AI assistant
Syn — Proxy Solicitation & Information Statement 2022
Aug 23, 2022
2210_rns_2022-08-23_e57fc45c-4d5b-402b-bb8f-f3185f2274d7.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Uppfært fundarboð, endanleg dagskrá og tillögur
Vísað er til fyrra fundarboðs sem birt var í Kauphöll þann 4. ágúst sl., þar sem stjórn Sýnar boðaði til hluthafafundar sem haldinn verður miðvikudaginn 31. ágúst 2022 klukkan 10.00 árdegis í höfuðstöðvum félagsins að Suðurlandsbraut 8, 108, Reykjavík.
Til fundarins er boðað að kröfu Gavia Invest ehf. Ekki bárust frekari dagskrártillögur innan tilskilins frests. Endanleg dagskrá fundarins er því svohljóðandi og þarfnast tillögurnar ekki skýringa:
Dagskrá fundarins
- Tillaga Gavia Invest ehf. um að bundinn verði endir á kjörtímabil sitjandi stjórnar félagsins.
- Með fyrirvara um að tillaga undir tölulið 1. hér að framan verði samþykkt, fer fram stjórnarkjör.
- Önnur mál.
Aðrar upplýsingar:
Öll skjöl og tillögur sem lögð verða fyrir hluthafafundinn er að finna á vefsiðu félagsins https://syn.is/fjarfestatengsl/hluthafafundur. Fundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn jafnframt á íslensku.
Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthöfum gefst kostur á að greiða atkvæði um mál sem eru á dagskrá fundarins bréflega. Skal beiðni um slíka atkvæðagreiðslu hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið [email protected] eigi síðar en fimm dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 10.00 föstudaginn 26. ágúst 2022.
Á þessu stigi liggur fyrir að sjö frambjóðendur sækjast eftir fimm stjórnarsætum í aðalstjórn félagsins, sbr. nánari umfjöllun í skýrslu tilnefningarnefndar sem finna má á vefsiðu fundarins https://syn.is/fjarfestatengsl/hluthafafundur. Er það mat nefndarinnar að allir sjö frambjóðendur eru hæfir til stjórnarstarfa. Tillaga Tilnefningarnefndar takmarkar ekki frekari framboð til stjórnar. Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 ber að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega með minnst fimm sólarhringa fyrirvara fyrir hluthafafund, eða fyrir kl. 10.00 árdegis föstudaginn 26. ágúst 2022. Framboðum skal skila á skrifstofu Sýnar hf., Suðurlandsbraut 8, Reykjavík, eða á netfangið [email protected]. Allt er þetta gert með fyrirvara um að raunverulegt stjórnarkjör fari fram á fundinum. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir hluthafafundinn. Hluthafar eiga rétt á að krefjast hlutfallskosningar eða margfeldiskosningar við stjórnarkjör ef beiðnin berst a.m.k. fimm sólarhringum fyrir fundinn, ef þeir hafa til þess afl samkvæmt samþykktum.
Hlutaskrá frá lokum dags þriðjudaginn 30. ágúst 2022 gildir á fundinum. Hluthafar geta látið umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt umboð.
O vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
2022
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
C2 restricted - External permitted
C2 restricted - External permitted
Því er beint til þeirra hluthafa sem hyggjast framvísa umboðum til að fara með atkvæði skv. framvirkum samningum að gera slíkt tímanlega og ekki síðar en í lok dags þriðjudaginn 30. ágúst 2022 á netfangið [email protected]
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá klukkan 9.30 á fundardegi.
Stjórn Sýnar hf.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN 309
K
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is