AI assistant
Syn — Interim / Quarterly Report 2018
Nov 7, 2018
2210_rns_2018-11-07_53e10d76-16ae-4153-bc50-11665f7495f1.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Sýn hf.
Samandreginn árshlutareikningur
samstæðunnar
- janúar til 30. september 2018
Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2018
Efnisyfirlit
| Bls. | |
|---|---|
| Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra | 3 |
| Fjárhagslegar lykiltölur | 4 |
| Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu | 5 |
| Efnahagsreikningur | 6 |
| Eiginfjáryfirlit | 7 |
| Sjóðstreymisyflit | 8 |
| Skýringar við samandreginn árshlutareikning | 9 |
| Ársfjórðungsyflit | 15 |
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Sýn hf. er alhliða félag á sviði fjarskipta- og fjölmiðlastarfsemi. Félagið rekur marga af öflugustu fjölmiðlum landsins eins og Stöð 2, Bylgjuna, Visi, FM957, Xið og fleiri landsþekkta miðla. Félagið veitir einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og opinberum aðilum alhliða fjarskiptabjónustu undir vörumerkjum Vodafone á Íslandi. Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims.
Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samandreginn samstæðureikning Sýnar hf. og dótturfélaga þess, P/F Hey í Færeyjum (áður P/F Kall), Ljósløðarafélagsins ehf. og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf. Árshlutareikningur samstæðunnar 1. janúar til 30. september 2018 hefur hvorki verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.
Félagið keypti rekstrarhluta og tilgreindar eignir 365 miðla hf. og tók við rekstri 1. desember 2017 og gætir áhrifa þess á samanburð fjárhæða á milli ára. Þriðji fjörðungur eins og fyrri tveir fjörðungar ársins var litaður af samþættingunni, félagið gaf út afkomuviðvörun 1. nóvember þar sem horfur um EBITDA afkomu félagsins fyrir 2018 voru færðar niður í 3.600 m. kr. af reglulegri starfsemi. Almennt má segja að breytingar á horfum ársins séu tengdar meiri kostnaði og fjárfestingum í tengslum við sameininguna en upprunalegar áætlanir gerðu ráð fyrir auk nýtilkominnar veikingar íslensku krónunnar. Mikill árangur hefur hins vegar náðst í samþættingu á stuttum tíma sem mun skila félaginu samlegð og ábata í framtíðinni eins og að hluta til er farið að gæta í niðurstöðu þriðja fjörðungs. Samlegð er á áætlun en kostnaður við samrunaverkefni og álag innan fyrirtækisins er meira en búist var við, jafnframt hefur sameining félagsins einnig reynst fjárfestingarfrekari en búist var við. Vegna flutninga og fjárfestingar í tengslum við myndver félagsins sem mun eiga sér stað nú um áramótin er ljóst að hækka verður fjárfestingarhorfur ársins sem hlutfall af veltu í um 11%, en félagið hafði áður lýst því yfir að það yrði við efri mörk útgefinna horfa eða 10%
Rekstur og fjárhagsleg staða 1. janúar til 30. september 2018
Samkvæmt rekstrarreikningi námu tekjur samstæðunnar af seldum vörum og þjónustu 16.197 millj. kr. (9.964 millj. kr. 1.1 til 30.9.2017). Hagnaður af rekstri samstæðunnar á tímabilinu nam 278 millj. kr. (730 millj. kr. 1.1 til 30.9.2017). Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 26.506 millj. kr. (25.376 millj. kr. 31.12.2017). Eigið fé samstæðunnar þann 30. september 2018 nam 10.457 millj. kr. (10.131 millj. kr. 31.12.2017). Þar af nam hlutafé 2.964 millj. kr. (2.964 millj. kr. 31.12.2017). Eiginfjárhlutfallið 30. september 2018 var 39,5% (39,9% 31.12.2017).
Á aðalfundi félagsins þann 22. mars 2018 var sambykkt arðgreiðslustefna fyrir félagið. Stefnt er að því að greiða hluthófum arð og/eða framkvæma endurkaup eigin hluta sem nemur 30-60% af hagnaði eftir skatta í samræmi við gildandi lög og reglur hverju sinni. Við mótun tillagna um arðgreiðslu og/eða kaup á eigin hlutum skal stjórn taka tillit til; markmiða fjárstýringastefnu félagsins, markaðsaðstæðna og fjárfestingarparfar félagsins.
Yfirlýsing
Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga IAS 34 eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu samstæðunnar 30. september 2018 ásamt rekstrarafkomu hennar og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. september 2018.
Stjórn og forstjóri Sýnar hf. hafa í dag fjallað um samandreginn samstæðúárshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2018 og staðfesta hann með undirritun sinni.
Reykjavík, 7. nóvember 2018
Í Stjórn
Heiðar Guðjónsson
Anna Guðný Aradóttir
Hildur Dungal
Hjörleifur Pálsson
Yngvi Halldórsson
Forstjóri
Stefán Sigurðsson
Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2018
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Fjárhagslegar lykiltölur
| 2018 3F | 2017 3F | 2018 9M | 2017 9M | |
|---|---|---|---|---|
| Fjárhagsupplýsingar | ||||
| Heildartekjur | 5.449 | 3.437 | 16.197 | 9.964 |
| Rekstrarhagnaður | 497 | 458 | 902 | 1.177 |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 284 | 362 | 352 | 912 |
| Hagnaður tímabilsins | 226 | 290 | 278 | 730 |
| Hagnaður á hlut | 0,76 | 1,10 | 0,94 | 2,80 |
| Fjárfestingar | 512 | 368 | 1.857 | 1.229 |
| Handbært fé frá rekstri | 519 | 858 | 1.303 | 1.544 |
| Frammistöðumat | ||||
| EBITDA tímabilsins | 1.032 | 854 | 2.468 | 2.334 |
| EBITDA hlutfall tímabilsins | 18,9% | 24,8% | 15,2% | 23,4% |
| Frjálst fjárflæði (FCF)* | 157 | 563 | (61) | 565 |
| Nettó vaxtaberandi skuldir | 11.574 | 5.013 | 11.574 | 5.013 |
| Nettó vaxtaberandi skuldir/EBITDA ** | 3,5 | 1,7 | 3,5 | 1,7 |
- Frjálst fjárflæði samanstendur af handbæru fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt að frádregnum fjárfestingahreyfingum. Kaup á rekstri og eignum er undanskilin þar sem hún tengist ekki endurfjárfestingapörf samstæðunnar
** EBITDA síðastliðinna 12 mánaða
Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2018
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Rekstrarreikningur
- janúar til 30. september 2018
| Skýr. | 2018 3F | 2017 3F | 2018 9M | 2017 9M | |
|---|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur og þjónusta | 7 | 5.449 | 3.437 | 16.197 | 9.964 |
| Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu | 8 | (3.311) | (1.887) | (9.872) | (5.458) |
| Framlegð | 2.138 | 1.550 | 6.325 | 4.506 | |
| Rekstrarkostnaður | 9 | (1.641) | (1.092) | (5.423) | (3.329) |
| Rekstrarhagnaður | 497 | 458 | 902 | 1.177 | |
| Fjármunatekjur | 13 | 12 | 43 | 41 | |
| Fjármagnsgjöld | (226) | (108) | (593) | (306) | |
| Hrein fjármagnsgjöld | (213) | (96) | (550) | (265) | |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 284 | 362 | 352 | 912 | |
| Tekjuskattur | (58) | (72) | (74) | (182) | |
| Hagnaður tímabilsins | 226 | 290 | 278 | 730 | |
| Hagnaður á hlut | 0,76 | 1,10 | 0,94 | 2,80 | |
| Þynntur hagnaður á hlut | 0,76 | 1,10 | 0,94 | 2,80 |
Yfirlit um heildarafkomu
- janúar til 30. september 2018
| Skýr. | 2018 3F | 2017 3F | 2018 9M | 2017 9M | |
|---|---|---|---|---|---|
| Hagnaður tímabilsins | 226 | 290 | 278 | 730 | |
| Líðir sem gætu síðar verið færðir um rekstrarreikning | |||||
| Þýðingarmunur vegna starfsemi erlands dótturfélags | 28 | 35 | 20 | 28 | |
| Áhættuvarnir | (1) | 17 | 28 | (8) | |
| Heildarafkoma tímabilsins | 253 | 342 | 326 | 750 |
Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2018
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Efnahagsreikningur
- september 2018
| Skýr. | 30.9.2018 | 31.12.2017 | |
|---|---|---|---|
| Fastafjármunir | |||
| Rekstrarfjármunir | 5.204 | 4.902 | |
| Óefnislegar eignir | 15.529 | 15.485 | |
| Eignahlutur í hlutdeildar- og öðrum félögum | 39 | 16 | |
| Fastafjármunir samtals | 20.772 | 20.403 | |
| Veltufjármunir | |||
| Birgðir | 10 | 1.931 | 1.510 |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 3.532 | 3.146 | |
| Handbært fé | 271 | 317 | |
| Veltufjármunir samtals | 5.734 | 4.973 | |
| Eignir samtals | 26.506 | 25.376 | |
| Eigið fé | |||
| Hlutafé | 2.964 | 2.964 | |
| Yfirverðsreikningur hlutafjár | 2.465 | 2.465 | |
| Annað eigið fé | 31 | (17) | |
| Óráðstafað eigið fé | 4.997 | 4.719 | |
| Eigið fé | 10.457 | 10.131 | |
| Langtímaskuldir | |||
| Vaxtaberandi skuldir | 10.990 | 10.732 | |
| Tekjuskattsskuldbinding | 263 | 193 | |
| Langtímaskuldir samtals | 11.253 | 10.925 | |
| Skammtima skuldir | |||
| Vaxtaberandi skuldir | 855 | 618 | |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 3.941 | 3.702 | |
| Skammtímaskuldir samtals | 4.796 | 4.320 | |
| Skuldir samtals | 16.049 | 15.245 | |
| Eigið fé og skuldir samtals | 26.506 | 25.376 |
Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2018
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Eiginfjáryfirlit
- janúar til 30. september 2018
| Hlutafé | Yfirverðs-reikningur hlutafjár | Þýðingar-munur | Annað eigið fé | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Bundinn reikningur | Áhættu-varnir | Óráðstafað eigið fé | Eigið fé samtals | ||||
| 1.1. til 30.09.2017 | |||||||
| Eigið fé 1.1.2017 | 2.640 | 678 | 33 | 53 | (84) | 3.667 | 6.987 |
| Hagnaður tímabilsins | - | - | - | - | - | 730 | 730 |
| Þýðingarmunur dótturf. | - | - | 28 | - | - | - | 28 |
| Áhættuvarnir | - | - | - | - | (8) | - | (8) |
| Heildarafkoma tímabilsins | 0 | 0 | 28 | 0 | (8) | 730 | 750 |
| Eigið fé 30.9.2017 | 2.640 | 678 | 61 | 53 | (92) | 4.397 | 7.737 |
| 1.1. til 30.9.2018 | |||||||
| Eigið fé 1.1.2018 | 2.964 | 2.465 | 64 | 87 | (169) | 4.719 | 10.131 |
| Hagnaður tímabilsins | - | - | - | - | - | 278 | 278 |
| Þýðingarmunur dótturf. | - | - | 20 | - | - | - | 20 |
| Áhættuvarnir | - | - | - | - | 28 | - | 28 |
| Heildarafkoma tímabilsins | 0 | 0 | 20 | 0 | 28 | 278 | 326 |
| Eigið fé 30.09.2018 | 2.964 | 2.465 | 84 | 87 | (141) | 4.997 | 10.457 |
Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2018
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Sjóðstreymisyfirlit
- janúar til 30. september 2018
| | 2018
3F | 2017
3F | 2018
9M | 2017
9M |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Hagnaður (tap) tímabilisins samkvæmt rekstrarreikningi | 226 | 290 | 278 | 730 |
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | | | | |
| Afskriftir | 535 | 395 | 1.566 | 1.157 |
| Hrein fjármagnsgjöld | 213 | 96 | 550 | 265 |
| Tekjuskattur | 58 | 72 | 74 | 182 |
| Veltufé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | 1.031 | 853 | 2.468 | 2.334 |
| Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum: | | | | |
| Birgðir, breyting | (3) | 36 | (421) | (31) |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, breyting | (29) | (15) | (421) | (508) |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, breyting | (321) | 30 | 57 | (71) |
| Fyrirframinnheimtar tekjur, breyting | (9) | 27 | 113 | 70 |
| Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | 669 | 931 | 1.796 | 1.794 |
| Innborgaðar vaxtatekjur | 12 | 12 | 42 | 35 |
| Greidd vaxtagjöld | (162) | (85) | (535) | (285) |
| Handbært fé frá rekstri | 519 | 858 | 1.303 | 1.544 |
| Fjárfestingahreyfingar | | | | |
| Kaup á rekstri og eignum | (4) | 0 | (35) | 0 |
| Fjárfesting í rekstrarfjármunum | (411) | (261) | (1.250) | (850) |
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | (101) | (107) | (607) | (379) |
| Fjárfestingahreyfingar | (516) | (368) | (1.892) | (1.229) |
| Fjármögnunarhreyfingar | | | | |
| Áhættuvarnir | 0 | 0 | 40 | 18 |
| Áfborganir langtímalána | (145) | (95) | (393) | (313) |
| Rekstrarlán | 95 | (335) | 894 | 0 |
| Fjármögnunarhreyfingar | (50) | (430) | 541 | (295) |
| Breyting á handbæru fé | (47) | 60 | (48) | 20 |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | 1 | (1) | 2 | (3) |
| Handbært fé í byrjun tímabils | 317 | 326 | 317 | 368 |
| Handbært fé í lok tímabilsins | 271 | 385 | 271 | 385 |
Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2018
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skýringar
1. Félagið
Sýn hf. ("félagið") er íslensk hlutafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík. Meginstarfsemi félagsins er á sviði fjarskipta - og fjölmiðlunar. Samandreginn samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir tímabilið 1. janúar - 30. september 2018 hefur að geyma árshlutareikning félagsins og dótturfélaga þess, P/F Hey í Færeyjum (áður P/F Kall), Ljósleiðarafélagsins ehf. og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf., sem vísað er til í heild sem „samstæðunnar“.
2. Grundvöllur reikningsskilanna
Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alpjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu. Árshlutareikningur samstæðunnar 1. janúar til 30. september 2018 hefur hvorki verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.
Árshlutareikningurinn er gerður eftir sömu reikningsskilareglum og lágu til grundvallar við gerð ársreikningsins 2017, að því undanskildu að tveir nýir reikningsskilastaðlar tóku gildi 1. janúar 2018 IFRS 9 og IFRS 15, sjá nánar umfjöllun í skýringu 4. Hann inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2017. Hægt er að nálgast ársreikning Sýnar hf. á heimasiðu félagsins www.syn.is. og á vef Kauphallar Íslands; www.nasdaqomxnordic.com.
Stjórn félagsins staðfesti og heimilaði birtingu árshlutareikningsins þann 7. nóvember 2018.
3. Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill
Árshlutareikningur samstæðunnar er birtur í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill samstæðunnar. Allar fjárhæðir eru birtur í milljónum króna nema annað sé tekið fram.
4. Mat stjórnenda í reikningsskilum
Gerð samstæðuárshlutareiknings í samræmi við alpjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og dragi ályktanir sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaðferða og birtur fjárhæðir eigna og skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrúðnar þessu mati.
Tveir nýir reikningsskilastaðlar, IFRS 9 Fjármálagerningar og IFRS 15 Tekjur af samningum við viðskiptavini tóku gildi í ársbyrjun 2018. Í janúar 2019 mun nýr staðall IFRS 16 Leigusamningar taka gildi og er vinna við að meta fjárhagsleg áhrif hans hafin.
a. IFRS 9
IFRS 9 leysir af hólmi IAS 39 og fjallar um reikningshaldslega meðferð fjármálagerninga og tilgreinir kröfur um skráningu og mat, virðisrýrnun, afskráningu og almenn áhættuvarnarreikningsskil. Áhrifa staðalsins í reikningsskilum samstæðunnar gætir aðeins á niðurfærslu fjáreigna vegna nýrra reglna um mat á virðisrýrnun. Þau áhrif eru hinsvegar óveruleg.
b. IFRS 15
IFRS 15 leysir af hólmi IAS 18, IAS 11 og tengdar túlkanir og inniheldur nýjar reglur um skráningu tekna og auknar kröfur um upplýsingagjóf varðandi tekjuskráningu. Samkvæmt staðlinum skal skrá tekjur þegar yfirráð yfir hinu selda hafa verið flutt til kaupandans, í stað áhættu og ávinnings sem fyrri reglur horfðu til. Í staðlinum er sett fram fimm þrepa likan til leiðbeiningar.
Tekjur af fjarskiptabjónustu og sjónvarpsáskriftum eru skráðar í samræmi við mánaðarleg uppgjör vegna notkunar eða miðað við fast gjald. Auglýsingatekjur eru færðar við birtingu auglýsinga. Tekjur af vörusölu eru færðar við afhendingu vöru er yfirráð flytjast til viðskiptavinar. Áhrif staðalsins á tekjuskráningu í reikningsskilum samstæðunnar eru óveruleg.
c. Ákvörðun gangvirðis
Hluti af reikningsskilaðferðum og skýringum samstæðunnar krefjast ákvörðunar á gangvirði, bæði vegna fjármálagerninga og annarra eigna og skulda.
Að svo miklu leyti sem hægt er, notar samstæðan markaðupplýsingar við ákvörðun gangvirðis en liggi slíkar upplýsingar ekki fyrir er byggt á mati stjórnenda. Ef upplýsingar frá þriðja aðila, líkt og verð frá miðlurum eða verðmatsbjónustu, eru notaðar við ákvörðun gangvirðis þá nýta stjórnendur upplýsingarnar til að styðja þá niðurstöðu að matið uppfylli kröfur um alpjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS), þar á meðal það stig sem slíkt mat myndi falla undir. Það er mat stjórnenda að bókfærð virði fjármálagerninga endurspegli gangvirði þeir.
Gangvirðið er flokkað í þrjú stig eftir forsendum sem notaðar eru við matið:
- Stig eitt byggir á skráðu verði á virkum markaðí fyrir samskonar eignir og skuldir.
- Stig tvö byggir á beinum eða óbeinum markaðsforsendum sem eru aðrar en skráð verð á virkum markaðí sem flokkast undir stig eitt.
- Stig þrjú byggir á forsendum og gögnum sem ekki er unnt að afla á markaðí.
Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2018
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skýringar, frh.:
- Meðferð vaxtaskiptasamnings
Afleiðusamningar eru gerðir til að stýra áhættu félagsins gagnvart vaxtaáhættu, þ.e. vaxtaskiptasamningur. Afleiður eru færðar á gangvirði. Almenna reglan er að óinnleystur hagnaður eða tap er fært í rekstrarreikning. Hins vegar þegar afleiða er skilgreind og virk sem áhættuvörn er afkoman færð eftir áhættuvarnarsambandinu sem afleiðan tilheyrir. Félagið hefur skilgreint vaxtaskiptasamninginn sem áhættuvörn vegna undirliggjandi skulda. Afleiðusamningar eru flokkaðir á meðal langtimaeigna eða langtímaskulda ef meira en 12 mánuðir eru til lokagjalddaga samningsins og ekki er gert ráð fyrir að hann verði gerður upp innan 12 mánaða. Aðrir afleiðusamningar eru flokkaðir á meðal veltufjármuna eða skammtímaskulda eftir því sem við á.
a. Áhættuvarnareikningsskil
Félagið skilgreindi í fyrsta skipti á þriðja ársfjörðungi 2016 afleiðusamning sem áhættuvarnargerning vegna sjóðstreymisvarnar. Á upphafsdegi áhættuvarnarsambandsins, skjalaði félagið sambandið á milli áhættuvarnargerningsins og áhættuvarða liðarins ásamt markmiðum áhættuvarnarstýringar og stefnu félagsins varðandi áhættuvarnir. Á hverjum reikningsskiladegi metur félagið skilvirkni áhættuvarnarsambandsins í samræmi við leiðbeiningar IFRS 9.
b. Sjóðstreymisvarnir
Skilvirki hluti gangvirðisbreytinga á afleiðum sem standast kröfur um sjóðstreymisvarnir og eru skilgreindar sem slíkar er færður í yfirlit um aðra heildarafkomu með mótfærslu á áættuvarnir á meðal eigin fjár. Hagnaður eða tap vegna óskilvirkni í áhættuvarnarsambandi er færður í rekstrarreikning undir liðnum fjármagnsgjöld. Uppsöfnuð staða á eigin fé sem áður hefur verið færð um aðra heildarafkomu er endurflokkuð um rekstrarreikning þegar hagnaður eða tap vegna áhættuvarða liðarins er færður, uppsafnaða staða á eigin fé er færð í sömu líni rekstrarreiknings.
Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2018
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skýringar, frh.:
6. Starfsbáttaryfirlit
Rekstrarstarfsbættir
Starfsbáttaauplýsingar eru birtar eftir eðli rekstrar og byggja á skipulagi og innri upplýsingagjöf samstæðunnar.
Samstæðan skiptist í sex starfsbætti sem selja vörur og þjónustu á mismunandi mörkuðum. Starfsbættirnir eru:
Fjölmiðlun samanstendur af tekjum af starfsemi ljósvakamiðla, áskriftartekjum og tekjum af auglýsingasölu, tekjum af dreifingu á báðum sjónvarpsdreifikerfum Vodafone, leigutekjum af myndlyklum og tekjum af leigu einstakra kvikmynda og þátta (TVOD), tekjum af áskriftaveitu Vodafone (SVOD), tekjum af áskriftum að línulegum stöðvum og tekjum af sölu einstaka sjónvarpsviðburða.
Internet samanstendur af tekjum af netþjónustu í fastlínukerfum, þ.m.t. á ljósleiðara, xDSL þjónustu og öðrum gagnatengingum.
Farsimi samanstendur af öllum tekjum vegna notkunar á farsímum, þ.m.t. gagnaflutningum í farsímakerfinu, áskriftartekjum frá einstaklingum og fyrirtækjum, seldum frelsisinneignum, reikitekjum frá ferðamönnum og samtengitekjum í farsíma.
Fastlína samanstendur af tekjum vegna notkunar á heimasíma, fyrirtækjasíma í fastlínu og samtengitekjum í fastlínu.
Vörusala samanstendur af sölu á fjarskiptabúnaði og fylgihlutum.
Aðrar tekjur samanstanda af þjónustutekjum og leigu á endabúnaði.
| Rekstrarstarfsbættir | Fjöl-miðlun | Internet | Farsimi | Fastlína | Aðrar Vörusala | tekjur | Jöfnunar-færslur | Samtals |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1.1. til 30.09.2018 | ||||||||
| Tekjur frá þriðja aðila | 6.518 | 3.678 | 3.416 | 871 | 937 | 777 | - | 16.197 |
| Innri tekjur | - | - | (1) | 15 | - | 46 | (59) | 0 |
| Tekjur samtals | 6.518 | 3.678 | 3.415 | 886 | 937 | 823 | (59) | 16.197 |
| Óskipt rekstrargjöld | (13.729) | |||||||
| --- | --- | |||||||
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatt (EBITDA) | 2.468 | |||||||
| Afskriftir | (1.566) | |||||||
| Hrein fjármagnsgjöld | (550) | |||||||
| Tekjuskattur | (74) | |||||||
| Hagnaður tímabilsins | 278 | |||||||
| Þýðingarmunur vegna starfsemi erlands dótturfélags | 20 | |||||||
| Áhættúvarnir | 28 | |||||||
| Heildarafkoma tímabilsins | 326 | |||||||
| Óskiptar eignir 30.9.2018 | 26.506 | |||||||
| Óskiptar skuldir 30.9.2018 | 16.049 | |||||||
| Fjárfestingar tímabilsins 1.1.2018 til 30.9.2018 | 1.857 |
Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2018
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skýringar, frh.:
6. Starfsbáttaryfirlit
| Rekstrarstarfsbættir | Fjöl-miölun | Internet | Farsimi | Fastlina | Vörusala | Aðrar tekjur | Jöfnunar-færslur | Samtals |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1.1. til 30.09.2017 | ||||||||
| Tekjur frá þriðja aðila | 1.585 | 2.882 | 3.115 | 901 | 918 | 563 | 0 | 9.964 |
| Innri tekjur | - | - | - | 17 | 1 | 27 | (45) | 0 |
| Tekjur samtals | 1.585 | 2.882 | 3.115 | 918 | 919 | 590 | (45) | 9.964 |
| Óskipt rekstrargjöld | ( 7.630) | |||||||
| --- | --- | |||||||
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatt (EBITDA) | 2.334 | |||||||
| Afskriftir | ( 1.157) | |||||||
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 265) | |||||||
| Tekjuskattur | ( 182) | |||||||
| Hagnaður tímabilsins | 730 | |||||||
| Þýðingarmunur vegna starfsemi erlands dótturfélags | 28 | |||||||
| Áhættuvarnir | ( 8) | |||||||
| Heildarafkoma tímabilsins | 750 | |||||||
| Óskiptar eignir 31.12.2017 | 25.376 | |||||||
| Óskiptar skuldir 31.12.2017 | 15.245 | |||||||
| Fjárfestingar tímabilsins 1.1.2017 til 30.9.2017 | 1.229 |
Landsvæðaskipting
Tekjur samstæðunnar greinast þannig eftir landsvæðum:
| 1.1. til 30.9.2018 | Ísland | Færeyjar | Samtals |
|---|---|---|---|
| Tekjur frá þriðja aðila á tímabilinu | 15.271 | 926 | 16.197 |
| EBITDA á tímabilinu | 2.327 | 142 | 2.468 |
| Eignir starfsbátta í lok tímabilsins | 25.506 | 1.001 | 26.506 |
| Fjárfestingar tímabilsins | 1.708 | 149 | 1.857 |
1.1. til 30.9.2017
| Tekjur frá þriðja aðila á tímabilinu | 9.040 | 924 | 9.964 |
|---|---|---|---|
| EBITDA á tímabilinu | 2.229 | 105 | 2.334 |
| Eignir starfsbátta 31.12.2017 | 24.460 | 916 | 25.376 |
| Fjárfestingar tímabilsins | 1.181 | 48 | 1.229 |
Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2018
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skýringar, frh.:
- Seldar vörur og þjónusta
| Seldar vörur og þjónusta greinist pannig: | 2018 | 2017 | 2018 | 2017 |
|---|---|---|---|---|
| 3F | 3F | 9M | 9M | |
| Vörusala | 311 | 307 | 937 | 918 |
| Seld þjónusta | 5.138 | 3.130 | 15.260 | 9.046 |
| Seldar vörur og þjónusta samtals | 5.449 | 3.437 | 16.197 | 9.964 |
- Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu
| Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu greinist pannig: | 2018 | 2017 | 2018 | 2017 |
|---|---|---|---|---|
| 3F | 3F | 9M | 9M | |
| Kostnaðarverð seldrar vöru og þjónustu | 2.548 | 1.483 | 7.519 | 4.192 |
| Laun og launatengd gjöld | 492 | 159 | 1.557 | 523 |
| Afskriftir | 271 | 245 | 797 | 743 |
| Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu samtals | 3.311 | 1.887 | 9.872 | 5.458 |
- Rekstrarkostnaður
| Rekstrarkostnaður greinist pannig: | 2018 | 2017 | 2018 | 2017 |
|---|---|---|---|---|
| 3F | 3F | 9M | 9M | |
| Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður | 358 | 276 | 1.197 | 809 |
| Sölu- og markaðskostnaður | 149 | 93 | 440 | 274 |
| Laun og launatengd gjöld | 869 | 573 | 3.016 | 1.832 |
| Afskriftir | 264 | 150 | 769 | 414 |
| Rekstrarkostnaður samtals | 1.641 | 1.092 | 5.423 | 3.329 |
- Birgðir
| Birgðir greinast pannig: | 30.9.2018 | 31.12.2017 |
|---|---|---|
| Fjarskiptabúnaður til endursölu | 332 | 197 |
| Õuppsettur sendabúnaður (rekstrarvörubirgðir) | 125 | 14 |
| Dagskrárbirgðir | 1.474 | 1.299 |
| Birgðir samtals | 1.931 | 1.510 |
Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2018
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skýringar, frh.:
11. Önnur mál
Sýn hf. („félagið“) á í málarekstri við einstaklinga, önnur félög og eftirlitsstofnanir á íslenskum fjarskiptamarkaði. Félagið færir skuldbindingar og/eða kröfur vegna málareksturs þegar hægt er að meta framtiðar greiðslur og ávinning með áreiðanlegum hætti. Vegna óvissu um framtiðarpróun málarekstrar, niðurstöður dómsmála, úrskurði, áfrýjanir og sættir í málum geta niðurstöður mála leitt til viðbótar skuldbindinga og kostnaðar fyrir félagið.
Kaup Sýnar hf. á hluta af rekstri 365 ehf.
Í desember 2017 keypti félagið rekstrareiningar úr rekstri 365 ehf. Kaupverðsútdeilingu er ekki að fullu lokið, en félagið hefur tólf mánuði frá kaupdegi til að ljúka við kaupverðsútdeildingu samkvæmt IFRS 3. Þá hefur lokauppgjör vegna viðskiptana ekki farið fram.
Sýn hf. gegn Símanum hf.
Félagið hefur stefnt Símanum hf. vegna ólögmæts verðprýstings og nemur stefnufjárhæð í málinu ríflega 900 millj. kr. Siminn hf. gagnstefndi félaginu og nemur stefnufjárhæð Símans tæplega 2.500 millj. kr. Fyrir liggja skýrslur dómkvaddra matsmanna og ráðgefandi álit EFTA dómstólsins, sem Héraðdómmur Reykjavíkur óskaði eftir undir rekstri málsins. Aðalmeðferð fór fram 8. október 2018 og er dóms því að vænta innan skamms.
Síminn gegn Póst- og fjarskiptastofnun, Sýn hf. og NOVA ehf.
Síminn hf. stefndi Póst- og fjarskiptastofnun, Sýn hf. og Nova ehf. til ógildingar á ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 14/2014. Fól ákvörðunin í sér að Sýn hf. og Nova hf. er heimilt að samnýta tíðniheimildar sínar í sérstöku rekstrafélagi. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur 11. desember 2014. Síminn óskaði eftir matsgerð, sem lögð var fram 30. janúar 2018. Aðalmeðferð málsins hefur ekki verið ákveðin.
Önnur mál
Að síðustu á Sýn hf. í margháttuðum ágreiningi við Símann hf. fyrir stjórnvöldum og dómstólum vegna sjónvarpsmála. Í fyrsta lagi fékk Síminn hf. lagt á lögbann við því að félagið taki upp og miðli sjónvarpsefni Skjás Eins (nú Sjónvarp Símans) með ólinulegum hætti. Hæstiréttur staðfesti lögbannið með úrskurði sínum þann 18. október 2018.
Í öðru lagi hefur Póst- og fjarskiptastofnun tekið stjórnvaldsákvörðun þess efnis að Síminn hf. hafi brotið gegn bannákvæði fjölmiðlalaga með því að beina viðskiptum viðskiptamanna fjölmiðlaveitu sinnar (Sjónvarpi Símans) að tengdu fjarskiptafyrirtæki (Símanum hf./Mílu hf.). Var Símanum gerð 9 millj. kr. stjórnvaldssekt vegna þessa. Í kjölfarið sendi Sýn hf. Símanum kröfubréf og krafðist skaðabóta að fjárhæð röklega 1.900 millj. kr. Síminn hefur nú stefnt Póst- og fjarskiptastofnun, Sýn hf. og Gagnaveitu Reykjavíkur ehf., til ógildingar fyrnnefndrar stjórnvaldsákvörðunar. Var málið þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 9. október sl.
Í þriðja og síðasta lagi krafðist Sýn hf., þann 9. október sl., bráðabirgðaákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar vegna óhóflegrar gjaldtöku heildsölu Símans hf. fyrir aðgang Sýnar að IP TV dreifikerfi Símans hf.
Á þessum tímapunkti getur félagið ekki metið framtiðar skuldbindingar eða kröfur sem leiða af niðurstöðum ofangreinds málareksturs meðal annars vegna þess að það getur tekið langan tíma að fá niðurstöður í mál ásamt því að mál geta tekið breytingum og þróast í ólikar áttir. Vegna þessa hefur engin skuldbinding né krafa verið færð í árslutareikning félagsins.
Samandregin árslutareikningur Sýnar hf. 30. september 2018
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Årsfjörnungsyfirlit
- januar til 30. september 2018
| | 2018
1F | 2018
2F | 2018
3F | 2018
9M |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Seldar vörur og þjónusta | 5.304 | 5.444 | 5.449 | 16.197 |
| Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu | (3.197) | (3.364) | (3.311) | (9.872) |
| Framlegð | 2.107 | 2.080 | 2.138 | 6.325 |
| Rekstrarkostnaður | (1.896) | (1.886) | (1.641) | (5.423) |
| Rekstrarhagnaður | 211 | 194 | 497 | 902 |
| Fjármunatekjur | 12 | 18 | 13 | 43 |
| Fjármagnsgjöld | (151) | (216) | (226) | (593) |
| Hrein fjármagnsgjöld | (139) | (198) | (213) | (550) |
| Hagnaður (tap) fyrir tekjuskatt | 72 | (4) | 284 | 352 |
| Tekjuskattur | (16) | 0 | (58) | (74) |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | 56 | (4) | 226 | 278 |
| Þýðingarmunur vegna starfsemi erlands dótturf. | (21) | 13 | 28 | 20 |
| Áhættuvarnir | 37 | (8) | (1) | 28 |
| Heildarafkoma tímabilsins | 72 | 1 | 253 | 326 |
| EBITDA | 718 | 718 | 1.032 | 2.468 |
| EBITDA % | 13,5% | 13,2% | 18,9% | 15,2% |
| Handbært fé frá rekstri | 419 | 365 | 519 | 1.303 |
| Fjárfestingarhreyfingar | (522) | (854) | (516) | (1.892) |
| Fjármögnunarhreyfingar | 26 | 565 | (50) | 541 |
Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2018
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Ársfjörðungsyfirlit
- janúar til 31. desember 2017
| 2017 1F | 2017 2F | 2017 3F | 2017 4F | 2017 12M | |
|---|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur og bjónusta | 3.141 | 3.386 | 3.437 | 4.304 | 14.268 |
| Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu | (1.707) | (1.865) | (1.887) | (2.370) | (7.829) |
| Framlegð | 1.434 | 1.521 | 1.550 | 1.934 | 6.439 |
| Rekstrarkostnaður | (1.092) | (1.145) | (1.092) | (1.560) | (4.889) |
| Rekstrarhagnaður | 342 | 376 | 458 | 374 | 1.550 |
| Fjármunatekjur | 11 | 18 | 12 | 7 | 48 |
| Fjármagnsgjöld | (102) | (96) | (108) | (116) | (422) |
| Hrein fjármagnsgjöld | (91) | (78) | (96) | (109) | (374) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 251 | 298 | 362 | 265 | 1.176 |
| Tekjuskattur | (50) | (59) | (72) | 91 | (90) |
| Hagnaður tímabilsins | 201 | 239 | 290 | 356 | 1.086 |
| Þýðingarmunur vegna starfsemi erlands dótturf. | 8 | (15) | 35 | 3 | 31 |
| Áhættuvarnir | 7 | (32) | 17 | (77) | (85) |
| Heildarafkoma tímabilsins | 216 | 192 | 342 | 282 | 1.032 |
| EBITDA | 719 | 761 | 854 | 803 | 3.137 |
| EBITDA % | 22,9% | 22,5% | 24,8% | 18,7% | 22,0% |
| Handbært fé frá rekstri | 190 | 496 | 858 | 691 | 2.235 |
| Fjárfestingarhreyfingar | (325) | (536) | (368) | (6.628) | (7.857) |
| Fjármögnunarhreyfingar | 42 | 93 | (430) | 5.869 | 5.574 |
Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2018
Fjárhæðir eru í milljónum kr.