Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Interim / Quarterly Report 2021

May 12, 2021

2210_rns_2021-05-12_4fa0fae0-9fc0-4fe8-961a-17b8a50b21d6.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Syn hf.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu

  1. janúar til 31. mars 2021

img-0.jpeg

vodafone

visir

SPORT

BYLGJAN

X

ENDOR

Syn hf. Suðurlandsbraut 8 108 Reykjavik kl. 470805-1740


Efnisyfirlit

BIs.
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra 3
Fjárhagslegar lykiltölur 4
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu 5
Efnahagsreikningur 6
Eiginfjáryfirlit 7
Sjóðstreymisyflit 8
Skýringar við samandreginn árshlutareikning 9

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Sýn hf. er alhliða félag á sviði fjarskipta- og fjölmiðlastarfsemi. Félagið rekur marga af öflugustu fjölmiðlum landsins eins og Stöð 2, Bylgjuna, Vísi, FM957, Xið og fleiri landsbekkta miðla. Félagið veitir einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og opinberum aðilum alhliða fjarskipta- og upplýsingatækniþjónustu undir vörumerkjum Vodafone á Íslandi og dótturfélagsins Endor ehf. Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims.

Árshlutareikningurinn hefur að geyma samandreginn samstæðureikning Sýnar hf. og dótturfélags þess, Endor ehf., ásamt hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastáðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga. Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Samkvæmt rekstrarreikningi námu tekjur samstæðunnar af seldum vörum og þjónustu 4.962 millj. kr. Tap af rekstri samstæðunnar á tímabilinu nam 231 millj. kr. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 29.536 millj. kr. Eigið fé samstæðunnar þann 31. mars 2021 nam 8.208 millj. kr. Þar af nam hlutafé 2.964 millj. kr. Eiginfjárhlutfallið 31. mars 2021 var 27,79%.

Áhrifa COVID-19 faraldursins á rekstur og sjóðstreymi samstæðunnar hefur helst gætt í samdrætti í tekjum af auglýsingum og reiki eins og áður hefur komið fram. Samstæðan er með hluta af sínum kostnaði í erlendri mynt. Veiking krónunnar hefur því haft talsverð áhrif til hækkunar á kostnaði. Stjórnendur hafa gripið til ýmissa hagræðingaáðgerða til að lágmarka þessi áhrif á rekstur og sjóðstreymi félagsins en miðað við þá óvissu sem faraldrinum fylgir er ekki hægt að meta að fullu hver áhrifin verða til skemmri og lengri tíma.

Sala á eignum

Þann 31. mars var skrifað undir samninga um sölu á óvirkum farsímainnviðum félagsins. Viðskiptin munu styrka efnahagsreikning félagsins. Umsamið söluverð er um 7,1 milljarðar og nemur væntur söluhagnaður yfir 6,5 milljörðum króna. Samhliða var gerður langtímaleigusamningur, sem tryggja mun áframhaldandi aðgang félagsins að hinum óvirku farsímainnviðum. Allur virkur farsímabúnaður verður áfram í eigu Sýnar hf. Í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastáðla (IFRS) verður farið með viðskiptin sem sölu og endurleigu á eignum. Af þeirri ástæðu verður aðeins hluti af söluhagnaðinum færður í gegnum rekstur á söludegi. Söluhagnaðurinn mun hlutfallast miðað við hlutfall gangvirðis hinna séldu eigna og núvirðis væntrar leiguskuldbindingar á kaupdegi. Viðskiptin eru háð sambykkti eftirlitsstofnanna.

Þann 31. mars var einnig undirritaður samningur um sölu á 49,9% hlut í færeyska hlutdeildarfélaginu P/F 20.11.19. Kaupverðið var 52,5 millj. DKK. Kaupverðið var greitt 21. apríl til félagsins. Áfram verður til staðar þjónustusamningur á milli félaganna. Bókfært verð hlutarins var hærra en söluverð og því er tap af sölunni að fjárhæð 189 millj. kr. gjaldfært í fjörðungnum.

Viðskiptin hafa engin áhrif á EBITDA en styrkja efnahagsreikning og lausafjárstöðu félagsins.

Yfirlýsing

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastáðal um árshlutareikninga IAS 34 eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu 31. mars 2021 ásamt rekstrarafkomu og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2021.

Stjórn og forstjóri Sýnar hf. hafa í dag fjallað um samandreginn árshlutareikning samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2021 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Reykjavík, 12. maí 2021

Stjórn

Hjörleifur Pálsson, stjórnarformaður

Páll Gíslason

Petrea Ingileif Guðmundsdóttir

Sigríður Vala Halldórsdóttir

Tanya Zharov

Forstjóri

Heiðar Guðjónsson

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2021

Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Fjárhagslegar lykiltölur

| | 2021
1F | 2020
1F |
| --- | --- | --- |
| Fjárhagsupplýsingar | | |
| Heildartekjur | 4.962 | 4.995 |
| Rekstrarhagnaður (tap) | 42 | (21) |
| Tap fyrir tekjuskatt | (244) | (442) |
| Tap tímabilsins | (231) | (350) |
| Tap á hlut | (0,78) | (1,18) |
| Fjárfestingar í rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum | 231 | 263 |
| Fjárfestingar í sýningarrétti | 576 | 475 |
| Handbært fé frá rekstri | 542 | 1.053 |
| Frammistöðumat | | |
| EBITDA tímabilsins | 1.388 | 1.355 |
| EBITDA hlutfall tímabilsins | 28,0% | 27,1% |
| Frjálst fjárflæði (FCF)* | (119) | 522 |
| | 2021
1F | 31.12
2020 |
| Hreinar vaxtaberandi skuldir | 15.686 | 15.419 |

*Frjálst fjárflæði samanstendur af handbæru fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt að frádregnum fjárfestingahreyfingum.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2021
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu

  1. janúar til 31. mars 2021

| | Skýr. | 2021
1F | 2020
1F |
| --- | --- | --- | --- |
| Seldar vörur og bjónusta | 5 | 4.962 | 4.995 |
| Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu | 6 | (3.337) | (3.350) |
| Framlegð | | 1.625 | 1.645 |
| Rekstrarkostnaður | 7 | (1.583) | (1.666) |
| Rekstrarhagnaður (tap) | | 42 | (21) |
| Fjármunatekjur | | 5 | 8 |
| Fjármagnsgjöld | | (144) | (219) |
| Gengismunur | | 46 | (230) |
| Hrein fjármagnsgjöld | | (93) | (441) |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | | (193) | 20 |
| Tap fyrir tekjuskatt | | (244) | (442) |
| Tekjuskattur | | 13 | 92 |
| Tap tímabilsins | | (231) | (350) |
| Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé: | | | |
| Þýðingarmunur | | (37) | (2) |
| Heildarafkoma tímabilsins | | (268) | (352) |
| Tap á hlut | | (0,78) | (1,18) |

Skýringar á bls. 9-11 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings samstæðunnar.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2021
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Efnahagsreikningur

  1. mars 2021
Skýr. 31.3.2021 31.12.2020
Fastafjármunir
Leigueignir 4.899 5.227
Rekstrarfjármunir 3.680 3.818
Viðskiptavild 8.890 8.932
Aðrar óefnislegar eignir 4.333 4.403
Eignahlutir í félögum 120 1.398
Tekjuskattsinneign 382 383
Fastafjármunir samtals 22.304 24.161
Veltufjármunir
Sýningarréttir 1.828 1.876
Birgðir 288 241
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 9 4.340 3.217
Handbært fé 240 831
Veltufjármunir samtals 6.696 6.165
Eignir flokkaðar til sölu 11 536 536
Eignir samtals 29.536 30.862
Eigið fé
Hlutafé 2.964 2.964
Yfirverðsreikningur hlutafjár 2.465 2.465
Annað eigið fé 184 310
Óráðstafað eigið fé 2.595 2.810
Eigið fé 8.208 8.549
Langtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 9.472 9.492
Leiguskuldbindingar 4.395 4.507
Aðrar langtímaskuldir 166 166
Tekjuskattsskuldbinding - 16
Langtímaskuldir samtals 14.033 14.181
Skammtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 992 992
Leiguskuldbindingar 1.067 1.259
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 10 5.067 5.699
Skammtímaskuldir samtals 7.126 7.950
Skuldir sem tengjast eignum sem flokkaðar eru til sölu 11 169 182
Skuldir samtals 21.328 22.313
Eigið fé og skuldir samtals 29.536 30.862

Skýringar á bls. 9-11 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings samstæðunnar.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2021 6

Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Eiginfjáryfirlit

  1. janúar til 31. mars 2021
Hlutafé Yfirverð Annað eigið fé Óráðstafað eigið fé Eigið fé samtals
Þýðingar-munur Bundinn reikningur
1.1. til 31.3.2020
Eigið fé 1.1.2020 2.964 2.465 7 105 3.257 8.798
Tap tímabilsins - - - (350) (350)
Þýðingarmunur - - (2) - - (2)
Heildarafkoma tímabilsins 0 0 (2) 0 (350) (352)
Hagn.hlutd.fél. umfram arðgr. 20 (20) 0
Eigið fé 31.3.2020 2.964 2.465 5 125 2.887 8.446
1.1. til 31.3.2021
Eigið fé 1.1.2021 2.964 2.465 163 147 2.810 8.549
Tap tímabilsins - - - - (231) (231)
Þýðingarmunur - - (37) - - (37)
Heildarafkoma tímabilsins 0 0 (37) 0 (231) (268)
Þýðingarmunur færður út vegna sölu (73) (73)
Hagn. hlutd.fél. umfram arðgr. (16) 16 0
Eigið fé 31.3.2021 2.964 2.465 53 131 2.595 8.208

Skýringar á bls. 9-11 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings samstæðunnar.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2021

Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Sjóðstreymisyfirlit

  1. janúar til 31. mars 2021

| | Skýr. | 2021
1F | 2020
1F |
| --- | --- | --- | --- |
| Tap tímabilisins samkvæmt rekstrarreikningi | | (231) | (350) |
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | | | |
| Afskriftir | 8 | 1.346 | 1.376 |
| Hrein fjármagnsgjöld | | 93 | 441 |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | | 193 | (20) |
| Tekjuskattur | | (13) | (92) |
| Veltufé frá rekstri | | 1.388 | 1.355 |
| Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum: | | | |
| Birgðir, breyting | | (48) | 25 |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, breyting | | (77) | (6) |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, breyting | | (575) | (114) |
| Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | | 688 | 1.260 |
| Innborgaðar vaxtatekjur | | 5 | 8 |
| Greidd vaxtagjöld | | (143) | (215) |
| Greiddur tekjuskattur | | (8) | - |
| Handbært fé frá rekstri | | 542 | 1.053 |
| Fjárfestingahreyfingar | | | |
| Fjárfesting í rekstrarfjármunum | | (118) | (107) |
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | | (113) | (156) |
| Fjárfesting í sýningarrétti | | (576) | (475) |
| Fjárfestingahreyfingar samtals | | (807) | (738) |
| Fjármögnunarhreyfingar | | | |
| Afborganir vaxtaberandi skulda | | (171) | (170) |
| Rekstrarlán, breyting | | 150 | (147) |
| Afborgun leiguskuldbindinga | | (299) | (273) |
| Fjármögnunarhreyfingar samtals | | (320) | (590) |
| Breyting á handbæru fé | | (585) | (275) |
| Handbært fé í byrjun tímabils | | 831 | 634 |
| Gengisbreyting á handbærú fé og býðingarmunur | | (6) | 26 |
| Handbært fé í lok tímabilsins | | 240 | 385 |

Skýringar á bls. 9-11 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings samstæðunnar.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2021
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar

  1. Félagið

Sýn hf. ("félagið") er íslensk hlutafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík. Sýn hf. veitir einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum alhliða fjarskipta-, fjölmiðla, og tækniþjónustu í gegnum vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Stöð 2 Sport, Vísi, Bylgjuna, FM957, X 977 og dötturfélagið Endor ehf. Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims. Samandreginn árslutareikningur samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2021 hefur að geyma árslutareikning félagsins, dötturfélag þess, Endor ehf. og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf., sem vísað er til í heild sem „samstæðunnar“.

  1. Reikningsskilin

a. Grundvöllur reikningsskilanna

Árslutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árslutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem kom afram í íslenskum lögum og reglum um árslutareikninga skráðra félaga. Árslutareikningur samstæðunnar 1. janúar til 31. mars 2021 hefur hvorki verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Árslutareikningurinn er gerður eftir sömu reikningsskilareglum og lágu til grundvallar við gerð ársreikningsins 2020. Hann inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning samstæðunnar fyrir árið 2020. Hægt er að nálgast ársreikning Sýnar hf. á heimasíðu félagsins www.syn.is. og á vef Kauphallar Íslands; www.nasdaqomxnordic.com.

b. Mat stjórnenda á reikningsskilum

Gerð samstæðuársultareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og dragi ályktanir sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaðferða og birtar fjárhæðir eigna og skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrögur þessu mati.

  1. Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill

Samstæðuársultareikningur félagsins er birtur í íslenskum krónum, sem er framsetningargjaldmiðill samstæðunnar. Allar fjárhæðir eru birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.

  1. Starfsþáttayfirlit

Félagið skilgreinir starfsþætti eftir innri upplýsingagjóf til stjórnenda og telst samstæðan í heild vera einn starfsþáttur.

  1. Seldar vörur og þjónusta
2021 2020
Seldar vörur og þjónusta greinast þannig: 1F 1F
Vörusala 293 235
Seld þjónusta 4.669 4.760
Seldar vörur og þjónusta samtals 4.962 4.995
Tekjustraumar Fjöl-míðlun Internet
--- --- ---
1.1. til 31.3.2021
Tekjur 1.918 1.145
1.1. til 31.3.2020
--- --- ---
Tekjur 1.935 1.160

Samandreginn árslutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2021
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

  1. Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu greinist þannig: 2021 2020
1F 1F
Kostnaðarverð seldrar vöru og þjónustu 1.742 1.724
Laun og launatengd gjöld 574 616
Eignfærð laun (37) (42)
Afskriftir 1.058 1.053
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu samtals 3.337 3.350
  1. Rekstrarkostnaður
Rekstrarkostnaður greinist þannig: 2021 2020
1F 1F
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður 354 372
Sölu- og markaðskostnaður 118 104
Laun og launatengd gjöld 865 899
Eignfærð laun (43) (32)
Afskriftir 289 323
Rekstrarkostnaður samtals 1.583 1.666
  1. Afskriftir
Afskriftir í rekstrarreikningi greinast þannig: 2021 2020
1F 1F
Afskriftir rekstrarfjármuna 257 306
Afskriftir óefnislegra eigna 181 199
Afskriftir afnotaréttar 285 290
Afskriftir sýningarréttar 625 581
Afskriftir samtals 1.346 1.376
  1. Víðskiptakröfur
Víðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur greinast þannig: 31.3.2021 31.12.2020
Víðskiptakröfur 2.707 2.823
Krafa vegna sölu á eignarhlut 1.065 -
Aðrar skammtímakröfur 494 347
Leigukröfur 193 166
Leigukröfur flokkaðar til sölu færðar út (20) (20)
Niðurfærsla víðskiptakrafna (99) (99)
Víðskiptakröfur samtals 4.340 3.217

Þann 31. mars var undirritaður samningur um sölu á 49,9% hlut í færeyska hlutdeildarfélaginu P/F 20.11.19. Kaupverðið var 52,5 millj. DKK. Kaupverðið var greitt 21. apríl til félagsins.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2021 10

Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

  1. Viðskiptaskuldir
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig: 31.3.2021 31.12.2020
Viðskiptaskuldir 3.543 3.599
Ógreiddur virðisaukaskattur 360 345
Fyrirframinnheimtar tekjur 340 360
Ógreiddur áfallinn kostnaður og aðrar skammtímaskuldir 824 1.395
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals 5.067 5.699
  1. Eignir flokkaðar til sölu

Eignasamstæður eru flokkaðar til sölu þegar félag hefur í hyggju að selja þær, þær eru tiltækir til sölu og verulegar líkur er á sölu innan 12 mánaða. Eignasamstæður eru eignir sem félagið hyggst selja í einu lagi ásamt tengdum skuldum. Eignasamstæður sem flokkaðar eru til sölu eru metnar á bókfærðu verði eða gangvirði að frádregnum sölukostnaði, hvort sem lægra reynist. Slikar eignasamstæður eru ekki afskrifaðar.

Skrifað var undir samninga um sölu á óvirkum innviðum farsímakerfis félagsins 31.3.2021. Viðskiptin eru háð sambykkti eftirlitsstofnanna. Af þessari ástæðu eru eignir og skuldir tengdar sölunni sérgreindar í efnahagsreikningi.

Eignir flokkaðar til sölu greinast þannig: 2021
Leigueignir 144
Leigukrafa 20
Rekstrarfjármunir 372
Eignir flokkaðar til sölu samtals 536
Skuldir sem tengjast eignum sem flokkaðar eru til sölu greinast þannig: 2021
--- ---
Langtíma leiguskuldbindingar 31
Skammtíma leiguskuldbindingar 138
Skuldir sem tengjast eignum sem flokkaðar eru til sölu samtals 169
  1. Önnur mál

Sýn hf. á í málarekstri við einstaklinga, önnur félög og eftirlitsstofnanir á íslenskum fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði. Félagið færir skuldbindingar vegna málarekstur þegar hægt er að meta framtíðargreiðslur með áreiðanlegum hætti. Vegna óvissu um framtíðarþróun málarekstrar, niðurstöður dómsmála, úrskurða, áfrýjanir og sættir í málum geta niðurstöður mála leitt til viðbótar skuldbindinga og kostnaðar fyrir félagið.

Hér að neðan er gerð grein fyrir helstu atvikum sem tengjast málarekstri á reikningstímabilinu og eftir lok þess. Að öðru leyti vísast um ágreiningsmál til ársreiknings félagsins vegna ársins 2020.

Sýn hf. gegn PFS, Símanum hf., Mílu ehf., Nova hf. og Gagnaveitu Reykjavíkur ehf.

Í málinu gerir stefnandi Sýn þá kröfu að ógiltur verði með dómi úrskurður úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála í máli nr. 7/2019, sem felldi úr gildi ákvörðun PFS nr. 27/2019. Með þeirri ákvörðun lagði stofnunin stjórnvaldssekt á stefnda Símann hf. vegna brota á 5. mgr. 45. gr. fjölmiðlalaga frá þeim tíma sem ákvörðun stofnunarinnar nr. 10/2018 miðaðist við og til 2. október 2019. Sýn hf. byggir mál sitt á því að ákvörðun PFS nr. 27/2019 hafi verið gild og, þar fyrir utan, að brot Símans hf. hafi einnig staðið yfir frá og með 2. október 2019. PFS hefur einnig krafist þess að úrskurður úrskurðarnefndarinnar í máli nr. 7/2019 verði ógiltur með dómi og höfðað mál í því skyni gegn Símanum hf., Mílu ehf., Nova hf., Sýn hf. og Gagnaveitu Reykjavíkur ehf.

Á þessum tímapunkti getur félagið ekki metið framtíðar skuldbindingar eða kröfur sem leiða af niðurstöðum ofangreinds málareksturs meðal annars vegna þess að það getur tekið langan tíma að fá niðurstöðu í mál, ásamt því að mál geta þróast í ólíkar áttir. Vegna þess hefur engin skuldbinding verið færð í árshlutareikning.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2021
Fjárhæðir eru í milljónum kr.