AI assistant
Syn — Proxy Solicitation & Information Statement 2022
Oct 13, 2022
2210_rns_2022-10-13_e1a71009-8b17-4026-a086-8d74fe4ff5f3.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Uppfært fundarboð, endaleg dagskrá og tillögur
Vísað er til fyrra fundarboðs, sem birt var í Kauphöll þann 23. september sl. Þar boðaði stjórn Sýnar hf. til hluthafafundar sem haldinn verður fimmtudaginn 20. október 2022 klukkan 10.00 árdegis í höfuðstöðvum félagsins að Suðurlandsbraut 8, 108, Reykjavík.
Til fundarins er boðað að kröfu þriggja hluthafa sem hafa að baki sér rúmlega 10% hlutafjár félagsins. Krefjast hluthafarnir að á fundinum verði tekin fyrir tillaga þeirra um stjórnarkjör. Tillagan felur í sér tvennt að mati stjórnar Sýnar hf.; að umboð núverandi stjórnar verði fellt niður, og að kjörinn verði ný stjórn ef fyrri tillagan verður samþykkt.
Ekki bárust frekari dagskrártillögur innan tilskilins frests. Endanleg dagskrá fundarins er því svohljóðandi og þarfnast tillögurnar ekki skýringa:
Dagskrá fundarins
- Tillaga um að bundinn verði endir á kjörtímabil sitjandi stjórnar félagsins.
- Með fyrirvara um að tillaga undir tölulið 1. hér að framan verði samþykkt, fer fram stjórnarkjör.
- Önnur mál.
Aðrar upplýsingar:
Öll skjöl, svo sem framboðseyðublað, og tillögur sem lögð verða fyrir hluthafafundinn verður að finna á vefsíðu félagsins https://syn.is/fjarfestatengsl/hluthafafundur. Fundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn jafnframt á íslensku.
Hluthafar geta látið umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt umboð.
Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthöfum gefst kostur á að greiða atkvæði um mál sem eru á dagskrá fundarins bréflega. Skal beiðni um slíka atkvæðagreiðslu hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið [email protected] eigi síðar en fimm dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 10.00 laugardaginn 15. október 2022.
Með fyrirvara um að tillaga samkvæmt 1. tölulið dagskrár verði samþykkt, er auglýst eftir framboðum til stjórnar. Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 ber að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega með minnst fimm sólarhringa fyrirvara fyrir hluthafafund, eða fyrir kl. 10.00 laugardaginn 15. október 2022. Framboðum skal skila á skrifstofu Sýnar hf., Suðurlandsbraut 8, Reykjavík, eða á netfangið [email protected]. Allt er þetta gert með fyrirvara um að raunverulegt stjórnarkjör fari fram á fundinum. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
X
C2 restricted - External permitted
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
h
hluthafafundinn. Hluthafar eiga rétt á að krefjast hlutfallskosningar eða margfeldiskosningar við stjórnarkjör ef beiðnin berst a.m.k. fimm sólarhringum fyrir fundinn, ef þeir hafa til þess afl samkvæmt samþykktum, ef ekki er sjálfkjörð.
Hlutaskrá frá lokum dags miðvikudaginn 19. október 2022 gildir á fundinum. Hluthafar geta látið umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt umboð.
Því er beint til þeirra hluthafa sem hyggjast framvísa umboðum til að fara með atkvæði skv. framvirkum samningum að gera slíkt tímanlega og ekki síðar en í lok dags miðvikudaginn 19. október 2022 á netfangið [email protected]
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá klukkan 9.30 á fundardegi.
Stjórn Sýnar hf.
O vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
2022
X
C2 restricted - External permitted
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is