Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Interim / Quarterly Report 2021

Nov 3, 2021

2210_rns_2021-11-03_6c84e110-6543-4347-8e1f-b4a132d40361.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

vodafone

  1. nóvember 2021

Fréttatilkynning: Afkoma Sýnar hf. á fyrstu níu mánuðum ársins 2021.

Jákvæð afkoma og nýjar tekjustoðir

Árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2021 var samþykktur á stjórnarfundi þann 3. nóvember 2021.

Helstu niðurstöður:

  • Tekjur á þriðja ársfjórðungi (3F) 2021 námu 5.533 m.kr. en tekjur hækka um 471 m.kr. frá sama tímabili árið 2020. Tekjur á fyrstu níu mánuðum ársins (9M) voru 15.822 m.kr. sem er 2,2% aukning frá sama tímabili árið 2020.
  • EBITDA nam 1.886 m.kr. á 3F 2021 samanborið við 1.593 m.kr. á 3F 2020. EBITDA hlutfallið var 34,1% á 3F 2021 samanborið við 31,5% á 3F 2020. EBITDA á fyrstu níu mánuðum ársins var 4.762 m.kr. sem er 10,4% hækkun frá 9M 2020.
  • Hagnaður á þriðja ársfjórðungi 2021 nam 172 m.kr. samanborið við 8 m.kr. hagnað á 3F 2020. Tap á fyrstu níu mánuðum ársins 2021 nam 176 m.kr. samanborið við 402 m.kr. tap á 9M 2020. Inni í tapi á 9M 2021 er sölutap að fjárhæð 179 m.kr. vegna sölu á færeyska hlutdeildarfélaginu Hey.
  • Handbært fé frá rekstri á fjórðungnum nam 1.756 m.kr. samanborið við 1.055 m.kr. á 3F 2020, sem er hækkun um 66,4%. Handbært fé frá rekstri á fyrstu níu mánuðum ársins 2021 nam 3.730 m.kr. samanborið við 3.855 m.kr. á 9M 2020, sem er lækkun um 3,2%.
  • Heildarfjárfestingar á fyrstu níu mánuðum ársins 2021 námu 1.687 m.kr. þar af voru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 911 m.kr. og fjárfesting í sýningarréttum 1.826 m.kr. Greiðsla vegna sölu á eignarhluta nam 1.065 m.kr. og greiðsla vegna kaupa á eignarhluta nam 15 m.kr.
  • Fjármögnunarhreyfingar á fyrstu níu mánuðum ársins 2021 voru neikvæðar um 2.439 m.kr. á móti 1.932 m.kr. á 9M 2020. Söluandvirði af Hey var notað til að greiða niður langtímatímalán og lækka lánalínur.
  • Eiginfjárhlutfall félagsins var 29,17% í lok þriðja ársfjórðungs 2021.
  • Þann 31. mars síðastliðinn var skrifað undir samninga um sölu á óvirkum farsímainnviðum félagsins. Enn er beðið eftir niðurstöðu eftirlitsaðila vegna sölunnar. Söluverði mun verða ráðstafað til lækkunar á lánum, endurkaupa á hlutabréfum og í nýfjárfestingar.

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

K

O

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

^{}[]

Helstu niðurstöður úr rekstri á fyrstu níu mánuðum ársins 2021

3F 2021 3F 2020 % br. 9M 2021 9M 2020 % br.
Seldar vörur og þjónusta 5.533 5.062 9,3% 15.822 15.480 2,2%
Kostnaðarverð -3.654 -3.435 6,4% -10.788 -10.573 2,0%
Framlegð 1.879 1.627 15,5% 5.034 4.907 2,6%
Rekstrarkostnaður -1.457 -1.485 -1,9% -4.628 -4.722 -2,0%
EBITDA 1.886 1.593 18,4% 4.762 4.312 10,4%
EBIT 422 142 - 406 185 -
Hrein fjármagnsgjöld -211 -169 - -421 -792 -
Áhrif hlutdeildarfélaga - 23 - -173 71 -
Tekjuskattur -39 12 - 12 134 -
Hagnaður (tap) tímabilsins 172 8 - -176 -402 -
Framlegð 34,0% 32,1% 31,8% 31,7%
EBITDA 34,1% 31,5% 30,1% 27,9%
EBIT 7,6% 2,8% 2,6% 1,2%

Fjárhæðir eru í milljónum króna

Heiðar Guðjónsson, forstjóri:

„Við sýnum áfram mikinn bata í rekstri og sá viðsnúningur sem hófst fyrir ári síðan heldur áfram. Þrátt fyrir ýmsar ytri áskoranir, sem flestar eru enn til staðar, þá er rekstur okkar orðinn arðbær og væntingar eru um enn frekari árangur. Það er ánægjulegt að báðar tekjustoðirnar, fjarskipti og fjölmiðlar sýna aukningu tekna á síðasta fjörðungi.

Ég hef áður talað um möguleika fyrirtækisins á að fjölga tekjustoðum. Við erum með um helming allra heimila og fyrirtækja í föstu mánaðarlegu reikningssambandi og viljum útvikka þjónustuframboð til okkar viðskiptavina. Þetta er í takt við stefnumótun fyrirtækisins sem við kynntum fyrir tveimur árum.

Stærsta fjárfesting okkar síðustu tvö ár hefur verið í upplýsingakerfunum. Nú eru innri kerfin okkar að verða í stakk búin að halda utan um nýjar þjónustur með skilvirkum hætti. Við erum því ánægð að kynna nýja starfsemi en það er færsluhirðing fyrir fyrirtæki. Við sjáum strax að okkar viðskiptavinir taka innkomu nýs aðila inn á markaðinn fagnandi.

Við bíðum enn niðurstöðu eftirlitsaðila vegna sölu á óvirkum farsímainnviðum.“

Rekstrarafkoma 3F 2021:

Tekjur félagsins á 3F 2021 námu 5.533 m.kr. samanborið við 5.062 m.kr. á 3F 2020.

Tekjur af fjölmiðlun námu 2.124 m.kr. á 3F 2021 og hækkuðu um 164 m.kr. miðað við 3F 2020. Tekjur af interneti námu 1.105 m.kr. á 3F 2021 samanborið við 1.134 m.kr. á 3F 2020. Tekjur af farsíma námu 1.252 m.kr. og hækkuðu um 323 m.kr. miðað við 3F 2020. Tekjur af fastlínu námu 133 m.kr. á 3F 2021 og lækkuðu um 8% á milli tímabila. Tekjur af hýsingar- og rekstrarlausnum (kjarnastarfsemi Endor ehf.) námu 410 m.kr. á 3F 2021 samanborið við 443 m.kr. á 3F 2020, en það er lækkun um 7%. Tekjulækkunin skýrist af hliðrun tekna en stór

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

K

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

innleiðingarverkefni hafa frestast. Tekjur af vörusölu námu 292 m.kr. á tímabilinu sem er 15% hæk kun miðað við 3F 2020. Aðrar tekjur námu 217 m.kr. á 3F 2021 sem er 10% hæk kun frá 3F 2020.

Kostnaðarverð nam 3.654 m.kr. á tímabilinu samanborið við 3.435 m.kr. á 3F 2020. Rekstrarkostnaður nam 1.457 m.kr. og er 1,9% lægri en á 3F 2020. EBITDA tímabilisins nam 1.886 m.kr. og hækkar um 293 m.kr. samanborið við 3F 2020. EBITDA hlutfall á 3F 2021 var 34,1% samanborið við 31,5% á 3F 2020.

Hrein fjármagnsgjöld námu 211 m.kr. á 3F 2021 sem er hæk kun um 42 m.kr. á milli tímabila. Gengismunur var neikvæður um 70 m.kr. á 3F 2021 samanborið við gengistap upp á 17 m.kr á 3F 2020. Vextir af langtímaskuldum á 3F 2021 lækka um 12 m.kr. miðað við 3F 2020.

Hagnaður á 3F 2021 nam 172 m.kr. samanborið við 8 m.kr. hagnað á 3F 2020.

Sjóðstreymi 3F 2021:

Handbært fé frá rekstri á 3F ársins 2021 var 1.756 m.kr. sem er hæk kun um 701 m.kr. miðað við 3F 2020.

Fjárfestingahreyfingar voru neikvæðar um 1.043 m.kr. á 3F 2021.

Fjármögnunarhreyfingar félagsins voru neikvæðar um 691 m.kr. á 3F 2021.

Handbært fé í lok 3F 2021 nam 430 m.kr. sem er hæk kun um 217 m.kr. miðað við 3F 2020.

img-0.jpeg

Rekstrarafkoma 9M 2021:

Tekjur félagsins á fyrstu níu mánuðum ársins 2021 námu 15.822 m.kr. samanborið við 15.480 m.kr. á 9M 2020.

Tekjur af fjölmiðlun námu 6.194 m.kr. á 9M 2021 og hækkuðu um 7% á milli ára. Tekjur af interneti námu 3.366 m.kr. á tímabilinu, sem er læk kun um 2% miðað við 9M 2020. Tekjur af farsíma námu 3.252 m.kr. og eru 578 m.kr. hærri en á 9M 2020. Tekjur af fastlínu námu 407 m.kr. á tímabilinu og lækkuðu um 13% miðað við 9M 2020. Tekjur af hýsingar- og rekstrarlausnum námu 1.075 m.kr. á 9M 2021 og lækkuðu um 39% á milli ára. Tekjur af vörusölu námu 896 m.kr. á tímabilinu sem er 23% hæk kun miðað við 9M 2020. Aðrar tekjur námu 632 m.kr. á 9M 2021 og hækkuðu um 4% á milli ára.

Kostnaðarverð nam 10.788 m.kr. á tímabilinu en það er 215 m.kr. hæk kun miðað við 9M 2020. Rekstrarkostnaður nam 4.628 m.kr. á 9M 2021 samanborið við 4.722 m.kr. á 9M 2020. EBITDA fyrir 9M 2021 nam 4.762 m.kr. og hækkar um 10,4% miðað við 9M 2020. EBITDA hlutfall var 30,1% á tímabilinu samanborið við 27,9% á 9M 2020.

Hrein fjármagnsgjöld námu 421 m.kr. á 9M 2021 sem er læk kun um 371 m.kr. á milli tímabila. Gengismunur var neikvæður á 9M 2021 að fjárhæð 2 m.kr. samanborið við neikvæðan gengismun að fjárhæð 259 m.kr. á 9M 2020. Vaxtagjöld af langtímaskuldum lækká á milli samanburðartímabila vegna breytinga á vöxtum langtímalána.

Tap á 9M 2021 nam 176 m.kr. samanborið við 402 m.kr. tap á 9M 2020. Inni í tapi 9M 2021 er 179 m.kr. sólutap vegna sölu á færeyska hlutdeildarfélaginu Hey.

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

K

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

^{}[]

Sjóðstreymi 9M 2021:

Handbært fé frá rekstri á fyrstu níu mánuðum ársins 2021 var 3.730 m.kr.

Fjárfestingahreyfingar námu 1.687 m.kr. á tímabilinu samanborið við 2.345 m.kr. á 9M 2020. Innifalið í fjárfestingahreyfingum árið 2021 er 1.065 m.kr. vegna sölu á eignarhluta í hlutdeildarfélaginu Hey.

Fjármögnunarhreyfingar félagsins námu 2.439 m.kr. á 9M 2021.

Handbært fé í lok 9M 2021 nam 430 m.kr. sem er hækkun um 217 m.kr. miðað við 9M 2020.

img-1.jpeg

Efnahagur 30. september 2021:

Eigið fé í lok 3F 2021 nam 8.275 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 29,17%. Útgefið hlutafé í lok tímabilsins nam 2.964 m.kr.

Heildarskuldir félagsins voru 20.098 m.kr. í lok 3F 2021. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 13.699 m.kr. í lok tímabilsins. Veltufjárhlutfall var 1,06.

Kynningarfundur 4. nóvember 2021:

  • Fjárfestafundur verður haldinn fimmtudaginn 4. nóvember og verður hann einungis sendur út rafrænt frá og með kl. 08:30 á eftirfarandi vefslóð: https://syn.is/fjarfestatengsl.
  • Kynningarfni fundarins er hægt að nálgast á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Fjárhagsdagatal 2021:

✓ Afkoma 4F og ársuppgjör 2021 16. febrúar 2022
✓ Aðalfundur 2021 18. mars 2022

Frekari upplýsingar:

✓ Tekið er á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjá[email protected].

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

SPORT

X

O

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is