Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn M&A Activity 2018

Nov 1, 2018

2210_rns_2018-11-01_b42645f3-a750-4e6e-82d1-f8bbf7d2b021.pdf

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

Reykjavík 1. nóvember 2018

Sýn hf. selur meirihluta hlutafjár í Hey P/F í tengslum við samruna við Nema P/F

Sýn og færeyska félagið Tjaldur hafa komist að samkomulagi um helstu skilmála í viðskiptum sem fela munu í sér samruna Hey, dótturfélags Sýnar í Færeyjum, og Nema, dótturfélags Tjaldurs. Hið sameinaða félag verður leiðandi fyrirtæki í Færeyjum í upplýsingatækni og fjarskiptum, með fjölþættum tekjustraumum frá viðskiptavinum. Samruninn felur í sér kostnaðarhagræði og kemur til með að leysa úr læðingi frekari verðmætasköpun með fjölbreyttara vöruframboði og sölumöguleikum, einkum á fyrirtækjamarkaði.

Helstu skilmálar eru eftirfarandi:

  • Sýn eignast 49,9% hlut og Tjaldur 50,1% hlut í sameinuðu félagi.
  • Sýn fær við viðskiptin greiðslu sem nemur 22 m. DKK auk fyrrgreinds 49,9% hlutar í sameinuðu félagi.
  • Hlutahafasamkomulag mun fjalla um gagnkvæma hagsmuni aðila.

Fjárhagsleg áhrif á Sýn:

  • Viðskiptin leiða til 46 m. DKK söluhagnaðar eða um 850 m. ISK miðað við bókfært virði Hey.
  • Í kjölfar samrunans verður hlutur Sýnar í sameinuðu félagi að líkindum færður með hlutdeildaraðferð og verður því ekki hluti af samstæðureikningsskilum.

Fjárhagslegar upplýsingar um Hey og sameinað félag:

  • Niðurstöður Hey 2017: Tekjur námu 77,5 m. DKK, EBITDA 9,8 m. DKK og fjárfesting nam 7,7 m. DKK.
  • Áætlanir Hey 2018 (án samruna): Tekjur 73,3 m. DKK, EBITDA 12 m. DKK og fjárfesting 9,5 m. DKK.
  • Gera ráð fyrir að sameinað félag muni hafa u.þ.b 150 m. DKK í tekjur, EBITDU í kringum 20 m. DKK og fjárfestingar á bilinu 8-10 m. DKK.

Viðskiptin eru enn háð margvíslegum fyrirvörum, svo sem frágangi á endanlegum kaupsamningi og hluthafasamningi, sem og sambykki færeyskra samkeppnisyfirvalda.

Frekari upplýsingar og aðstoð:

  • Guðfinnur Sigurvinsson, samskiptastjóri Sýnar, í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 669-9330.

sýn

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is