AI assistant
Syn — M&A Activity 2024
Jul 8, 2024
2210_rns_2024-07-08_5f4b55b4-5cce-4393-9453-ea62e3c75ae4.pdf
M&A Activity
Open in viewerOpens in your device viewer
sýn
Kauphallartilkynning
- júlí 2024
Sýn hf.: Hexatronic undirritar viljayfirlýsingu um kaup á erlendri starfsemi Endor ehf.
Hexatronic Group hefur undirritað viljayfirlýsingu um að kaupa hluta af Endor, sem er í eigu Sýnar og starfar m.a. á sviði þjónustu við gagnaver.
„Starfsemin sem við erum að kaupa snýr að samþættum upplýsingatæknilausnum fyrir stærri fyrirtæki og stofnanir sem vinna með sívaxandi magn af gögnum. Þetta er spennandi hluti markaðarins og með þessum kaupum erum við að efla okkar framboð í upplýsingatæknibúnaði og þjónustu“ sagði Martin Åberg, aðstoðarforstjóri Hexatronic.
Pessi ráðstöfun er liður í þeirri stefnu Sýnar sem snýr að því að auka skilvirkni í samstæðunni með áherslu á kjarnastarfsemi.
„Það er ánægjulegt að hafa svona sterkan aðila til að taka við kyndlinum við að leiða þróun lausna fyrir gagnaver og háhraða tölvuklasa. Viðskiptin snerta aðallega alþjóðlega starfsemi Endor og stóra innlenda viðskiptavini sem nýta sérhæfðar samþættar lausnir. Innlendir viðskiptavinir Endor munu því áfram vera þjónustaðir af Endor ehf að mestu leiti. Við vonum að þessi vegferð og framtíðarsamstarf við Hexatronic muni frekar styrkja lausnamengi okkar fyrir viðskiptavini Endor“ sagði Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar.
Nánari upplýsingar veita:
Martin Åberg, Deputy CEO Hexatronic Group, +46 703 50 66 05.
Fjárfestatengsl Sýnar, [email protected].