AI assistant
Syn — Investor Presentation 2025
Feb 21, 2025
2210_rns_2025-02-21_e4758cc9-1c16-44dd-b48b-4a488732aec0.pdf
Investor Presentation
Open in viewerOpens in your device viewer

Ársuppgjör 2024
SYN
Lykiltölur í rekstri árið 2024

Tekjur
21.647 m.kr.
2023
21.746 m.kr.

EBIT
739 m.kr.¹
2023
1.108 m.kr.²

Afkoma
-357 m.kr.¹
2023
-327 m.kr.²

Frjálst fjárflæði
1.584 m.kr.
2023
1.002 m.kr.

Stöðugildi árslok
422
2023 árslok
466
¹Leiðrétt fyrir virðisrýmun ársins og innifelur sölu- og rekstrarhagnað af aflagðri starfsemi
²Samanburðartólur leiðréttar fyrir söluhagnaði af stofnnetssölu (+2436 m.kr.) á samanburðarári.
SYNA
Helstu niðurstöður ársins og 4F
Rekstartekjur 2024
21.647 m.kr (-0,5% frá fyrra ári)
Góður taktur
í fjarskiptum einstaklinga og fyrirtækja á fjórca ársfjörðungi 2024
- Lækkun milli ára skýrist að mestu af óreglulegum tekjuliðum, eins og IoT og búnaðarsölu hjá Endor. Tekjur af IoT hafa dregist saman um 55% á árinu, sem samsvarar 576 m.kr.
-
Endor hefur nú verið sameinað Sýn og er liður í að styrkja enn frekar lausnaframboð á fyrirtækjasviði.
-
Farsímatekjur einstaklinga jukust um 10,2% á 4F og tekjur af heimatengingum um 12,4%
- Farsímatekjur fyrirtækja jukust um 10,4% á 4F og jókst fjöldi fyrirtækjatenginga um 7% milli ára.
- Það hafa aldrei verið fleiri farsímaáskriftir hjá fyrirtækinu en í lok árs 2024 og fjölgaði áskriftum um 5% milli ára.
SÝN
Helstu niðurstöður ársins og 4F
Fjölmiðlatekjur ársins
+440 m.kr. frá fyrra ári
Auglýsingasala +10% frá fyrra ári
Áskriftartekjur -4,4% frá fyrra ári
Heildarfjöldi sjónvarpsáskrifta hefur ekki verið meiri undanfarin ár og stendur nú í um 68.000
Rekstarkostnaður
-9,1% m.kr. á 4F frá fyrra ári
- Þar af 407 m.kr. vegna Já sem varð hluti af samstæðunni á 4F 2023.
- Aukning í auglýsingasölu skýrist einkum af hækkun í auglýsingatekjum sjónvarps sem jukust um 40,8% á árinu. Tekjur í auglýsingasölu Vísis og í útvarpi jukust um 3,4% á árinu. Almennt voru tekjur af auglýsingasölu undir væntingum.
- Áskriftartekjur sjónvarps voru 106 m.kr. undir væntingum félagsins og lækkuðu um 4,4% frá fyrra ári. Skýrist m.a. af hægari fjölgun áskrifta en gert var ráð fyrir og tilfærslu áskrifta frá línulegu sjónvarpi yfir í streymisveitu Stöð 2+.
- Rekstarkostnaður dregst saman um 9,1% á fjörða ársfjörðungi sem er í takt við markmið félagsins um aukna skilvirkni.
SYNA
Virðisrýrnun á viðskiptavild
- Virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild Sýnar leiddi í ljós virðisrýrnun að fjárhæð 1.161 millj. kr.
- Helsta ástæða virðisrýrnunarinnar er hækkun á vegnum fjármagnskostnaði (WACC), sem fór úr 11,8% árið 2023 í 12,8%. Hækkunin stafar fyrst og fremst af hækkun áhættuálags sem fylgir rekstri fjarskipta- og fjölmiðlageirans.
- Einnig kemur til áhrifa að félagið hefur lækkað áður útgefnar horfur í rekstri á árinu 2025.
- Niðurstaða virðisrýrnunarprófsins er í samræmi við góða reikningsskilavenju.
- Virðisrýrnun hefur ekki áhrif á rekstrarhæfi félagsins til lengri tíma, sjóðstreymi eða lánaskilmála.
SÝN
Rekstrarreikningur
| 4F2024 | 4F2023 | %br. | 2024 | 2023 | %br. | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur og þjónusta | 5.731 | 5.874 | -2,4% | 21.647 | 21.746 | -0,5% |
| Kostnaðarverð | -3.755 | -4.468 | -16,0% | -14.357 | -14.311 | 0,3% |
| Framlegð | 1.977 | 1.406 | 40,6% | 7.291 | 7.435 | -1,9% |
| Hagnaður af stohnetssölu | 2.436 | 2.436 | ||||
| Rekstarkostnaður | -1.771 | -1.949 | -9,1% | -6.780 | -6.518 | 4,0% |
| Virðisrýrnun | -1.161 | -1.161 | ||||
| EBIT | -955 | 1.892 | -150,5% | -650 | 3.353 | -119,4% |
| Hrein fjármagnsgjöld | -308 | -356 | -13,4% | -1.290 | -1.091 | 18,2% |
| Tekjuskattur | 68 | -281 | -124,3% | 261 | -283 | -192,2% |
| Hagnaður af aflagðri starfsemi eftir skatta* | 0 | 40 | -100,0% | 161 | 130 | 23,9% |
| (Tap) hagnaður | -1.194 | 1.295 | -192,2% | -1.518 | 2.109 | -172,0% |
| EBIT* | 206 | 1.951 | 739 | 3.544 | ||
| --- | --- | --- | --- | --- |
*Rekstrarhagnaður (EBIT) án virðisrýnunar og innifelur rekstrar- og söluhagnað af aflagðri starfsemi
Helstu þættir sem hafa áhrif á 2024:
- Tekjur dragast saman um 0,5% milli ára. Þar munar mestu um 576 m.kr. samdrátt í IoT tekjum milli ára. Þá dragast tekjur af áframhaldandi starfsemi Endor um 324 m.kr. milli ára. Tekjur af kjarnastarfsemi Sýnar (fjölmiðlun, gagnaflutningur og farsimi) jukust um 4,4%.
- Kostnaðarverð nam 14.357 m.kr árið 2024 og hækkar um rúmlega 0,3% milli ára. Göð tök náðust á kostnaðarstýringu og er kostnaður í takt við markmið félagsins þrátt fyrir að stórir kostnaðarliðir innviða séu verðtryggðir.
- Rekstarkostnaður nam 6.780 m.kr. Á árinu 2024 og hækkar um tæplega 4% á milli ára. Eignfærður launakostnaður undir rekstarkostnaði lækkaði jafnframt um 131 m.kr. milli ára.
- Rekstrarhagnaður (EBIT) án virðisrýnunar nam 739 m.kr. á árinu sem innifelur rekstrar- og söluhagnað af aflagði starfsemi í samræmi við áæltanir. Tap eftir skatta á árinu án virðisrýnunar nam 357 m.kr.
- Fjármagnskostnaður hefur aukist frá því í fyrra vegna meiri lántöku félagsins. Unnið er skipulega að því að minnka skuldir, og með lækkan di vöxtum má búast við að fjármagnskostnaður fari minnkandi á næstu misserum.
SÝNA
Tekjustraumar
| 4F 2024 | 4F 2023 | % br. | 2024 | 2023 | % br. | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Fjölmiölun | 2.474 | 2.520 | -2% | 9.574 | 9.134 | 5% |
| Internet | 1.194 | 1.109 | 8% | 4.686 | 4.405 | 6% |
| Farsimi* | 947 | 934 | 1% | 3.856 | 3.808 | 1% |
| IOT | 113 | 197 | -42% | 479 | 1.055 | -55% |
| Fastlina | 106 | 111 | -5% | 419 | 446 | -6% |
| Hýsingar- og rekstrarlausnir** | 187 | 395 | -53% | 484 | 808 | -40% |
| Vörusala | 296 | 359 | -17% | 1.096 | 1.236 | -11% |
| Aðrar tekjur | 413 | 249 | 66% | 1.053 | 854 | 23% |
| Samtals tekjur | 5.731 | 5.874 | -2% | 21.647 | 21.746 | 0% |
Farsimatekjur án IoT
*án tekna af aflagóri starfsemi Endor
Fjölmiölun
Auglýsingasala jökst um tæplega 10% á árinu og skýrist að mestu af vexti í auglýsingasölu í sjónvarpi sem jökst um rúmlega 40%. Tekjur af auglýsingasölu á Vísi og í útvarpi voru undir væntingum en jukust þó um rúmlega 3%. Tekjur af sjónvarpsáskriftum lækkuðu um rúmlega 4% á árinu.
Internet
Tekjur af interneti jukust um tæplega 8% á fjórða ársfjörðungi. Fjöldaþrðun í heimatengingum var jákvæð alla mánuði ársins og jukust tekjur af heimatengingum um tæplega 10% á árinu.
Farsimi
Farsimatekjur hækka um 1% á árinu. Tekjur af farsimaáskriftum og frelsi hækka um 7,5% á árinu en tekjur af samtengi lækka um 20%. Reikitekjur standa nánast í stað milli ára. Farsimatekjur af sendafélaginu lækka tæp 16% á milli ára.
IoT
Tekjur af IoT hafa dregist saman um 55% á árinu, sem samsvarar 576 m.kr. Ákveðinn stöðuleiki hefur orðið á IoT tekjum á árinu. Mörg tækifæri til vaxtar enda IoT tæknin í stöðugri þrðun.
Hýsingar- og rekstrarlausnir
Neikvæður tekjuvöxtur skýrist af minni bùnaðarsölu hjá Endor.
Aðrar tekjur
Innifelur bótafjárhæð vegna bruna að upphæð 207 m.kr. á fjórða ársfjörðungi sem skýrir frávik milli ára.
SYNA
EBIT brú fyrir útgefnar horfur eftir 9M uppgjör

SYNA
EBIT brú 2023 / 2024

SYNA
Efnahagsreikningur
| Eignir | 31/12/2024 | 31/12/2023 | % br. |
|---|---|---|---|
| Fastafjármunir | |||
| Leigueignir | 7.723 | 8.420 | -8% |
| Rekstrarfjármunir | 3.298 | 3.290 | 0% |
| Viðskiptavild | 7.818 | 9.097 | -14% |
| Aðrar óefnislegar eignir | 5.252 | 4.976 | 6% |
| Langtímaleigukröfur | 127 | 141 | -10% |
| Eignarhlutur í félögum | 85 | 174 | -51% |
| Tekjuskattsinneign | 71 | 0 | |
| Samtals | 24.374 | 26.098 | -7% |
| Veltufjármunir | |||
| Sýningarréttir | 2.427 | 2.008 | 21% |
| Birgðir | 347 | 628 | -45% |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakr. | 3.639 | 5.576 | -35% |
| Handbært fé | 264 | 624 | -58% |
| Samtals | 6.676 | 8.837 | -24% |
| Eignir samtals | 31.050 | 34.935 | -11% |
| Skuldir og eigið fé | 31/12/2024 | 31/12/2023 | % br. |
| --- | --- | --- | --- |
| Eigið fé samtals | 8.652 | 10.288 | -16% |
| Langtímaskuldir | |||
| Vaxtaberandi skuldir | 4.126 | 4.461 | -8% |
| Leiguskuldbindingar | 11.615 | 11.964 | -3% |
| Tekjuskattsskuldbinding | 0 | 152 | -100% |
| Samtals | 15.741 | 16.577 | -5% |
| Skammtímaskuldir | |||
| Vaxtaberandi skuldir | 2.255 | 1.779 | 27% |
| Leiguskuldbindingar | 642 | 1.016 | -37% |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímask. | 3.760 | 5.275 | -29% |
| Samtals | 6.657 | 8.069 | -17% |
| Eigið fé og skuldir | 31.050 | 34.935 | -11% |
| Vaxtaberandi skuldir | 18.638 | 19.220 | |
| Hreinar vxt.ber. skuldir | 18.373 | 18.596 | |
| Eiginfjárhlutfall | 27,9% | 29,4% |
SYNA
Sjóostreymi 2024

SYNA

Treystum grunninn
SYN
2024 var ár breytinga
Greiningar og áætlanagerð í fjármálum
Umfangsmikil hagræðing og endurskipulagning
Stefnumótun og ný framtíðarsýn
- Áhersla á samvinnu, skilvirkni og vöxt.
- Samþætting starfseminnar og einföldun reksturs - Aukin skilvirkni og lægri kostnaður
- Fjölbreytt vaxtartækifæri
- Ný framkvæmdastjórn í takt við nýja stefnu
SYNA
Skipurit Sýnar frá 1.11.2024

SÝNA

Hvaö er aö frétta?
SYN
Sýn í tölum
Miðlar Sýnar ná
samanlagt til um
74%
pjöðarinnar á degi
hverjum*
Bylgjan á
20 af 20 bestu
klukkutimum í útvarpi
þrjár vikur í röð*
Útvarpsstöðvar Sýnar
áttu
50 af 50
bestu klukkutimum í útvarpi í viku 5*
Meðalstarfsaldur
7,8 ár
Visir er einn af
tveimur mest lesnu
vefjum landsins
48 56 sendar
föra upp á árinu –
Heildarfjöldi 100 í lok árs
52 af 100
stærstu fyrirtækjum
landsins eru í
viðskiptum með
fjarskipti
Aldrei fleiri í
farsímæskrift –
fjölgun um 5%
á milli ára
3,5% aukning
í heimatengingum milli
ára
7% aukning í
fyrirtækjatengingum milli ára
Auglysingasala í
sjónvarpi jökst um
40,9% á árinu
Tekjur af aualýsingum
upp um 9,8% á árinu
Öütskýrður launamunur
mælist 0,7% konum
í vil samkvæmt
jafnlaunaútttek 2024
100.000
kennitölur í viðskiptum
með fjarskipti og
sjónvarp
*Heimild: Fjölmiðlamæling Gallup
SÝNA

Framtíðarhorfur
2025
SYNA
Áætun ársins
Áætun ársins er frampung i kostnaði og afturpung i tekjum
- Innleiðing nýrra stefnu Sýnar
- Talsvert er um ytri kostnaðarverðshækkanir
- Einskiptiskostnaður vegna markaðssetningar og tækni tengt Enska boltanum.
Mikill munur verður því á fyrri og seinni árshelmingi 2025, þar sem félagið verður þá á góðri leið í átt að ásættanlegri arðsemi.

SYN
Sýn í sókn
Innleiðing nýrrar stefnu og verkefni tengd henni verða lykiláherslur á árinu 2025
- Heildstæð ásýnd, einfaldað vöruframboð og skilaboð til viðskiptavina í takt við nýja stefnu Sýnar
- Frekari áherslur á skilvirkniverkefni til að lágmarka yfirbyggingu og lækkun rekstrarkostnaðar
- Áhersla á aðgerðir til að hámarka framlegð niður á starfsþætti
- Áframhaldandi áhersla á eflingu mannauðs og bætta upplifun viðskiptavina
- Sendafélagið – aukin samnýting innviða og frekari samrekstur og framsal virkra farnetseigna inn í Sendafélagið


SÝN
Enski boltinn snýr heim í haust
- Sýn hefur tryggt sér sýningarrétt að Ensku úrvalsdeildinni næstu þrjú tímabil.
- Sýningar hefjast um miðjan ágúst.
- 380 leikir fara fram á tímabilinu og verða allir sýndir á íþróttarásum Sýnar.
- Sýn er einnig með sýningarréttinn að öllum leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu og sýnir í opinni dagskrá.
- Sýn er þar að auki rétthafi að Meistaradeild Evrópu, Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni.
- Frá og með haustinu verður hægt að sjá allt vinsælasta íþróttaefni sem boðið er upp á íslensku sjónvarpi hjá Sýn.

SÝN
Sýn í sókn – Spennandi tækifæri til vaxtar

Vaxtartækifæri á fyrirtækjamarkaði
Lausnáherslur í fjarskiptum og
upplýsingatækni. Aukið
vóruframboð fyrir fyrirtæki og
starfsmenn þeirra og sérstök
áhersla á fjölgun viðskiptavina á
landsbyggðinni

Sókn á einstaklingsmarkaði
Enski boltinn kemur heim og í haust
munu íslenskir neytendur geta
nálgast allt vinsælasta íþróttaefni
sem í boði er í íslensku sjónvarpi á
einum stað. Dagskrárstefna
endurskoðuð, einfaldara
vóruframboð og miklir möguleikar í
krosssölu

Breytingar í auglýsingasölu
Endurskoðun á sviðinu og nýtt
fyrirkomulag innleitt með það að
markmiði að efla nýtingu miðlanna
og hámarka auglýsingatekjur
Afkomuspa fyrir árið 2025 gerir ráð fyrir að
rekstrarhagnaður (EBIT) verði á bilinu 800 – 1.200 m.kr.
SÝN

Spurningar?
SYNA
Fyrirvari á uppgjörskynningu
Upplysingar í þessari kynningu byggja á heimildum sem Sýn hf. telur áreiðanlegar á hverjum tíma. Ekki er þó ekki hægt að tryggja að fullu að þær séu óskeikular.
Allar upplýsingar í kynningu þessari eru í eigu Sýn hf. Kynningu þessa og upplýsingar sem í henni eru er óheimilt að afrita, breyta eða dreifa á nokkurn hátt, hvorki að öllu leyti né að hluta.
Þessi kynning er eingöngu hugsuð til upplýsingagjafar en ekki ætluð sem hluti af eða grundvöllur ákvarðanatöku þeirra aðila sem fá hana í hendur. Viðtakendur eiga því ekki að nokkru leyti að túlka innihald kynningarinnar sem loforð eða leiðbeiningar. Sýn hf. er ekki á nokkurn hátt skylt að veita viðtakendum kynningarinnar frekari upplýsingar um félagið né gera breytingar eða leiðréttingar á henni ef þær upplýsingar sem liggja til grundvallar breytast.
Sérhver yfirlýsing í kynningu þessari sem vísar til framtíðaráætlunar eða framtíðarárangurs er einungis spá um framtíðarhorfur félagsins, byggð á núverandi þróun, upplýsingum og áætlunum. Framtíðarhorfur félagsins eru háðar fjölda áhættu- og óvissuþátta sem getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert
frábrugðinn því sem spáð er í kynningu þessari. Ytri þættir á borð við framboð á fjármagni, gildistaka laga, áhrif eftirlitsaðila ásamt öðru geta því haft veruleg áhrif.
Sýn hf. mun ekki uppfæra framtíðarhorfur félagsins í kynningu þessari vegna aðstæðna sem munu til koma eftir að hún hefur verið sett fram. Sýn hf. bendir á að viðtakendur kynningar þessarar eiga ekki að treysta á staðhæfingar kynningarinnar á síðari tímum þar sem þær eiga eingöngu við á þeim degi sem kynningin er gefin út. Allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins eru fullgildar í heild sinni með tilliti til þessara fyrirvara.
Með móttöku kynningar þessarar staðfestir viðkomandi að hann sé bundinn framangreindum fyrirvörum og takmörkunum.
SÝNA