AI assistant
Syn — Investor Presentation 2021
Feb 24, 2021
2210_rns_2021-02-24_ef567280-dc30-4f0c-afe8-090d585380b4.pdf
Investor Presentation
Open in viewerOpens in your device viewer
Ársuppgjör 2020 og árslutauppgjör 4F 2020
- febrúar 2021
vodafone visir SPORT BYLGJAN 98
ENDOR
Ár viðsnúnings
- Áætlanir síðasta árs gerðu ráð fyrir hagnaði en samdráttur vegna heimsfaraldursins kom í veg fyrir það.
- Ánægja viðskiptavina er ávallt í fyrirrúmi.
- Innleiðing nýrrar vörumerkja- og þjónustustefnu leiddi til stóraukinnar ánægju viðskiptavina.
- Í maí á síðasta ári fórum við af stað með verkefni þar sem haft var samband við viðskiptavini af okkar frumkvæði þar sem markmiðið var að þjónusta viðskiptavininn betur og tryggja að allir væru í réttum þjónustuleiðum.
- Í upphafi verkefnis skilgreindum við viðskiptavinahópinn sem við ætluðum okkur að hafa samband við. Nú 9 mánuðum síðar höfum við lokið samskiptum við 61% af hópnum eða um 25 þúsund heimili.
- Mikilvægasti vegvísir til lengri tíma er ánægja viðskiptavina, sem mæld er í NPS könnun og vitnar um árangur í samkeppni og framtíðarávinning. Það var mikið ánægjuefni hversu mikið stökk Vodafone tók í íslensku ánægjuvoginni.
Jákvæður viðsnúningur í ánægju viðskiptavina

• Könnunin var lögð fram af Vodafone
Lykiltölur úr rekstri
Ársuppgjör 2020

Tekjur
20.786 m.kr.
2019
19.811 m.kr.

EBITDA
5.739 m.kr.
2019
5.509 m.kr.

Afkoma
-405 m.kr.
2019
-1.748 m.kr.

Frjálst fjárflæði
3.210 m.kr.
2019
1.682 m.kr.
Rekstrarreikningur
| 4F 2020 | 4F 2019 | % br. | 2020 | 2019 | % br. | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur og bjónusta | 5.413 | 4.935 | 9,7% | 20.786 | 19.811 | 4,9% |
| Kostnadarverð | -3.812 | -3.098 | 23,0% | -14.278 | -12.589 | 13,4% |
| Framlegð | 1.601 | 1.837 | -12,8% | 6.508 | 7.222 | -9,9% |
| Rekstrarkostnadur | -1.625 | -1.570 | 3,5% | -6.347 | -6.720 | -5,5% |
| Virðisrýrnun | - | -2.452 | - | 0 | -2.452 | - |
| EBITDA | 1.427 | 1.409 | 1,3% | 5.739 | 5.509 | 4,2% |
| EBIT | -24 | -2.185 | - | 161 | -1.950 | - |
| Hrein fjármagnsgjöld | -118 | -185 | - | -910 | -995 | - |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 27 | 119 | - | 98 | 963 | - |
| Tekjuskattur | 112 | 119 | - | 246 | 234 | - |
| Tap tímabilsins | -3 | -2.132 | - | -405 | -1.748 | - |
| Framlegð | 29,6% | 37,2% | 31,3% | 36,5% | ||
| EBITDA | 26,4% | 28,6% | 27,6% | 27,8% | ||
| EBIT | -0,4% | -44,3% | 0,8% | -9,8% |
Helstu þættir sem hafa áhrif á 4F og 12M 2020
- Framlegð lækkar tölvert á milli ára sem skýrist helst af því að framlegð af þjónustu og sölu Endor er mun lægri en framlegð móðurfélagsins. Framlegð milli ársfjörðunga lækkar vegna verulegrar búnáðarsölu hjá Endor og aukinnar vörusölu.
- Veiking krónunnar hefur áhrif til hækkunar á kostnadarverði en erlendu innkaupin eru mest í evru og dollar. Krónan veiktist um 17,5% gagnvart evrunni og 9,3% gagnvart dollaranum á 4F samanborið við sama tímabil árið 2019.
- Rekstrarkostnadur lækkar um 373 m.kr. á milli ára. Hagræðingaraðgerðir farnar að skila sér en mestu áhrifin eru á launa og starfsmannakostnað, aðkeypta þjónustu og húsnaðiskostnað.
- Söluhagnaður að fjárhæð 872 m.kr. er innifalinn í hreinum fjármagnsgjöldum árið 2019. Vaxtagjöld af langtímaskuldum lækka um 287 m.kr. á milli ára.
- Árið 2020 var gengistap 205 m.kr. samanborið við 35 m.kr. árið 2019.
tekjustraumar
| 4F 2020 | 4F 2019 | % br. | 2020 | 2019 | % br. | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Fjölmiðlun | 2.085 | 2.079 | 0% | 7.808 | 8.367 | -7% |
| Internet | 1.115 | 1.182 | -6% | 4.557 | 4.811 | -5% |
| Farsími | 838 | 953 | -12% | 3.512 | 3.902 | -10% |
| Fastlína | 141 | 174 | -19% | 608 | 789 | -23% |
| Hýsingar- og rekstrarlausnir | 662 | - | - | 2.420 | 0 | - |
| Vörusala | 353 | 342 | 3% | 1.082 | 1.122 | -4% |
| Aðrar tekjur | 219 | 205 | 7% | 799 | 820 | -3% |
| Samtals tekjur | 5.413 | 4.935 | 10% | 20.786 | 19.811 | 5% |
Fjölmiðlun
- Það dregur úr samdrætti á auglýsingatekjum en lækkun á milli ára nemur 11%, sem skýrist helst af COVID-19. Tekjur af sjónvarpsdreifingu aukast um 18% á milli ára. Jákvæð þróun í áskriftartekjum á seinni helmingi ársins þar hefur breyting í vöruframboði haft góð áhrif.
Internet
- Tekjur vegna internets dragast saman á milli ára en samdrátturinn er sambærilegur á milli fyrirtækja- og einstaklingsmarkaðar.
Farsími
- Farsímatekjur lækká um 10% á milli ára. Lækkunin skýrist helst af 64% samdrætti í reikitekjum milli ára. Það ásamt áherslu ársins á rétt vöruframboð til viðskiptavina hefur haft áhrif til lækkunar á meðaltekjum af farsímabjónustu á árinu. Jákvæð þróun hefur verið í fjölda viðskiptavina milli ára.
Vörusala
- Vörusala hefur verið að taka við sér og jókst hún um 3% á 4F 2020 en framlegðin af vörusölu er lág.
Áhrif COVID-19 á rekstur samstæðunnar

Áhrif á EBITDA

Áhrif á EBITDA framlegð
- Vegna ferðatakmarkana í kjölfarið af COVID-19 hafa reikitekjur dregist verulega saman.
- Á myndunum hér að ofan hefur verið leiðrétt fyrir neikvæðum áhrifum heimsfaraldursins á reikitekjur félagsins. Leiðrétt EBITDA er 5.940 m.kr. árið 2020 sem er 201 m.kr. hærri en raun EBITDA. Ekki hefur verið leiðrétt fyrir öðrum áhrifum af COVID-19 en áhrifin eru til að mynda tóluverð á auglýsingatekjur.
- Raun EBITDA framlegð var 27,6% árið 2020 en leiðrétt EBITDA framlegð 28,2%.
- Neikvæðu áhrifin eru mest á þriðja ársfjórðungi eða 91 m.kr.
Efnahagsreikningur
Eignir
| 31.12.2020 | 31.12.2019 | % Br, | |
|---|---|---|---|
| Fastafjármunir | |||
| Leigueignir | 5.227 | 5.828 | -10% |
| Rekstrarfjármunir | 3.818 | 4.793 | -20% |
| Viðskiptavild | 8.932 | 8.787 | 2% |
| Aðrar óefnislegar eignir | 4.403 | 4.648 | -5% |
| Eignarhlutur í félögum | 1.398 | 1.383 | 1% |
| Tekjuskattsinneign | 383 | 97 | 295% |
| Samtals | 24.161 | 25.536 | -5% |
| Veltufjármunir | |||
| Sýningarréttir | 1.876 | 1.814 | 3% |
| Birgðir | 241 | 427 | -44% |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakr. | 3.217 | 3.567 | -10% |
| Handbært fé | 831 | 634 | 31% |
| Samtals | 6.165 | 6.442 | -4% |
| Eignir flokkaðar til sölu | 536 | ||
| Eignir samtals | 30.862 | 31.978 | -3% |
Skuldir og eigið fé
| 31.12.2020 | 31.12.2019 | % Br, | |
|---|---|---|---|
| Eigið fé samtals | 8.549 | 8.798 | -3% |
| Langtímaskuldir | |||
| Vaxtaberandi skuldir | 9.492 | 10.898 | -13% |
| Leiguskuldbindingar | 4.507 | 5.390 | -16% |
| Aðrar langtímaskuldir | 166 | 252 | -34% |
| Tekjuskattsskuldbinding | 16 | 9 | 76% |
| Samtals | 14.181 | 16.549 | -14% |
| Skammtímaskuldir | |||
| Vaxtaberandi skuldir | 992 | 689 | 44% |
| Leiguskuldbindingar | 1.259 | 938 | 34% |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímask. | 5.699 | 5.004 | 14% |
| Samtals | 7.950 | 6.631 | 20% |
| Skuldir vegna eigna flokkaðar til sölu | 182 | ||
| Eigið fé og skuldir | 30.862 | 31.978 | -3% |
| Vaxtaberandi skuldir | 16.251 | 17.915 | |
| Hreinar vxt.ber. skuldir | 15.419 | 17.281 | |
| Eiginfjáhlutfall | 27,8% | 27,5% |
Efnahagur - Lykilmælikvarðar

Eignifjárhlutfall


Veltufjárhlutfall*


31.12.18 31.12.19 31.12.20

Hreinar vaxtaberandi skuldir

31.12.18 31.12.19 31.12.20
Athugið: Hreinar vaxtaberandi skuldir í árslok 2018 eru ekki samanburðarhaefar við árslok 2019 og 2020 þar sem áhrif IFRS 16 koma ekki inn þar.
*Veltufjármunir / viðskiptaskuldum og öðrum skammtímaskuldum
Sjóostreymi

| 4F 2020 | 4F 2019 | % Br. | 2020 | 2019 | % Br. | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | 2.225 | 2.141 | 4% | 6.626 | 6.304 | 5% |
| Fjárfestingahreyfingar* | -1.071 | -1.572 | -32% | -3.416 | -4.622 | -26% |
| Frjálst fjárflæði | 1.154 | 569 | 103% | 3.210 | 1.682 | 91% |
- Kaup á eignarhlutum er undanskilið
Tækifæri á ýmsum sviðum

Árið 2021
- Óvissa er ennbá til staðar með áhrif heimsfaraldsins á rekstur félagsins
- Áfram vinna í takt við stefnu félagsins
- Einföldun rekstrar
- Sterkara og skýrara võruframboð
- Aukin áhersla á võruþróun og markaðsmál
- Fjárfesting í hugbúnaðarþróun, einföldun og aukin sjálfvirknivæðing
- Áframhaldandi hagræðingaraðgerðir
- Stefnt er að aukningu EBITDA framlegðar
- Fjárfestingar eru áætlaðar á bilinu 1 – 1,5 milljarður.

Fjölmiðlun
- Viðskiptavinir hafa almennt verið ánægðir með breytt vöruframboð Stöðvar 2, þar sem aukin áhersla er á innlenda dagskrárgerð. Frá því ákvörðun var tekin um að loka alfarið Stöð 2 hefur áhorf aukist hægt og bítandi á milli áhorfsmælinga og er nú hlutdeild Stöðvar 2 á markaði orðin sú sama og síðustu vikurnar fyrir lokun opna gluggans.
- Breytingar á áskriftaleiðum Stöð 2 Sport, þar sem viðskiptavinir geta nú valið um að kaupa innlenda eða erlenda áskrift á áður óþekktu verði, hefur gefið góða raun. Áskrifendum Stöð 2 Sport fjölgaði um 26% á milli desember 2019 og 2020.
- Efnisveitan, Stöð 2 + hefur vaxið mikið og á síðasta ári fjölgaði áskrifendum um rúm 9% á milli desember 2019 og 2020 og fjöldi spilana jókst um 161%.
- Bylgjan er stærsta útvarpsstöð landsins með um 158.000 hlustendur á viku.
- Vísir er stærsti vefmiðill landsins með 205.000 meðal notendur á viku og jukust auglýsingatekjur af miðlinum um 15% á milli 4F 2020 og 4F 2019.

Stöð 2 +
Próun fjölda áskrifenda árið 2020

Stöð 2 Sport
Próun fjölda áskrifenda árið 2020
Uppbygging fjarskipta
- I september 2020 kveikti Sýn á fyrsta 5G sendinum fyrir farsíma.
- Uppbygging hefur gengið hægar en vonir stóðu til um.
- Ástæðan er að skilmálar stjórnvalda varðandi úthlutun varanlegra tíðniheimilda liggur ekki fyrir.
- Hlutanet (e. Internet of Things, IoT) er einn af vaxtarbroddum í fjarskiptum, þar sem tæki tala við tæki.
- Árið 2020 var mikill vöxtur í þessum tekjulið.
- Í meira en áratug hefur félagið unnið með Controlant, meðal annars við gerð fyrstu sérhæfðu kortanna í mæla félagsins.
- Með samningi Controlant við Pfizer hefur vöxtur í IoT verið ævintýralegur.
- Samningur við Veitur felur í sér að Sýn mun tengja snjallmæla félagsins á um 160.000 stöðum.
- Samstarf við Vodafone Global gerir það að verkum að nánast allir nýir bílar sem koma til landsins munu tengjast við símkerfi Vodafone.

IOT
Þróun tekna og fjölda korta árið 2020
Vodafone er í fararbroddi í uppbyggingu fjarskiptakerfis framtíðar...
Sala á óvirkum farsímainnviðum
- Samkomulag hefur tekist í öllum megin atriðum varðandi sölá á óvirkum innviðum farsímakerfisins. Fjárhagslegir skilmálar verða í samræmi við fyrri tilkynningar til Kauphallar. Stjórn félagsins hefur veitt stjórnendum umboð til að undirrita nauðsynleg skjöl á þeirri forsendu að skjalagerð verði að fullu lokið í síðasta lagi fyrir birtingu árshlutareiknings 1. fjórðungs 2021, en stefnt er að því að undirritun samninga takist vel fyrir þann tíma.
- Með aðskilnaði óvirkra innviða fjarskiptakerfisins eykst skilvirknin.
- Þá aukast líka tækifærin til sameiginlegrar uppbyggingar á 5G.
- Allt miðar þetta í sömu átt, að gera fyrirtækið sveigjanlegra, hluthöfum og viðskiptavinum til hagsbóta.
- Í samræmi við stefnu félagsins um einföldum þá er verið að skoða sölá á öðrum innviðum þess.

| Asset | Owner |
|---|---|
| 1 Active radio transmission equipment | Vodafone |
| 2 Antennae & cables (fibre / feeders) | Vodafone |
| 3 Physical tower, masts & pole | TowerCo |
| 4 Foundation & fencing | TowerCo |
| 5 Contractual right to occupy site area | TowerCo |
| 6 Power equipment | TowerCo |
| 7 Cooling system | TowerCo |
| Asset | Owner |
| --- | --- |
| 8 Surveillance systems | TowerCo |
| 9 Access facilities | TowerCo |
| 10 Outdoor cabinet | Vodafone |
| 11 Shelter / service rooms | TowerCo |
| 12 Emergency equipment | TowerCo |
| 13 Cable routing (duct) | TowerCo |
| 14 Mounting equipment | TowerCo |
Þróun hlutabréfaverðs og velta á markaði


- Gildi - Lífeyrissjóður
- Lífeyrissjóður verslunarmanna
- Kvika banki hf.
- Birta lífeyrissjóður
- Ursus ehf.
- Arion banki hf.
-
Lífeyrissj. Starfsm.rík. A-deild
-
Gengi félagsins hækkaði um 11,4% á milli ára. Frá því í lok ágúst hefur gengið félagsins hækkað stöðugt og var það hæst undir lok árs.
- Velta með bréf félagsins nam rúmlega 6,5 milljörðum króna í alls 1.404 viðskiptum.
- Fjöldi viðskipta jókst um 54,5% á milli ára.
Fyrirvari á uppgjörskynningu
Upplysingar í þessari kynningu byggja á heimildum sem Sýn hf. telur áreiðanlegar á hverjum tíma. Ekki er þó ekki hægt að tryggja að fullu að þær séu óskeikular.
Allar upplýsingar í kynningu þessari eru í eigu Sýn hf. Kynningu þessa og upplýsingar sem í henni eru er óheimilt að afrita, breyta eða dreifa á nokkurn hátt, hvorki að öllu leyti né að hluta.
Þessi kynning er eingöngu hugsuð til upplýsingagjafar en ekki ætluð sem hluti af eða grundvöllur ákvarðanatöku þeirra aðila sem fá hana í hendur. Viðtakendur eiga því ekki að nokkru leyti að túlka innihald kynningarinnar sem loforð eða leiðbeiningar. Sýn hf. er ekki á nokkurn hátt skylt að veita viðtakendum kynningarinnar frekari upplýsingar um félagið né gera breytingar eða leiðréttingar á henni ef þær upplýsingar sem liggja til grundvallar breytast.
Sérhver yfirlýsing í kynningu þessari sem vísar til framtíðaráætlunar eða framtíðarárangurs er einungis spá um framtíðarhorfur félagsins, byggð á núverandi þróun, upplýsingum og áætlunum. Framtíðarhorfur félagsins eru háðar fjölda áhættu- og óvissuþátta sem getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í kynningu þessari. Ytri þættir á borð við framboð á fjármagni, gildistaka laga, áhrif eftirlitsaðila ásamt öðru geta því haft veruleg áhrif.
Sýn hf. mun ekki uppfæra framtíðarhorfur félagsins í kynningu þessari vegna aðstæðna sem munu til koma eftir að hún hefur verið sett fram. Sýn hf. bendir á að viðtakendur kynningar þessarar eiga ekki að treysta á staðhæfingar kynningarinnar á síðari tímum þar sem þær eiga eingöngu við á þeim degi sem kynningin er gefin út. Allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins eru fullgildar í heild sinni með tilliti til þessara fyrirvara.
Með móttöku kynningar þessarar staðfestir viðkomandi að hann sé bundinn framangreindum fyrirvörum og takmörkunum.

Takk fyrir
vodafone
14
visir
14
SPORT
BYLGJAN 989
FM957
X