkru tagi í tengslum við kaupréttaráætlunina.
Kaupréttir eru ekki framseljanlegir en komi til þess að breyting verði á yfirráðum í félaginu, sbr. 100. gr. laga nr. 108/2007 um yfirtökur, ávinnast allir kaupréttir þegar í stað. Kaupréttaráætlunin gerir enn fremur ráð fyrir að kaupréttarhöfum sé gert skylt að halda eftir ákveðnum fjölda hluta þar til ákveðnu margfeldi af grunnlaunum er náð, allt til starfsloka hjá félaginu. Kaupréttaráætlunin, sem er hluti af tillögu þessari, liggur frammi á skrifstofu félagsins og er aðgengileg á vefsíðu þess: https://syn.is/fjarfestatengsl/adalfundur
O vodafone
VÍSIR
SPORT
BYLGJAN
X
C2 restricted - External permitted
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
Greinargerð: Markmið með veitingu kaupréttta til forstjóra, æðstu stjórnenda og lykilstarfsmanna á grundvelli tillögu þessarar og fyrirliggjandi kaupréttaráætlunar er að tengja langtímahvatakerfi stjórnenda samstæðunnar við afkomu og langtímamarkmið félagsins og þar með langtímahagsmuni hluthafa þess. Er markmiðið jafnframt, til samræmis við efni starfskjarastefnu félagsins, að stuðla að því að félagið geti ráðið til sín framúrskarandi starfsfólk og stjórnendur. Stjórn, að fenginni tillögu og umsögn starfskjara nefndar, ákveður hverju sinni, innan marka fyrirliggjandi kaupréttaráætlunar, hvaða starfsmönnum skuli boðnir kaupréttir og fjöldi hluta. Gerðir verða kaupréttarsamningar við hvern og einn kaupréttarhafa þar sem nánar verður kveðið á um réttindi og skyldur aðila, innan þeirra marka sem kveðið er á um í kaupréttaráætlun. Lykilstjórnendur sem nýta áskriftarréttindi fá ekki hækkanir á föstum launum sínum á tímabilinu.
VII. Dagskrárliður 8. – Breytingar á samþykktum
Tillaga: „Stjórn Sýnar hf. leggur til að nýrri málsgrein verði bætt við 5. gr. samþykktu félagsins sem verði svohljóðandi:
„Aðalfundur Sýnar hf., haldinn 11. apríl 2024, samþykkir að veita stjórn félagsins heimild til að gefa út nýtt hlutafé í félaginu allt að kr. 18.000.000 hluta. Heimild stjórnar skal aðeins nýtt til þess að efna skuldbindingar félagsins skv. kaupréttarsamningum við starfsmenn og lykilstjórnendur samstæðunnar í samræmi við samþykktar kaupréttaráætlun. Forgangsréttur hluthafa samkvæmt 1. mgr. 5. gr. samþykktu félagsins gildir ekki um hið nýja hlutafé og falla hluthafar því frá áskriftarrétti sínum að hlutafjárakningunni í samræmi við ákvæði 3. mgr. 34. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Nýútgefnir hlutir skulu vera í sama flokki og með sömu réttindi og aðrir hlutir í félaginu. Nýútgefnir hlutir veita réttindi frá skráningardegi hlutafjárhækkunar. Heimildin er veitt til 30. júní 2029. Stjórn félagsins skal vera heimilt að gera nauðsynlegar breytingar á samþykktum félagsins í tengslum við nýtingu heimildarinnar. Heimild þessi skal fellð úr samþykktum þegar hún hefur verið nýtt.“
Greinargerð: Ef tillögur samkvæmt dagskrárliðum 6 og 7 á aðalfundi þessum, sem fjalla um kaupréttarkerfi starfsmanna og æðstu stjórnenda, verða samþykktar er ljóst að félagið þarf á næstu árum að geta gefið út nýtt hlutafé til starfsmanna til að efna kaupréttarsamninga. Félagið hefur nú þegar almenna heimild til kaupa á eigin hlutum, en samkvæmt dagskrárlið 10 hér á eftir er tillaga stjórnar að heimild verði veitt til að nýta hluta af þeim hlutabréfum, sem félagið kaupir í gegnum endurkaupaáætlun sína, til að efna kaupréttarsamninga við starfsmenn. Tillaga stjórnar skv. þessum dagskrárlið lýtur nú að því að veita stjórn meira svigrúm til að meta hvort eigin hlutir eða nýir hlutir verða nýttir til að efna kaupréttarsamninga, en í þeim efnum verður horft til fjármagnsskipunar félagsins, lausafjárstöðu, arðgreiðslustefnu o.fl. Hér er miðað við að félagið kunni að gefa út hlutafé allt að 10.000.000 hlutum til efnda á kaupréttarsamningum gagnvart æðstu stjórnendum
vodafone
visir
SPORT
BYLGJAN
X
C2 restricted - External permitted
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
félagsins og allt að 8.000.000 hlutum til efnda á kaupréttarsamningum gagnvart öðrum starfsmönnum félagsins, en óvíst er hver þátttaka starfsmanna og lykilstjórnenda félagsins verður í kaupréttarsamningum og að hvaða marki heimildin til útgáfu nýs hlutafjár verður nýtt af þeim sökum.
VIII. Dagskrárliður 9. - Tillaga um lækkun hlutafjár með innlausn (ógildingu) eigin hluta félagsins vegna kaupa á eigin hlutum og samsvarandi breyting á samþykktum félagsins
Tillaga: „Aðalfundur Sýnar hf. haldinn 11. apríl 2024 samþykkir að hlutafé félagsins verði lækkæð um kr. 33.527.940 að nafnvirði, einvörðungu með innlausn (ógildingu) viðkomandi eigin hluta félagsins (samtals 3.352.794 hluta sem eru samtals kr. 33.527.940 að nafnverði) á grundvelli ákvæða 54. gr. laga nr. 2/1995, um hlutafélög. Hlutafé félagsins lækkar þar með úr kr. 2.510.017.540 að nafnvirði í kr. 2.476.489.600 að nafnvirði. Þar sem um innlausn (ógildingu) á eigin hlutum félagsins er að ræða kemur ekki til greiðslu fyrir hlutina og verður því ekki talin þörf á innköllun til kröfuhafa félagsins, en ella skal óskað eftir undanþágu fyrirtækjaskrár frá innköllunarskyldunni. Stjórn félagsins skal samþykkja og gera nauðsynlegar breytingar á samþykktum félagsins af þessu tilefni.“
Greinargerð: Á aðalfundi Sýnar hf. þann 17. mars 2023 var samþykkt heimild til handa stjórn félagsins til að kaupa eigin hluti. Samkvæmt heimildinni gátu endurkaupin numið allt að 10% af útgefnu hlutafé félagsins.
Á grundvelli framangreindrar heimildar tók stjórn Sýnar, á fundi sínum þann 8. nóvember sl., ákvörðun um að hefja framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum. Endurkaupaáætlunin var framkvæmd í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Skyldu endurkaupin nema að hámarki 8.000.000 hlutum þannig að eigin hlutir næmu að hámarki 3,19% af útgefnu hlutafé félagsins. Heildarkaupverð endurkaupanna yrði þó ekki hærra en 300 milljónir króna. Gert var ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni lyki í síðasta lagi 16. febrúar 2024 eða fyrr ef skilyrði um hámarkskaup yrðu uppfyllt fyrir þá dagsetningu, sbr. kauphallartilkynning dags. 9. nóvember 2023.
Tilgangur endurkaupanna var að lækka hlutafé félagsins og á þeim grundvelli leggur stjórn félagsins fram tillögu um að lækka hlutaféð um þann fjölda eigin hluta sem keyptir hafa verið með endurkaupaáætlun miðað við stöðu endurkaupa við lok hennar, en um er að ræða samtals 3.352.794 eigin hluti (þ.e. kr. 33.527.940 að nafnvirði) eða sem nemur 1,34% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra kr. 153.084.941, sbr. kauphallartilkynningu um lok endurkaupanna, dags. 19. febrúar 2024.
Mun niðurfærslan ekki hafa áhrif á hlutafé í eigu annarra hluthafa en félagsins sjálfs. Heimildin til ógildingar eigin hluta félagsins með þessum hætti byggir á 54. gr. laga nr. 2/1995 um
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
X
C2 restricted - External permitted
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
C2 restricted - External permitted
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
hlutafélög. Þar sem um innlausn (ógildingu) á eigin hlutum félagsins er að ræða kemur ekki til greiðslu fyrir hlutina og verður því ekki talin þörf á innköllun til kröfuhafa félagsins, en ella verður óskað eftir undanþágu fyrirtækjaskrár frá innköllunarskyldunni.
IX. Dagskrárliður 10. – Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum (sem getið verður í viðauka við samþykktir félagsins):
Tillaga: „Aðalfundur Sýnar hf. haldinn 11. apríl 2024 samþykktir að veita stjórn félagsins heimild, á grundvelli 55. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, til að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 10% af hlutafé þess. Heimild þessi skal nýtt í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu, setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum. Tilgangur félagsins með endurkaupum er að lækka hlutafé félagsins og/eða að gera félaginu kleift að standa við skuldbindingar sínar skv. kaupréttarsamningum við starfsmenn. Við endurkaup skal hæsta leyfilega endurgjald fyrir hvern hlut ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra. Viðskipti félagsins með eigin hluti skulu tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir. Heimild þessi gildir í 18 mánuði frá samþykkt hennar. Aðrar eldri heimildir til kaupa á eigin hlutum falla úr gildi við samþykkt heimildar þessarar.“
Greinargerð: Heimild þessi um kaup á eigin hlutum er hliðstæð heimild frá síðasta aðalfundi, að öðru leyti en því að tilgangi endurkaupanna er nú lýst þannig að þau skuli ganga til lækkunar á hlutafé félagsins og/eða að gera félaginu kleift að standa við skuldbindingar sínar skv. kaupréttarsamningum við starfsmenn. Í samræmi við 30. gr. samþykktá félagsins verður heimildarinnar getið til upplýsinga í sérstökum viðauka við samþykktir félagsins, fáist hún samþykkt, sem kemur í stað viðauka sama efnis við gildandi samþykktir, en hún felur ekki í sér eiginlega breytingu á samþykktum félagsins.
X. Dagskrárliður 11. – Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna
Tillaga: „Stjórn leggur til við aðalfund að stjórnarlaun komandi starfsárs verði sem hér segir:
a) Stjórnarformaður fái kr. 625.000 á mánuði.
b) Varaformaður fái kr. 470.000 á mánuði
c) Aðrir stjórnarmenn fái kr. 310.000 á mánuði.
d) Varastjórnarmenn fái kr. 125.000 fyrir hvern setinn fund.
e) Formenn undirnefnda fái kr. 125.000 á mánuði.
O vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
X
X
f) Aðrir nefndarmenn undirnefnda fáí kr. 65.000. á mánuði, sbr. þó g. liður.
g) Utanaðkomandi ráðgjafar undirnefnda og tilnefningarnefndar, fáí greitt á grundvelli samþykkt's tilboðs. Greiðslur til endurskoðenda skulu jafnframt vera samkvæmt samþykktu tilboði.
Greinargerð:
Lagt er til að stjórnarlaun og laun undirnefnda verði óbreytt frá fyrra ári.
XI. Dagskrárliður 15. – Tillaga stjórnar um endurskoðunarfirma félagsins
Tillaga: „Lagt er til að KPMG ehf. verði endurskoðunarfirma félagsins.“
XII. Dagskrárliður 16 – Tillaga stjórnar um utanaðkomandi nefndarmann í endurskoðunarnefnd
Tillaga: „Lagt er til að Erik Ingvar Bjarnason, löggiltur endurskoðandi, verði kosinn sem utanaðkomandi nefndarmaður í endurskoðunarnefnd.“
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
TIM
X
C2 restricted - External permitted
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is