Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Proxy Solicitation & Information Statement 2022

Sep 23, 2022

2210_rns_2022-09-23_ad29f3e5-8c6f-4593-a0b4-fca38ca03445.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Stjórn Sýnar hf. boðar til hluthafafundar

Stjórn Sýnar hf. boðar til hluthafafundar sem haldinn verður fimmtudaginn 20. október 2022 klukkan 10.00 árdegis í höfuðstöðvum félagsins að Suðurlandsbraut 8, 108, Reykjavík.

Til fundarins er boðað að kröfu þriggja hluthafa sem hafa að baki sér rúmlega 10% hlutafjár félagsins, sbr. fyrri tilkynning félagsins til kauphallar, dags. 19. september 2022. Krefjast hluthafarnir að á fundinum verði tekin fyrir tillaga þeirra um stjórnarkjör. Tillagan felur í sér tvennt að mati stjórnar Sýnar hf.; að umboð núverandi stjórnar verði fellt niður, og að kjörinn verði ný stjórn ef fyrri tillagan verður samþykkt.

Með vísan til framangreinds boðar stjórn Sýnar ehf. til hluthafafundar samkvæmt ofangreindu með eftirgreindri dagskrá:

Dagskrá fundarins

  1. Tillaga um að bundinn verði endir á kjörtímabil sitjandi stjórnar félagsins.
  2. Með fyrirvara um að tillaga undir tölulið 1. hér að framan verði samþykkt, fer fram stjórnarkjör.
  3. Önnur mál.

Aðrar upplýsingar:

Öll skjöl, svo sem framboðseyðublað, og tillögur sem lögð verða fyrir hluthafafundinn verður að finna á vefsíðu félagsins https://syn.is/fjarfestatengsl/hluthafafundur. Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í höfuðstöðvum félagsins að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík, virka daga milli klukkan 9:00-16:00. Fundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn jafnframt á íslensku.

Hluthafar geta látið umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt umboð.

Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthöfum gefst kostur á að greiða atkvæði um mál sem eru á dagskrá fundarins bréflega. Skal beiðni um slíka atkvæðagreiðslu hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið [email protected] eigi síðar en fimm dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 10.00 laugardaginn 15. október 2022.

Hluthafar eiga rétt á að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef þeir gera um það skriflega eða rafræna kröfu. Óski hluthafi eftir að koma máli eða tillögu á dagskrá hluthafafundarins skal slík beiðni hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið [email protected] eigi síðar en tveimur víkum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 10.00 fimmtudaginn 6. október 2022.

O vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

2022

X

C2 restricted - External permitted

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


C2 restricted - External permitted

Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn.

Með fyrirvara um að tillaga samkvæmt 1. tölulið dagskrár verði samþykkt, er auglýst eftir framboðum til stjórnar. Með vísan til þess hve skammur tími er liðinn frá síðasta hluthafafundi þar sem stjórnarkjör var á dagskrá hefur stjórn ákveðið í þetta sinn að víkja til hliðar reglum um Tilnefningarnefnd og að reglur hlutafélagalaga og samþykkta félagsins skuli einar gilda um stjórnarkjörið ef það fer fram.

Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 ber að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega með minnst fimm sólarhringa fyrirvara fyrir hluthafafund, eða fyrir kl. 10.00 laugardaginn 15. október 2022. Framboðum skal skila á skrifstofu Sýnar hf., Suðurlandsbraut 8, Reykjavík, eða á netfangið [email protected]. Allt er þetta gert með fyrirvara um að raunverulegt stjórnarkjör fari fram á fundinum. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir hluthafafundinn. Hluthafar eiga rétt á að krefjast hlutfallskosningar eða margfeldiskosningar við stjórnarkjör ef beiðnin berst a.m.k. fimm sólarhringum fyrir fundinn, ef þeir hafa til þess afl samkvæmt samþykktum, ef ekki er sjálfkjörð.

Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá klukkan 9.30 á fundardegi.

Stjórn Sýnar hf.

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

2017

X

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is