Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Proxy Solicitation & Information Statement 2022

Aug 4, 2022

2210_rns_2022-08-04_a30befde-71d7-491e-bbaf-ed3510f358e1.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Stjórn Sýnar hf. boðar til hluthafafundar

Stjórn Sýnar hf. boðar til hluthafafundar sem haldinn verður miðvikudaginn 31. ágúst 2022 klukkan 10.00 árdegis í höfuðstöðvum félagsins að Suðurlandsbraut 8, 108, Reykjavík.

Til fundarins er boðað að kröfu Gavia Invest ehf., „sem fer með atkvæðisrétt fyrir hlutafé í Sýn hf. að nafnverði kr. 43.147.128, eða sem nemur 16,08% af heildarhlutafé Sýnar hf.“, samkvæmt bréfi Gavia Invest ehf., dags. 26. júlí sl. Krefst Gavia Invest ehf. að á fundinum verði tekin fyrir tillaga um að umboð núverandi stjórnar verði fellt niður og ný stjórn kjörin. Telur Gavia Invest ehf. „að vegna umtalsverðra breytinga sem orðið hafa á hluthafahópi Sýnar hf. nú nýverið sé rétt að umboð stjórnar félagsins verði endurnýjað og að stjórnarkjör fari fram.“

Með vísan til framangreinds boðar stjórn Sýnar ehf. til hluthafafundar samkvæmt ofangreindu með eftirgreindri dagskrá:

Dagskrá fundarins

  1. Tillaga Gavia Invest ehf. um að bundinn verði endir á kjörtímabil sitjandi stjórnar félagsins.
  2. Með fyrirvara um að tillaga undir tölulið 1. hér að framan verði samþykkt, fer fram stjórnarkjör.
  3. Önnur mál.

Aðrar upplýsingar:

Öll skjöl og tillögur sem lögð verða fyrir hluthafafundinn verður að finna á vefsíðu félagsins https://syn.is/fjarfestatengsl/hluthafafundur. Þar má einnig finna skýrslu Tilnefningarnefndar þegar hún verður tilbuinn, sbr. það sem síðar segir. Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í höfuðstöðvum félagsins að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík, virka daga milli klukkan 9:00-16:00. Fundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn jafnframt á íslensku.

Hluthafar geta látið umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt umboð.

Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthöfum gefst kostur á að greiða atkvæði um mál sem eru á dagskrá fundarins bréflega. Skal beiðni um slíka atkvæðagreiðslu hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið [email protected] eigi síðar en fimm dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 10.00 föstudaginn 26. ágúst 2022.

O vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

X

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is

C2 restricted - External permitted


Hluthafar eiga rétt á að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef þeir gera um það skriflega eða rafræna kröfu. Óski hluthafi eftir að koma máli eða tillögu á dagskrá hluthafafundarins skal slík beiðni hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið [email protected] eigi síðar en tveimur víkum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 10.00 miðvikudaginn 17. ágúst 2022.

Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn.

Með fyrirvara um að tillaga samkvæmt 1. tölulið dagskrár verði samþykkt, þá tekur Tilnefningarnefnd strax til starfa og tekur við framboðum til stjórnar til kl. 10.00 fimmtudaginn 11. ágúst 2022. Tilnefningarnefnd mun skila skýrslu sinni og tillögu um stjórnarmenn eigi síðar en kl. 10.00 föstudaginn 19. ágúst 2022, með sama fyrirvara.

Tillaga Tilnefningarnefndar takmarkar ekki frekari framboð til stjórnar. Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 ber að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega með minnst fimm sólarhringa fyrirvara fyrir hluthafafund, eða fyrir kl. 10.00 árdegis föstudaginn 26. ágúst 2022. Framboðum skal skila á skrifstofu Sýnar hf., Suðurlandsbraut 8, Reykjavík, eða á netfangið [email protected]. Allt er þetta gert með fyrirvara um að raunverulegt stjórnarkjör fari fram á fundinum. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir hluthafafundinn. Hluthafar eiga rétt á að krefjast hlutfallskosningar eða margfeldiskosningar við stjórnarkjör ef beiðnin berst a.m.k. fimm sólarhringum fyrir fundinn, ef þeir hafa til þess afl samkvæmt samþykktum, ef ekki er sjálfkjörð.

Hluthafaskrá frá lokum dags þriðjudaginn 30. ágúst 2022 gildir á fundinum.

Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá klukkan 9.30 á fundardegi.

Stjórn Sýnar hf.

O vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

2022

X

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is

C2 restricted - External permitted