Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Interim / Quarterly Report 2022

Aug 30, 2022

2210_rns_2022-08-30_b668e147-46ff-4ad5-b81e-39b1f83923f7.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

vodafone

  1. ágúst 2022

Fréttatilkynning: Afkoma Sýnar hf. á fyrri helmingi ársins 2022.

Mesti rekstrarhagnaður í sögu fyrirtækisins

Árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2022 var sambykktur á stjórnarfundi þann 30. ágúst 2022.

Helstu niðurstöður:

  • Tekjur á öðrum ársfjörðungi (2F) 2022 námu 6.009 m.kr. en tekjur aukast um 720 m.kr. frá sama tíma árið 2021. Tekjur á fyrstu sex mánuðum ársins voru 11.691 m.kr. sem er 13,6% hærra en á sama tíma 2021.
  • EBITDA nam 1.607 m.kr. á 2F 2022 í samanburði við 1.488 m.kr. á sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 26,7% á 2F 2022 samanborið við 28,1% á 2F 2021. EBITDA á fyrstu sex mánuðum ársins var 3.317 m.kr. sem er 15,3% hækkun frá síðasta ári.
  • Hagnaður á 2F 2022 nam 66 m.kr. samanborið við 117 m.kr. tap á sama tímabili í fyrra. Hagnaður á fyrri árshelmingi ársins nam 273 m.kr. samanborið við 348 m.kr. tap á sama tímabili árið 2021. Inni í tapi fyrri árshelmings árið 2021 er sölutap að fjárhæð 179 m.kr. vegna sölu á færeyska hlutdeildarfélaginu Hey.
  • Handbært fé frá rekstri á fjörðungnum nam 1.580 m.kr. samanborið við 1.431 m.kr. á sama tímabili árið áður, sem er hækkun um 10,4%. Handbært fé frá rekstri á fyrri árshelmingi nam 2.688 m.kr. samanborið við 1.975 m.kr. á sama tímabili árið áður, sem er hækkun um 36,1%.
  • Heildarfjárfestingar á fyrstu sex mánuðum ársins 2022 námu 1.830 m.kr. þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 740 m.kr. og fjárfesting í sýningarréttum 1.086 m.kr.
  • Fjármögnunarhreyfingar á fyrri árshelmingi voru neikvæðar um 2.809 m.kr. á móti 1.748 m.kr. á sama tímabili árið 2021. Innífalið í fjármögnunarhreyfingum 2022 eru kaup á eigin bréfum að fjárhæð 1.860 m.kr.
  • Í ársbyrjun 2022 ákvað stjórn að setja í gang endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Endurkaupaáætlunin hófst með öfugu útboði þann 7. janúar sem lauk 9. janúar. Til viðbótar voru sett í gang regluleg endurkaup sem stóðu yfir frá 13. janúar til 3. mars. Félagið keypti í heild 28.064.512 hluti eða 9,47% af útgefnu hlutafé fyrir 1.860 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall félagsins var 27,3% í lok fyrri árshelmings ársins 2022.
  • Á aðalfundi félagsins þann 18. mars var sambykkt tillaga stjórnar um að lækka hlutafé í samræmi við fjölda eigin hluta. Lækkunin var framkvæmd þann 12. apríl og eru útgefinir hlutir í félaginu 268.376.962 eftir lækkunina.

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

KÝTÝR

X

O

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

^{}[]

Helstu niðurstöður úr rekstri fyrri árshelmings 2022

2F 2022 2F 2021 % br. 6M 2022 6M 2021 % br.
Seldar vörur og þjónusta 6.009 5.289 13,6% 11.691 10.289 13,6%
Kostnaðarverð -4.124 -3.759 9,7% -7.790 -7.134 9,2%
Framlegð 1.885 1.530 23,2% 3.901 3.155 23,6%
Rekstrarkostnaður -1.563 -1.588 -1,6% -3.178 -3.171 0,2%
EBITDA 1.607 1.488 8,0% 3.317 2.876 15,3%
EBIT 322 -58 - 723 -16 -
Hrein fjármagnsgjöld -226 -117 - -368 -210 -
Áhrif hlutdeildarfélaga 0 20 - 0 -173 -
Tekjuskattur -30 38 - -82 51 -
Hagnaður (tap) 66 -117 - 273 -348 -
Framlegð 31,4% 28,9% 33,4% 30,7%
EBITDA 26,7% 28,1% 28,4% 28,0%
EBIT 5,4% -1,1% 6,2% -0,2%
  • Fjárhæðir eru í milljónum króna

Heiðar Guðjónsson, forstjóri:

„Rekstrarhagnaður eykst um 740 milljónir á milli ára og við sýnum mesta rekstrarhagnað í sögu fyrirtækisins. Við náum að halda aftur af kostnaði en aukum tekjur um 14%. Ég hef fulla trú á að við höldum áfram að bæta ofan á tekjurnar en kostnaðurinn haldist hóflegur og því erum við á góðri leið með að ná því að hafa um 100 milljón króna hagnað á mánuði af reglulegri starfsemi sem ganginn í fyrirtækinu.

Við höfum fjárfest mikið í innri kerfum á síðustu þremur árum og það er langstærsta fjárfesting félagsins á tímanum. Hún fer núna að bera ávöxt með nýjungum í vöruframboði sem munu auka tekjur okkar og hlutdeild á markaði. Grunnurinn er því afar traustur.

Ritað var undir samning um samstarf við uppbyggingu á 5G sendum við Nova í júní sem hefur leitt af sér stærsta landsdekkandi kerfið. Eins styrkir það okkur enn frekar í því forskoti sem við höfum í hlutanetinu (IoT) með yfir milljón kort útistandandi en tekjuvöxtur framtíðar mun liggja að stóru leyti þar á farsímamarkaði.

Á fjölmiðlamarkaði sjáum við umtalsverða aukningu í tekjum af áskriftum og auglýsingum. Allir miðlar eru að vaxa og skila jákvæðri afkomu.

Þetta er síðasta afkomubirting sem ég tek þátt í og er ég einstaklega stoltur af því verki sem við höfum skilað á starfstíma mínum. Við höfum breytt algerlega stefnu fyrirtækisins, endurnýjað innri upplýsingakerfi, snúið við rekstri, endurfjármagnað félagið og gert allt þetta í miðjum heimsfaraldri. Framtíðin er svo sannarlega björð hjá Sýn hf.“

vodafone

^{}[]

vísir

^{}[]

SPORT

BYLGJAN

KÝT

X

^{}[]

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

Rekstrarafkoma á 2. ársfjórðungi 2022:

Tekjur félagsins á 2F 2022 námu 6.009 m.kr. samanborið við 5.289 m.kr. árið 2021.

Tekjur af fjölmiðlun námu 2.147 m.kr. á 2F 2022 og hækkuðu um 31 m.kr. miðað við annan fjörðung ársins 2021. Tekjur af interneti námu 1.109 m.kr. á 2F 2022 samborið við 1.116 m.kr. á 2F 2021. Tekjur af farsíma námu 1.282 m.kr. og hækkuðu um 221 m.kr. miðað við sama tímabil árið 2021. Tekjur af fastlínu námu 122 m.kr. á 2F 2022 og lækkuðu um 9% á milli tímabila. Tekjur af hýsingar- og rekstrarlausnum sem er kjarnastarfsemi Endor ehf. námu 864 m.kr. á 2F 2022 samanborið við 352 m.kr. á sama tímabili árið 2021, það er hækkun um 145%. Tekjur af vörusölu námu 323 m.kr. á tímabilinu sem er 4% hækkun miðað við sama ársfjörðung 2021. Aðrar tekjur námu 162 m.kr. á 2F 2022 sem er 19% lækkun frá sama tímabili 2021.

Kostnaðarverð nam 4.124 m.kr. og hækkaði það um 9,7% á milli ára. Rekstrarkostnaður nam 1.563 m.kr. og er 1,6% lægri en á sama tíma árið 2021. EBITDA tímabilsins nam 1.607 m.kr. og hækkar um 119 m.kr. miðað við sama tímabil árið 2021. EBITDA hlutfall fyrsta ársfjörðungs var 26,7% samanborið við 28,1% á 2F 2021.

Hrein fjármagnsgjöld námu 226 m.kr. á 2F 2022 sem er hækkun um 109 m.kr. á milli tímabila. Gengismunur var jákvæður um 13 m.kr á 2F 2022 samanborið við 22 m.kr á 2F 2021. Vextir af langtímaskuldum hækka um 103 m.kr. milli fjörðunga. Hækkun vaxtagjalda kemur til vegna hærri leiguskuldbindinga í kjölfarið af innviðasölu. Hækkun stýrivaxta vegur á móti lækkun vaxtagjalda vegna lægri skuldsetningar.

Hagnaður á 2F 2022 nam 66 m.kr. samanborið við 117 m.kr. tap á sama tímabili í fyrra.

Sjóðstrey mi 2. ársfjórðungs 2022:

Handbært fé frá rekstri á 2F ársins 2022 var 1.580 m.kr.

Fjárfestingahreyfingar voru neikvæðar um 1.010 m.kr. á 2F 2022.

Fjármögnunarhreyfingar félagsins voru neikvæðar um 407 m.kr. á 2F 2022.

Handbært fé í lok 2F 2022 nam 2.252 m.kr. sem er hækkun um 1.850 m.kr. miðað við sama tímabil árið 2021.

Sjóðstrey mi 2F 2022

  • Útstrey mi
  • Innstrey mi

img-0.jpeg

vodafo

vísir

SPORT

BYLGJAN

K

K

O

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

Rekstrarafkoma 6M 2022:

Tekjur félagsins fyrstu 6 mánuði ársins 2022 námu 11.691 m.kr samanborið við 10.289 m.kr. á sama tíma árið 2021.

Tekjur af fjölmiðlun námu 4.254 m.kr. á 6M 2022 og hækkuðu um 5% á milli ára. Tekjur af interneti námu 2.231 m.kr. á árinu, sem er lækkun um 1% á milli ára. Tekjur af farsíma námu 2.683 m.kr. og eru 683 m.kr. hærri en á sama tímabili árið 2021. Tekjur af fastlínu námu 251 m.kr. á árinu og lækkuðu um 8% á milli tímabila. Tekjur af hýsingar- og rekstrarlausnum sem er kjarnastarfsemi Endor ehf. námu 1.329 m.kr. á fyrstu 6 mánuðum ársins 2022 og hækkuðu um 100% á milli ára. Tekjur af vörusölu námu 597 m.kr. á tímabilinu sem er 1% lækkun miðað við 6M 2021. Aðrar tekjur námu 346 m.kr. á fyrri helming ársins og lækkuðu um 17% á milli ára.

Kostnaðarverð nam 7.790 m.kr. og var 9,2% hærra en á fyrra tímabili. Rekstrarkostnaður nam 3.178 m.kr. og stendur í stað á milli tímabila. EBITDA fyrir 6M 2022 nam 3.317 m.kr. og hækkar um 15,3% miðað við sama tímabil árið 2021. EBITDA hlutfall var 28,4% samanborið við 28,0% árið áður.

Hrein fjármagnsgjöld námu 368 m.kr. á fyrri árshelmingi ársins 2022 sem er hækkun um 158 m.kr. á milli tímabila. Gengismunur var jákvæður á fyrstu sex mánuðum ársins 2022 að fjárhæð 71 m.kr. og breytist óverulega á milli tímabila. Hækkun vaxtagjalda kemur til vegna hærri leiguskuldbindinga í kjölfarið af innviðasölu. Hækkun stýrivaxta vegur á móti lækkun vaxtagjalda vegna lægri skuldsetningar.

Hagnaður fyrstu 6 mánaði 2022 nam 273 m.kr. samanborið við 348 m.kr. tap á sama tímabili árið 2021. Inni í tapi fyrri árshelmings árið 2021 er 179 m.kr. sölutap vegna sölu á færeyska hlutdeildarfélaginu Hey.

Sjóðstreymi 6M 2022:

Handbært fé frá rekstri á fyrstu 6 mánuðum ársins 2022 var 2.688 m.kr.

Fjárfestingahreyfingar námu 1.830 m.kr. samborið við 643 m.kr. árið 2021. Innifalið í fjárfestingarhreyfingum árið 2021 er 1.065 m.kr. vegna sölu á eignarhluta í hlutdeildarfélaginu Hey.

Fjármögnunarhreyfingar félagsins voru neikvæðar um 2.809 m.kr. fyrir 6M 2022. Innifalið í fjármögnunarhreyfingum 2022 eru kaup á eigin bréfum að fjárhæð 1.860 m.kr.

Handbært fé í lok fyrri árshelmings nam 2.252 m.kr. sem er hækkun um 1.850 m.kr. miðað við sama tímabil árið 2021.

img-1.jpeg
Sjóðstreymi 6M 2022

O

vodafone

V

visir

SPORT

BYLGJAN

2020

X

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

^{}[]

Efnahagur 30.júni 2022:

Eigið fé í lok tímabilsins nam 8.888 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 27,3%. Útgefið hlutafé í lok tímabilsins nam 2.684 m.kr.

Heildarskuldir félagsins voru 23.640 m.kr. í lok annars fjórðungs 2022. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 15.605 m.kr. í lok fjórðungsins. Veltufjárhlutfall var 1,45.

Kynningarfundur 31. ágúst 2022:

  • Fjárfestafundur verður miðvikudaginn 31. ágúst og verður hann einungis sendur út rafrænt frá og með kl. 08:30 á eftirfarandi vefslóð: https://syn.is/fjarfestatengsl.
  • Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Fjárhagsdagatal 2022:

✓ Afkoma 3F 2022
2. nóvember 2022
✓ Afkoma 4F og ársuppgjör 2022
15. febrúar 2023
✓ Aðalfundur 2022
17. mars 2023

Frekari upplýsingar:

✓ Tekið er á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjá[email protected].

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

SPORT

X

O

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is