AI assistant
Syn — Interim / Quarterly Report 2021
Sep 1, 2021
2210_rns_2021-09-01_7127b6e7-aa00-4b62-898c-535debc12d4c.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
vodafone
- september 2021
Fréttatilkynning: Afkoma Sýnar hf. á fyrri helmingi ársins 2021.
Vöxtur í fjarskiptum og fjölmiðlun
Árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2021 var sambykktur á stjórnarfundi þann 1. september 2021.
Helstu niðurstöður:
- Tekjur á öðrum ársfjörðungi (2F) 2021 námu 5.289 m.kr. en tekjur dragast saman um 98 m.kr. frá sama tímabili árið 2020. Tekjur á fyrstu sex mánuðum ársins voru 10.289 m.kr. sem er 1,2% lægra en sama tímabil 2020. Endor litar neikvæðan tekjuvöxt en tekjur þess drógust saman um tæplega 650 m.kr. á milli árshelminga.
- EBITDA nam 1.488 m.kr. á 2F 2021 í samanbúrði við 1.364 m.kr. á sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 28,1% á 2F 2021 samanborið við 25,3% á 2F 2020. EBITDA á fyrstu sex mánuðum ársins var 2.876 m.kr. sem er 5,8% hækkun frá síðasta ári.
- Tap á 2F 2021 nam 117 m.kr. samanborið við 60 m.kr. tap á sama tímabili í fyrra. Tap á fyrri árshelmingi ársins nam 348 m.kr. samanborið við 410 m.kr. tap á sama tímabili árið 2020. Inni í tapi fyrri árshelmings árið 2021 er sölutap að fjárhæð 179 m.kr. vegna sölu á færeyska hlutdeildarfélaginu Hey.
- Handbært fé frá rekstri á fjörðungnum nam 1.431 m.kr. samanborið við 1.744 m.kr. á sama tímabili árið áður, sem er lækkun um 18%. Handbært fé frá rekstri á fyrri árshelmingi nam 1.975 m.kr. samanborið við 2.799 m.kr. á sama tímabili árið áður, sem er lækkun um 29%.
- Heildarfjárfestingar á fyrstu sex mánuðum ársins 2021 námu 643 m.kr. þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 592 m.kr. og fjárfesting í sýningarréttum 1.117 m.kr. Greiðsla vegna sölu á eignarhluta nam 1.065 m.kr.
- Fjármögnunarhreyfingar á fyrri árshelmingi voru neikvæðar um 1.748 m.kr. á móti 1.445 m.kr. á sama tímabili árið 2020. Söluandvirði af Hey var notað til að greiða niður langtímatímalán og lækka lánalínur.
- Eiginfjárhlutfall félagsins var 28,5% í lok fyrri árshelmings ársins 2021.
- Þann 31. mars síðastliðinn var skrifað undir samninga um sölu á óvirkum farsímainnviðum félagsins. Væntingar eru um að sambykki fyrir sölunni fáist á næstu dögum. Söluverði mun verða ráðstafað til lækkunar á lánum, endurkaupa á hlutabréfum og í nýfjárfestingar.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
K
O
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
^{}[]
Helstu niðurstöður úr rekstri fyrri árshelmings 2021
| 2F 2021 | 2F 2020 | % br. | 6M 2021 | 6M 2020 | % br. | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur og þjónusta | 5.289 | 5.387 | -1,8% | 10.289 | 10.418 | -1,2% |
| Kostnaðarverð | -3.759 | -3.752 | 0,2% | -7.134 | -7.138 | -0,1% |
| Framlegð | 1.530 | 1.635 | -6,4% | 3.155 | 3.280 | -3,8% |
| Rekstrarkostnaður | -1.588 | -1.571 | 1,1% | -3.171 | -3.237 | -2,0% |
| EBITDA | 1.488 | 1.364 | 9,1% | 2.876 | 2.719 | 5,8% |
| EBIT | -58 | 64 | - | -16 | 43 | - |
| Hrein fjármagnsgjöld | -117 | -182 | - | -210 | -623 | - |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 20 | 28 | - | -173 | 48 | - |
| Tekjuskattur | 38 | 30 | - | 51 | 122 | - |
| Tap tímabilsins | -117 | -60 | - | -348 | -410 | - |
| Framlegð | 28,9% | 30,4% | 30,7% | 31,5% | ||
| EBITDA | 28,1% | 25,3% | 28,0% | 26,1% | ||
| EBIT | -1,1% | 1,2% | -0,2% | 0,4% |
- Fjárhæðir eru í milljónum króna
Heiðar Guðjónsson, forstjóri:
„Grunnreksturinn heldur áfram að batna líkt og frjálst fjárflæði ber með sér (1.611 m.kr.), sem er að mínum dómi besti mælikvarðinn á rekstur. Frjálst fjárflæði hefur tekið algerum stakkaskiptum frá árunum 2018 og 2019 (-143 m.kr. og 720 m.kr.).
Í fyrsta skipti síðan árið 2018 er vöxtur í fjarskiptatekjum. Það er ekki vegna aukinna fjárfestinga, heldur betri nýtingu á þeim kerfum sem við eigum fyrir líkt og ég lýsti fyrir ári síðan. Í fjölmiðlarekstrinum sjáum við fjölgun áskrifenda og aukningu í sölu auglýsinga. Breyting Stöðvar 2 í hreina áskriftarstöð, með lokun fréttaglugga, hefur sannarlega borgað sig með þúsundum nýrra viðskiptavina án þess að auglýsingatekjur hafi minnkað að ráði. Stöð 2 Sport og Stöð 2+ eru svo í miklum vexti og hafa aldrei verið sterkari. Það sama má segja um Vísi sem eykur forskot sitt á aðra miðla í hverri viku. Á Vísi er verið að þróa framboð nýs efnis á bakvið greiðslugátt, með Blökastinu, sem fer frábærlega af stað, og með nýjum viðskiptamiðli sem Hörður Ægisson og Ólöf Skaftadóttir ritstýra. Vísir hefur mikla möguleika til framtíðar sem almennur upphafspunktur fyrir íslenskt efni og þjónustu.
Velta Endor dregst saman um tæplega 650 m.kr. að hluta til útaf heimsfaraldrinum. Framtíðarhorfur þar eru hins vegar góðar. Áhrifa heimsfaraldursins gætir minna á öðrum sviðum.
Stærsta fjárfesting síðustu missera hefur verið í upplýsingakerfum okkar. Sú fjárfesting gat af sér Fjölskyldupakkann í lok fyrsta ársfjörðungs og mun opna á nýjar spennandi vörur á næstu fjörðungum. Við erum í föstu reikningssambandi við helming allra heimila landsins og hátt í helming fyrirtækja sem býður upp á stór tækifæri í vöruþróun.
vodafone
VÍSIR
SPORT
BYLGJAN
VÍSIL
X
O
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
Við bíðum eftir sambykki Samkeppniseftirlitsins vegna sölu á óvirkum innvíðum í farsímakerfinu. Við búumst við niðurstöðu á næstu dögum og andvirðið mun vera að hluta notað til að greiða niður skuldir en einnig til endurkaupa hlutabréfa og nýfjárfestinga.
Rekstrarafkoma á 2. ársfjörðungi 2021:
Tekjur félagsins á 2F 2021 námu 5.289 m.kr. samanborið við 5.387 m.kr. árið 2020.
Tekjur af fjölmiðlun námu 2.116 m.kr. á 2F 2021 og hækkuðu um 241 m.kr. miðað við annan fjörðung ársins 2020. Tekjur af interneti námu 1.116 m.kr. á 2F 2021 samborið við 1.148 m.kr. á 2F 2020. Tekjur af farsíma námu 1.061 m.kr. og hækkuðu um 226 m.kr. miðað við sama tímabil árið 2020. Tekjur af fastlínu námu 134 m.kr. á 2F 2021 og lækkuðu um 14% á milli tímabila. Tekjur af hýsingar- og rekstrarlausnum sem er kjarnastarfsemi Endor ehf. námu 352 m.kr. á 2F 2021 samanborið við 944 m.kr. á sama tímabili árið 2020, en það er lækkun um 63%. Helsta skýringin á þeirri lækkun er minni búnaðarsala og sterkara gengi íslensku krónunnar í fjörðungnum samanborið við sama tímabil árið áður. Tekjur af vörusölu námu 311 m.kr. á tímabilinu sem er 30% hækkuð miðað við sama ársfjörðung 2020. Aðrar tekjur námu 199 m.kr. á 2F 2021 sem er 5% hækkuð frá sama tímabili 2020.
Kostnaðarverð nam 3.759 m.kr. og stöð nærri í stað á milli ára. Rekstrarkostnaður nam 1.588 m.kr. og er 1,1% nærri en á sama tímabili árið 2020. EBITDA tímabilsins nam 1.488 m.kr. og hækkar um 124 m.kr. miðað við sama tímabil árið 2020. EBITDA hlutfall fyrsta ársfjörðungs var 28,1% samanborið við 25,3% á 2F 2020.
Hrein fjármagnsgjöld námu 117 m.kr. á 2F 2021 sem er lækkun um 65 m.kr. á milli tímabila. Gengismunur var jákvæður um 22 m.kr. á 2F 2021 samanborið við gengistap upp á 12 m.kr á 2F 2020. Vextir af langtímaskuldum lækka um 31 m.kr. milli fjörðunga.
Tap á 2F 2021 nam 117 m.kr. samanborið við 60 m.kr. tap á sama tímabili í fyrra.
Sjóðstreymi 2. ársfjörðungs 2021:
Handbært fé frá rekstri á 2F ársins 2021 var 1.431 m.kr.
Fjárfestingahreyfingar voru jákvæðar um 164 m.kr. á 2F 2021. Innifalið í fjárfestingarhreyfingum er 1.065 m.kr. vegna sölu á eignarhlut í hlutdeildarfélaginu Hey.
Fjármögnunarhreyfingar félagsins voru neikvæðar um 1.428 m.kr. á 2F 2021.
Handbært fé í lok 2F 2021 nam 402 m.kr. sem er lækkun um 8 m.kr. miðað við sama tímabil árið 2020.

Sjóðstreymi 2F 2021
O
vodafone
VÍSIR
SPORT
BYLGJAN
K
K
O
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
Rekstrarafkoma 6M 2021:
Tekjur félagsins fyrstu 6 mánuði 2021 námu 10.289 m.kr samanborið við 10.418 sama tímabil árið 2020.
Tekjur af fjölmiðlun námu 4.070 m.kr. á 6M 2021 og hækkuðu um 6% á milli ára. Tekjur af interneti námu 2.261 m.kr. á árinu, sem er lækkuðum um 2% á milli ára. Tekjur af farsíma námu 2.000 m.kr og eru 255 m.kr hærri en á sama tímabili árið 2020. Tekjur af fastlínu námu 274 m.kr. á árinu og lækkuðu um 15% á milli tímabila. Tekjur af hýsingar- og rekstrarlausnum sem er kjarnastarfsemi Endor ehf. námu 665 m.kr. á fyrstu 6 mánuðum ársins 2021 og lækkuðu um 49% á milli ára. Tekjur af vörusölu námu 604 m.kr á tímabilinu sem er 27% hækkuðum miðað við 6M 2020. Aðrar tekjur námu 415 m.kr á fyrri helming ársins og hækkuðu um 2% á milli ára.
Kostnaðarverð nam 7.134 m.kr og stóð í stað milli tímabila. Rekstrarkostnaður nam 3.171 m.kr. samanborið við 3.237 m.kr. árið 2020. EBITDA fyrir 6M 2021 nam 2.876 m.kr og hækkar um 5,8% miðað við sama tímabil árið 2020. EBITDA hlutfall var 28,0% samanborið við 26,1% árið áður.
Hrein fjármagnsgjöld námu 210 m.kr á fyrri árshelmingi ársins 2021 sem er lækkuðum um 413 m.kr. á milli tímabila. Gengismunur var jákvæður á fyrstu sex mánuðum ársins 2021 að fjárhæð 68 m.kr. samanborið við neikvæðan gengismun að fjárhæð 242 m.kr. á sama tíma árið 2021. Vaxtagjöld af langtímaskuldum lækka á milli samanburðartímabila vegna breytinga á vöxtum langtímalána.
Tap fyrstu 6 mánaða 2021 nam 348 m.kr samanborið við 410 m.kr tap sama tímabil árið 2020. Inni í tapi fyrri árshelmings árið 2020 er 179 m.kr. sölutap vegna sölu á færeyska hlutdeildarfélaginu Hey.
Sjóðstreymi 6M 2021:
Handbært fé frá rekstri á fyrstu 6 mánuðum ársins 2021 var 1.975 m.kr.
Fjárfestingahreyfingar námu 643 m.kr. samborið við 1.595 m.kr. árið 2020. Innífalið í fjárfestingarhreyfingum árið 2021 er 1.065 m.kr. vegna sölu á eignarhluta í hlutdeildarfélaginu Hey.
Fjármögnunarhreyfingar félagsins voru neikvæðar um 1.748 m.kr. fyrir 6M 2021.
Handbært fé í lok fyrri árshelmings nam 402 m.kr. sem er hækkuðum um 8 m.kr. miðað við sama tímabil árið 2020.

O
vodafone
V
visir
SPORT
BYLGJAN
2020
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
Efnahagur 30.júni 2021:
Eigið fé í lok tímabilsins nam 8.084 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 28,5%. Útgefið hlutafé í lok tímabilsins nam 2.964 m.kr.
Heildarskuldir félagsins voru 20.267 m.kr. í lok annars fjórðungs 2021. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 14.115 m.kr. í lok fjórðungsins. Veltufjárhlutfall var 1,07.
Kynningarfundur 2. september 2021:
- Fjárfestafundur verður fimmtudaginn 2. september og verður hann einungis sendur út rafrænt frá og með kl. 08:30 á eftirfarandi vefslóð: https://syn.is/fjarfestatengsl.
- Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Fjárhagsdagatal 2021:
✓ Afkoma 3F 2021 3. nóvember 2021
✓ Afkoma 4F og ársuppgjör 2021 23. febrúar 2022
✓ Aðalfundur 2021 18. mars 2022
Frekari upplýsingar:
✓ Tekið er á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjá[email protected].
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
K
K
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is