Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Interim / Quarterly Report 2024

May 7, 2024

2210_rns_2024-05-07_7299fc09-ba65-4520-96b1-d0092dc11ea5.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sýn hf.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu

  1. janúar til 31. mars 2024

img-0.jpeg

vodafone

visir

SPORT

BYLGJAN

X

E

ENDOR

Sýn hf. | Suðurlandsbraut 8 | 108 Reykjavík | kt. 470905-1740


Efnisyfirlit

Bls.

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra 3
Fjárhagslegar lykiltölur 4
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu 5
Efnahagsreikningur 6
Eiginfjáryfirlit 7
Sjóðstreymisyflit 8
Skýringar við samandreginn árshlutareikning 9

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Sýn hf. er alhliða félag á sviði fjarskipta- og fjölmiðlastarfsemi. Félagið rekur marga af öflugustu fjölmiðlum landsins eins og Stöð 2, Stöð 2+, Stöð 2 Sport, Vísi, Bylgjuna, FM957, Xið og fleiri landsbekkta miðla. Félagið veitir einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og opinberum aðilum alhliða fjarskipta- og upplýsingatækniþjónustu undir vörumerkjum Vodafone á Íslandi ásamt dótturfélögunum Endor ehf. og Já hf. (dótturfélag Eignarhaldsfélagsins Njálu ehf.). Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims.

Árshlutareikningurinn hefur að geyma samandreginn samstæðureikning Sýnar hf. og dótturfélaga þess (Endor ehf. og Eignarhaldssfélagið Njála ehf.) ásamt hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga. Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Rekstur fjórðungsins

Samkvæmt rekstrarreikningi námu tekjur samstæðunnar af seldum vörum og þjónustu 5.934 millj. kr. samanborið við 5.860 millj. kr. á sama tímabili árið 2023. Tap af rekstri samstæðunnar á tímabilinu nam 153 millj. kr. samanborið við 213 millj. kr. hagnað á sama tímabili árið 2023. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 34.042 millj. kr. í lok tímabilsins. Eigið fé samstæðunnar nam 10.053 millj. kr. og var eiginfjárhlutfallið 29,5%.

Kaup á eigin bréfum

Þann 9. nóvember 2023 hófst endurkaupaáætlun sem lauk 16. febrúar 2024. Á fjórðungnum keypti félagið 1.598.815 hluti fyrir 76 millj. kr. Þann 11. apríl var hlutaféð lækkáði í samræmi við fjölda eigin hluta og voru útgefnir hlutar í félaginu 247.648.960 eftir lækkunina. Skráning hjá Nasdaq á útgefnu hlutafé verður uppfærð í samræmi á 2. ársfjórðungi.

Yfirlýsing

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga IAS 34 eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu 31. mars 2024 ásamt rekstrarafkomu og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2024.

Stjórn og forstjóri Sýnar hf. hafa í dag fjallað um samandreginn árshlutareikning samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2024 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Reykjavík, 7. maí 2024

Stjórn

Hákon Stefánsson, stjórnarformaður

Rannveig Eir Einarsdóttir, varaformaður

Petrea Ingileif Guðmundsdóttir

Páll Gíslason

Ragnar Páll Dyer

Forstjóri

Herdís Dröfn Fjeldsted

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2024

Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Fjárhagslegar lykiltölur

2024 2023
1F 1F
Fjárhagsupplýsingar
Heildartekjur 5.934 5.860
Rekstrarhagnaður (EBIT) 119 428
EBITDA tímabilsins 1.379 1.497
(Tap) hagnaður fyrir tekjuskatt (200) 218
(Tap) hagnaður tímabilsins (153) 213
(Tap) hagnaður á hlut (0,62) 0,79
Fjárfestingar í rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum 443 559
Fjárfestingar í sýningarrétti 500 561
Frjálst fjárflæði (FCF) 269 53
Handbært fé frá rekstri 893 921
31.3. 31.12.
2024 2023
Hreinar vaxtaberandi skuldir* 18.765 18.596

*Viðskiptakrafa vegna sölu á stofnneti er ekki færð til lækkunar á hreinum vaxtaberandi skuldum.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2024
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu

  1. janúar til 31. mars 2024

| | Skýr. | 2024
1F | 2023
1F |
| --- | --- | --- | --- |
| Seldar vörur og bjónusta | 5 | 5.934 | 5.860 |
| Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu | 6 | ( 4.082) | ( 3.791) |
| Framlegð | | 1.852 | 2.069 |
| Rekstrarkostnaður | 7 | ( 1.733) | ( 1.641) |
| Rekstrarhagnaður | | 119 | 428 |
| Fjármunatekjur | | 16 | 19 |
| Fjármagnsgjöld | | ( 340) | ( 275) |
| Gengismunur | | 5 | 46 |
| Hrein fjármagnsgjöld | | ( 319) | ( 210) |
| (Tap) hagnaður fyrir tekjuskatt | | ( 200) | 218 |
| Tekjuskattur | | 46 | ( 5) |
| (Tap) hagnaður tímabilsins | | ( 153) | 213 |
| Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé: | | | |
| Þýðingarmunur | | ( 5) | ( 17) |
| Heildarafkoma tímabilsins | | ( 158) | 196 |
| (Tap) hagnaður á hlut | | ( 0,62) | 0,79 |

Skýringar á bls. 9-11 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings samstæðunnar.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2024 5

Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Efnahagsreikningur

  1. mars 2024
Skýr. 31.3.2024 31.12.2023
Fastafjármunir
Leigueignir 8.089 8.420
Rekstrarfjármunir 3.212 3.290
Viðskiptavild 9.094 9.097
Aðrar óefnislegar eignir 5.099 4.976
Langtímaleigukröfur 137 141
Eignahlutir í félögum 174 174
Fastafjármunir samtals 25.806 26.098
Veltufjármunir
Sýningarréttir 2.020 2.008
Birgðir 557 628
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 9 5.600 5.576
Handbært fé 58 624
Veltufjármunir samtals 8.235 8.837
Eignir samtals 34.042 34.935
Eigið fé
Hlutafé 2.477 2.493
Yfirverðsreikningur hlutafjár 542 602
Annað eigið fé 326 274
Óráðstafað eigið fé 6.710 6.920
Eigið fé 10.053 10.288
Langtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 4.377 4.461
Leiguskuldbindingar 11.823 11.964
Tekjuskattsskuldbinding 108 152
Langtímaskuldir samtals 16.308 16.577
Skammtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 1.838 1.779
Leiguskuldbindingar 784 1.016
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 10 5.058 5.275
Skammtímaskuldir samtals 7.680 8.069
Skuldir samtals 23.988 24.646
Eigið fé og skuldir samtals 34.042 34.935

Skýringar á bls. 9-11 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings samstæðunnar.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2024 6

Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Eiginfjáryfirlit

  1. janúar til 31. mars 2024
Hlutafé Yfirverð Annað eigið fé Óráðstafað eigið fé Eigið fé samtals
Þýðingar-munur Bundinn reikningur

1.1. til 31.3.2023

Eigið fé 1.1.2023 2.668 806 50 79 5.866 9.469
Hagnaður tímabilsins - - - - 213 213
Þýðingarmunur - - (17) - - (17)
Heildarafkoma tímabilsins 0 0 (17) 0 213 196
Keypt eigin bréf (158) (772) 0 0 0 (930)
Hagn.dóttur fél. umfram arðgr. 0 0 0 16 (16) 0
Ákvarðaður arður 0 0 0 0 (281) (281)
Eigið fé 31.3.2023 2.510 34 33 95 5.782 8.454

1.1. til 31.3.2024

Eigið fé 1.1.2024 2.493 602 48 226 6.920 10.288
Tap tímabilsins - - - - (153) (153)
Þýðingarmunur - - (5) - - (5)
Heildarafkoma tímabilsins 0 0 (5) 0 (153) (158)
Keypt eigin bréf (16) (60) - - - (76)
Hagn.dóttur fél. umfram arðgr. - - - 57 (57) 0
Eigið fé 31.3.2024 2.477 542 43 283 6.710 10.053

Á fjóðungnum keypti félágið 1.598.815 hluti fyrir 76 millj. kr. Fyrir átti félágið 1.753.979 hluti. Á aðalfundi félagsins þann 11. apríl var sambykkt að lækka hlutafé í samræmi við fjölda eigin hluta Eftir lok tímabilsins, þann 11. apríl, var hlutaféð lækkað í samræmi við fjölda eigin hluta og eru útgefnir hlutir í félaginu 247.648.960 eftir lækkunina. Skráning hjá Nasdaq á útgefnu hlutafé verður uppfærð í samræmi á 2. ársfjóðungi.

Skýringar á bls. 9-11 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings samstæðunnar.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2024 7

Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Sjóðstreymisyfirlit

  1. janúar til 31. mars 2024

| | Skýr. | 2024
1F | 2023
1F |
| --- | --- | --- | --- |
| (Tap) hagnaður tímabilisins samkvæmt rekstrarreikningi | | (153) | 213 |
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | | | |
| Afskriftir | 8 | 1.259 | 1.068 |
| Hrein fjármagnsgjöld | | 319 | 210 |
| Tekjuskattur | | (46) | 5 |
| Veltufé frá rekstri | | 1.379 | 1.496 |
| Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum: | | | |
| Birgðir, breyting | | 71 | (262) |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, breyting | | (29) | 359 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, breyting | | (209) | (420) |
| Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | | 1.213 | 1.173 |
| Innborgaðar vaxtatekjur | | 16 | 19 |
| Greidd vaxtagjöld | | (336) | (271) |
| Handbært fé frá rekstri | | 893 | 921 |
| Fjárfestingahreyfingar | | | |
| Fjárfesting í rekstrarfjármunum | | (107) | (312) |
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | | (336) | (247) |
| Fjárfesting í sýningarrétti | | (500) | (561) |
| Fjárfestingahreyfingar samtals | | (943) | (1.120) |
| Fjármögnunarhreyfingar | | | |
| Afborganir vaxtaberandi skulda | | (84) | (132) |
| Rekstrarlán, breyting | | 58 | 120 |
| Afborgun leiguskuldbindinga | | (412) | (317) |
| Keypt eigin bréf | | (76) | (930) |
| Fjármögnunarhreyfingar samtals | | (514) | (1.259) |
| Breyting á handbæru fé | | (564) | (1.458) |
| Handbært fé í byrjun tímabils | | 624 | 2.063 |
| Gengisbreyting á handbæru fé og þýðingarmunur | | (2) | (1) |
| Handbært fé í lok tímabilsins | | 58 | 603 |

Skýringar á bls. 9-11 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings samstæðunnar.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2024
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar

1. Félagið

Sýn hf. („félagið“) er íslensk hlutafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík. Sýn hf. veitir einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum alhliða fjarskipta-, fjölmiðla, og tæknibjónustu í gegnum vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+, Stöð 2 Sport, Vísi, Bylgjuna, FM957, X 977, Já og dótturfélagið Endor ehf. Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims. Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2024 hefur að geyma árshlutareikning félagsins, dótturfélaga þess, Endor ehf. og Eignarhaldsfélagsins Njálu ehf., ásamt hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf., sem vísað er til í heild sem „samstæðunnar“.

2. Reikningsskilin

a. Grundvöllur reikningsskilanna

Árshlutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga. Árshlutareikningur samstæðunnar 1. janúar til 31. mars 2024 hefur hvorki verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Árshlutareikningurinn er gerður eftir sömu reikningsskilareglum og lágu til grundvallar við gerð ársreikningsins 2023. Hann inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning samstæðunnar fyrir árið 2023. Hægt er að nálgast ársreikning Sýnar hf. á heimasíðu félagsins www.syn.is. og á vef Kauphallar Íslands, www.nasdaqomxnordic.com.

b. Mat stjórnenda á reikningsskilum

Gerð samstæðuárshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og dragi ályktanir sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna og skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrögur þessu mati.

3. Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill

Samstæðuárshlutareikningur félagsins er birtur í íslenskum krónum, sem er framsetningargjaldmiðill samstæðunnar. Allar fjárhæðir eru birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.

4. Starfsþáttayfirlit

Félagið skilgreinir starfsþætti eftir innri upplýsingagjóf til stjórnenda og telst samstæðan í heild vera einn starfsþáttur.

5. Seldar vörur og þjónusta

2024 2023
Seldar vörur og þjónusta greinast þannig: 1F 1F
Vörusala 288 329
Seld þjónusta 5.646 5.531
Seldar vörur og þjónusta samtals 5.934 5.860
Tekjustraumar Fjöl-míðlun Internet Farsími Fastlína Hýsingar- og rekstrar lausnir
--- --- --- --- --- ---
1.1. til 31.3.2024
Tekjur 2.381 1.147 1.062 106 708
1.1. til 31.3.2023
--- --- --- --- --- ---
Tekjur 2.165 1.109 1.200 116 702

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2024
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

  1. Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu
Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu greinist þannig: 2024 2023
1F 1F
Kostnaðarverð seldrar vöru og bjónustu 2.382 2.343
Laun og launatengd gjöld 802 728
Eignfærð laun (68) (56)
Afskriftir 966 777
Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu samtals 4.082 3.791
  1. Rekstrarkostnaður
Rekstrarkostnaður greinist þannig: 2024 2023
1F 1F
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður 444 394
Sölu- og markaðskostnaður 123 114
Laun og launatengd gjöld 970 918
Eignfærð laun (100) (77)
Afskriftir 294 292
Rekstrarkostnaður samtals 1.733 1.641
  1. Afskriftir
Afskriftir í rekstrarreikningi greinast þannig: 2024 2023
1F 1F
Afskriftir rekstrarfjármuna 209 226
Afskriftir óefnislegra eigna 187 179
Afskriftir afnotaréttar 374 334
Afskriftir sýningarréttar 488 329
Afskriftir samtals 1.259 1.068

Endursamningar við birgja hafa áhrif á afskriftir fyrsta fjörðungs 2023 til lækkunar.

  1. Víðskiptakröfur
Víðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur greinast þannig: 31.03.2024 31.12.2023
Víðskiptakröfur 3.661 3.269
Víðskiptakrafa vegna sölu á stofneti 1.570 2.000
Aðrar skammtímakröfur 397 333
Leigukröfur 28 28
Niðurfærsla viðskiptakrafna (55) (53)
Víðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur samtals 5.600 5.576

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2024
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

10. Viðskiptaskuldir

Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast pannig: 31.03.2024 31.12.2023
Viðskiptaskuldir 2.615 3.261
Ögreiddur virðisaukaskattur 517 251
Fyrirfram innheimtar tekjur 536 591
Ögreiddur áfallinn kostnaður og aðrar skammtímaskuldir 1.389 1.173
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals 5.058 5.275

11. Önnur mál

Sýn hf. („félagið“) á í málarekstri við einstaklinga, önnur félög og eftirlitsstofnanir í íslenskum fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði. Félagið færir skuldbindingar og/eða kröfur vegna málarekstur þegar hægt er að meta framtiðar greiðslur og ávinning með áþreifanlegum hætti. Vegna óvissu um framtiðarþrúun málarekstrar, niðurstöður dómsmála, úrskurði, áfrýjanir og sættir í málum geta niðurstöður mála leitt til viðbótar skuldbindinga og kostnaðar fyrir félagið. Einnig kann félagið að eignast dæmdar kröfur á hendur þriðju aðilum, sbr. mál E-2362-2020 að neðan. Hér að neðan er gerð grein fyrir málum sem fengu framgang á fyrsta ársfjörðungi 2024. Um málarekstur Sýnar hf. að öðru leyti vísast í ársreikning vegna rekstrarársins 2023.

Síminn gegn Fjarskiptastofu, Sýn hf. og Gagnaveitu Reykjavíkur ehf., og gagnsök

Í héraðsdómsmáli nr. E-3251/2018 gerði stefnandi, Síminn hf., kröfu um að ákvörðun Fjarskiptastofu nr. 10/2018 yrði fellid úr gildi í heild sinni, en til vara að 6. tl. ákvörðunarinnar, um álagningu stjórnvaldssektar á Símann hf., yrði fellidur úr gildi eða sektarfjárhæðin lækkuð. Ágreiningur málsins lýtur að túlkun á ákvæði 5. mgr. 45. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011 og hvort Síminn hf. hafi brotið gegn ákvæðinu með því að bjóða eingöngu upp á efnisveitu sína til þeirra sem keyptu fjarskiptabjónustu hjá samstæðu Símans hf., með það að markmiði að ná viðskiptavinum í fjarskiptabjónustu. Dómur var upphaflega kveðinn upp í héraði 1. júlí 2020. Með dómi Hæstaréttar í máli nr. 50/2022 frá 31. mái 2023 voru sá dómur, og dómur Landsréttar í máli nr. 438/2020 frá 24. júní 2022, ómerktir og málinu vísað aftur heim í hérað til löglegar meðferðar. Dómur féll að nýju í héraðsdómi 1. febrúar 2024 þar sem dómkröfum Símans var hafnað að öðru leyti en því að fellidur var úr gildi 6. tl. ákv. Fjarskiptastofu nr. 10/2018 um stjórnvaldssekt á hendur Símanum að upphæð 9.000.000 króna. Málskostnaður var fellidur niður. Nú liggur fyrir að málinu var ekki áfrýjað og þar með er genginn endanlegur dómur um að Síminn gerðist brotlegur við 5. mgr. 45. gr. fjölmiðlalaga. Skapar sá dómur sakargrundvöll fyrir bótskyldu Símans, sbr. hér að neðan.

Skaðabótakröfur gegn Símanum hf.

Í máli nr. E-2362/2020 hefur félagið gert skaðabótakröfu á hendur Símanum hf. vegna fjártjóns sem Síminn hf. olli félaginu í tengslum við brot gegn 5. mgr. 45. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011 vegna tímabilsins 1. okt. 2015 til 1. des. 2017. Byggir félagið á því að brot Símans hf. gegn framangreindu lagaákvæði hafi skilað Símanum hf. miklum ávinningi í formai aukinna fjarskiptaviðskipta og valdið félaginu samsvarandi tjóni. Háttsemi Símans hf. hafi verið saknæm og ólögmæt og tjón félagsins sé sennileg afleiðing hennar. Dómkrafan í málinu byggir á matsgerð dómkvalddra matsmanna, dags. 17. mars 2020, sbr. matsmál nr. M-2957/2019. Aðalkrafa félagsins er um greiðslu á 125.084.713 krónum auk vaxta og dráttarvaxta, 1. varakrafa um greiðslu á 100.067.773 krónum auk vaxta og dráttarvaxta, 2. varakrafa um greiðslu á 75.050.829 krónum auk vaxta og dráttarvaxta og 3. varakrafa um greiðslu bóta að álitum skv. mati dómsins auk dráttarvaxta, allt eins og nánar er rakið í stefnu málsins. Þá er gerð krafa um málskostnað úr hendi Símans hf. Síminn hf. krafðist sýknu og málskostnaðar úr hendi félagsins. Þá var gerð krafa um málskostnað úr hendi Símans. Síminn krafðist sýknu og málskostnaðar úr hendi félagsins. Dómur féll í héraði 19. feb. 2024 þar sem fallist var á þriðju varakröfu Sýnar í málinu og Símanum var gert að greiða félaginu 16.597.626 krónur auk dráttarvaxta frá 7. apríl 2020 til greiðsludags vegna ólögmætra og saknæmra markaðsaðgerða. Þá var Símanum gert að greiða Sýn 3.500.000 krónur í málskostnað. Félagið hefur áfrýjað málinu til Landsréttar og gerir kröfur um hærri bótafjárhæð.

Í árshlutareikningi fyrsta ársfjörðungs 2024 var tekjufærsla sem nam 29 millj. kr., þar af voru dráttarvextir 9 millj. kr., vegna niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu E-2362/2020, sem gerð hefur verið grein fyrir hér að ofan.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2024

Fjárhæðir eru í milljónum kr.